Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1994, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1994, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994 Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Fyrrverandi heimsveldi Kínversk yfírvöld hafa ekki tekið mark á kröfu Banda- ríkjastjómar um aukin mannréttindi í Kína, þótt hótað hafi verið brottfalh svonefndra beztukjara kínverskra afurða í Bandaríkjunum. Þvert á móti hafa þau hert á mannréttindabrotum, sem stríða gegn alþjóðasáttmálum. Ekki gagnaði Bandaríkjastjóm að senda Warren Christopher utanríkisráðherra til Kína. Kínversk yfir- völd svömðu honum fullum hálsi og gerðu sérstakar ráðstafanir til að sýna fram á, að þau væm herrar í eig- in húsi. Og þau njóta enn beztukjaraviðskipta í Banda- ríkjunum. Aður reyndi Kínastjóm að milda brot sín, þegar kom að endurnýjun ákvarðana um beztukjaraviðskipti, til þess að ónáða ekki bandarískt almenningsáht rétt á meðan. Nú fara þau í öfuga átt, af því að þau vita, að Bandaríkjastjórn er orðin fótaþurrka á alþjóðavettvangi. Kínasljóm hefur ekki fengizt th að hjálpa við að fá stjóm Norður-Kóreu ofan af brotum sínum gegn samn- ingi um bann við útbreiðslu kjamorkuvopna. Og stjóm Norður-Kóreu er ekki hrædd við að meina eftirhtsmönn- um Sameinuðu þjóðanna aðgang að kjamorkuverum. Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa síðan lagt grundvöll að tvöfaldaðri framleiðslu á plútóníum, sem er lykhefni 1 kjamorkusprengjum. Þau hlæja bara að bandarískum hótunum um refsiaðgerðir í mihiríkjaviðskiptum og hóta á móti að fara í stríð við Suður-Kóreu og Bandaríkin. í Sómalíu var sent á vettvang bandarískt herhð. Yfir- menn þess gáfu stórorðar yfirlýsingar um, að taka skyldi í lurginn á bófanum Aidid, sem valdið hafði almenningi ólýsanlegum hörmungum. Hótanir þeirra fóru út fyrir hefðbundið verksvið friðarsveita Sameinuðu þjóðanna. Nú er bandaríska herliðið á flótta frá Sómalíu með rófuna mihi fótanna, en bófmn Aidid stendur eftir með pálmann í höndunum. Hann vissi alltaf, að Bandaríkin em ekki lengur neitt heimsveldi, af því að þau hafa ekki lengur neitt úthald th að standa við stóru orðin. Flótti bandaríska herliðsins frá Sómahu minnir á flótta þess frá Líbanon á sínum tíma. Þá var byrjað að koma í ljós, að Bandaríkjamenn þoldu ekki lengur að sjá blóð á vígvöhum sínum og gátu því ekki lengur staðið undir hlutverki heimsveldis á borði, aðeins í orði kveðnu. Persaflóastríðið markaði síðan þáttaskh í hmni Bandaríkjanna sem heimsveldis, þótt fáir tækju þá eftir því og flestir ímynduðu sér raunar, að þau hafi unnið þar sigur. En stríðinu var hætt, þegar kom að návígi í Irak, af því að Bandaríkjaher þoldi ekki að sjá blóð. Þess vegna situr Saddam Hussein í traustum sessi í írak, alveg eins og Assad í Sýrlandi og Aidid í Sómálíu og Kim n Sung í Norður-Kóreu. Þess vegna hefur bófinn Cédras á Haiti haft samningamenn Bandaríkjastjómar að fíflum án þess að þurfa að óttast afleiðingamar. Cédras samdi raunar um að afhenda völdin á Haiti í hendur löglegum stjómvöldum, en notaði samninga- tímann th að treysta stöðu bófaflokksins, sem stjómar landinu með fáheyrðu ofbeldi. Hann veit, að Bandaríkja- stjóm getur ekkert annað en