Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
Fréttir
Fyrirliggjandi rannsókn um sýktu hrossin:
Væg öndunarfærasýking
- getur orsakast af miklu álagi, breyttu fóðri, hitastigi eða öðrum þáttum
„Við ákváðum að aflétta banninu.
Þær niðurstöður sem við byggjum
þetta á, sem eru frá Danmörku, eru
á þá leið aö þetta sé ekki þessi hættu-
lega veirusýking sem okkur grunaði
þegar útbreiðslan varð svona heift-
arleg í einu hesthúsi. Það eru
kannski einhveijar sérstakar að-
stæður sem valda þessu. Við höfum
ekki fengið neina niðurstöðu frá
sýklagreiningu sem sýnir fram á að
þarna hafi verið einhverjir ákveðnir
sýklar. Við teljum því að þetta sé væg
veirusýking sem hafi brotist út með
þessum einkennum sem við þekkjum
ekki. Við ætlum aö reyna að kafa
ofan í þetta,“ sagði Brynjólfur Sand-
holt yfirdýralæknir í samtali við DV
í gær, eftir að ákveðið var að aflétta
útgöngubanni hrossa í Víðidal.
- Ernokkurástæðatilaðætlaannað
en að þessu sýkingarástandi sé lokið?
„Við höldum að þarna sé um að
ræða herpesveiru númer 4 sem veld-
ur vægri öndunarfærasýkingu. Það
getur verið, eins og einhvern tímann
„Við teljum að þetta sé vaeg veirusýking sem hafi brotist út með þessum einkennum sem við þekkjum ekki. Við
ætlum að reyna að kafa ofan í þetta,“ sagði Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir, eftir að ákveðið var að aflétta
útgöngubanni hrossa i Víðidal. Hestaeigendur voru fljótir að hleypa hrossum sínum út.
kom upp, mikið álag á hesta vegna
þjálfunar, breytt fóöur, mikill hiti í
húsum og annaö sem getur kallað á
að hún geti blossað upp. Við höfum
áður haft einstaka hóstatilfelli í
hrossum. Það getur verið að það hafi
verið einhver svona sýking áður
hérna. Það er einmitt það sem við
munum ganga í að rannsaka núna,
m.a. með því að taka blóðsýni," sagði
yfirdýralæknir.
Brynjólfur sagði að 15 hross Erl-
ings Sigurðssonar sem sett voru í
einangrun í Mosfellsdal væru orðin
býsna góð af veikindum sínum. „Þau
hafa verið meðhöndluð með fúkka-
lyfjum gegn þessum fylgikvillum.
Reiknað er með að þegar þessi sjúk-
dómur kemur upp gangi hann yíir á
um vikutíma. Við getum á þessu stigi
ekkert sagt til um hvort svona sýking
getur komið upp aftur. Það gæti gerst
en mér þykir það ólíklegt. Viö höfum
heldur ekki orðið varir við nein önn-
ur tilfelli," sagði Brynjólfur Sand-
holt.
Landsbréf vildu sjá um sölu SR-mjöls:
Hænra tilboði tekið
- gagnrýnt harðlega af Ríkisendurskoðim
I skýrslu Rfidsendurskoöunar
um söluna á SR-mjöli er það gagn-
rýnt harðlega að ekki hafi verið
látið reyna á 9,5 milljónum króna
lægra tilboð Landsbréfa hf. en kom
frá Verðbréfamarkaði íslands-
banka, VÍB. Tilboð Landsbréfa um
að sjá um söluna hljóðaði upp á 1,9
milljónir króna en tilboð VIB var
11,4 milljónir. Að mati Fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu
og söluhóps SR-mjöls var þátttaka
Landsbréfa talin orka tvímælis
vegna tengsla við Landsbankann
sem var aðallánveitandi SR-mjöls.
Því var ákveðið að ganga að tilboði
VÍB.
í ljósi laga um verðbréfaviðskipti
er það mat Ríkisendurskoðunar að
litlar líkur hafi verið á því að
Landsbréf yrðu vanhæf til að ann-
ast sölu á hlutabréfum ríkisins í
SR-mjöli.
