Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Qupperneq 30
42 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 Fólk í fréttum Elsa Nielsen Elsa Nielsen badmintonleikari, Efstasundi 87, Reykjavík, varö þre- faldur íslandsmeistari í badminton um síöustu helgi, í einliðaleik, tví- liöaleik og tvenndarleik, eins og fram hefur komið í íþróttafréttum DV. Starfsferill Elsa fæddist í Reykjavík 26.6.1974 og ólst þar upp fyrstu tiu árin auk þess sem hún og fjölskylda hennar áttu heima í Danmörku á árunum 1984-89. Hún stundar nú mennta- skólanám á fjórða ári við MS. Elsa byrjaði að æfa badminton hjá UMFA í Mosfellsbæ 1984, æfði meö AIF í Albertslund við Kaupmanna- höfn 1984-89 og hefur æft með TBR frá því hún kom heim 1989. Hún varð íslandsmeistari í A-flokki 1990, þrefaldur íslandsmeistari unglinga 1991, hefur verið íslandsmeistari í einliðaleik kvenna 1991,1992,1993 og 1994 auk þess sem hún er nú ís- landsmeistari í tvíliðaleik og tvenndarleik 1994. Fjölskylda Unnusti Elsu er Sævar Smári Þórðarson, f. 13.5.1974, nemi í raf- eindatækni við FB. Hann er sonur Þórðar Sigurgeirssonar, starfs- manns hjá EJS, og Bjargar Magnús- dóttur, starfsmanns við bamaheim- iliðJöklaborg. Systkini Elsu eru Tryggvi Nielsen, f. 30.9.1976, nemi við MS, og Ágústa Nielsen, f. 11.2.1981, nemi. Foreldrar Elsu eru Kjartan Ólafur Nielsen, f. 10.8.1951, starfsmaður við tölvudeild Hofs hf., og kona hans, Anna Harðardóttir, f. 23.6.1951, leik- skólastjóri við Furuborg. Ætt Kjartan er sonur Sigurbjöms Ni- elsen, skrifstofustjóra í Reykjavík, en hann var sonur Niels Christian Nielsen, yfirverkstjóra hjá Samein- aða gufuskipafélaginu í Reykjavík, f. í Skive í Danmörku. Móðir Sigur- bjöms er Guðlaug Helga, húsmóðir í Reykjavík, systir Evalíu, ömmu Björns, fyrrv. varaformanns KR, og Eggerts, formanns HÍK, Lárussona. Guölaug er dóttir Ólafs, sjómanns í Hlíöarhúsum og steinsmiðs í Reykjavík, bróöur Þorleifs í Vatns- holti, afa Ingveldar Gísladóttur, myndlistakonu í Hafnarfirði. Ólafur var sonur Jóns, b. í Hrútastaðahjá- leigu í Flóa, bróður Helgu, langömmu Sigurðar, afa Sigurðar Vals, sveitarstjóra í Bessastaða- hreppi. Jón var sonur Bjarna, b. á Syðra-Velli í Flóa, Þorgrímssonar, b. í Ranakoti, Bergssonar, ættfóður Bergs-ættarinnar, Sturlaugssonar. Móðir Guðlaugar Helgu var Sigur- björg Jónsdóttir, b. í Hvammi í Kjós Jónssonar, b. í Káraneskoti Steina- sonar, b. á Valdastöðum, Jónssonar. Móðir Kjartans var Ragna Bryn- hildur Gísladóttir, gjaldkera í Reykjavík, bróður Brynjólfs, skip- stjóra og síðar umsjónarmanns HÍ, fóður Brands, hrl., fyrrv. formanns knattspyrnufélagsins Víkings og fyrsta fyrirliða íslenska landsliðs- ins. Hálfbróðir Gísla var Ragnar myndlistarmaður, faðir Kjartans, leikara, leikstjóra og leikritahöf- undar. Gísli var sonur Kjartans, prests á