Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
9
DV
Rútskojvill
stofnaflokk
meðjárnaga
Alexander
Rútskoj, fyrr-
um varaforseti
Rússlands, hef*
ur í hyggju að
stofna nýjan
stjómmála-
flokk þar sem
járnagi á aö
ríkja og ekkert andóf verður leyft
innan flokksins í baráttu hans
um völdin í landinu.
Rútskoj leiddi misheppnaða
uppreisn gegn Jeltsín forseta í
október síðastliðnum og sat inni
um tíma fyrir þær sakir.
Finnskum gervi-
hnetti skotiðá
loft 1998
Finnskir geimvísindamenn eru
um þessar mundir að smíða
fyrsta gervihnöttinn þar í landi
og er áætlaö að senda hann á
braut umhverfls jörðu árið 1998.
Takmarkið er að búa tíi frum-
gerð gervihnattarins á þessu ári.
Líkan af honum hefur þegar ver-
iö gert og má sjá það í vísindamið-
stöðinni Heureka í Dickursby þar
sem það verður til sýnis í sumar.
Gervihnötturinn, sem hefur
hiotið nafnið Hutsat, er smíðaður
á tilraunastofu tækniháskóla
Helsinki í geimvísindum. Hann á
að vega 45 kfló og vera á stærð
við venjulegt sjónvarpstæki.
Ákvörðun um smíöi endanlegr-
ar útgáfu gervihnattarins verður
tekin þegar frumgerðin veröur
tilbúin.
Forsöngvarl Pe-
arlJamísjálfs-
vígsþönkum
Eddie Vedder, aðalsöngvari Se-
attle rokksveitarinnar Pearl Jam,
skýrði frá því um helgina að hann
hetði íhugað að fyrirfara sér eins
og Kurt Cobain, forsprakki Nir-
vana, annarrar vinsællar sveitar
frá Seattle.
„Þegar ég var 15 eða 16 ára
flögruðu slíkar hugsanir að mér
jafn oft og ég borðaði. Ég var
ákaflega einmana, ég átti engan
að nema tónlistina," sagði Vedder
í viðtali við bandaríska blaðið Los
Angeles Times.
En ástandið fór skánandi, Eddie
fékk vinnu og núna segist hann
ekki skilja hvemig honum gat lið-
ið svona. Samt segir hann að
sjálfsvígsþankar hafl sótt aðeins
á sig aftur á undanfömum tveim-
ur árum.
Villijálmurprins
brýturhlaðmeð
námiíEton
Vilhjálmur
litli prins, ell-
efu ára gamall
sonur þeirra
Karls Breta-
prins og Diönu,
mun brjóta
blað í sögu
kóngaijölskyid-
unnar þegar hann hefúr nám í
hinum virta Eton einkaskóla á
næsta ári. Hann verður þar með
fyrsti væntanlegur kóngur Bret-
lands til að nema þar.
Karl vill að Vilhjálmur verði í
Cotton Hall þar sem góðvinur
hans, dr. Michael Atkinson, er
hússtjóri. Telur hann Atkinson .
vera kjörinn til þess að siða litla
prinsinn til og gera hann aö
fáguðum séntilmanni. Atkinson
vill hins vegar aö prinsinn fari í
annað hús þar sem hann óttast
athygli íjölmiöla. Reuter, fnb
Utiönd
Norðmenn og Rússar þinga um Smuguna:
Stjórnlaus f isk-
veiði stoppuð
Norðmenn og Rússar hafa komið
sér saman um ráðstafanir tfl að binda
enda á stjórnlausar veiðar í Smug-
unni í Barentshafi. Löndin tvö ætla
að halda áfram að beita diplómatísk-
um leiðum, senda eftirhtsskip til
svæðisinsogkomaíveg fyrir landan-
ir úr skipum sem hafa veitt í Smug-
unni án þes að eiga kvóta.
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, og rússneskur
starfsbróðir hans, Vladimír F. Kor-
elskíj, áttu nýlega með sér fundi í
Bergen þar sem þeir ræddu sameig-
inleg.hagsmunamál tengd fiskveið-
um í norðurhöfum. Ráðherrarnir
hafa áhyggjur af áhrifum stjórn-
lausra fiskveiða í Smugunni. Þeim
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs. Símamynd Reuter
eru einkum hugleiknar neikvæðar
afleiðingar þeirra á efnahagslíf í
strandhéruðum landanna og að þær
grafi undan störfum í sjávarútvegi á
svæðinu.
Olsen og Korelskíj lögðu áherslu á
það á fundum sínum að Norðmenn
og Rússar ættu með sér náið sam-
starf til að stjómun fiskveiðanna
yrði árangursríkari. Fastanefnd
Norðmanna og Rússa um veiðar og
eftírlit mun halda áfram störfum sín-
um til að finna sameiginlegar aðferð-
ir til að reikna út aflann. Síðar á ár-
inu verða svo sameiginleg námskeið
fyrir norska og rússneska fiskveiði-
eftirlitsmenn.
