Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Side 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
Afmæli
Sigrún Eldjárn.
Sigrún
Eldjám
Sigrún Eldjám myndlistarmaöur,
Fjölnisvegi 12, Reykjavík, er fertug
ídag.
Starfsferill
Sigrún er fædd í Reykjavík. Hún
lauk stúdentsprófi frá MR1974 og
stundaði nám í MHÍ1974-77. Sigrún
var viö nám í Varsjá og Kraká í
Póllandi 1978.
Sigrún hefur verið myndlistar-
maður frá 1978. Hún hefur haldið
ellefu einkasýningar frá 1980 og tek-
ið þátt í fjölmörgum samsýningum,
bæði heima og erlendis. Sigrún
dvaldi í Jónshúsi 1984 og á Sveaborg
í Finniandi 1987. Verk eftir hana er
í opinberri eigu í ýmsum söfnum
og stofnunum hérlendis og auk þess
í Svíþjóð og Finnlandi. Sigrún er
einn af stofendum Gallerís Lang-
brókar.
Ritstörf: Allt í plati, 1980; Eins og
í sögu, 1981; Langafí druUumallar,
1983; Langafi prakkari, 1984; Bé-
tveir, 1986; Kuggur og fleiri fyrir-
bæri, 1987; Kuggur til sjávar og
sveita, 1988; Kuggur, Mosi og mæðg-
umar, 1989; Axlabönd og bláberja-
saft, 1990; Stjömustrákur, 1991; Sól
skín á krakka, 1992; Beinagrindin,
1993. Hún hefur myndskreytt allar
sínar bækur og einnig íjölda bóka
annarra höfunda.
Sigrún fékk starfslaun listamanna
1982,1986 og 1989, styrk úr Menning-
arsjóði 1978 og 1988, Listamanna-
laun 1981 og starfslaun rithöfunda
1985,1986,1987,1988,1989,1990 Og
1992. Hún fékk styrk úr Rithöfunda-
sjóði 1987, Barnabókaverðlaun
Reykjavíkurborgar 1987, viður-
kenningu Barnabókaráðs IBBY
1988, verölaun fyrir útilistaverk í
Laugardal 1989 og heiðurslaun
Bmnabótafélags íslands 1994.
Fjölskylda
Maður Sigrúnar er Hjörleifur Stef-
ánsson, f. 12.12.1949, arkitekt. For-
eldrar hans: Stefán Jónsson, f. 9.5.
1923, d. 17.9.1990, fréttamaður, al-
þingismaður og rithöfundur, og Sól-
veig HaUdórsdóttir, f. 4.10.1920,17.3.
1982.
Börn Sigrúnar og Hjörleifs: Eyrún
Edda, f. 31.10.1975; Grímur, f. 9.5.
1982; Kristján Eldjárn, f. 18.8.1989.
Böm Hjörleifs: Stefán, f. 1.11.1968;
Hildur, f. 10.3.1972, d. 26.11.1991.
Systkini Sigrúnar: Ólöf, f. 3.7.1947,
ritstjóri; Þórarinn, f. 22.8.1949, rit-
höfundur; Ingólfur, f. 13.8.1960,
tannlæknir.
Foreldrar Sigrúnar: Kristján Eld-
járn, f. 6.12.1916, d. 14.9.1982, for-
seti Islands og þjóðminjavörður, og
Halldóra Eldjám, f. 24.11.1923, hús-
móðir.
Valgerður Steimmn
Friðriksdóttir
-105 ára-elstnúlifandi íslendinga
Valgerður Steinunn Friðriksdóttir,
fyrrv. húsmóðir, Dvalarheimilinu
Hlíð, áður Aðalstræti 5, Akureyri,
er hundrað og fimm ára í dag en hún
er elst núlifandi íslendinga.
Starfsferill
Valgerður Steinunn fæddist á Há-
nefsstöðum í Svarfaðardal og ólst
þar upp við góða bama- og unglinga-
fræðslu. Hún var í vist í tvö ár hjá
læknishjónunum á Grenivík,
vinnukona á Akureyri í fjögur ár
og fór 1913 í verbúðarvinnu í Þor-
geirsfirði en Valgerður vann öll al-
menn störf er tengdust sjósókn fyrr
á árum.