í skýrslunni kemur fram að
framkvæmdastjóri Landsbréfa,
Gunnar Helgi Hálfdánarson, hafi
tahð fyrirtækið á engan hátt van-
hæft en ef Framkvæmdanefnd um
einkavæðingu teldi einhveija
hnökra geta komið upp „þá væri
betur heima setið en af stað farið“
eins og segir í skýrslunni. Gunnar
benti nefndinni á að Landsbréf
heföu t.d. séð um undirbúning og
sölu á hlutabréfum ríkisins í Gut-
enberg sem engan eftirmála hefði
haft í för með sér.
„Þvi heföi verið eðlilegt að látið
hefði verið reyna formlega á tilboð
Landsbréfa hf. í ljósi þess að félagið
bauð rúmlega 9,5 mfiljónum króna
lægra í verkið en VÍB og'heföi auk
þess áður sinnt sambærilegri þjón-
ustu hnökralaust," segir m.a. í
skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Samræmdu prófin:
Óþarfa gallar
„Það voru óþarfa frágangsgallar í
uppsetningu á íslenskuprófinu, tfi
dæmis var ekki eðlilegt bil milli orða,
en þetta voru ekki beint vfilur. Orð
sem sagt er í réttritunarreglum að
eigi að skrifa í tveimur voru sett í
eitt og svo framvegis. Þetta var mest
áberandi í íslenskuprófmu en ég veit
að menn voru víða býsna óánægðir
með enskuprófið og fannst þaö
óvenjulegt að ýmsu leyti og kannski
svolítið óeðhlegt hvað þyngdardreif-
ingu snertir," segir Haraldur Finns-
son, skólastjóri Réttarholtsskóla.
Samræmdu prófin fóru fram í
grunnskólum um allt land dagana
20.-26. april og gætti talsverðrar
óánægju meðal kennara yfir frá-
gangsgöhum og vfilum í ensku-,
dönsku- og íslenskuprófinu en prófin
voru unnin á vegum Rannsókna-
stofnunar uppeldis- og menntamála
en ekki menntamálaráðuneytis eða
skólanna sjálfra.
„Ég er búinn að finna þrjá staði þar
sem orð eða stafir hafa runnið sam-
an. Þetta var í lagi í próförk en kom
svona úr prentsmiðjunni. í dönsku-
prófinu voru ásláttarvihur í texta
sem var í lokuðu umslagi og fæstir
opnuðu. Ég myndi ekki draga álykt-
anir af enskuprófinu slrax. Þetta er
spurning um að fara varfæmislega í
að alhæfa um enskuprófið og skoða
niðurstöður þegar þær koma,“ segir
Matthias Matthíasson, umsjónar-
maður samræmdra prófa.
í dag mælir Dagfari
Frygðarstunur í fjölbýli
Það er margt skrítið í kýrhausnum.
Vegir mannskepnunnar eru órann-
sakanlegir og þá ekki síður hljóöin
sem hún gefur frá sér. Það finnst
að minnsta kosti íbúum í fjölbýlis-
húsi í Kópavoginum. Frá því segir
í laugardagsblaði DV með eftir-
greindum hætti:
„Við fluttum inn sl. haust ásamt
íbúum í fjórum öðrum íbúðum.
Strax á öörum degi fórum við að
heyra óhljóð úr einni íbúðinni. Við
héldum í fyrstu að þar væri ein-
hvers konar ofbeldi á ferðinni.
Óhljóðin glumdu um húsið. Síðan
fórum við að átta okkar á aö þetta
væri ekki ofbeldi heldur kynlífsst-
unur eða öhu heldur óp sem end-
uðu með einhvers konar gráti. Það
má helst Ukja þessum hljóðum við
gelt í hundi og er mjög hvimleitt
til lengdar að hlusta á þetta.
