Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ1994
Viðskipti
i>v
Þorskur á fiskm.
140
kr/kg
Fi Fð
Avöxtun húsbréfa
Mð Þr Mi Fi Fö Mð
Alverð erlendis
V Mó Þr Mi F1 Fð Má
Dollarinn
Mð Þr Mi F! Fö Má
Kauph. í New York
Jones
Má Þr Ml R Fó Má
Dollar
lækkar
Nokkrar breytingar hafa oröið
á gengi dollars undanfarna viku
og lækkaði hann úr 71,61 krónu
á mánudag í síðustu viku í 70,73
í gær.
Hlutabréfavísitalan í kauphöll-
inni í New York hélst nokkuð
stöðug í lok síðustu viku og í gær
þó að einhverjar breytingar yrðu
á henni.
Þingvísitala hlutabréfa hefur
farið hægt og sígandi upp á við
síðustu daga.
Álverð lækkaði örlítið í dag
miðað við álverðið á föstudaginn
en er þó nokkru hærra en verið
hefur almennt undanfama viku.
Skuldblndingar íslands leggist EFTA og EES af:
Munum ekki
sitja í súpunni
„Það er samningsatriði við hin
EFTA-ríkin hvernig gengið verður
frá þeim fjárhagslegu skuldbinding-
um sem kunna að koma í ljós gangi
þau í Evrópusambandið. Við þurfum
ekki að óttast það að sitja í súpunni.
Það verður hins vegar okkar að
ákveða hvort við ætlum að halda
stofnunum EFTA og EES. Verði það
niðurstaöan verður starfsfólki fækk-
að. Við munum til dæmis ekki bera
ábyrgð á lífeyrisskuldbindingum
þeirra sem hætta," segir Pétur Gunn-
ar Thorsteinsson, sendifulltrúi utan-
ríkisráðuneytisins.
Ýmsar áleitnar spurningar hafa
vaknað um framtíð EFTA og EES
eftir að Noregur, Svíþjóð, Finnland
og Austurríki* ganga í Evrópusam-
bandið (ESB) um næstu áramót. ís-
land verður þá eina ríkið utan ESB
með aðild að EES því Sviss felldi
aðild í þjóöaratkvæðagreiðslu og
Lichtenstein hefur ekki gengið frá
aðild. Að óbreyttu samanstendur
EFTA einungis af íslandi, Sviss og
Lichtenstein eftir áramótin sem þá
verða að skipta kostnaðinum á milli
sín.
Samkvæmt upplýsingum frá utan-
ríkisráðuneytinu munu þau ríki sem
eftir verða í EFTA ekki bera ábyrgð
á launa- og lífeyrisskuldbindingum
þeirra landa sem ganga úr samtök-
unum. Laun starfsmanna eru greidd
samkvæmt íjárlögum EFTA frá ári
til árs og við starfslok fá starfsmenn
lífeyrisréttindin greidd út.
Að sögn Péturs Gunnars má búast
við að umræður hefjist af fuUum
krafti um framtíð EFTA eftir að und-
irritun aðildarsamninga liinna
EFTA-ríkjanna er lokið í næsta mán-
uði.
„Verði stofnanimar lagðar niður
skapast ekki nein vandamál. Þá
verður allt gert upp. Þær skuldbind-
ingar sem kunna að vera fyrir hendi
skiptast þá eftir sömu hluttollum og
við erum ábyrg fyrir í dag en það er
innan við tvö prósent af heildar-
kostnaði."
Bensín:
Lítrinn hækkar um eina krónu
Bensínverð hækkaði um eitt og
hálft prósent í byrjun maí og er bens-
ínverðið nú orðið svipað og það var
hér á landi fyrir verðlækkunina í
byrjun nóvember. Verð á 92ja oktana
bensíni er nú 65,50 krónur lítrinn og
er það einni krónu hærra en fyrir
mánaðamót. Sama verðhækkun hef-
ur orðið á 95 og 98 oktana bensíni.
Eins og sjá má á meðfylgjandi línu-
riti helst bensínverð hér á landi stöð-
ugt meðan miklar sveiflur em á
markaði í Rotterdam.
„Þetta er fyrsta breytingin á bens-
ínverði á þessu ári þar sem ekkert
varö af verðlækkun í byrjun ársins
vegna hækkunar á bensíngjaldi.
Hækkunin væri meiri ef ekki hefði
komið á móti lækkun á verði dollars.
Það hefur orðið gífurleg hækkun á
skráningunni úti því að eftirspum
eftir bensíni eykst á vorin og þá
hækkar bensínverðið á Rotterdam-
markaði," segir Kristján Ólafsson
hjá Olís.
