Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994 Meiming Þjóðhátídar- almanaktil styrktar landgræðslu Snerruútgáfan hefur gefið út sérstakt almanak í tilefni af 50 ára afmæli lýöveldisins sem nefn- ist Leiðin til lýðveldis, lýðveldiö ísland. Almanakið, sem gildir frá júní í ár til mai á næsta ári, er byggt upp með myndum og texta frá mikilvægum atburðum í sjálf- stæðisbaráttu okkar islendinga. Þar má nefna Þjóðfundinn 1851, þjóðhátíð og stjórnarskrá 1874, heimastjóm 1904, fullveldi 1918, alþingishátíöina 1930 og lýöveld- ishátíðina 1944. Forstöðumenn Snerruútgáf- unnar hafa ákveðið að 100 krónur af hverju seldu almanaki fari til landgræðslu. Sveixm Runólfsson landgræðslustjóri veitti áheita- skjali frá Snerrumönnum við- töku í gær. Landgræðslan hyggst nota féð til vemdar Dimmuborg- um gegn ágangi sands. Almanakiö hannaði Þóra Dal auglýsingateiknari en texti er eft- ir Ama Bjömsson. Ljóðasamkeppni Æskulýðs- og tómstundaráð Hafnarfjarðar efhir til Ijóðasam- keppni f tilefni af 50 ára afmæli lýðveldisins. Verður verðlauna- Ijóðið flutt sem ávarp íjallkonu í Hafnarfiröi 17. júní. Æskileg lengd er á bilinu 25-27 ljóðlínur. Rétt tfi þátttöku hafa allir íbúar Hafnarfjarðar en 25 þúsund króna verðlaun verða veitt fyrir besta ljóðið. Höfundar eiga aö skila undir dulnefni. Guðrún Helgadóttir, t.v„ og Guð- laug Richter. Hópurinn sem taka mun þátt i uppfærslu á söngleiknum Hárinu i Óperunni i sumar. Leikarar valdir í söngleikinn Hárið Söngleikurinn Hárið verður settur upp í Ópemnni í sumar á vegum Flugfélagsins Lofts og Þjóðleikhúss- ins. Aðalhlutverkin leika Hilmir Snær, Hinrik Ólafsson, Magnús Jónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir og Jóhanna Jónas. Leikarar og söngvarar vora valdir á mikilh prufu sem fram fór í apríl en slíkt er nýlunda hér. Komu alls 200 manns í prufu fyrir söng, leik og dans. Leiksijóri Hársins verður Baltasar Kormákur, leikhússtjóri Hallur Helgason og framkvæmdastjóri verður Ingvar H. Þórðarson. Saman mynda þessir menn Flugfélagið Loft. Hljómsveitina munu skipa þeir Jón Ólafsson, hljómborð, Haraldur Þor- steinsson, bassi, Guðmimdur Pétrnrs- son, gítar, og Birgir Baldursson, trommur. Aðstandendur Hársins telja hljóm- grunn fyrir þessum þekkta söngleik í dag en bæði sagan og tískan endur- taki sig. Hárið var síðast sett upp í fullri lengd hér á landi af leikfélagi Kópavogs 1968, í leikstjóm Brynju Benediktsdóttur. 1980 var gerð kvik- mynd eftir söngleiknum sem sýnd var alls staðar við metaðsókn. Barnabóka- verðlaunskóla- málaráðs Guðrún Helgadóttir og Guðlaug Richter hlutu baraabókaverð- laun skólamálaráðs Reykjavíkur í ár. Guðrún hlaut verðlaunin fyrir bók sína Litlu greyin en Guðlaug fyrir þýðihgu sína á bók- inni Úlfur, úlfur eftir Gilian Cross. í umsögn Margrétar Theodórs- dóttur, fulltrúa skólamálaráös, segin „Suraar bækur era kosta- gripir. Og þannig bækur á hún Guðrún Helgadóttir til með aö skrifa. Hún hefur aukiö umtals- vert á óborganlegan léttleika til- verunnar með skrifum sín- um. . . Guðlaug hefur unnið hér vandasamt verk af kostgæfni sem skilar andrúmslofti óhugnaðar og spennu beint í æð. I alla staði er þetta vel unnin þýöing sem ber henni gott vitni.