Staðastað, bróður Gísla, prests á Sandfelli, afa Bjöms Guð- mundssonar, forstjóra heildversl- unar Ásbjörns Ólafssonar. Kjartan var sonur Kjartans, prests í Ytri- Skógum, Jónssonar, b. í Drangshlíð, Björnssonar. Móðir Gísla gjaldkera var Ingveldur Ólafsdóttir frá Sogni i Ölfusi. Móðir Brynhildar var Ág- ústa Helgadóttir, skipstjóra í Flatey. Stjúpfaðir Önnu er Ólafur Tryggvi Finnbogason. Anna er dóttir Harð- ar, húsasmíðameistara í Reykjavík, Kristinssonar, verkstjóra við Reykjavíkurhöfn, Jóhannessonar. Móðir Harðar er Anna Guðmunds- dóttir, múrara í Reykjavík, bróður Vigdísar, ömmu Sigurjóns Kristj- ánssonar, hagleikssmiðs í Forsælu, og langömmu Eyglóar Viktorsdótt- ur söngkonu. Guðmundur var son- ur Einars, b. á Helgastöðum, Haf- liðasonar, bróður Eiríks, langafa Sigríðar, móður Vigdísar forseta, og langafa Guðmundar, listamanns frá Miðdal, fóður Emós. Móðir Önnu er Unnur Jónsdóttir, sjómanns í Reykjavík, Meyvantssonar, b. í Skarðdal, Gottskálkssonar, bróður Þorsteins, foður Jóns skíðakappa. Móðir Unnar var Guðrún, dóttir Stefáns Magnússonar á Álftanesi og Guðrúnar Þórðarsonar. Afmæli Jóhanna Friðriksdóttir Þorstína Jóhanna María Friðriks- dóttir, Hlíf 1 Torfnesi, ísafirði, er áttræð í dag. Starfsferill Jóhanna er fædd að Nesi í Látrum í Aðalvík og ólst upp á þeim slóðum og gekk þar í barnaskóla. Á unglingsaldri var Jóhanna í vinnu á ísafirði en flutti síðan til Reykjavíkur og dvaldi þar í nokkur ár. Eftir að Jóhanna eignaðist elsta son sinn var hún í Æðey í ísafjarð- ardjúpi í nokkur ár eða þar til hún fluttist með eiginmanni sínum til Rekavíkur bak Látur. Þau fluttu til Súðavíkur 1947 og bjuggu þar í eitt ár en fóm þaðan til Flateyrar við Önundarfjörð og settust þar að. Eig- inmaður Jóhönnu drukknaði 1964 og 1966 flutti hún í Hnífsdal og byrj- aði þar búskap með seinni eigin- manni sínum. Fjölskylda Jóhanna giftist 6.1.1944 fyrri eig- inmanni sínum, Pálma Ólafi Guð- mundssyni, f. 11.8.1907, d. 10.10. 1964, sjómanni og vitaverði við Straumnesvita, en hann drukknaði með m/b Mumma frá Flateyri. For- eldrar hans: Guðmundur Pálmason, bóndi og vitavörður við Straumnes- vita og Rekavík bak Látur, og Ketil- ríður Þorkelsdóttir húsmóðir. Jó- hanna giftist 15.4.1969 seinni eigin- manni sínum, Högna Sturlusyni, f. 15.4.1919. Foreldrar hans: Sturla Þorkelsson og Ingibjörg Bárðlína Ásgeirsdóttir. Högni eignaðist sex börn með fyrri konu sinni, Júlíönu Júlíusdóttur, en hún er látin. Börn Jóhönnu og Pálma: Mikka- lína Arí, f. 8.7.1944, húsmóðir og skrifstofumaður á ísafirði, maki Halldór Guttormur Þóröarson, þau eignuðust þrjú börn en eitt er látið; Matthías Hrólfur, f. 17.3.1946, bif- vélavirki og offsetprentari í Reykja- vík, maki Súsanna Sigurðardóttir, þau eiga einn son; Guðmundur, f. 13.9.1947, verktaki í Winnipeg í Kanada, maki Inga Torfadóttir, þau eiga tvö börn; Jóna Sigurlína, f. 19.3. 