Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Blaðsíða 32
Frjálst,óháð dagblað l.\M)SSAMBAND ÍS!.. KAKVKKKTAKA ÞREFALDUR1. vinningur Veöriðámorgun: Hiti 5-12 stig Á morgun veröur austlæg átt, sums staöar stinningskaldi norð- an til en annars hægari. Norð- vestanlands veröur víða rigning, súld eöa smáskúrir sunnan til en annars skýjaö með köflum. Hiti . verður á biiinu 5-12 stig. Veðrið í dag er á bls. 28 LOKI Fulltrúarnirvið Austurvöll ættu að vera á heimavelli í villidýrafrumvarpinu! Ekiðáreió- hjólamann Ekiö var á sjötugan mann á reið- hjóli í Breiðholti um niuleytið í gær- kvöldi. Maðurinn kastaðist af hjólinu og hlaut nokkur höfuðmeiðsl. Á myndinni er hugað að meislum mannsins. Þá var ekið á 63 ára gaml- an mann á merktri gangbraut í Keflavík í gærkvöldi. Við skoðun kom í ljós að hann var fótbrotinn. Yfirkjörstjóm: Tekurákvörðun umnafniðídag Yfirkjörstjórn í Reykjavík hittist síðdegis í dag til þess að taka ákvörð- un um hvemig framboðslistar til borgarstjórnar verða tilgreindir á kjörseðli og í auglýsingum fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. ^ Umboðsmenn R-listans hafa óskað eftir því að heitið Reykjavíkurlistinn verði notað á báðum stöðum en því hafa sjálfstæðismenn mótmælt. Þeir telja villandi að listinn sé kenndur við Reykjavík. Saltfélagið gjaldþrota Stjómir íslenska saltfélagsins hf. á Reykjanesi og móðurfélags þess, Saga Food Ingredients A/S, hafa ósk- að eftir því að félögin verði tekin til gjaldþrotaskipta. Heildarskuldir em nálægt 600 milljónum og eignir nán- ast einvörðungu bundnar í saltverk- >» smiðjunni á Reykjanesi. Öllum starfsmönnum verksmiðjunnar, um 40 talsins, hefur verið sagt upp störf- um. Fulltrúar minnihlutaeigenda í stjóm fyrirtækisins lýsa því yfir í greinargerð að þeir séu ósáttir við þessa niðurstöðu. Fótbrotnaði eftir árekstur Ökumaður mótorhjóls fótbrotnaði þegar hann ók á bíl á gatnamótum Skólavegar og Hvítingavegar í Eyj- um í gærkvöldi. Var hann að taka fram úr þegar hann ók beint inn í hiið bílsins. Fótbrotnaði ökumaður- inn viö áreksturinn. verið hefur f „fóstri" á bænum siðan fyrir helgi. Fálkinn fannst vankaður á verönd húss á Litla-Arskógssandi og virðist sem hann hafi gleymt sér i eltingarleik viö rjúpu og flogið á húsið. Rjúpan lá dauð á veröndinni og þegar fálkinn hafði verið handsamaður og honum komið í hús þar sem hann jafnaði sig át hann rjúpuna með bestu lyst. í gær var fálkinn allur að hressast og stóö til að sleppa honum fljótlega. DV-mynd JU Alþingi: Nóttin fæddi afsérsátt um villidýr Össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra boðaði á Alþingi í nótt breytingar á svokölluðu villidýra- frumvarpi til að sætta ólik sjónar- mið. Meðal annars hefur Össur fall- ist á að hætta við að leggja niður stöðu veiðistjóra. Þá hefur ráðherr- ann komið til móts við andstæðinga sína varðandi styttingu veiðitíma á gæsum og svartfugh og tekið út úr frumvarpinu umdeildan kafla um selveiðar. Talið er að breytingarnar verði til þess að frumvarpið fáist samþykkt'fyrir þinglok. Hart var deilt um sölu ríkisins á SR-mjöli á Alþingi til klukkan hálf- tvö í nótt en þá hófust umræður um villidýrafrumvarpið. Umræður stóðu yfir í rúma tvo tíma áður en hlé var gert á þingfundi. Þingfundur hófst aftur 10.30 í morgun og er stefnt að því að ljúka annarri umræðu um sjávarútvegsfrumvörpin í dag. Eldhúsdagur verður í þinginu á morgun en á fimmtudag er gert ráð fyrir umræðu um ýmis umdeild mál, þar á meðal frumvörp um lyfsölu, reynslusveitarfélög, húsaleigubætur og byggðaáætlun. Talið er dregist geti að þúka þingstörfum fram eftir vikunni. 4 5 T S E T F Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rfloð greiði 2,4 milljomr i bætur Samgönguráðherra, vegna Vega- gerðar ríkisins, og fjármálaráð- herra, íyrir hönd ríkissjóðs, voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavikur til aö greiða fyrrum stjómanda snjóruöningstækis á veginum milli Hnífsdals og ísafjarðar 2,4 milljóna króna bætur, auk vaxta frá janúar 1990, vegna slyss sem maðurinn varð fyrir í janúar 1990. Maöurinn, sem vann sem bif- reiöastjóri hjá Vegagerð ríkisins, var að ryðja snjó af Hnífsdalsvegi þegar snjóflóð féll yfir veginn og færði bíhnn niður í fjöru, um 30 metra vegalengd. BOstjórinn skall til og frá inni í stjórnklefa tækisins meðan á snjóflóðinu stóð og rotað- ist fljótlega. Hann rankaði við sér inni í stjórnklefanum sem þá var hálffullur af snjó og að mestu umlukhm sjó. Honum tókst að rífa sig út úr stjómhúsinu, vaða í land og ganga tveggja kílómetra leið að frystihúsinu í Hnífsdal þar sem hann fékk læknisaðstoö. Eftir slysið fékk bílstjórinn hálf- gert taugaáfall og fann fyrir verkj- um um alian líkamann viö minnstu hreyfingu. Nokkrum mánuðum eftir slysið leitaði maðurinn tfl lækna í Reykjavik vegna höfuð- og bakmeiðsla og andlegra óþæginda - viðvarandi kvíða, spennu, svefn- truflana og martraða. Veturinn á eftir gafst hann upp á vinnu viö snjómokstur og var ráð- lagt að hætta. Flutti hann þá tO Reykjavíkur þar sem hann starfar sem bOstjóri. Stefnandi rökstuddi kröfu sína, um 6,5 milljóna króna bætur, með vísan í almannatryggingalög og að snjóskriðan hafifarið af stað vegna hávaöa og titrings frá snjóruðn- ingstækinu. Vegagerð rikísins hafi ekki gætt skyldu sinnar varðandi eftirht en henni hafi borið að kanna aOar aðstæður áður en snjómokst- urinn hófst. í stefnunni er byggt á örorkumati tryggingalæknis og vísað tO breyt- inga á stöðu og högum hans. Þá er einnig vísað tíl andlegra áverka sem gera aö verkum aö hann á erf- itt meö að stunda vinnu sem at- vinnubílstjóri í framtíöinni en þá vinnu hafði hann stundað í 25 ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.