“ Þrír umsækjendur um stöðu forstöðumanns Amastofnunar: Guðrún og Sverrir tal in líklegri en Stefán Búist er við að vahð standi milli þeirra Guðrúnar Nordal og Sverris Tómassonar þegar skipaður verður nýr forstöðumaður Ámastofnunar í júlí. Samkvæmt þeim heimildum sem DV hefur aflað sér era þau talin líklegri en Stefán Karlsson. Sérstök þriggja manna dómnefnd er enn að meta þær þrjár umsóknir sem borist hafa um stöðu forstöðu- manns Árnastofnunar en umsóknar- frestur rann út um áramót. Um stöð- una sóttu dr. Guðrún Nordal, Stefán Karlsson handritafræðingur og Sverrir Tómasson handritafræðing- ur. Jónas Kristjánsson, forstöðu- maður stofnunarinnar síðasthðin 23 ár, fékk lausn frá störfum frá og með 1. mai. Ráðuneyhð hefur þó beðið hann að gegna starfinu þar til skip- aður hefur verið maður í hans stað. Dómnefndin hefur verið að störf- um í þrjá mánuöi en ekki er útht fyrir að skipað verði í stöðuna fyrr en í júlí. Staða forstöðumanns Árna- stofnunar er skhgreind sem prófess- orsstaða við Háskólann með tak- markaðri kennsluskyldu. Vegna þessa þurfa umsóknirnar að fara í gegn um langt ferli þar sem sérstök dómnefnd fjallar fyrst um þær. Þá verða umsóknimar teknar fyrir á deildarfundi í heimspekideild Há- skólans og tihögur dehdarinnar síð- an sendar ráðherra. Hann gerir síðan tihögu hl forseta íslands um hver skuh skipaður í stöðuna en forstöðu- maður Amastofnunar er skipaður af forseta. Um mánuö tók að koma saman dómnefnd hl að fjalla um umsókn- imar. Hún er skipuð þeim Vésteini Ólasyni, tilnefndum af heimspeki- deild Háskólans, Ólafi Hahdórssyni, tilnefndum af Háskólaráði, og Ant- Guðrún Nordal, Stefán Karlsson og Sverrir Tómasson vilja öll verða eftirmenn Jónasar Kristjánssonar, forstöðu- manns Árnastofnunar. Á þessari löguðu mynd má sjá umsækjendurna aftan við Jónas þar sem hann er að sýna Jóhanni Karli Spánarkonungi og Soffiu konu hans handritin en það er einmitt við slík tækifæri sem forstöðumað- ur Árnastofnunar verður þjóðinni helst sýnilegur. hony Foulkes, prófessor frá háskól- anum í Birmingham á Englandi, hl- nefndum af menntamálaráðuneyti. Dómnefndin þarf að pæla í gegn um vinnu og verk umsækjenda og leggja á þau mat. En það er fyrst á fjölmennum deildarfundi þar sem menn skipast í fylkingar um um- sækjendur og úr verður tihaga hl ráðherra. Eins og fyrr sagði era Guðrún og Sverrir tahn líklegri en Stefán. Er nefnt að þó Stefán sé aldursforseh umsækjenda og með mestu reynsl- una af handritastörfum séu ekki nema fjögur ár þar hl hann kemst á aldur og skipa þarf nýjan forstöð- mann, fara í gegn um ráðningarferhö á ný. Þá mun vera vhji fyrir ýmsum breytingum á Ámastofnun og tahð að skipun annars hvors yngri um- sækjendanna verði „meira í takt“ \1ð þær hugmyndir. Árna- stofnun íSafna- húsið? „Þaö er orðiö þröngt um okkur héma í Ámagaröi og það hentar ekki að leggja undir stofnunina meira af þessu húsi. Safnahúsið finnst mér mjög fýshegt fyrir Ámastofnun. Það er einkar fal- legt hús og gamalt bókasafn. Efhr viðbrögðum manna aö dæma er góð stemning fyrir þvf að stofii- unin flytji þangað en það þarf að fá arkitekta og fleiri fagmenn th að kanna hvort það getur yfirleitt gengið,“ sagði Jónas Kristjáns- son, forstöðumaður Ámastofh- unar, í samtah við DV. Jónas fór ásamt Sveinbimi Bjömssyni háskólarektor á fund Davíðs Oddssonar forsæhsráð- herra og Ólafs G. Einarssonar menntamálaráöherra á dögunum og kynnh þelm hugmyndir sínar um að Ámastofnun flyth í Safna- húsið við Hverfisgötu. Jónas segir þá Sveinbjöm hafa fengjð góðar móttökur en Ijóst væri að athuga þyrffi möguleik- ana á þessum flutningj mjög gaumgæfilega. Ef ekki yrði fluh væri sá kostur helstur aö byggja sérstakt hús utan um dýrgripi þjóðarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.