„Miðað við verðþróun á bensíni
undanfarna mánuði hefðum við átt
að vera búnir að hækka bensín fyrr
Þróun bensínverðs
— heima og erlendis —
160,50$
en við reynum hverju sinni að taka ekki að breyta verði of oft og reynum
miðafþvísemeraðgerastáerlend- að gera það bara þegar ástæða er
um mörkuðum og hvað við emm til,“ segir hann.
með í birgðum. Það hentar okkur
Útflutningsvörur:
Litlar verðsveif lur
Einhverjar sveiflur hafa átt sér
stað í útflutningsverðmæti íslend-
inga og er ýmist um verðhækkun eða
lækkun að ræða þó að ekki sé um
miklar breytingar að ræða. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins var
togarinn Engey eina skipið sem land-
aði erlendis í síðustu viku og var
meðalverðið 88,27 eða nokkm hærra
en í vikunni á undan. Nokkru betra
verð fékkst fyrir þorsk í gámasölu
en í síðustu viku aprílmánaðar þó
að verðið sé enn mun lægra en þegar
best lét í apríl. Verð á karfa úr gám-
um lækkaði nokkuð en verð á ufsa
og ýsu hækkaði lítillega. Þá lækkaði
verð á áli enn frekar.
Útflutningsafurðir íslendinga
140C
'120C J
Er
ÍUUU
D J F M A M
200
150
100
1 50
200 /\
150^
\!/ vb 100 '
'50
D J F M A M
liniism
D J F M A M
D J F M A M
D J F M A M
IMWHtÉifflffli IHffálÉ1.
SR-mjöláAIþingi:
Kolkrabbanum
ekki hyglað
- segirÞorsteinnPálsson
„Við höfum náð þeim árangri
sem að var stefht, að selja fyrir-
tækið á sanngjömu verði með
mjög breiðri eignaraðild og þátt-
töku heimamanna og starfs-
manna. Þær umræður, sem farið
hafa fram undanfarnar vikur,
hafa gengið þvert gegn þessum
raunvemleika málsins," sagði
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra í umræöum á Alþingi í
gær um söluna á SR-nyöli.
Þorsteinn vísaöi á bug öllum
kenníngum um að með söiunni
hefði svoköllum kolkrabba verið
hyglað. Stjórnarandstaðan mót-
mælti þessu og vísaði meðal ann-
ars til skýrslu Rikisendurskoð-
unar.
Ríkisendurskoðun sendi i gær
frá sér greinargerð um fyrri
skýrslu stofnunarinnar þar sem
hörð gagnrýni kom fram á sölu
ríkisins á SR-mjöli. Fram kemur
að stofnunin telur sig hafa sinnt
úttektinni á heiðarlegan og fag-
legan hátt.
Vaxtasklpta-
samningur
Seðlabanki íslands hefur gert
vaxtaskiptasamning við banka og
sparisjóði fyrir tímabilið maí til
september þar sem gert er ráð
fyrir að bankar og sparisjóðir
greiði Seðlabankanum fimm pró-
senta nafnvexti af samningsfjár-
hæð og aö Seðlabankinn greiði
þeim 4,25 prósenta vexti ofan á
verðtryggðan höfuðstól. Samn-
ingurinn byggist á þeirri for-
sendu að verðbólga næstu fjög-
urra mánaöa svari til 0,72 pró-
senta veröbólgu á ári miðaö við
lánskjaravísitölu og er það í sam-
ræmi við verðlagsspár Seðla-
bankans.
Akranes:
Uppsagnirhjá
Sérsteypunni
Öllum starfsmönnum Sérsteyp-
unnar hf. á Akranesi hefur verið
sagt upp störfum þar sem skipu-
lagsbreytingar eru fyrirhugaðar
hjá Sérsteypunni og fyrirtækinu
ímúr í Reykjavík. Samkvæmt
heimildum DV er sameining fyr-
irtækjanna fyrirhuguð.
Njörður Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Sérsteypunnar,
segir að margir starfsmenn verði
endurráðnir i framhaldi af skipu-
lagsbreytingu i sumar. Starfs-
hlutfóll milli Sérsteypunnar og
ímúrs breytist og verði ef til vill
sumir fluttir milli fyrirtækjanna.
Talsvert tap hefur verið á
rekstri Sérsteypunnar hf. und-
anfarin ár.
Erlendum
ferðamönnum
hefurfjölgað
Erlendir ferðamenn hér á landi
urðu 16,3 prósent fleiri í april en
í sama mánuði i fyrra. Alls komu
10.604 erlendir ferðamenn i síð-
asta mánuöi miðað við 9.114 í
mars 1993. Af þessum 10.604 gest-
um höfðu 665 hér svonefnda „Blá-
aiónsviðdvör hluta úr degi.
Fyrstu íjóra mánuði þessa árs
hefur erlendum feröamönnum
flölgaö um 21 prósent eða 5.500
miðað viö sama tima í fyrra.
Tæplega 26.200 ferðamenn komu
til landsins fyrstu íjóra mánuðma
í fyrra en rúmlega 31.700 janúar
til apríl á þessu ári.
Af þessum 5.500 eru ríflega 2.800
Bláalónsfarþegar þannig að fjölg-
un annarra ferðamanna er um
10,3 prósent