Við þurftum að þola þetta þrisvar
sinnum á dag, stundum þijá tíma
í einu. Við höfum vaknað upp á
nóttunni við óhljóðin, síöan byijar
þetta aftur árla morguns og loks
eftir hádegi.“
Svo mörg voru þau orð um hljóð-
in sem sambýlisfólkið í Kópavogin-
um gefur frá sér.
Dagfari skilur það vel að aðrir
íbúar í blokkinni séu gramir út í
þessa ástarleiki. Sérstaklega ef þeir
fá ekki að taka þátt í þeim sjálfir.
Það gefur augaleið að frygðarstun-
ur af því taginu sem lýst er eru
ekki á hvers manns færi og ekki
er óeðlilegt að öfund og afprýðisemi
geri vart við sig hjá áheyrendum
sem ekki taka þátt í leiknum og
gefa ekki frá sér sams konar stun-
ur.
Stunurnar hafa verið kærðar til
Félagsmálstofnunar Kópavogs og
lögfræðingur Húseigendafélagsins
hefur sömuleiðis fengið máhð inn
á sitt borð. En þessir aðilar standa
ráðþrota, enda óvanir því að þurfa
að stöðva ástarleiki og kynlíf í
blokkum og segja fólki tfi i þeim
efnum.
Það mun þó sjálfsagt koma að því
aö opinberir starfsmenn og lög-
lærðir menn heimsæki ástarparið
í blokkinni til að þagga niður í því
með einum eða öðrum hætti eða í
það minnsti fara fram á að fá að
vera vitni að því hvernig þessi hljóð
framkallast. Einnig ætti kynlífs-
fræðingur að vera með í hópnum
til að kenna fólkinu að láta frygð
sína í ljós með þöglum hætti svo
að aðrir íbúar blokkarinnar þurfi
ekki að hlaupa í burt í hvert skipti
sem ástarleikurinn hefst.
Annars vekur það mesta athygli
og aðdáun Dagfara hversu kynlífið
í blokkinni, sem um ræðir, er líf-
legt og kröftugt. Það á sannarlega
erindi í annála þegar karl og kona
geta rekkjað saman þrisvar á dag
og þijá tíma í senn. Hér hlýtur af-
reksfólk að vera á ferð.
Dagfari segir fyrir sig að hann
telur sig vera góðan meðalmann í
kynmökum við konu sína en aldrei
hefur hann náð því að ná upp slíku
þreki eins og parið í blokkinni í
Kópavoginum. Og aldrei hefur eig-
inkonan farið fram á það.
Þetta par ætti að auglýsa aðferöir
sínar og kynna þær. í frétt DV er
sagt frá því aö parið sé atvinnu-
laust og hafi ekki annað fyrir stafni
en að gamna sér hvort við annað.
Er þetta ekki tilvalið tækifæri til
atvinnusköpunar? Félagsmála-
stofhun Kópavogs ætti aö halda
námskeið með þessu fólki og efna
til sýninga og svo mætti taka
óhljóöin og fyrgðarstunurnar upp
á band og gefa þær út. Annað eins
hefur nú verið gert.
Það má ekki stöðva svona fólk
með slíka hæfileika og mesta lagi
mætti setja á það múl eða hauspoka
til að stemma stigu við mesta háv-
aðanum en að öðru leyti á að sýna
því hvatningu og hrós fyrir öflugt
ástarlíf í miðju atvinnúleysinu.
Ástarlíf, sem fer fram þrisvar á dag
í þrjá tima í senn, er frammistaða
á heimsmælikvarða. Getur ekki
íþróttasambandið viðurkennt ást-
arleiki sem keppnisgrein og styrkt
parið til þátttöku í alþjóðamótum?
Það mundi að minnsta kosti bjarga
nætursvefninum fyrir nágrannana
á meðan óhljóðin eru gefin frá sér
í útlandinu!
Allt um það. Hér er merkilegt og
fáheyrt fyrirbrigði á ferðinni í sam-
býli og samskiptum fjöldans og
ástæöulaust að gera of mikiö veður
út af því. Það hefur enginn beðið
aðra um að hlusta eöa vera heima
þegar balhð byrjar.
Dagfari