1949, húsmóðir og þjónustustúlka á ísafirði, maki Árni Sædal Geirsson, þau eiga þrjú börn; Elísabet María, f. 11.5.1952, húsmóðir á ísafirði, maki Rúnar Guðmundsson, þau eiga fjögur börn; Sigurveig, f. 29.7. 1954, húsmóðir í Reykjavík, hún á þrjú börn. Sonur Jóhönnu og Ing- ólfs Magnússonar, f. 12.9.1902, bíl- stjóra í Keflavík: Ingólfur Magnús Ingólfsson, f. 15.10.1936, leigubíl- stjóri í Reykjavík, maki Ingibjörg Ottósdóttir, þau eiga funm börn. Systkini Jóhönnu: Guðmundína Sigurfljóð, f. 19.6.1915, d. 10.2.1990, maki Símon Símonarson, látinn, þau eignuðust eina dóttur; Friðgerð- ur, f. 9.10.1917, maki Erlendur Ein- arsson, þau eiga þrjú börn; Geir- þrúður Sigurlína, f. 17.3.1920, d. 24.7. 1921; andvana drengur, f. 22.10.1922; Ari, f. 4.4.1924, d. 11.1.1944; Geir- þrúður Sigurlína, f. 5.10.1926, maki Gunnlaugur Pétur Kristjánsson, þau eiga sjö börn; Friðrik Sigurlini, f. í ágúst 1929, d. 2.10.1929; Friörik Sigurlini, f. 20.6.1931, maki Anna Jóhanna Friðriksdóttir. Þorbjörg Jónsdóttir, þau eiga íjögur börn; Elísabet Anna, f. 29.9.1934, hún á tvö börn; Foreldrar Jóhönnu: Friðrik Geir- mundsson, f. 25.7.1891, d. 26.9.1967, sjómaður, og Mikkalina Þorsteins- dóttir, f. 18.8.1892, d. 7.4.1942, hús- móðir, þau bj uggu að Látr um í Aðal- vík. Jóhanna tekur á móti gestum laugardaginn 12. febrúar í sam- komusal Hlífar 1 Torfnesi á ísaflrði frákl. 15-19. Tll hamingju með afmælið 10. febrúar 80 ára Benedikt Guðmundsson, Tíarnarlundi 14d, Akureyri. Kristinn Jónsson, Túni, Borgarhreppi. 75 ára Ingveldur O. Björnsdóttir, Skútustöðum 2a, Skútustaða- hreppi. 70ára Gunnþórunn Sigurðardóttir, Austurbergi 8, Reykjavík. 60ára Margrét Sigurbjörnsdóttir, Bessahrauni6, Vestmannaeyjum. 50 ára ViktoriaÞórey Ström, Túngötu66, Eyrarbakka. Ásdís B. Geirdal fulltrúi, Hvanneyri, Lækjartúni, Andakíls- hreppi. 40ára DagbjörtK. Ágústsdóttir, Hagamel 41, Reykjavik. Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir, Foldahrauni 40b, Vestmannaeyj - um. Pálmi Hannesson bifvélavirkja- meistari, Hólagötu 25, Njarövik. Hanntekurá mótigestumí Iðnsveinafé- lagshúsinuviö Tjarnargötui Keflavíkföstu- daginn 11. fe- brúarfrákl. 20-23. Sigrún Fjóla Sigþórsdóttir, Háarifi 55, Rifl, Hellissandi. Guðrún S. Bjömsdóttir, Daltúni26,Kópavogi. Guðný Elín Geirsdóttir, Háteigi4,Akranesi. Gunnar Orvar Skaptason, Laugateigi 18, Reykjavík. Lilja Ásgeirsdóttir, Skúlaskeiði 32, Hainarfirði. Ásdís Skarphéðinsdóttir, Höföavegi 17,Húsavik. Gústaf Gústafsson, Aðalstræti 39, Patreksfirði. Aðalheiður Arnóra Oddsdóttir, Furugrund 31, Akranesi. Kjartan Guðbjartsson, Baughúsum 5, Reykjavík. Andlát________________ Ólafur Gíslason Ólafur Gíslason raftæknifræðing- ur, Kleppsvegi 136, Reykjavík, lést 30. janúar sl. Útför hans var gerð frá Áskirkju í