Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Blaðsíða 14
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNUSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Enginn bati í augsýn
Hverju á fólk að trúa, þegar annars vegar er sagt, að
atvinnuhorfur séu að batna og hins vegar, að þær séu
að versna? Bezt er að trúa engu, en reyna að gera sér
grein fyrir, við hvað er miðað, þegar stjómmálamenn
gefa yflrlýsingar af ýmiss konar hagkvæmnisástæðum.
Forsætisráðherra sagði í blaðaviðtali í vikunni, að at-
vinnuleysi færi minnkandi og það verulega minnkandi.
Hann hefur það fyrir sér, að atvinnulausum fækkaði í
apríl um 11%, úr 6,3% í 5,6%, og að gert er ráð fyrir, að
þeim fækki í maí um 14% í viðbót, úr 5,6% í 4,8%.
í rauninni hefði ráðherrann alveg eins getað sagt, að
nú sé að vora. Tölumar hér að ofan segja ekkert annað.
Atvinnuleysi minnkar alltaf á vorin og eykst á vetuma.
Ef miðað er við sömu mánuði í fyrra, kemur 1 ljós, að
atvmnuleysið er þvert á móti að stóraukast núna.
í maí verður atvinnuleysið 4,8% eins og áður segir. í
sama mánuði í fyrra var það 4%. Þannig er atvinnuleys-
ið um þessar mundir 20% meira en í fyrra. Það gefur
því ekki rétta mynd af atvinnuástandinu að segja horf-
umar vera betri. Þær eru í rauninni miklu verri.
Ef horft er fram á sumarið, má samkvæmt mannafla-
spám fýrirtækja gera ráð fyrir, að ekki verði alveg eins
erfitt fyrir skólafólk að fá sumarvinnu og í fýrra. Hins
vegar er kvóti í sjávarútvegi víða svo langt kominn, að
búast má við meiri uppsögnum fiskvinnslufólks.
Þegar líður að næsta vetri, mun ríkisstjómin telja sig
þurfa að auka atvinnutækifæri í landinu, svo að fólk
verði í betra skapi, þegar kemur að næstu alþingiskosn-
ingum, sem verða í síðasta lagi næsta vor. Þetta mun
hún sennilega gera með þekktum töfrabrögðum.
Annars vegar mun hún á næsta fiskveiðiári leyfa
meiri þorskveiði en hagkvæmt er að veiða að ráði fiski-
fræðinga og hagfræðinga. í stað þess að hugsa til langs
tíma mun hún hugsa til loka kjörtímabilsins. Um leið
mun hún auka líkur á hruni íslenzka þorskstofnsins.
Hins vegar mun hún lina ýmsar hömlur á opinberum
útgjöldum. Það gera flestar ríkisstjómir á kosningaárum.
Hún mun þannig reyna að halda uppi skammtímaveltu
í þjóðfélaginu, auðvitað á kostnað þeirra, sem eiga að
greiða niður skuldir þjóðarinnar á næstu árum.
Slíkar aðgerðir munu samtals ekki duga til að gefa
kosningahlé á kreppunni. Svigrúmið til sjónhverfinga er
of htið til þess. Framhald á núverandi ofVeiði gefur ekki
nægan pening til að lina kreppuna. Og mikil sprenging
ríkisútgjalda yrði of áberandi í kosningabaráttu.
Hin heimatilbúna kreppa á íslandi mun því halda
áfram að draga íslendinga aftur úr vestrænum þjóðum.
Aðgerðimar munu jafnframt framlengja kreppuna. Nið-
urstaðan verður svipuð og i spá OECD, Efnahags- og
framfarastofnunarinnar, kreppa fram til aldamóta.
Hvað gerist svo eftir aldamót fer einkum efdr því,
hvemig tekizt hefur að gæta fiskistofna. Ef landsfeður
taka nú loksins í taumana og aðrir landsfeður, sem síðar
koma til skjalanna, spilla ekki fyrir, má vænta mikilla
tekna af endurreistum fiskistofnum eftir aldamót.
Kreppan á íslandi stafar af ríkisskipulagðri ofveiði á
fiski og of mikilli brennslu verðmæta í ríkisrekstri á land-
búnaði. Ekkert hefur enn komið fram, sem bendir til,
að þessum vandamálum muni linna á næstunni. Þess
vegna er líklegt, að hin séríslenzka kreppa verði löng.
Þeir, sem nú segjast sjá batamerki í efnahagslífinu,
gera það í von um, að ummælin verði gleymd, þegar
komið hefur í ljós, að þau hafa alls ekki staðizt.
Jónas Kristjánsson
Það er engin
tilviljun...
Árum saman hefur þaö veriö
vinstri mönnum mikiö skapraun-
arefni hversu myndarlega sjálf-
stæöismenn hafa haldið á málum í
Reykjavík. Ekki hvaö síst hefur
þeim sviðið hvílíka rækt sjálfstæö-
ismenn hafa ætíö lagt viö uppbygg-
ingu félagslegrar þjónustu.
Eins og menn vita hafa vinstri
menn jafnan áskilið sér einkarétt á
samúð með þeim er höllum fæti
standa og ef marka má áróður
þeirra, á almenningur ekki eina-
arðari bandamenn en á þeim bæj-
unum. En hér sem annars staöar
er reynslan ólygnust. Þegar hún er
kvödd til vitnisburðar kemur í ljós
að samhentum meirihluta sjálf-
stæðismanna er best treystandi
fyrir uppbyggingu félagslegrar
þjónustu.
