Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Page 15
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 15 Á hvaða leið erum við? Hvaðan komum við, hvert fórum við, hvað erum við að gera hér? Þessar spurningar verða áleitnari eftir því sem Uður á ævina. Tækni- framfarimar færa okkur sífellt breytta veröld. Þar er þó mest um aö ræða breytingar í híuta heims- ins. Andstæðumar verða æ sterk- ari. Hraði breytinganna eykst. Fyr- ir aöeins örfáum árum heíði menn varla dreymt um það sem nú er kleift aö gera. Mest hrökkva menn við þegar tæknin nær tökum á nýj- um þáttum lífsins. Til em þeir sem óttast allar slíkar nýjungar. En tækninýjungar hafa ævinlega minnst tvær hhðar. Ein nýjung bætir lífskjör en veldur mengun eða gengur á hráefnisUnd- ir þannig að við skilum jöröinni lakari til afkomenda okkar. Önnur tækninýjung getur aukið hamingju einstaklinganna en vekur um leið upp spumingar sem enginn kann að svara. Undanfarið hefur umræðan mjög snúist um tæknifjölgun. Víða er umræöan mikil og tilfinningamar heitar varðandi fóstureyðingar og líknardauða. Skilgreining dauða og líffæraflutningar hafa verið í um- ræðunni. Og mitt í allri tæknibyltingunni hrópar samviskan og hvað í ósköp- unum er hún? Samviska - siðfræði Shakespeare lætur Hamlet segja í einhverri frægustu orðræðu allra tíma, To be or not to be, setning- una: „Samviskan gerir okkur aUa að gungum“. Þegar Kant velti fyrir Kjallariim Guðmundur G. Þórarinsson formaður Verkfræðinga félags íslands sér gildum mannlífsins og mæli- kvörðum þeirra sagði hann: „Tvennt hefur vakið mesta lotn- ingu mína í lífinu. Annars vegar hinn alstirndi næturhiminn, hins vegar siðferðisvitundin í brjósti mér.“ ÓmæU stjörnuhiminsins og allar þær óleysanlegu spumingar sem það vekur og siðferðisvitundin era tveir heimar, gildi sem enginn sam- eiginlegur mælikvarði nær yfir. Og einmitt á hinum mörgu og víðáttumiklu landamærum, þar sem mælikvaröana þrýtur, kemur siðferðisvitundin, samviskan og tekur við stjóminni. ---------------------------------- „Tækninýjungar hafa ævinlega minnst tvær hliðar. Ein nýjung bætir lífskjör én veldur mengun eða gengur á hráefn- islindir þannig að við skilum jörðinni lakari til afkomenda okkar.“ „Ómæli stjörnuhiminsins og allar þær óleysanlegu spurningar sem það vekur og siðferðisvitundin eru tveir heimar ..." Skyldi þessi heimur æðri gilda, trúar og Usta ofar skyndilátum hversdagsleikans ekki vera einmitt það sem skilur manninn frá dýrun- um. Frumþarfirnar, matur, klæðn- aður til að vernda frá kulda, svölun kynhvatar o.s.frv. eru til staðar í skyldum myndum hjá dýrunum. En þessi undratilfmning, aö óra fyrir einhverju háleitara, göfugra, sem gefi lífinu gildi og beri allt annað ofurUði, skilur manninn frá dýranum. Hugsjónir, hvað um þær? Manninum er ekki nægUegt að hafa nóg að borða, búa við góð lífs- kjör, hann lifir ekki af brauðinu einu saman. Einmitt þess vegna verða spumingamar margar og áleitnar, þegar tæknin fæst við fjöregg mannsins, frjóvgunina, upphaf Ufsins, erfðaeiginleikana og dauðann. Barn, sem fæðist af eggi móður, sem aldrei hefur lifað, var eytt, mun spyija sig margra spurninga. Áhrif þeirra spurninga á sálarlífið era öUum huUn, þar tíl helkaldur og