Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
11
Fréttir
Skíðasvæðið á Seljalandsdal daginn fyrir snjóflóðið.
DV-mynd Halldór Sveinbjörnsson
Verður skíðasvæði
ísfirðinga
flutt í Tungudal?
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
Ýmsir skíðaáhugamenn á ísafirði
hafa undanfarna daga verið að skoða
þann möguleika að færa skiðasvæði
Isfirðinga frá Seljalandsdal og niður
í Tungudal. Telja margir að þar sé
að finna jafn gott skíðasvæði og á
Seljalandsdal og vilja þeir hefja upp-
byggingu þar þegar í vor.
Ekki eru þó allir sammála um
ágæti Tungudals og benda á í því
sambandi hversuþröngurdalurinn
er auk þess sem brattinn er mun
minni í Tungudal en í efstu brekkum
Seljalandsdals.
Áhugamennirnir skoðuðu aðstæð-
ur í Tungudal og ætla að athuga þær
betur. Einn sagði að aðstaðan í
Tungudal væri ágæt fyrir keppendur
en að óbreyttu væri svæðið ekki
hentugt sem almenningssvæði. Um
er að ræða svæðið innst í dalnum,
gegnt jarðgangamunnanum og alla
leið upp á Sandfell.
„Það eru ágætis svig- og stórsvigs-
bakkar á svæðinu en að óbreyttu er
þar lítið pláss fyrir almenning. Ég
held að Seljalandsdalurinn sé heppi-
legri sem skíðasvæði en því er ekki
að leyna að menn eru að skoða alla
möguleika," sagði einn þeirra.
Kristján Guðmundsson, stjórnar-
maður í Skíðafélagi ísafiarðar, sagði
aö máhð hefði verið rætt og nokkrir
stjórnarmenn hefðu farið í vett-
vangskönnun inn í Tungudal en of
snemmt væri að segja til um fram-
vindu mála.
„Menn geta ekki rokið strax upp á
Seljalandsdal og hafið þar uppbygg-
ingu. Menn verða að svara þeirri
spurningu af hverju á að byggja þar
aftur? Viö munum skoða málið nán-
ar, höfum mánuð til stefnu, ef skíða-
aðstaða á að vera orðin klár fyrir
haustið. Við höfum sent bæjaryfir-
völdum bréf þar sem farið er fram á
að fá a.m.k. tvo áheyrnarfulltrúa
með tillögurétt á öllum þeim fundum
sem koma til með að verða haldnir
um málið. Bæjarráð á eftir að taka
beiðni okkar fyrir en við viljum fylgj-
ast með málinu og koma okkar skoð-
unum á framfæri," sagði Kristján.
Eyjafjörður:
Þrír á ólöglegum gæsaveiðum
Þrír ungir menn voru staðnir að
ólöglegum gæsaveiðum í Arnames-
hreppi í Eyjafirði um helgina. Kvart-
að var frá bænum Ósi og lögreglan
frá Akureyri mætti á vettvang.
Mennirnir, sem albr hafa byssu-
leyfi, höfðu skotið fiörar gæsir og
hirti lögreglan feng þeirra. Einnig
vom byssur þeirra gerðar upptækar
og skotfæri. Þá er viðbúið að menn-
imir muni fá sektir og einhver bið
verður á að þeir fái heimild til að
handleika skotvopn að nýju. Gæsa-
veiðar era bannaðar á þessum árs-
tíma og undanþágur einungis veittar
bændum sem þurfa að veija tún sín
miklum ágangi gæsa.
SUMAR
GLEÐIN
Einhver ævintýralegasta
skemmtidagskrá allra tíma
á Hótel fslandi
Raggi Bjarna, Maggi Ólafs, Hemmi Gunn,
Ómar Raanars. Þoraeir Ásvalds, Jón Raanars,
Þeir eru mættir aftur til leiks eftir áralangt hlé, enn
harðskeyttari og ævintýralegri en fyrr og nú með
vinsælustu söngkonu landsins Siggu Beinteins.
Tónlistarstjórn: Gunnar Þórðarson
Leikstjóm: Egill Eðvaldsson.
Matseðill
Portvínsbœtt austurlensk sjávarréttasúpa
meá rjómatopþ og kaviar
Kontakslegid grisafitie meðfranskri dijonsósu, parísarkartöfium,
oregano.flambemðum ávöxtum oggljáðugrœnmeti
Konfcktís meðpiparmyntuperu, kirsuberjakremi
og ijómasúkkulaðisósu
Glæsileg tilboð á gistingu. Sími 688999
QE
ik
Miðasala og borðapantanir í síma 687111 frákl. 13 til 17.
mæti 30
þúsund hver.
Sex matarkörfur
á mánuði að verð-
63 27 00
HÚS & GARÐAR
16 síðna aukablað um hús og garða
fylgir DV á morgun.
Meðal efnis:
★ Vorlaukar
★ Gróðursetning
★ Klipping
★ Áburðargjöf
★ Kryddgarður í stofuglugga
★ o.fl. o.fl.