gær. Starfsferill Ólafur var fæddur 14.6.1913 á Húsavík og ólst þar upp fyrstu tvö árin en á Eyrarbakka eftir það. Át- ján ára gamall fór hann í iðnnám í Landsmiðj unni qg fékk s veinsbréf í jámsmíði 1933. Ólafur hélt síðan til Kaupmannahafnar og innritaöist 1.4.1934 í Det Tekniske Selskabs Elektro-teknikum (Köbenhavn Elektroteknikum) og útskrifaðist þaðan sem rafmagnstæknifræðing- ur 31.31937. Eftir námiö í Kaupmannahöfn hóf Ólafur þar störf hjá F.L. Smith og síðan hjá Laur. Knudsen en þar vann hann átta ár. Ólafur dvaldist í Kaupmannahöfn öll striðsárin en í febrúar 1946 kom hann heim og hóf störf hjá Raffangaprófun ríkis- ins. Hann stofnaði eigin rafteikni- stofu 1949 og var hún fyrst til húsa á Mímisvegi 2 en frá 1953 á Hofteigi 22 en stofuna rak Ólafur til 1988. Snemma árs 1951 fór Ólafur til Rugby á Bretlandi og vann þar hjá British Tomson Hughston fram í desember á sama ári. Á rafteikni- stofu hans eru skráð 558 verk af ýmsum toga og m.a. \drkjanir og félagsheimili. Þegar Ólafur starfaði í Kaupmannahöfn var mikil upp- bygging í vatnsaflsvirkjunum á ís- landi og vinnuveitandi hans, Laur. Knudsen, var verktaki ásamt fleiri með rafvélar og búnað í Laxárvirkj- un. Ólafur kom heim af þeim sökum sumarið 1939 vegna uppsetningar á háspennubúnaði. Fjölskylda Eftirlifandi kona Ólafs er Lise Gíslason (fædd Sveistrup) f. 26.2. 1920, hjúkrunarfræðingur. Dóttir Ólafs og Lise er Eva, f. 22.10. 1946, tækniteiknari. Systkini Ólafs: Pétur Ólafur Gísla- son, f. 8.11.1900, d. 22.12.1992, cand. phil, veðurathugunarmaður og bókavörður á Eyrarbakka; Jakob Gislason, f. 10.3.1902, d. 9.3.1987, rafmagnsverkfræðingur og orku- málastjóri; Guðmundur Gíslason, f. 25.2.1907, d. 22.2.1969, læknir; Petr- ína Kristín Gísladóttir, f. 7.-7.1908, d. 9.7.1908; Þorvaldur Gíslason, f. 1.9.1909, d. 16.11.1909; Ketill Gísla- son, f. 19.10.1911, d. 6.1.1994; Sigurð- ur Gíslason, f. 13.4.1916; Valgerður Aðalbjörg Gísladóttir, f. 1.3.1918, d. 24.1.1926; Guðrún Hólmfríður Gísla- dóttir, f. 5.9.1920, BA, bóka- og skjalavörður. Uppeldissystur Ólafs: Vigdís Ólafsdóttir, f. 12.9.1904, d. 11.1.1926; Ingibjörg Sigvaldadóttir, f. 6.4.1929, d. 11.7.1990, húsmóðir ogkaupkona. Foreldrar Ólafs voru Gísli Ólafur Pétursson, f. 1.5.1867 í Ánanaustum í Reykjavík, d. 19.6.1939 á Eyrar- bakka, héraðslæknir á Húsavík og síðar á Eyrarbakka, og kona hans, Aðalbjörg Jakobsdóttir, f. 30.10.1879 á Grímsstöðum í Mývatnssveit, d. 19.11.1962. Ætt Gísli var sonur Péturs Ólafs Gísla- sonar, f. 12.7.1831, d. 19.9.1917, út- Ólafur Gislason. vegsbónda ög bæjarfulltrúa í Reykjavík, og konu hans, Valgerðar Ólafsdóttur, f. 19.10.1838, d. 29.3. 1890. Aðalbjörg var dóttir Jakobs Hálf- dánarsonar, kaupfélagsstjóra á Húsavík, og konu hans, Petreu Kristínar Pétursdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.