fjötraður raunveruleikinn leiðir þau í ljós. TUraunin kann að tak- ast. En hvað ef hún tekst ekki? Þetta undarlega afl, samþáttað úr samvisku, siðgæðisvitund og spumingum um uppruna sinn og eðU, dýpst í afgranni sálarlífsins getur ráðið lífshamingju, hver sem önnur ytri skUyrði tU lifs era. Hvað er þetta afl og hvaðan kemur það? Því getur sjálfsagt enginn svarað. En án þess væri lítUl munur á okk- ur og dýranum eða jafnvel vél- menni. Guðmundur G. Þórarinsson Aukningþorskkvóta Til að skapa „Ég tel að betra ástand sé nú í hafmu og meiri fisk- gengd en fiskifræðing- ar vUja vera láta. Það erað minnsta kosti dómur þeirra sjómanna sem ég hef rætt við. Þess vegna, og einnig af póUtískum ástæðum, veröur að taka ákvöröun um aukningu þorskkvótans tíl að bæta at- vinnuástandíð í landinu. Það er alveg Ijóst aö fiskibátar frá Vest- fjörðum og öllu Snæfellsnesi eru búnir með kvóta sinn eða eru að klára hann á allra næstu dögum. Þá um leið blasir við aukið at- vinnuleysi í þessum byggðum til langs tíma. Þess vegna legg ég tU aö ríkisstjórnin auki þorskkvót- ann um 20 þúsund tonn. Ég legg til að það verði skilyrt að þetta magn veröi allt unnið í landi. Ekkert af því fari til frystitogara eða þeirra skipa sem selja afla sinn úr landi. Tíu þúsund tonn fari tU ísfisktogara en hin tíu þúsund tonnin gangi til kvóta- báta og aö einhveiju leyti tU krókabáta. Þetta aflamagn veröi notað tU að jafna upp atvinnu á þeim stöðum þar sem kvótinn er búinn. Ég te) að þessi 20 þúsund tonn eigi að fara inn á sérstakan kvótamarkað sem ríkisstiórnin hefur talað um i sambandi við Iausn sjómannadeUunnar og bráðabirgöalaganna. Meö þvi móti væri hægt að koma í veg fyrir brask með þetta magn.“ Gísli S. Einarsson alþingismaöur Jafnræði einstaklinga, jafnræði byggða Umræðan um jöfnun vægis at- kvæða í alþingiskosningum verður fyrir aUa muni að vera trúverðug. Þótt jafnræði einstaklinganna sé geipimikUvægt er ekki hægt að hunsa jafnræði byggðanna. Við er- um á sama tíma hluti af hópum og einstaklingar. - Einhvers konar valdajafnvægi verður að ríkja milh hópanna. Stjórnkerfi, sem rekur aðeins hagsmuni eins hóps áram saman, er ekki gott stjórnkerfi. Þeir eru að vísu tU sem telja að lýðræði sé að meirihlutinn kúgi minnihlut- ann, að drottnun minnsta mögu- lega meirihluta sé æskUeg. En fyrir þjóð sem ekki hefur búið við ein- ræði einstakhngs í yfir hundrað ár ætti einræði meirihlutans ekki að vera neitt gylhboð. Höfuðborgarsvæði - lands- byggð Á Islandi hefur ríkt málamiðlun milh jafnræðis byggðanna og jafn- ræðis einstakiinganna. Þó að vægi atkvæða einstaklinga í hinum ýmsu kjördæmum sé mjög mis- munandi, á yestfjörðum eru u.þ.b. 1300 kjósendur (án flakkara) á bak við hvem þingmann en á Reykja- nesi þarf u.þ.b. 4000 kjósendur, þá er ekki meira jafnræði mUU byggð- anna þegar Reykjavík hefur 18 þingmenn en Norðurland vestra aðeins 5. En í landi sem er eins heUdstætt Kjallarinn Ægir Karl Ægisson hópstjóri stjórnskipunarhóps Veröandi og ísland; sama tungiunál, sama saga, fjölskyldubönd, haUar núver- andi málamiðlun á jafnræði ein- staklinganna. Það er ekki heldur réttlátt að minnihluti kjósenda velji meirihluta þingmanna ef mað- ur hugsar í andstæðunum höfuð- borgarsvæði - landsbyggð. Breytingar innan núverandi kjördæmakerfis leysa ekki lengur vandann. Nú er svo komið að 29 þingmenn af 63 tilheyra suðvestur- horninu. Jafnvel þótt munur á vægi atkvæða yrði jafnaður aðeins UtUlega, t.d. 3500 í staö 4000 kjós- enda á bak við hvern þingmann á suðvesturhominu. en 2200 í stað 2100 kjósenda (að meðaltaU) á bak við hvem þingmann í öðrum kjör- dæmum, hefði suövesturhornið 34 þingmenn á móti 29 þingmönnum annara byggða. Jafnræði byggða myndi raskast enn frekar hvort heldur sem borin era saman kjördæmi eða klasarnir höfuðborgarsvæði - landsbyggð. Þessi 34 þingmanna meirUUuti væri merktur suðvesturhominu og yrði styðja hagsmuni þess umfram hagsmuni annarra landshluta. Sterkari sveitarfélög TU að draga úr ójafnvægi á Al- þingi vegna ójafnvægis í búsetu er ráð að hætta að tengja þingmenn vissum byggðum og hætta að mestu miðstýringu byggðamála. Með landskjöri þingmanna yrðu þingmenn ekki lengur að þjóna ein- um herra, einni byggð, og vægi at- kvæða einstaklinganna yrði jafnt. Kjördæmakerfið byggi ekki lengur tU meirihluta og minnihluta. Fram- boðslistar yrðu að hanga saman á landsstefnu. TU að draga úr miðstýringu byggðamála verður að búa til sterkari sveitarfélög sem taka að mestu við byggðamálum. í stað lá- rétts valdajafhvægis, miUi fuUtrúa byggðanna á Alþingi, kæmi lóðrétt valdajafnvægi, milh alríkisins og sveitarfélaganna. Sveitarfélögin réðu byggðamálum en alríkið landsmálum og alþjóðamálum. Með tvíeyki landskjörs þing- manna og sterkari sveitarfélaga yrði lögmæti lýðveldisins íslands tvítryggt. Með þeim hætti væru jafnræði einstaklinganna og jafn- ræöi byggðanna ekki andstæður heldur samstæður. Margþætt lausn er trúverðugri en einhliða lausn. Ægir Karl Ægisson „Til að draga úr ójafnvægi á Alþingi vegna ójafnvægis í búsetu er ráð að hætta að tengja þingmenn vissum byggðum og hætta að mestu miðstýr- ingu byggðamála.“ Förum varlega „Ég hef nú alla tíö veriö í þeirra liópi sem ekki vilja taka mikla áhættu hvað varðar veiðar úr nytjastofn- um okkar. Ég telaðviöhöf- um ekki cfni á neínum mis- tökum varöandi veiðar úr þorskstoninum enda þótt það sé mikhvægt fyrir þjóðina að geta veitt meiri fisk. Eg hefði frekar viljað kanna í haust hvort mögu- leikar væra á að auka kvótann fyrir næsta kvótaár sem hefst 1. september. Menn segja aö þjóðar- búið þoU ekki að þorskaflinn sé skorinn niður í 165 þúsund lestir. En segjum svo að það sé samt of mikið þá þolir þjóðin það ekki heldur að bætt sé við kvótann. Þess vegna erum við í mikilh úlfakreppu vegna málsins. Ég vil leita leiða til aö ganga eins langt og verjanlegt er en bendi á aö hættan er mikil ef menn ganga of langt. Varðandi þau rök aö efnahagur okkar þoli ekki þenn- an niðurskurð á afla þá er það auövitað rétt aö hann þrengir enn að okkur. Ég held þó að til séu leiðir til að auka verðmæti þess afla sem viö þó megum veiða enn- þá. Mér hefur fundist sem menn væru heldur tómlátir um það að tfl aö mynda setja fé í tæknivæð- ingu sjávarútvegs til meiri full- visslu þess afla sem við fáum á land. Það era möguleikar í því. Mér er kunnugt um mörg fyrir- tæki sem hafa áhuga á að þróa sUka starfsemi en skortir til þess fjármagn." -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.