Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð i lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Pólitísk sprengja Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra hefur varp- að póhtískri sprengju. Hann mælti fyrir því á Akureyri í vikunni að þorskkvótinn í ár yrði aukinn úr 165 þúsund tonnum í 200 til 220 þúsund tonn. Sighvatur segir í viðtah við DV að „þetta þjóðfélag okkar þoh það ekki að ætla að skera þorskkvótann niður í 165 þúsund lestir í ár“. Með því sé verið að biðja um stóraukið atvinnuleysi. Eftir alvarlega skoðun á málinu hafi hann komizt að því, að stór hluti kvótans klárist fyrir vorkomu. „Á hverju ætla menn síðan að lifa, þar til nýtt kvótaár hefst næsta haust?“ spyr ráðherrann í viðtahnu. Sighvatur segist munu fylgja þessum hugmyndum sín- um eftir í stjómarhði og ríkisstjóm. Hann mun ekki einn um shkar skoðanir í þingflokki Alþýðuflokksins. Gunn- laugur Stefánsson hefur talað um 100 þúsund tonna aukn- ingu þorskkvótans. Gísh Einarsson hefur nefnt 20 þúsund tonna aukningu. Vissulega mundi aukning eitthvað af ámóta stærðargráðu og þessir alþýðuflokksmenn nefna verða lyftistöng fyrir þjóðarbúið nú í ár. Vandamál at- vinnuleysis og kvótaleysis mundi mikið minnka, og kjaraskerðing landsmanna yrði minni en eha. Að óbreyttu má gera ráð fyrir um tveggja prósenta sam- drætti þjóðarframleiðslu í ár. Að vísu má vonast til þess, að samdrátturinn verði eitthvað minni vegna veiða utan fiskveiðhögsögunnar, en það er ekki gefið. Vonir standa/ til þess, að árin 1995 og 1996 verði framleiðsluaukning, „hagvöxtur“, hér á landi, en menn em þreyttir á langri bið. Víst væri freistandi að auka kvótann, en finnst lands- mönnum það ráðlegt? Væri það stjómvizka? Fæmstu fiskifræðingar okkar hafa lagt mikla og vand- aða vinnu í að meta ástand þorskstofnsins. Þeir sáu af rannsóknum sínum, að hætta steðjaði að stofninum. Þeir mátu, hver mundi verða líkleg framvinda þorskstofnsins eftir því hve mikið yrði veitt. Á þeim grundvehi ákváðu stjómvöld kvótann. Hafrannsóknastofnun reiknaði þannig á síðasthðnu ári líkleg áhrif og fékk út, að yrðu veidd 225 þúsund tonn árin 1994 og 1995 mundi veiðistofn, sem nú er í sögulegu lágmarki eða um 40 prósent af stofnstærð árið 1980, minnka niður fyrir 500 þúsund tonn og hrygningarstofn- inn minnka niður fyrir 150 þúsund tonn árið 1996. Verði veidd 200 þúsund tonn af þorski þessi ár, muni bæði veiðistofn og hrygningarstofh halda áfram að minnka frá því sem var í fyrra. Við 175 þúsund tonna veiðar muni veiðistofn minnka niður í 580 þúsund tonn árið 1995 og hrygningarstofn nánast standa í stað næstu árin. Aðeins með því að tak- marka aflann enn frekar megi gera ráð fyrir, að þorsk- stofninn nái að stækka svo að nokkm nemi fram til árs- ins 1996. Stjómvöld hafa vel að merkja ekki gengið jafnlangt í skerðingu og Hafrannsóknastofnun hefur lagt til. Hættan er því sú, að skerðing þorskaflans hafi ekki verið og sé enn ekki nægheg. Tihögur nokkurra alþýðuflokksmanna og annarra um verulega aukningu þorskkvótans í ár era háskalegar. Þar er ekki bara spuming um eitt ár heldur langa framtíð. Að mati fæmstu fiskifræðinga þolir þorskstofninn ekki meira álag en ráðgert er. Þess verður að vænta, að ráðamenn þjóðarinnar fari ekki „á taugum“, þótt við mikla erfiðleika sé að etja í efnahagsmálum og það þótt kosningar fari í hönd. Haukur Helgason „Fjölmargir neytendur álita þaö hálfgerð svik við sig að fá ekki að njóta niðurfellingar tolla í kjölfar EES- samningsins," segir m.a. í greininni. Vörugjöldin til eftir- litsstofnunar EFTA Minn ágæti félagi í efnahags- og viöskiptanefhd Alþingis, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, skrifaði grein í DV 3. febrúar sl. og lýsir þar áhyggjum sínum vegna beiðni Verslunarráðs íslands um að Efdr- htsstofnun EFTA gefi áht sitt á breytingu fjáröflunartolla í vöru- gjöld vegna gildistöku EES-samn- ingsins. I EES-samningnum féhust íslendingar á að leggja af fjáröflun- artoha á iðnaðarvörur. í samningnum er líka gerð sú krafa að skattkerfið sé hlutlaust gagnvart innflutningi og innlendri framleiðslu. Vörugjöldin eru ann- ars eðhs en tohar og leggjast bæði á innflutning sem innlenda