Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
Viðskipti
Steinb. á fiskm.
Hlutabr. Sjóvá-Alm.
Mi R fó Má Þr Mi
Bensín 92 okt.
USD/s =______ .
tonn Ml R Fo Má Þr
Gengi jensins
Ml R Fö Má Þr Mi
Kauphöliin í Tokyo
Mi
Jenið stígur
Undanfarna daga hefur slægð-
ur steinbítur selst að meðaltali á
62-88 krónur kílóið á flskmörkuð-
unum. Framboð hefur verið
nokkurt.
Hlutabréf í Sjóvá-Almennum
hf. lækkuðu í verði sl. fóstudag
þegar gengið fór úr 5,65 í 4,70.
Síðan hefur gengið haldist
óbreytt.
92 oktana bensín í Rotterdam
hefur selst á svipuðu verði síð-
ustu daga, í kringum 140 dollara
tonnið.
Á einni viku .hefur gengi jap-
anska jensins hækkaö um 1,7%.
Sölugengið var 0,6840 krónur í
gærmorgun en var 0,6728 fyrir
viku.
Mikil viöskipti með hlutabréf í
hátæknifyrirtækjum í Japan
sendi Nikkei-vísitöluna niöur í
gær um 2% í kauphöllinni í
Tokyo. -bjb
Núverandi rekstraraðilar Sveins bakara:
Áforma bakstur í
öðrum bakaríum
auka á hlutafé um 10 milljónir
Paö fór eins og sagt var í DV í gær
að Iðnlánasjóður leysti til sín fast-
eignir Sveins bakara hf. við Álfa-
bakka á nauðungaruppboöi í gær.
Iðnlánasjóður fékk eignirnar á sam-
tals 18 milljónir króna. Núverandi
rekstraraðilar Sveins bakara eru í
viðræðum við forráðamenn sjóðsins
um kaup á vélum og tækjum. Jónas
Ingi Ketilsson, stjórnarformaður
Rekstraráðs hf. sem sér um rekstur
Sveins bakara, sagðist í samtali við
DV ekki hafa aðrar vísbendingar en
að þær viðræður gengju upp.
Rekstrarráð tók yfir rekstur Sveins
bakara sl. mánudag með kaupum á
2 milljóna króna hlutafé þeirra
tveggja félaga sem stofnuð voru fyrir
gjaldþrot fyrirtækisins í haust. Að
sögn Jónasar á að auka hlutafé um
10 milljónir króna innan skamms og
áform uppi um enn meiri hlutafjár-
aukningu.
Útsölustaðir Sveins bakara eru 16
talsins og aðspurður sagði Jónas eng-
ar ákvarðanir Uggja fyrir um fækkun
eða fjölgun á þeim. „Við stefnum að
hagræðingu og sérhæfingu. Með
Jónas Ingi Ketilsson fyrir framan höfuðstöðvar Sveins bakara hf.
hagræðingu í huga munum við skoða
hvaða útsölustaðir bera sig og hveij-
ir ekki. Sérhæfing þýðir að viö mun-
um skoða alvarlega að leita eftir öðr-
DV-mynd BG
um bakaríum til að framleiða fyrir
okkur og draga þar með um bakstri
hjá okkur,“ sagði Jónas Ingi. -bjb
Lítil skinnasala í Kaupmannahöfn:
Veldur vonbrigðum
Skinnauppboðinu í Kaupmanna-
höfn lauk á þriðjudag. Alls voru 2,5
milljónir skinna seldar fyrir um 5
milljarða íslenskra króna. Þar af
seldust um 9 þúsund íslensk refa- og
minkaskinn fyrir 22 milljónir króna.
Að sögn Arvids Kro hjá Búnaðarfé-
lagi íslands er þetta mun minni sala
en reiknað hafði verið með en nær
30 þúsund íslensk skinn voru send á
uppboðið. „Þetta veldur mér von-
brigðum. Því miður hef ég enga skýr-
ingu á þessu,“ sagði Arvid.
Aðspurður sagðist hann ekki efast
um að gæði íslensku skinnanna
hefðu verið nógu góð en umfang upp-
boðsins mikið og íslensku skinnin
lítill hluti af heildinni.
Að sögn Arvids fékkst raunhæfara
verð nú fyrir skinnin en í desember
sl. Svartminkaskinn seldust á rúmar
1800 krónur að meðaltali sem er 10%
lægra en þá. Meðalverð fyrir íslensk
skinn á síðasta ári var hins vegar
um 1100 krónur þannig að íslenskir
loðdýrabændur geta vel við unað
hvað verð snertir. Vegna vetrar-
hörku á Norðurlöndum og Rússlandi
hefur skapast eftirspurn eftir loð-
dýraskinnum. -bjb
Svartminkur
— verðþróun á uppboöi í
Kaupmannahöfn —
2500 -f-----------
ícl itr/ ro ro úO ^2 £2
Ibl. Ki/ ^ (j> cr> ö> cn
skinn ^ Á *• £ g *>
& <o « -o £
DV
Olía og bensín á Rotterdam-markaði:
Búist er við verðlækkunum
Vetrarhörkur í Bandaríkjunum
hafa hækkað verð á bensíni og olíu
í Rotterdam og London um nokkra
dollara en síðustu daga hefur veröið
lækkaö á ný. Svartolía er þarna und-
anskihn en hún hefur hækkað jafnt
og þétt frá áramótum.