Valgerður tók virkan þátt í starfi
Slysavamafélagsins, kvenfélaga og
góðtemplarareglunnar á Akureyri
og er þar heiðursfélagi með heiðurs-
merki reglunnar. Hún er vel ern
miðað við aldur og fylgist vel með
öllu. Á hverju sumri lætur hún aka
sér hringferð um Svarfaðardal en
sú sveit og dalurinn þykir henni
öðrum stöðum fegurri.
Fjölskylda
Valgerður giftist 31.10.1913 Jónasi
Franklín Jóhannssyni, f. 10.1.1883,
d. 4.7.1956, sjómanni og síðar verka-
manni á Akureyri. Foreldrar Jónas-
ar vom Jóhann Franklín Jónasson,
b. á Öngulsstöðum, Syðra-Kálfs-
skinni og Þverá í Eyjafirði, og kona
hans, Þóra Rósa Vigfúsdóttir.
Börn Valgerðar og Jónasar: Jó-
hann Friðrik Franklín, f. 26.7.1916,
d. 5.10.1978, bakarameistari á Akur-
eyri, kvæntur Mariu Jóhönnu Jó-
hannesdóttur og em börn þeirra
Guðný Valgý, f. 8.8.1940, gift Hreið-
ari Aðalsteinssyni, oddvita á Öxn-
hóh, og eiga þau sex böm, Valgerður
Árdís, f. 31.12.1941, meinatæknir á
FSA, gift Jóhanni Sigurjónssyni,
kennara við MA, og eiga þau þrjú
böm, Auöur Björg, f. 16.10.1944, var
gift Jakobi Ágústssyni, fram-
kvæmdastjóra í Reykjavík, og eiga
þau tvö börn, Erla Sigríður, f. 29.9.
1947, búsett á Akureyri, og Jónas
Hreinn, f. 29.9.1947, kvensjúkdóma-
læknir, kvæntur Sigurlaugu Vigfús-
dóttur meinatækni og eiga þau þrjár
dætur; Þóra Rósa Franklín, f. 7.3.
1919, d. 28.12.1985, var gift Ólafi
Daníelssyni sem lést 1980, klæð-
skerameistara á Akureyri, en sonur
þeirra er Ævar Karl, f. 23.9.1940,
tollfulltrúi á Akureyri, kvæntur
Sigrúnu Jóhannsdóttur, fulltrúa hjá
Tryggingastofnun ríkisins, og eiga
þauþrjúbörn.
Systkini Valgerðar voru Anna
Friðrika, f. 4.10.1882, d. 5.12.1980,
gift Adolf Kristjánssyni, skipstjóra
á Akureyri; Elín, f. 23.2.1886, d. 30.5.
1982, gift Boga Daníelssyni, trésmið
á Akureyri; Jóhann Gunnlaugur, f.
20.10.1895, d. 1.6.1898, á Hánefsstöð-
um í Svarfaöardal. Fósturbróðir
Valgerðar var Sigurður Jónsson frá
Sauðaneskoti, f. 29.7.1905, d. 9.4.
1963, prentari á Akureyri.
Foreldrar Valgerðar vom Friðrik
Friðriksson, f. 3.4.1859, d. 11.3.1924,
b. og verkamaður á Hánefsstöðum
í Svarfaðardal, síðar á Akureyri, og
kona hans, Guðrún Friðrika Jó-
hannsdóttir, f. 16.8.1860, d. 31.3.1953,
húsfreyja.
Ætt
Friðrik var sonur Friðriks, b. á
Hánefsstöðum, Björnssonar, b. á
Uppsölum, Jónssonar. Móðir Frið-
riks Bjömssonar var Anna Jóns-
dóttir, faktors á Húsavík, Péturs-
sonar og Elísabetar Guðmundsdótt-
ur, b. í Kasthvammi, Árnasonar.
Móöir Friöriks Friðrikssonar var
Anna Vigfúsdóttir, b. á Sveinsstöð-
um i Svarfaðardal, Jónssonar, b. í
Brautarholti, Vigfússonar. Móðir
Önnu var Guðfmna Erlendsdóttir,
vinnumanns í Grenivík, Jónssonar
og konu hans, Sigríðar Sveinsdótt-
Valgerður Steinunn Friðriksdóttir.
ur, b. í Grenivík, Tómassonar, b. á
Tjömum, Egilssonar.
