Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994
Stuttar fréttir
Styðja ekki kröfur
Bandaríkin ætla ekki aö styöja
kröfu múslíma um 58 prósent
lands í Bosniu.
Barisí um herstöð
Stríðandi fylkingar í Jemen
böröust um mikilvæga herstöð í
gær og arabaþjóðir gerast reiöar
vegna bardaganna.
Enginmálamíðlun
Forseti Jemens, Ali Abdullah
Saleh, vill ekki þiggja neina mála-
miölun í stríðinu.
Tilboðtil Sýriands
Warren Chri-
stopher, utan-
ríkisráðherra
Bandaríkj-
anna, flutti
Sýrlendingum
síðasta friöar-
tilboð ísraels-
stjómar en
sagði að enn væri langt þar til
eitthvað gerðist.
SÞ einskis nýtar
Uppreisnarmenn í Rúanda
segja Sameinuöu þjóðirnar einsk-
is nýtar og ætla að hertaka höfuð-
borgina áður en sveitir SÞ koma.
Stuðningur beggja
Fulltrúi SÞ sagöi aö ÍWðargæsla
í Rúanda mundi mistakast ef
striðsaðilar styddu hana ekki.
RefsiaðgerðiríKína
Takmarkaðar refsiaðgerðir eru
meðal þess sem Bandaríkjastjóm
íhugar gegn Kínverjum.
Berlusconi vann
Silvio Ber-
lusconi, for-
sætisráöherra
Ítalíu, getur nú
byrjað aö
stjórna landinu
fyriralvörueft-
ir aö öldunga-
deild þingsins
sam-
þykkti traustsyíirlýsingu í gær-
kvöldi.
Víðræðwafstað
Bandaríkin og Japan em um
þaö bil að hefja viðskiptaviðræð-
ur.
Ferjanlogar
Einn maður lést þegar eldur
varö laus í egypskri ferju á
Rauðahafi.
Umsátri lokið
íranar segja aö umsátrinu um
höfuðstöövar íranskra pílagríma
i Mekka sé lokið.
Fymim forseti tekinn
Yíirvöld í Venesúela hafa hand-
tekið Carlos Andres Perez, fyrr-
um forseta landsins, fyrir spill-
ingu.
Fyrsta handtakan
Fyrsta handtaka PLO lögregl-
unnar fór fram i gær aðeins fimm
tímum eftir að hún yfirtók störf
ísraela.
Azizvillvita
Tarek Aziz,
aðstoðarfor-
sætisráðherra
íraks, vill vita
hvað Banda-
ríkin ætlast til
að stjómvöld í
írak geri til að
fá olíusölu-
banninu aflétt.
Snúaaftur
Yfir 100 háttsettir menn innan
PLO ætla að snúa aftur til Gaza
og Jeríkó.
MexíkóíOECD
Mexíkó er gengið í OECD, efna-
hagssamvinnu- og þróunarstoíh-
uninaí París. Beuter
Utlönd
Yasser Arafat ræddi viö Símon Peres í Osló í gær:
Ég vil fara í heilagt
stríð fyrir friðinn
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissam-
taka Palestínu, PLO, neitaði í gær að
hann hefði hvatt palestínsku þjóðina
til aö fara í heilagt stríö til að frelsa
Jerúsalem undan hersetu ísraels-
manna.
„Ég vil fara í heilagt stríð fyrir frið-
inn,“ sagði Arafat á fundi með frétta-
mönnum í Osló í gær þar sem hann
ræddi við Símon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels. „Þetta kann að vera
mistúlkað póhtískt. Ég ætla að halda
áfram heilögu stríði fyrir friðinn svo
að kristnir menn, gyðingar og músl-
ímar geti lifað saman í Jerúsalem."
Peres virtist taka þessa skýringu
Arafats góða og gilda og hann sagðist
trúa því að Arafat og PLO mundu
virða alla liði Oslóarsamkomulagsins
um friö fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, var í
Osló i gær. Slmamynd Reuter
Skömmu eftir komuna til Oslóar í
gær sagði Peres hins vegar að frek-
ari friðarumleitanir gætu verið í
hættu eftir að Arafat hefði hvatt til
heilags stríðs í ræðu í Jóhannesar-
borg á dögunum.
Þeir Arafat og Peres sögðust hafa
komið sér saman um efnisatriði frek-
ari samningaviðræðna um aukna
sjálfstjóm Palestínumanna á Vestur-
bakkanum. ísraelsmenn hafa kallað
alla hermenn sína burt frá Gaza eftir
tuttugu og sjö ára hersetu.
„Við teljum að brottflutningurinn
hafl gengið mjög vel fyrir sig,“ sagði
Peres við fréttamenn. „Við vonum
svo sannariega að þetta sé upphafið
að nýjum samskiptum."
Arafat og Peres voru í Osló til að
heiðra þátt Norðmanna í leynilegu
viðræðunum sem leiddu til friðar-
samninga ísraelsmanna og Palest-
ínumanna í fyrra. Það var stofnunin
sem kennd er við Jimmy Carter,
fyrrum forseta Bandaríkjanna, sem
stóð að heimsókninni en af því tilefni
var afhjúpuð stytta við Akershus í
Osló.