kvartað og kveinað. Þótt margir 'tækju ekki eftir raunverulegum ósigri Bandaríkjanna í Persaflóastríðinu, komust stórglæpa- menn heimsins ekki hjá því að sjá, að Bandaríkin og hemaðararmur þeirra í Atlantshafsbandalaginu hafa ekki þorað að svara útþenslustefnu Serba í Bosníu. Ófarimar í málum Kína, Norður-Kóreu, Sómalíu og Haiti em bein afleiðing þess, að um allan heim eru valda- menn hættir að líta á Bandaríkin sem heimsveldi. Jónas Kristjánsson Kerfiskreppan eltir sigurvegara á Italíu „Á Ítalíu skal öllu breyta svo ekk- ert breytist," segir Lampedusa í skáldsögunni Hlébarðanum. Orö þessa lífsreynda aðalsmanns hafa ásannast í eftirköstum þingkosn- inganna sem áttu aö slá striki und- ir siðferðilegt og pólitískt gjaldþrot hálfrar aldar valdeinokunar sömu stjómmálaafla á stjómkerfi ítalska lýðveldisins. Stjórnmálamenn upp í fyrrum forsætisráðherra og flokksforingja kristilegra demókrata og sósíalista sæta nú ásamt kaupsýslumönnum, jafnt úr ríkiseign og einkageira, málsrannsókn og ákærum fyrir mútugjafir, mútuþægni og mafíu- tengsl. Rúmur helmingur þeirra sem sátu á síðasta þingi treysti sér ekki til að koma fram fyrir kjósend- ur á ný. í kapphlaupinu um að fylla upp í tómarúmið bar bandalag hægri flokka sigurorð af vinstribandalagi en miðjuöfl biðu afhroð. Af 630 sætum í Fulltrúadeild þingsins fékk Frelsisbandalag hægri manna 366, Framfarabandalagið til vinstri 213 og ítalskur sáttmáh miðjuafl- anna 46. Stjórnarmyndun hefði því átt að virðast auðveld. En annað kom á daginn. Mótsetn- ingarnar í Framfarabandalaginu eru svo miklar að leiðtogar flokk- anna sem að því standa hafa vart getað ræðst við að sigri unnum. Senda þeir nú hver öðrum heiting- ar í fjölmiðlum. Að Framfarabandalaginu standa tveir flokkanna sem fyrir voru og ný hreyfing, sem áberandi kaup- sýslumaöur notaði fjölmiðlaveldi sitt til að stappa upp úr jörðinni á rúmum tveim mánuðum. Nýfasist- ar undir forustu Gianfranco Fini og Norðurbandalagiö sem Umberto Bossi myndaði fyrir næstsíðustu kosningar tvöfólduðu þingstyrk sinn og hafa hvorir rúmt hundrað þingsæta. Áfram Ítalía, sem Silvio Berlusconi stofnaði, óx úr engu í fjórðung þingheims. Mótsetning milh nýfasista og Norðurbandalagsins varðar grundvaharatriði stjómskipunar- innar. Norðurbandalagið er stofn- að til að breyta Ítalíu í sambands- ríki, sér í lagi til að létta af norður- héruðunum fjárstreymi til fátækt- arbælanna í suðri, sem ekki eiga sér viðreisnar von meðan mafían ræður þar lögum og lofum. Nýfas- istar sækja hins vegar sitt fylgi til suðurhéraöanna, og vUja þar að auki samkvæmt uppruna sínum sterkt ríkisvald. Enn djúpstæðari mótsetning er þó í því fólgin að Berlusconi, sem ítalskir kjósendur hafa nú falið að hrehisa til eftir kerfishrun, er sjálf- ur skilgetið afkvæmi þess kerfis. GrundvöUinn að auðlegð sinni lagði hann með byggingarstarfsemi Erlend tíöindi MagnúsTorfi Ólafsson og fasteignabraski í Mílanó fyrir aldarfjórðungi. í þessum greinum dafnaði mútustarfsemin hvað best. Stjómmálaveldi Bettino Craxi, fyrrum forsætisráðherra og for- ingja sósíalista, sem nú er borinn mörgum sökum og þungum, byggð- ist á Mílanó. Þeir Berlusconi urðu snemma bandamenn. Þegar Berlusconi náði næstum einokun á einkasjónvarpi