Friðrika var dóttir Jóhanns, b. á
Selá, Sigurössonar, b. á Selá, Gott-
skálkssonar, b. á Hálsi í Svarfaðar-
dal, Sigfússonar. Móðir Friðriku var
Guðrún, systir, samfeðra, Kristínar,
langömmu Baldvins Tryggvasonar
sparisjóðsstjóra. Guðrúnar var dótt-
ir Jóns, b. í Ytra-Kálfskinni, Jóns-
sonar, b. á Hrísum, Þórðarsonar.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Jóns-
dóttir, b. á Hrísum, Halldórssonar
og konu hans, Helgu Guðmunds-
dóttur, b. í Botni í Eyjafirði, Lofts-
sonar.
Anna Steindórsdóttir Haarde
Anna Steindórsdóttir Haarde hús-
móðir, Aflagranda 40, Reykjavík,
eráttræðídag.
Starfsferill
Anna fæddist í Reykjavik og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hún
stundaði verslunarnám við Nel-
son’s College í Edinborg 1934-35 og
stundaði síðan húsmæðranám í
sömu borg. Anna starfaði við Bif-
reiðastöð Steindórs á sínum yngri
áram og aftur síðar en hefur lengst
afverið húsmóðir.
Fjölskylda
Anna giftist 11.9.1937, Tomasi
Haarde, f. í Sandeid á Rogalandi í
Noregi 14.12.1901, d. 18.5.1962,
símafræðingi í Reykjavík.
Synir Önnu og Tomasar: Bem-
hard LorangHaarde, f. 31.1.1938,
d. 2.3.1962, bankamaður í Reykja-
vík; Steindór Helgi Haarde, f. 12.9.
1940, byggingaverkfræðingur og
lektor við Tækniskóla íslands, bú-
settur á Seltjamamesi, kvæntur
Jórunni Hönnu Bergmundsdóttur,
húsmóður og tækniteiknara, og
eiga þau þrjú böm, Önnu, f. 1975,
Ágústu Björk, f. 1978 og Tómas
Bernhard, f. 1980; Geir Hilmar Ha-
arde, f. 8.4.1951, hagfræðingur og
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, kvæntur Ingu Jónu
Þórðardóttur viðskiptafræðingi og
eiga þau tvær dætur, Helgu Láru,
f. 1984, og Hildi Maríu, f. 1989 auk
þess sem Geir á tvær dætur frá
fyrra hjónabandi, þær Riu Önnu,
f. 1977, og Sylviu, f. 1981, en sonur
Ingu Jónu og stjúpsonur Geirs er
Borgar ÞórJEinarssonar, f. 1975.
Systkini Önnu: Sigurður Einar
Steindórsson, f. 7.5.1910, d. 1974,
forstjóri í Reykjavík; Guðrún
Steindórsdóttir, f. 6.10.1917, d. 1994,
húsmóðir í Reykjavík; Fjóla Stein-
dórsdóttir, f. 23.7.1920, húsmóöir í
Reykjavík; Kristján Steindórsson,
f. 26.1.1926, d. 1991, forstjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Önnu voru Steindór
Helgi Einarsson, f. 25.7.1888, d.
22.11.1966, forstjóri Bifreiöastöðvar
Steindórs, og Ásrún Sigurðardóttir,
f. 3.1.1892, d. 14.6.1963, húsmóðir.
Ætt
Steindór var sonur Einars, b. í
Ráðagerði, bróður Elínar, ömmu
Bjöms R. Einarssonar hljóðfæra-
leikara. Einar var sonur Bjöms,
b. á Litla-Hálsi, bróður Kristínar,
langömmu Gissurar, föður Hann-
esar Hólmsteins. Bjöm var sonur
Odds, b. á Þúfu í Ölfusi, Bjömsson-
ar, bróður Katrínar, langömmu
Vals leikara, föður Vals banka-
stjóra og langömmu Garðars, fóður
Guðmundar H., fyrrv. alþingis-
manns. Móðir Björns á Litla-Hálsi
var Jórann Magnúsdóttir ríka,
hreppstjóra í Þorlákshöfn, Bein-
teinssonar, b. í Þorlákshöfn, Ingi-
mundarsonar, b. á Hólum, Bergs-
sonar, ættfóður Bergsættarinnar,
Sturlaugssonar.