fram- leiðslu. Vörugjöld af ýmsum toga eru algeng skattheimta víða á hinu Evrópska efnahagssvæði og ekkert í EES-samningnum sem bannar að leggja á vörugjöld. Það var almenn skoðun og einnig almenn skoðun innan Verslunar- ráðs íslands að í texta samningsins væri ekkert sem hindraði álagn- ingu vörugjalds á ahar þær vörur sem íslendingar kysu að leggja það á. Eftirlitsstofnun EFTA merk nýjung Sú merka nýjung er í EES-samn- ingnum umfram eldri fríverslunar- samninga að nú er kominn raun- hæfur möguleiki tíl þess að skera úr um lausn deilumála. Eftirhts- stofmm EFTA á að hafa eftirht með framkvæmd samningsins og síðan sker EFTA-dómstóhinn úr málum sem borin eru undir hann. Þetta er mikh framfór og bætir mjög réttarstöðu fyrirtækja og al- mennings í aðhdarríkjum EES. Sérstaklega er þetta mikhvægt fyr- ir hin minni ríki þar sem ágrein- ingsmál eru nú ekki ráðin th lykta KjaUaiinn Vilhjálmur Egilsson alþingismaður, framkvæmdastjóri Verslunar- ráðs íslands með póhtísku valdi heldur á grund- velh faglegrar umfjöllunar. Vöru- gjaldamáhð er einmitt ágætt mál af þessum toga. Fjölmargir neyt- endur áhta það hálfgerð svik við sig að fá ekki að njóta niðurfellingu toha í kjölfar EES samningsins. (Eg veit að Jóhannesi Geir er annt um hag neytenda.) Ennfremur hafa forráöamenn fyrirtækja, sem starfa við að uppfyha þarfir neyt- enda fyrir ýmsar innfluttar en gjaldskyldar nauðsynjavörur, efast um lögmæti breytingarinnar úr tolh í Vörugjald. Þegar svona efa- semdir hggja fyrir er um að gera að fá áht Eftirhtsstofnunar EFTA á málinu í stað þess að standa í ónauðsynlegu karpi. Ný hugsun staðreynd Ghdistaka EES-samningsins kah- ar á nýja hugsun. Sjómvöld, bæði framkvæmdavald og löggjafarvald, svo og hagsmunaaðhar verða að venja sig við að nú þýðir ekki að þræta um mál í óbhandi trú á eigin óskeikuheik. Allir aðhar verða ein- mitt að vera thbúnir th þess að láta reyna á hvort ákvarðanir og að- gerðir standist samkvæmt EES- samningnum sem við höfum gert og mun færa okkur bætt lífskjör i framtíðinni. Þess vegna er sjáifsagt að fá EftirUtsstofnun EFTA th þess að leggja annaöhvort blessun sína yfir breytingu toha í vöragjöld, sem sannarlega var gerð í góðri trú, eða fá þá upp annmarkana á þeirri breytingu. Þetta er sjálfsagt fram- ani hugsun fyrir ýmsa en ég veit aö Jóhannes Geir, minn ágæti fé- lagi, mun verða fljótur að átta sig á nýmælunum og hinni bættu rétt- arstöðu fyrirtækja og almennings. Vilhjálmur Egilsson „Stjórnvöld, bæði framkvæmdavald og löggjafarvald, svo og hagsmunaaðilar verða að venja sig við að nú þýðir ekki að þræta um mál í óbilandi trú á eigin óskeikulleik.“ Skoðanir annarra Aldrei í stj órn með Ólaf i „Davíð Oddsson forsætisráðherra lét þau orð falla í umræðum á Alþingi um málefni Ríkisútvarps- ins, aö hann sem forsætisráðherra myndi aldrei sitja í stjóm með Ólafi Ragnari Grímssyni... Þetta er athyghverð yfirlýsing hjá forsætisráðherra og vel skhjanleg. Aðferðir formanns Alþýöubandalagsins við að koma höggi á forsætisráðherra og ríkisstjóm- ina í hehd verða áð teljast högg fyrir neðan beltis- stað.“ Úr forystugrein Alþbl. 9. febr. Til alþingismanna! „Alþingismenn! Ef þið vhjið að þjóðin taki mark á ykkur þá hættið þessu orðaskaki. Framkvæmið heldur eitthvað af fögru loforðunum sem þið gáfuð fyrir síðustu kosningar og sýnið að þið séuð í raun að róa lifróður gegn atvinnuleysi. Að öðrum kosti skuhð þið segja af ykkur og sækja um atvinnuleysis- bætur, sem eru að meöaltah um 31 þúsund krónur á mánuði, svo þið kynnist sjálfir þeim kjörum sem þiö æthö öðrum.“ Sigurður T. Sigurðsson, form. Verkamannafél. Hlíf- ar, í Mbl. 9. febr. Áttunda undur veraldar „Nokkrar af athyghssjúkustu persónum lýðveld- isins komust í sjónvörpin um helgina undir því yf- irskini að segja ólæsinu stríð á hendur. Umgjörðin voru dýrustu veitingasahr Norður-Atlantshafsins og frægðarfólkið stóð upp í röðum th að sanna að það kynni að lesa... Ef sjónarspihð í Perlunni um helg- ina bætir agnarögn við lestraráhuga almennings, má telja þaö th áttunda undurs veraldar og verður fært í jarteina- og.kraftaverkabækur.“ OÓ í Tímanum 8. febrúar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.