Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
7
Fréttir
Óbreyttur þorskkvóti í ár:
Kallar á aukið atvinnu-
leysi og kjaraskerðingu
Sú hugmynd sem Sighvatur Björg-
vinsson viöskiptaráöherra hefur sett
fram um að auka þorskkvótann í ár
um allt aö 55 þúsund lestir er af
mörgum kölluð pólitísk sprengja.
„Ég var bara meö þessu aö lýsa
minni einlægu skoöun á þessu máh.
Hún er sú að þetta þjóðfélag okkar
þoli þaö ekki aö ætla að skera
þorskkvótann niöur í 165 þúsund
lestir í ár. Svo einfalt er þaö. Þaö
- segir Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra
fólk sem gagnrýnislaust leggur þaö
til gerir sér enga grein fyrir því aö
með því er það aö biöja um stóraukið
atvinnuleysi og stórskeröingu á sín-
um eigin kjörum og annarra í þessu
landi. Það er beint samhengi á milh
sjávarútvegsins og afkomunnar í
veiöum og vinnslu og cifkomu hvers
einasta einstakhngs í þessu landi.
Alveg sama hvað starfi hann gegn-
ir,“ sagöi Sighvatur Björgvinsson í
samtali viö DV.
Hann var spurður hvort þessi til-
laga hans væri ekki sprengja inn í
stjórnarsamstarfið?
„Nei, þessi afstaða mín gegn stöð-
ugum tillögum um niöurskurö
þorskveiöa hefur lengi legið fyrir.
Þaö er ekkert í stjórnarsáttmálanum
um það að þorskaflinn í ár skuli
skorinn niður í 165 þúsund lestir og
aö ekki veröi veidd þorskbranda
umfram þaö. Eftir alvarlega skoöun
á málinu hef ég komist að því aö stór
hluti kvótans klárist fyrir vorkomu.
Hvaö ætla menn þá aö gera? Fiski-
skipum þjóðarinnar verður lagt. Á
hverju ætla menn síðan aö lifa þar
th nýtt kvótaár hefst næsta haust?
- Þú varpaðir hugmyndinni fram,
staddur norður á Akureyri. Ætlar
þú að leggja þetta til í ríkisstjóm og
eða í þingflokki þínum á næstunni?
„Mér finnst alveg sjálfsagt aö menn
ræði þetta í stjórnarflokkunum og í
ríkisstjórninni. Ég hef lagt þetta til á
opinberum vettvangi. Því tel ég óhjá-
kvæmilegt aö ríkisstjórnin taki mál-
iö upp við næstu umræöur um at-
vinnumál. Ég trúi því ekki aö ég sé
einn um þá skoðun að auka þorsk-
kvótann í ár,“ sagöi Sighvatur Björg-
vinsson.
-S.dór
Flutningabíllinn á hvolfi utan vegar. DV-mynd Guðfinnur
Bíllinn valt og f iskur út um allt
Guðfinnur Finnbogason, DV, Hólmavílc
Flutningabhl hlaðinn fiski fór út
af veginum skammt sunnan viö bæ-
inn Heydalsá í svonefndum Háls-
brekkum - sunnan Steingrímsfjarö-
ar - aðfaranótt þriöjudagsins 8. fe-
brúar. Ökumann sakaði ekki en bíll-
inn er stórskemmdur og illa fór fyrir
fiskfarminum. Útbúnaður bílsins var
ekki í neinu samræmi viö akstursað-
stæður.
Sjúkrahús Akraness braut jafhréttislög:
Mikill sigur fyrir mig
- segir Sigurlín Þóra Þorbergsdóttir um niðurstöðuna
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
„Þessi niðurstaða er auövitað mik-
ill sigur fyrir mig, ekki síst í ljósi
þess aö stjómendur Sjúkrahúss
Akraness hafa aht frá upphafi reynt
aö gera sem minnst úr mér og minni
starfsreynslu. Þá ht ég á þetta sem
sigur fyrir aha þá sem sóttu um stöö-
una og höfðu hæfni th en voru ekki
ráðnir. Vonandi verður þetta th þess
aö faglegri vinnubrögð veröa viöhöfö
við mannaráöningar hjá stofnuninni
eftirleiðis. Hún á ekki að komast upp
meö það að ráða fólk eftir geðþótta,
heldur lesa umsóknir viökomandi og
leggja hæfni þeirra til grundvallar
ráðningum."