Á næstu vikum er því spáð að verð
lækki enn frekar. Einkum á það við
um Rotterdam-markað. Verðþróunin
fer reyndar nokkuð eftir fundi
OPEC-ríkjanna í Genf 25. mars nk.
Þar er búist við viðræðum um að
draga úr olíuframleiðslu. Fari svo
ætti verð að hækka á ný.
Únsan af gulli í London hefur lækk-
að undanfarna viku um rúm 2 pró-
sent. Á þriöjudag seldist únsan á 380
dollara. Hins vegar eru sykur og
bómull að hækka í veröi í London.
Frá því í byrjun desember sl. hefur
bómull hækkað um rúm 40 prósent.
Sykur er að nálgast það verð sem
gilti í desember, um 270 dollara tonn-
ið.
-bjb
IH xV:
Vöruverð á erlendum mörkuðuml
370
360
HN|
—
140
IOU m M
140 %
130 \js y\í/
N D J F
72 71 // '
I
1
60
N D J F
ímIjR'
290 280 270 260
J\j
V
240
,
N D J F
160.
J FI
N D
J F
DVi
Landsvirkjun
tekurlán
til 12ára
Lánssamningur var undirritað-
ur í Helsinki á þriðjudag milli
Landsvirkjunar og Norræna fjár-
festingarbankans. Lánið sem
Landsvirkjun tekur er að flárhæð
1.320 milljónir íslenskra króna á
núverandi gengi. Lánstími er um
12 ár, afborgunarlaust ftnstu 5
árin. Vextir eru 6,125% þar til í
júní 1998 en þá verður endursam-
ið um mynt og vaxtakjör.
Lánsfénu hyggst Landsvirkjun
verja til endurfjármögnunar
skammtímalána sem tekin hafa
verið í tengslum við fjárfestingar
fyrirtækisins. Norræni fiárfest-
ingarbankinn, sem Jón Sigurðs-
son mun stýra frá 11. apríl næst-
komandi, er stærsti eínstaki lán-
veitandi Landsvirkjunar með um
12% af langtímalánum fyrirtæk-
isins.
Norræni fjárfestingarbanMnn
samþykkti lán til íslands á síð-
asta ári upp á 5,2 núlijarða króna
og greiddi út lán íýTir 3,6 millj-
arða. Hlutur íslands í lánveiting-
um bankans er 9,2%.
VeltanáVerð-
bréfaþingi
minnkaði um
helming
Heildarvelta á Verðbréfaþingi
íslands var 3,2 milljarðar króna
í sl. janúarmánuði sem er að
meðaltali um 160 miiljónir króna
fyrir hvem viðsMptadag. Til
samanburðar víð janúar 1993 er
þetta nær helmingi minni velta.
Þá voru viðsMpti að meðaltali um
300 milljónir á hverjum virkum
degi.
Af þessum 3,2 railljörðum í ný-
liðnum janúarmánuöi voru viö-
sMpti með ríkisvíxla fyrir 2,7
milljarða, spariskírteini fyrir 216
milljónir, riMsbréf fyrir 210 millj-
ónir, húsbréf fyrir 115 milljónir
og hlutabréf fyrir tæpar 20 múlj-
ónir króna.
inyrri
A ráðunautafundi Búnaöarfé-
lags íslands, sem nú stendur yflr
í Bændahöllinni, var kynnt i gær
ný útgáfa af áætlanaforríti fyrir
bændur og ráöunauta. Forritið,
sem nefnist Búhagur, hefur aöal-
iega verið notað þegar bændur
sækja um lán til Stofnlánadeildar
landbúnaöarins.
Með nýrri útgáfu Búhags verð-
ur hægt að nota það sem leiðbein-
ingartæki í áætlanagerð og til
þess að vekja bóndann til um-
hugsunar um bættan rekstur.
Forritið veröur tilbúið í maí nk.
Vinnuveitendur
mótmælafast-
eignaskatti
Framkvæmdastjóm Vinnuveit-
endasambands íslands, VSÍ, hef-
ur sent írá sér ályktun þar sem
sérstökum fasteignaskatti á skrif-
stofu- og atvinnuhúsnæði er
harðlega mótmælt. Kaupstaöir,
að Selfjamarnesi, Garöabæ og
Vestmannaeyjum undanskildum,
hafa lagt þennan skatt á sam-
kvæmt hehnild í nýjum lögum
um tekjustofna sveitarfélaga.
Skattprósentan er 1,25% í flestum
kaupstöðum en 0,9% í öörum.
Framkvæmdastjóm VSÍ telur
stórfellda mismuninn eiga sér
stað með þessum skatti og nefnir
sem dæmi að bensínstöö beri
skattinn en smurstöö ekki. Þess
er farið á leit við sveitarfélögin
að þau lækki skattinn eða afhemi
hann með öllu ella færist verslun
útúrlandinu. -bjb