Móðir Steindórs Helga var Guð-
rún Steindórsdóttir, b. í Landakoti
í Reykjavík, bróður Jóns í Gröf, afa
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöf-
undar, fóður Ólafs Jóhanns, for-
stjóra Sony í Bandaríkjunum.
Steindór var sonur Matthíasar,
kaupmanns í Hafnarfirði, bróður
Páls, langafa Ólafs landlæknis, en
systir Matthíasar var Agnes, lang-
amma Matthíasar Mathiesen al-
þingismanns. Matthías var sonur
Jóns, prests i Arnarbæli, Matthías-
sonar, stúdents á Eyri, Þórðarspn-
ar, ættfoður Vigurættarinnar, Ól-
afssonar, ættföður Eyrarættarinn-
ar, Jónssonar.
Móðir Önnu, Ásrún, var dóttir
Sigurðar, b. í Sigluvík á Svalbarðs-
strönd, Jónssonar, bróður Ás-
mundar á Auðbjargarstöðum, afa
Guömundar Benediktssonar,
fyrrv. ráðuneytisstjóra.
Móðir Ásrúnar var Anna, systir
Anna Steindórsdóttir Haarde.
Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxdal
í Radíóbúðinni. Anna var dóttir
Gríms, b. í Garðsvik, bróður Hall-
dórs, langafa Hauks Halldórssonar,
formanns Stéttarsambands bænda.
Móðir Önnu var Sæunn Jónsdóttir
frá Látrum. Móðir Sæunnar var
Jóhanna Jóhannesdóttir, b. í
Grenivík, Árnasonar. Móðir Jó-
hannesar var Sigríður Sörensdóttir
fráLjósavatni.
Anna tekur á móti gestum milli
kl 17.00 og 19.00 í dag í samkomú-
salnum að Aflagranda 40,11. hæð.
Framleiöum legsteina á hagstæöu verði
Opið
laugardaga
kl.9-13.
Laugavegi 178, s. 886740
Til hamingju með afmælið 3. maí
90 ára
Ingveldur Jónsdóttir,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum.
85 ára
Sigurveig Guðmundsdóttir,
Lönguhlíð 5H, Akureyri.
80ára
Hrisalundi 4E, Akureyri.
70 ára ~~
Ólafiu-Pálsson,
Ytri-Björgum, Skagahreppi.
60 ára
miðvikudaginn4.5. kl. 19.00-22.00.
Bertha Bruvik,
Löngumýri34, Akureyri.
Ester Kristjánsdóttir,
Heiðarvegi 58, Vestmannaeyjum.
Ásta Lovísa Hermannsdóttir,
BorgarhoJtsbraut 72, Kópavogi.
Jónmundur Ólafsson,
Kambakoti, Vindhælishreppi.
40 ára
Diðrik Jónsson,
Kirkjuvegi 11, Reykjavík.
Árni Magnússon,
Fossvegi22, Siglufirði.
50 ára
Rósa Einarsdóttir,
Höfðagrund 19, Akranesi.
Jóhann Þorgilsson,
Arndís Kristjánsdóttir,
Borgarholtsbraut22, Kópavogi.
Sóley Jóhannsdóttir,
Öldutúni 5, Hafnarfirði.
Þóra Kjartanz,
Bogahlíð 16, Reykjavik,
verður fimmtug þann 8.5.
Hún tekur á móti gestum í félags-
heimilinu Drangey í Skaftahlíð
Ágúst F. Sigurðsson,
Hlíðarvegi 10, Hvammstanga-
hreppi.
Hafdís Hafliðadóttir,
Birkimel 6 A, Reykjavík.
Gestur Þorsteinn Gunnarsson,
Fífúmýri 11, Garöabæ.
Guðrún Oddný Kristj ánsson,
Fjarðarstræti 55, ísafirði.
Helga Guðbjörg Sigurðardóttir,
Bæjargili29, Garðabæ.
Sigurður Ágúst Þórðarson,
Lindarbergi24, Hafnarfirði.