Björn Tore Godal, utanríkisráö-
herra Noregs, var greinilega ánægð-
ur með að vera gestgjafi þeirra Ara-
fats og Peresar í annað sinn í Osló.
Hið fyrra sinni var við útför Johans
Jörgens Holsts utanríkisráðherra
sem átti hvað mestan þátt í að Osló-
arsamkómulagið var gert.
„Við erum á réttri leið, friðarum-
leitanirnar halda áfrarn," sagði Go-
dal. NTB, Reuter
Það eru ekki bara „venjulegar" kvikmyndastjörnur sem hafa flykkst til Cannes til að sýna sig og sjá aðra á kvik-
myndahátíðinni sem stendur nú sem hæst. Þessar stúlkur leika í klámmyndum og klámmyndasmiðir héldu sína
eigin hátíð i einu af glæsihótelum borgarinnar í gærkvöldi. Þaö voru myndirnar Leynd þráhyggja og Flekunar-
brot sem fengu flest verðlaunin. Simamynd Reuter
Þýskaland:
Hræðsla við vaxandi
of beldi gegn útlendingum
Frjálslyndir stjórnarsinnar og póh-
tískir andstæðingar stjómarinnar í
Þýskalandi hafa varað við því að
nýlegar árásir á útlendinga í Magde-
burg og annars staðar séu merki um
að stefna hægri öfgasinna sé að
breiðast út í landinu.
Lögreglan í Magdeburg hefur verið
harðlega gagnrýnd fyrir aö bregðast
ekki harðar við árásum hægri öfga-
sinna gegn útlendingum, aðallega
Tyrkjum, sem áttu sér stað sl.
fimmtudag en svo til engar ráðstaf-
anir voru gerðar til að koma í veg
fyrir óeirðimar þrátt fyrir að lögregl-
an heföi fengið upplýsingar um að
til þeirra myndí koma.
Lögreglan hefur meðal annars ver-
ið sökuð um að hafa haldið tyrknesk-
um manni á meðan tíu kynþáttahat-
arar börðu hann og spörkuðu í hann.
Sabina, frá fyrrum Júgóslavíu, fyrir
framan heimili tyrir flóttamenn i
Hamborg sem kynþáttahatarar
reyndu að kveikja í í gær.
Simamynd Reuter
Lögreglan hefur reynt að verja sig
gegn þessari gagnrýni og segir að
átökin hafi aðeins orðið alvarleg þeg-
ar Tyrkir hófu að veija sig með hnif-
um. Lögreglan sagði að 15 þeirra 49
sem handteknir voru hefðu verið
útlendingar. Útlendingar í Þýska-
landi segjast óttast um líf sitt en þeir
segja að htla sem enga hjálp sé að fá
hjá lögreglunni.
Árásarmáhð í Magdeburg var tekið
upp á þinginu fyrir skömmu og vom
margir sammála um að atvikið væri
aðeins toppurinn á ísjakanum.
„Við uppgötvum hægt og sígandi
aö glæpir þessir, sem eru oftast
framdir af ungum árásargjörnum
mönnum, em einu sjáanlegu merkin
um það hugarfar sem ríkir sums
staöar í þjóðfélaginu og þetta em
merki sem við getum ekki lengur
horft framhjá,“ sagöi Sabine Leuthe-
usser-Schnarrenberger dómsmála-
ráðherra. Reuter
DanirætEaað
styðjagriða-
svæðifyrir hvali
Niels Helveg
Petersen, utan-
ríkisráðherra
Danmerkur. og
Svend Auken
utnhverfisráð-
herra ákváðu i
gær að dönsku
fulltrúamir á
ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins styddu tillögu um griðasvæði
fyrir hvali í Suður-íshafi.
Danir létu undan þrýstingi
Grænlendinga og Færeyinga á
síðasta ársfundi og studdu ekki
griðasvæðistillögu. Nú fengu
Danir Grænlendinga hins vegar
á sitt hand með loforði um stuðn-
ing við ósk þeirra um leyfi fyrir
hefðbundnum hvalveiðum.
Ameríkanar
viljaekkiferða-
menntilThule
Bandarísk hermálayfirvöld
neita stöðugt að hleypa ferða-
mönnum til Thule. Af þeim sök-
um hefur orðið að fresta mörgum
fyrirhuguðum hópferðum manna
sem vildu komast norður þangað
til að fara á hundasleöa. Því er
haldiö fram aö bæjarfélagið verði
af þremur milljónum króna í ár
vegna bannsins.
Allir þeir sem feröast til Thule
verða að fara um bandarísku her-
stöðina og jafnvel Grænlendingar
í innanlandsferðum þurfa sér-
stakt leyfi til slíkrar farar.
Grænlensk stjómvöld eru
óhress með þessa skipan mála.
Lars Emil Johansen, formaður
landstjórnarinnar, hefur leitaö
liðsinnis danskra stjórnvalda.
Grunurum
kosningasvindl
Alþjóðlegir eftirlitsmenn með
kosningunum í Dómirúska lýð-
veldinu sögðu að ekki heföi allt
verið með íelldu. Samkvæmt op-
inberam kosningatölum var for-
seti landsins, Joaquin Balaguer,
naumlega endurkjörinn.
Forsetinn er 87 ára gamall og
blindur og hefur þegar gegnt
embættinu í sex kjörtímabil
Riuau