á ítaUu með því að komast með vafasömum hætti yfir þrjár útsendingarrásir, beitti Craxi sér fyrir afturvirkri lagasetningu til að hindra að þeir gemingar yrðu vefengdir fyrir dómstólum. Craxi var svaramaöur þegar Berlusconi gekk 1980 í annað hjónaband með sér tuttugu árum yngii leikkonu. Auk sjónvarpskeðjanna og fast- eignanna ræður eignarhaldsfyrir- tæki Berlusconi yfír tveim stærstu stórmarkaðakeðjum ítaUu, tveim öflugustu útgáfufyrirtækjunum, tryggingafélagi og mætti svo lengi telja. En til þess að halda yfirráðum í eigin höndum og sinna nánustu hafa hlutir í Fininvest aldrei verið boðnir til sölu. Lánsfjármögnunin er shk að skuldir samsteypunnar eru ríflega þrefalt eigið fé. í febrúar var Paolo, bróðir og meðeigandi Berlusconis, handtek- inn og sakaður um 42 milljóna króna mútugreiðslu við fasteigna- sölu í Mílanó til opinbers aðUa. SpilUngarrannsóknin er því komin inn í fyrirtæki þeirra bræðra. And- stæðingar Berlusconis segja að skyndilegur stjórnmálaáhugi hans stafi fyrst og fremst af þörfinni á að komast í aðstöðu til aö rétta við erfiða fjárhagsstöðu Fininvest og bægja frá óþægjlega nákvæmri rannsókn á fortíð þess. Bossi segist ekki heldur sjá hvernig Berlusconi eigi að fara með forsætisráðherraembætti án þess að lenda í hagsmunaárekstrum daglega, og krefst forsætisins fyrir Norðursambandið. Berlusconi kveðst ekki ræða frekar við íjand- félaga sína, fyrr en í Ijós komi hverjum Scaífaro forseti felur stjómarmyndun eftir að þing kem- ur saman 15. apríl. Magnús Torfi Ólafsson Silvio Berlusconi ávarpar kjósendur á eigin sjónvarpsstöð í upphafi kosningabaráttu. Kosningastjóra sinn sótti hann til Saatchi & Saatchi, auglýsingastofunnar sem á sinum tíma markaðssetti Margaret Thatcher. Skoðanir aimarra Tökum ekki þátt „Jafnvel þó þeir séu á leiö til friðarviðræðna halda Bosníu-Serbar áfram að drepa fólk til að ná yfirráðum yfir meira landsvæði og hreinsa það af þeim sem ekki eru Serbar. Þessi grimmdarverk halda áfram í ýmsum borgum, þar á meðal Gorazde, borg sem Öryggisráð SÞ hefur lýst sem griðasvæði. Og hvað er svar Bandaríkjanna við þeim möguleika að bjarga Gorazde og Prijedor frá þessu? „Við munum ekki blanda okkur í stríðið til að koma í veg fyrir þetta,“ segir Wilham Perry varnarmálaráðherra.“ Úr forystugrein Washington Post 6. apríl Bandarísk vopn gegn Kúrdum „Tyrkneski herinn undirbýr nú sókn með 130 þúsund hermönnum gegn uppreisnarmönnum Kúrda í suðausturhluta Tyrklands. Bandaríkin eru viðriðin stríðiö. Tyrkland er aðili að NATO og kaup- ir bandarísk vopn sem vissulega voru ekki ætluð til notkunar gegn þorpum Kúrda. Það heyrast engin mótmæh frá yfirvöldum í Washington og ástæðan er kaldhæðnisleg: Bandaríkin þurfa aö nota her- stöðvar í Tyrklandi til að koma hjálp til Kúrda í ír- ak.“ Úr forystugrein New York Times 5. apríl Alvarleg kreppa „Síðast þegar Bandaríkin áttu í stríði við Norður- Kóreu létu yfir tvær mihjónir karla, kvenna og barna lífið eða særðust, þar á meðal nær 163 þúsund Banda- ríkjamenn. Þessar hræðflegu staðreyndir ættu menn að hafa í huga þegar ný kreppa í samskiptunum við Kóreu virðist vera í uppsiglingu.“ Úr forystugrein USA Today 5. apríl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.