Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
9
Utlönd
Stuttar fréttir
Umsátursliði Serba við Sarajevo hótað loftárásum:
Enginn skyldi draga
ásetning N ATO í ef a
- sagði Bill Clinton Bandaríkjaforseti í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti sagði í gær-
kvöldi að eng-
inn skyldi
draga þann
ásetning Atl-
antshafsbanda-
lagsins, NATO,
í efa að ráðast á hveija þá sem varpa
sprengjum sínum á Sarajevo.
„Við vonum að aðgerðir Bosníu-
Serba verði til þess að loftárásir
reynist ekki nauðsynlegar," sagði
Clinton í sjónvarpsávarpi frá Hvíta
húsinu og bætti við að Bandaríkin
myndu nú leika stærra hlutverk en
hingað til í því að reyna að ná
diplómatískri lausn á stríðinu.
„En það skyldi enginn efast um
ásetning NATO. NATO er nú tilbúið
til aðgerða."
Clinton flutti ávarp sitt skömmu
eftir að fastafulltrúar NATO í Bruss-
el samþykktu að setja Serbum úr-
shtakosti þar sem þeim er gert að
flytja stórskotahðsbyssur sinar að
minnsta kosti tuttugu kílómetra frá
Sarajevo innan tíu daga. Að öðrum
kosti mættu þeir eiga von á loftárás-
um flugvéla NATO. Þá samþykktu
fastafuhtrúamir einnig að ráðist yrði
á hvem þann sem hæfi sprengjukast
á Sarajevo að nýju ef Sameinuðu
þjóðimar færa þess á leit.
Hótanir vesturveldanna urðu til
Sir Michael Rose, yfirmaður svelta
SÞ í Bosníu. Simamynd Reuter
þess að Serbar í Bosníu féhust í gær
á vopnahlé í Sarajevo og að flytja
stórskotahð sitt á brott. Efasemdir
vom þó uppi um að það samkomulag
mundi haldast.
Fulltrúar Bosníu-Serba og sijórn-
arhersins hittust fyrir mihigöngu sir
Michaels Roses, yfirmanns friðar-
gæslusveita SÞ í Bosníu, skömmu
áður en NATO-ríkin samþykktu að
setja Serbum úrshtakosti.
Tahö er að serbnesku sveitimar,
sem sitja um Sarajevo, ráði yfir að
minnsta kosti eitt hundrað þunga-
vopnum. Ef tíl loftárása kæmi gætu
á þriðja hundrað flugvélar tekið þátt
í þeim, m.a. frá herstöðvum Banda-
ríkjannaáítahu. Reuter
Dauðadóms
yf ir Rushdie
minnst
meðkvæði
Fimm ár em
nú hðin frá því
írönsk stjóm-
völd dæmdu
rithöfundinn
Salman Rush-
die tfl dauða
fyrir bók sína
Söngva satans
og af þvi tilefni fá ahir þeir sem
koma í bókasafn eða bókabúö í
Hohandi á mánudag gefins
kvæði.
Kvæðið er eftir hoUenska
skáldið Lucebert og er prentað á
póstkort.
Elgir falla fyrir
byssukúlum í
miðborgÓslóar
Vetrarríkið og snjóþyngshn í
nágrenni Óslóar hafa hrakið elgi
niður í miðborgina þar sem þeir
telja væntanlega að þeir geti
fundið eitthvað að eta.
Svo fór þó ekki fyrir elgskálfin-
rnn sem kom úr skógunum inn í
borgina í gærmorgim því hann
féU fyrir byssukúlu opinbers
veiðimanns í bakgarði Fryden-
lunds bmgghússins. Móðir kálfs-
ins hlaut sömu örlög ekki langt
frá UUevál sjúkrahúsinu.
Reuter, NTB
Suður í Ríó eru menn og konur í óðaönn að búa sig undir kjötkveðjuhátiöina og í gærkvöldi mátti sjá þessar
fáklæddu meyjar dansa ólgandi sömbu á eldheitum dansleik. Simamynd Reuter
Rannsakar vændi og kynferð
islega áreitni í Lillehammer
Norski kynlífsfræðingurinn Kirst-
en Frigstad veit hvaö tíl síns friðar
heyrir á vetrarólympíuleikunum í
LiUehammer sem hefjast um helgina.
Hún sér fram á langar vökunætur
og mikla vinnu. Hún er nefnhega að
rannsaka vændi og kynferðislega
áreitni á vetrarólympíuleikum. Slíkt
hefur ekki verið gert áður.