Þannig hefur leikskólaplássum
fjölgað tvöfalt meira á yfirstand-
andi kjörtímabili en á valdaárum
R-lista flokkanna 1978-1982 svo
dæmi sé tekið. Þau ár voru enda
tími stöðnunar í Reykjavik. Fram-
kvæmdir drógust saman og al-
mennt má segja að uppbygging
hafi verið lítil sem engin nema þá
helst í skattheimtu.
Sem kunnugt er hafa vinstri
menn aldrei talið eftir sér að
hækka álögur á almenning og á
árunum 1978-1982 gengu þeir þar
rösklega til verks. Þegar sjálfstæð-
ismenn tóku að nýju við stjómar-
taumunum vom skattar að sjálf-
sögðu lækkaðir. Það er því engin
tilviljun að nú þegar vinstri menn
freista þess að komast að nýju til
valda í Reykjavík forðast þeir sem
heitan eld að nefna hvemig þeim
fórst stjóm höfuöborgarinnar úr
hendi á sínum tíma.
T raust fjármálastjórn
Sjálfstæðismenn hafa ætíð lagt
mikla áherslu á styrka og örugga
KjaUarinn
Árni Sigfússon
borgarstjóri
stjóm fiármála borgarinnar.
Reykjavíkurborg er því nú með
fiársterkustu sveitarfélögum sem
um getur og hefur það gert borgar-
yfirvöldum kleift aö sinna atvinnu-
málum af þrótti undanfarin miss-
eri. Þúsundir Reykvíkinga hafa
fengið vinnu við átaksverkefni
borgarinnar og má nefna aö síðasta
sumar fengu 5000 námsmenn vinnu
hjá borginni.
Það er því engin tilviljun að for-
ystumenn verkalýðshreyfingar-
innar hafa sé ástæðu til að ljúka
miklu lofsorði á hvernig Reykja-
víkurborg hefur staðiö sig í at-
vinnumálum. Sjálfstæðismenn
hafa nú lagt fram raunhæfar og vel
útfærðar tiflögur um hvemig
skapa megi að minnsta kosti 6000
ný störf á næstu ámm.
Áfram Reykjavík
Reykjavík býr vel að íbúum sín-
um. Hún verður fegurri og
skemmtilegri með degi hverjum,
ört vaxandi þjónusta hennar við
borgarbúa er öflugri en aðrir eiga
aö venjast, fiárhagsstaöan er gríð-
arlega sterk; hún er í sókn á öllum
sviðum. Það er engin tilviljun að
undanfarin ár hefur fólk flutt tfl
hennar þúsundum saman.
Betri vitnisburður um þróun
borgarmála er vandfundinn. Sjálf-
stæðismenn em stoltir af verkum
sínum og leggja þau óhræddir í
dóm borgarbúa. Á meðan sumum
lætur fátt betur en að agnúast út í
allt og alla, ala á tortryggni, öfund
og svartsýni setja sjálfstæðismenn
markið sífellt hærra fyrir Reykja-
vík og borgarbúa.
Undir styrkri forystu sjálfstæðis-
manna miðar borginni okkar í sí-
feflu fram á við að það er engin tfl-
viljun að á sama tíma og sumir vflja
ekkert annað en breyta tfl og snúa
við ganga sjálfstæðismenn ömggir
á fimd reykvískra kjósenda undir
kjörorðunum „áfram Reykjavík!"
Ámi Sigfússon
„Á meöan sumum lætur fátt betur en
að agnúast út 1 allt og alla, ala á tor-
tryggni, öfund og svartsýni setja sjálf-
stæðismenn markið sífellt hærra fyrir
Reykjavik og borgarbúa.“
Skoðanir aimarra
Ónotaleg viðvörunarbjalla
„Máski hafa heimilin, skólamir og þeir, sem
móta leikreglur samfélagsins, ekki brugöizt nægjan-
lega vel við gjörbreyttum þjóðfélagsaðstæðum. Það
er meir en tímabært aö staldra við og hugleiða, hvem
veg bezt verður að því staðið aö stemma á aö ósi í
þessum efnum... Áfengisneyzla, mælanleg niöur í
11 ára aldur, og dæmi um drykkju 9 ára bama, hring-
ir óhjákvæmilega og ónotanlega viövörunarbjöllu,
sem glymur þjóðinni allri."
Úr forystugrein Mbl. 17. maí.
Vandratað einstigi
„Þaö þarf að finna leiöir til að nýta það vinnuafl
landsmanna sem í boði er. Kreppunni lýkur jafh-
skjótt og sá mikli fiöldi vinnufúsra handa, sem nú
er verkefnalaus, hefur fengiö aröbær störf að fást
viö. Ljóst er að einstigið mifli samdráttar og þenslu
er vandratað og engum er greiði gerður með því að
kynda á ný undir verðbólgubál. Það verður að var-
ast. Og það er hlutverk sfiómvalda, ríkissfiómar á
hverjum tíma að þræða þetta einstigi.“
Guðmundur Bjarnason þingmaður í Tímanum 17. maí.
Helsti hornsteinninn
„Það var fyrst og fremst verk Alþýðuflokksins
og formanns hans, Jón Baldvins Hannibalssonar
utanríkisráðherra að gengið var frá EES-samningn-
um án þess að íslendingar afsöluðu sér í einu eða
neinu sérstöðu sinni eða hagsmunum. Gildisstaka
EES er nú að sanna sig á fullum krafti og orðn helsti
hornsteinn í bata íslands á þessum áratug að mati
skýrsluhöfunda OECD..Nú hafa hlutlausir efna-
hagssérfræðingar OECD fellt sinn dóm um hvaö
úrskeiöis hafi farið í íslenskum efnahagsmálum og
hvaö sé vænlegast tfl uppbyggingar það sem eftir er
afþessum áratug." Úr forystugrein Alþ.bl. 18. mái.