Þetta sagöi Sigurlín Þóra Þorbergs-
dóttir í viðtali við DV eftir aö kæru-
nefnd jafnréttismála haföi komist að
þeirri niöurstööu í úrskurði sínum í
síðustu viku aö jafnréttislög heföu
veriö brotin er gengið var fram hjá
henni við ráðningu í starf skrifstofu-
manns á Sjúkrahúsi Akraness í
haust.
í niðurstöðu úrskuröarins segir
m.a.: „Kærunefndin telur ástæöu th
að taka fram, aö verulegan hafi skort
á að rétt og eðhlega hafi verið staðiö
að málum við ráðningu þessa, bæði
almennt og með tilhti th jafnréttis-
laga.“
Stjóm Sjúkrahúss Akraness fjallar
væntanlega um niðurstöðu kæm-
nefndarinnar á næsta fundi en Rík-
harður Jónsson, formaður stjómar-
innar, sagði í spjahi við DV að menn
yrðu að sætta sig við þessa niður-
stöðu þótt þeir væm kannski ekki
sáttir við hana. Hvað varðaði tilmæli
nefndarinnar um að Sigurlín yrðu
greiddar bætur sagði hann rétt að
láta stjórnina eiga síðasta orðið um
shkt.
Undirbúningur að sameiningu
Bæjarfuhtrúar í Höfnum, Keflavík
og Njarðvík hittast í dag til að hefja
undirbúning að sameiningu sveitar-
félaganna þriggja sem samþykkt var
í atkvæöagreiðslu um síðustu helgi.
Bæjarfulltrúarnir koma saman til aö
skipuleggja sameiningarvinnuna,
ákveða fiölda bæjarfulltrúa í hinu
nýja sveitarfélagi og hvenær nýja
sveitarfélagið tekur við.
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í
Keflavík, segist búast við að auglýst
verði eftir tillögum um nýtt nafn á
sveitarfélagið, bestu nöfnin verði
valin úr tihögunum og gerð veröi
skoðanakönnun meðal íbúanna. Þeg-
ar hafi komið fram tillögur um Suð-
umes, Reykjanes og Víkurbæ en
einnig hefur verið stungið upp á
nöfnunum Keflavík, Hafnarvík,
Hafnarvíkur og Víkurhafnir. Þá
kemur til greina að sveitarfélögin
haldi hvert sínu nafni þannig að
póstfang yrði til dæmis 233 Hafnir,
Suðurnes.
Kosið verður til sveitarstjórnar í
nýja sveitarfélaginu 28. maí en gert
er ráð fyrir að sveitarfélagið taki viö
15. júní.
-GHS
Yf ir 600 án vinnu á Akureyri
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
Alls voru 670 manns á atvinnuleys-
isskrá á Akureyri um mánaðamótin
að sögn Sigrúnar Björnsdóttur á
Vinnumiölunarskrifstofu bæjarins,
en þá voru um 20 manns reyndar
farnir í 'tímabundna vinnu vegna at-
vinnuátaks Akureyrarbæjar og At-
vinnuleysistryggingasjóðs.
Þetta er umtalsvert meira atvinnu-
leysi en á sama tíma á síðasta ári en
þá voru 523 atvinnulausir um mán-
aðamótin janúar-febrúar.
Sigrún Björnsdóttir segir að það
sem af er febrúarmánuði hafi eitt-
hvað fækkað á atvinnuleysisskrá.
T.d. hafi um 20 manns fengið vinnu
vegna atvinnuátaksins og þeim á eft-
ir að fjölga. í samningi Akureyrar-
bæjar og Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs er gert ráð fyrir 60 störfum í
tvo mánuöi í átaksvinnu en mun
fleiri koma að þeirri vinnu þar sem
talsvert er um hálfsdagsstörf að
ræða.
Sex matarköpfur
á mánuði að verð-
&T mstí 30
þúsund hver.
63 27 00
REMINGTON
Remington rakvélar -
Remington skeggsnyrtar.
Góð tæki - gott verð.
Þú verður snyrtilegri með
REMINGTON
‘ Fást í nsesui""
raftækjaverslun
I. CUÐMUNDSSON & Co. hf.
UMBODS OG MEILDVFRSLUN
SÍMI 91-24020 FAX 91-623145