„Við búumst við miklum fjölda
fólks aUs staðar að úr heiminum til
LUlehammer. í slíku umhverfl er
auðveldara að biðja um eða kaupa
sér kynlífsþjónustu,“ segir Kirsten
Frigstad sem hefur fengið um átta
miUjóna króna styrk til verkefnisins.
Rannsóknin á að taka tvö ár og heit-
ir „Ólympíuleikamir og kynlífs-
markaðurinn". Annars rekur Kirst-
en athvarf fyrir vændiskonur í Ósló.
Hún ætlar að þræða bari og nætur-
klúbba í LUlehammer sem margir
hveijir voru sérstaklega opnaðir í
tilefni leikanna og þeirra tugþúsunda
gesta sem þá sækja. Þar ætlar hún
að ræða við vændiskonur og við-
skiptavini þeirra.
„Þetta verður mikið púl og það
verður unnið lengi fram eftir,“ segir
hún.
Kirsten Frigstad ætlar jafnframt
að dreifa spumingablaði um kyn-
ferðislega áreitni meðal aUra sjálf-
boðahðanna sem starfa við leikana.
Spumingablaðið mun einnig Uggja
frammi á gistihúsum, knæpum og
öðrum opinbemm stöðum.
„Ég er búin að koma á nætur-
klúbba, hótel og bari á svæðinu og
ég sé að eftirspumin fer vaxandi.
Mig langar tU aö skoða markaðinn
fyrir leikana, á meðan á þeim stend-
ur og að þeim loknum,“ segir hún.
Skipuleggjendur ólympíuleikanna
vita af fyrirætlunum Frigstad en eru
misjafnlega hrifnir.
Vændiskonur í Noregi taka aUt frá
tíu þúsund íslenskum krónum tíl
hundrað þúsunda króna fyrir greið-
ann. „AUt veltur á því hvað menn
vUja og hve lengi,“ segir Kirsten
FlígStad. Reuter
AðvaraJapana
Bandarikin ætla ekki að faUast
á vonda viðskiptasamninga viö
Japana til þess eins að ná samn-
ingum.
Ciintoníklipu
Demókratar ætla að bakka með
heUsuplan Clintons ef það leiöir
tU aukins ríMshaUa.
Alttí ieðju
Verkamenn reyna nú að opna
vegi í Los Angeles sem era þaktir
leðju og aur.
HittastiKaffó
Yitzhak Rab-
in og Yasser
Arafat ætla að
hittast aftur í
Kairó eftir
tvær vikur tU
að undirrita
formlegt sam-
komulag sem
var gert um burthvarf ísraela.
Sprengjan i Trade Center
Saksóknarar I sprengjumálinu
í Trade Center hafa lokiö gagna-
söfnun.
li_1L -__I__
veronomiur
Rússneskur ráðherra hefur
óskað eftir að sett verði mörk um
lágmarkskaup og verð í landinu.
Tilbúinntilviðrædna
Nelson
Mandela segir
ANC tUbúiö tU
aö ræða viö
hvita hægri
hlutann en úti-
lokar alveg ósk
hans um
heimasvæði.
Heilagur mánuður
HeUagur mánuður múslíma,
Ramadan, hefst í næsta mánuði.
12 múslímar drepnir
Öryggissveitir í Alsír skutu 12
múslíma í óeirðum.
Eldurígydingaskóla
Þrír palenstínskir drengir hafa
veriö ákæröir fyrir að kveikja í
gyðingaskóla í Bandaríkjunum.
Fordæma atburðinn
Leiðtogar múslíma, kristinna
og gyöinga í Tyrklandi hafa for-
dæmt stríði í Bosníu.
Handtökurf Jórdaniu
Nokkrir menn voru handteknir
í Jórdamu fyrír að hafa ætlað að
eyöUeggja bíó og næturklúbba.
Föngum sleppt
Um 1500 fóngum í íran var
sleppt í tUefni af 15 ára afmæli
írönsku byltingarinnar.
Reiðir bændur
Bændur í Marokkó segja við-
skiptasamninga munu eyðileggja
aíkomu 3 mUljóna manna.
Villverðarikisstjóri
Tom Hayden,
fylkisþingmaö-
ur í Kaliforaíu,
sem mótmælti
Víetnamstríð-
inuharðlegaog
var kvæntur
Jane Fonda,
ætlar aö bjóða
sig fram tíl ríkisstjóra í Kalifom-
íu.
Sígarettusmyglarar í Napólí
era reiðir vegna aðgerða yflr-
valda gegn þeim.
LesiðáGraonlandi
Árið 1994 hefur verið útnefnt
lestrarár á Grænlandi og er stefnt
aö því að fá sem flesta tU að lesa.
Reuter, Ritzau