NTB
Taívanbúar ræða nú meira um kynlíf á opinberum vettvangi en áður, í andstöðu við aldagamlar íhaldssamar sið-
venjur Kínverja. Þessi mynd sýnir útstillingar i kynlífsbúllu í höfuðborginni. Simamynd Reute
Vinningstölur laugardaginn (lp* 30. apríl 1994
fí) 4) (SS)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5aí5 e o 5.607.439
2. W 1 612.538
3. 4af5 151 6.997
4. 3af5 4.959 497
Heildarvinningsupphæö þessa viku: 9.741.147 kr.
M ► <7 1 II ®
upplýsingar:sImsvahi91 -681511 lukkul!na991002
ÚRVAL BÍLA
Tegund Arg. Ek. Verð
SubaruLegacy 2,0’92 35 1.750 þ.
Subaru1800GL ’87 103 680 þ.
Nissan Sunny SLX, sjálfsk. ’92 46 1.050þ.
Mazda 323 F '92 14 1.150 þ.
Mazda 626 GLX '88 89 760 þ.
MMC GalantGLS ’87 60 650 þ.
MMCColt GL '87 107 380 þ.
MMCL-3004x4 '90 45 1.550þ.
MMCL-300 4X4 ’90 82 1.500 þ.
MMCPajero, lang.’90 51 2.100 þ.
VWGolfCL, sjálfsk. '90 63 730 þ.
Volvo 240, sjálfsk. '88 58 850 þ.
M.Benz190E '86 162 1.290 þ.
Peugeot205GR '88 102 390 þ.
Subaru Justy J12 4x4 '90 43 720 þ.
MMCGalantGLSI ’89 70 1.050 þ.
Hyundai PonyGL '88 35 400 þ.
Cherokee '88 88 1.050 þ.
Comanche pickup Chevrolet '87 59 350 þ.
Monza 1800 Range Rover, '85 100 1.090 þ.
4dyra
Oplð: mánudag til föstudags
kl. 9.30 til 19.00.
Laugardaga kl. 10.00
tll 17.00.
d) IMHM SRAHT HF.
Símar 617510 og 617511.
Þlngkosningar 1 Hollandi í dag:
Stjórnarflokkar
missa meirihliita
Margt bendir til þess að Kristflegir
demókratar í Hollandi tapi nær
helmingi þingsæta sinna þegar talið
hefur veriö upp úr kjörkössunum í
landinu eftir þingkosningamar í dag
og að þeir neyðist til að sitja utan
stjómar. Slíkt hefur ekki gerst í Hol-
landi frá árinu 1917.
Það eru m.a. reiðir eftirlaunaþegar
sem ætla að snúa baki við kristileg-
um og kjósa eigin flokka en tveir slík-
ir hafa verið stofnaðir.
Pólitískur stöðugleiki hefur ríkt í
Hollandi um langt skeið en nú er svo
komið að landið fer ekki varhluta af
þeirri óánægju hins almenna kjós-
anda sem hefur gert vart við sig í
öömm löndum Evrópu. Stjórnar-
flokkar tveir, kristilegir og jafnaðar-
menn, hafa núna 103 þingmenn af 150
en taliö er að þeir muni ekki fá nema
rúmlega sextíu menn kjörna í dag.
Aukið atvinnifleysi bitnar á fylgi
stjórnarflokkanna, svo og niður-
skurður í almannatryggingakerfinu
og sífellt fleiri innflytjendur.
„Pólitískur óróleiki í Evrópu eftír
hrun Berlínarmúrsins hefur valdiö
því að við lítum öðrum augum á
heiminn í kringum okkur,“ segir
Galen A. Irwin, prófessor við háskól-
ann í Leiden.
Ruud Lubbers, forsætisráðherra
Hollands. Símamynd Reuter
Níu flokkar eiga nú fulltrúa á hol-
lenska þinginu en spár benda til þess
að þeir verði tólf að kosningunum
loknum.
Ruud Lubbers forsætisráðherra
býður sig ekki fram í þetta sinn.
Hann er talinn ætla að keppa um
stöðu forseta framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins þegar Jacques
Delors hættir. TT
TÆLENDINGAR
Á ÍSLAIMPI
NAMSKEIÐ
Rauði kross íslands heldur námskeið fyrirTælendinga um
uppbyggingu þjóðfélagsins, réttindi og skyldur íbúanna,
heilbrigðis- og menntakerfi, menningu og fleira.
INámskeiðið fer fram á íslensku en verður þýtt á tælensku.
Fjölrituðum bæklingi á tælensku sem Félagsmálaráðu-
neytið hefur látið gera verður dreift á námskeiðinu.
Staöur: Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Tími: Föstudagurinn 6. maí kl. 20:00 - 23:00 og
laugardagurinn 7. maí kl. 10:00 -13:00
Skráning: Skrifstofa RKÍ, sími 91- 626722 fyrir kl. 17:00
þann 6. maí.
Verö: Námskeiðið er ókeypis. Boðið verður upp á
kaffi og te.
+
Rauði kross íslands
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími 91-626722