Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Síða 29
FIMMTUDAGUR 19. MAI 1994 4i )v_________________A&næli Börkur Eiríksson Börkur Eiríksson skrifstofustjóri, Lyngholti 5, Keflavík, er ílmmtugur ídag. Starfsferill Börkur fæddist á Akureyri, ólst þar upp og lauk þar gagnfræða- prófi. Hann var skrifstofumaður hjá Bæjarskrifstofunum á Akureyri 1962-66, var sölustjóri og síðar fram- kvæmdastjóri hjá Sana hf. 1966-71, skrifstofumaður hjá Olíusamlagi Keflavíkur og nágrennis 1971-76, varð aðalhókari hjá sýslumanns- embættinu í Keflavík 1976 og hefur verið þar skrifstofustjóri frá árs- byrjun 1984. Börkur er félagi í Lionsklúbbi Keflavikur, formaður Félags hjarta- sjúkhnga á Suðumesjum frá 1992, hefur setið í kjörstjórn í Keflavík undanfarin ár og er nú formaður í yfirkjörstjóm í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Suðurnesjum. Fjölskylda Börkur kvæntist 27.12.1971 Sig- rúnu Ólafsdóttur, f. 1.2.1947, hjúkr- unarfræðingi. Hún er dóttir Ólafs A. Þorsteinssonar, framkvæmda- stjóra Ohusamlags Keflavíkur, sem lést 1988, og Hallberu Pálsdóttur húsmóður. Börn Barkar og Sigrúnar eru Ei- ríkur, f. 12.6.1971, starfsmaður hjá BYKO í Njarðvík; Starkaður, f. 18.10. 1973, nemi; Styrmir, f. 28.10.1980, nemi. Böm Barkar frá fyrra hjónabandi eru Anna, f. 18.6.1964, búsett í Reykjavík, og á hún tvo syni; Freyr, f. 21.10.1965, skrifstofumaður hjá Eimskipafélagi íslands. Systkini Barkar: Sveinn Eiríks- son, f. 23.10.1936, d. 12.2.1956; Svav- ar Eiríksson, f. 12.2.1939, skrifstofu- maður á Akureyri; Svanur Eiríks- son, f. 26.5.1943, arkitekt á Akur- eyri; Karen Eiríksdóttir, f. 27.12. 1950, hjúkmnarfræðingur. Foreldrar Barkar: Eiríkur V. Guð- mundsson, f. 12.1.1908, d. 27.5.1983, kjötiðnaðarmaður á Akureyri, og Anna S. Sveinsdóttir, f. 7.3.1909, húsmóðir. Ætt Eiríkur var sonur Guðmundar, b. á Hróarsstöðum í Öxarfirði, Jónas- son, b. á Spjör í Eyrarsveit, Guð- mundssonar. Móðir Guðmundar var Sigríður, systir Kristínar, ömmu Ásgeirs Ásgeirssonar forseta, dóttur Gríms, prófasts á Helgafehi, Pálssonar, bróður Margrétar, for- móður Ólafs Thors forsætisráð- herra. Móðir Eiríks var Sigmunda Jónsdóttir, b. á Vestara-Landi í Öx- arfirði, Jónssonar. Anna var dóttir Sveins, b. á Ey- vindará í Eiðaþinghá, Ámasonar, b. á Finnsstöðum í Eiðaþinghá, Jónssonar, b. á Finnsstöðum, Ein- arssonar. Móðir Jóns var Margrét Magnúsdóttir, b. á Galtastöðum, Jónssonar og konu hans, Sesselju Börkur Eiríksson. Guðmundsdóttur, systur Andrésar, afa Ólafs Indriðasonar, prests á Kol- freyjustað, fóður skáldanna Jóns ritstjóra og Páls umboðsmanns. Móðir Sveins var Sigurveig Gutt- ormsdóttir, b. á Finnsstöðum, Jóns- sonar og konu hans Sigurveigar Árnadóttur, b. í Jórvík, Einarsson- ar. Móðir Sigurveigar var Elísabet Jónsdóttir, prests á Eiðum, Brynj- ólfssonar, og konu hans, Ingibjargar Sigurðardóttur, b. á Surtsstöðum, Eyjólfssonar. Móðir Ingibjargar var Bóel Jensdóttir sýslumanns Wium. Móðir Önnu var Guðný Einars- dóttir, b. á Eyvindará, Þórðarsonar, b. á Krossií Fellum, Eyjólfssonar, h. á Skriðu í Breiðdal, Þórðarsonar. Móðir Eyjólfs á Skriðu var Eygerð- ur Jónsdóttir pamfíls, systir Jóns, langafa Einars H. Kvarans. Sviðsljós Forseti klúbbsins, Jakob Magnússon, mætti að sjálf- sögðu ásamt konu sinni, Valgerði Jóhannsdóttur. Ungir meistarar: Örn Harðarson, Glóðinni i Keflavik, Úlfar Finnbjörnsson, Jónatan Livingston mávi, og Sæ- mundur Kristjánsson, Hótel Borg. Sverrir Halldórsson, matreiðslumeistari Þotunnar, til vinstri, eldaði fyrir matreiðslumeistarana og fékk mikið klapp fyrir. DV-myndir Ægir Már Kárason, Suðurnesjum Tilkyimingar Álnavörubúðin í Hveragerði stækkuð Álnavörubúðln í Hveragerði hefur nú nýlega verið stækkuð um 150 m2 og er gólfílötur hennar orðin 530 m2. Sex ár eru síðan Helgi Pálsson og Sólveig Guðjóns- dóttir opnuöu verslunina í 80 m2 plássi. Verslunin er orðin þekkt um allt land fyrir ódýrar og góöar vörur. Vordagar Húsasmiðjunnar Dregið er í happdrætti viðskiptavina á hveijum degi og er dagsetning miðuð við þann dag sem verslað er. Dregið hefur verið 13. maí nr. 4620049 og 5671666, 14. maí 7580463, 15. maí 4620885, 16. mai 4621635 og 2572723. Sýning í Grandaskóla íslenska lýðveldið 50 ára nefnist sýning á verkum nemenda í Grandaskóla sem haldin verður í dag, 19. maí. 1.-4. bekkur sýna kl. 17-19.30 og 5.-7. bekkur kl. 19.30-20. Árshátíð mat- reiðslumeistara Klúbbur matreiðslumeistara hélt árshátíð sína í veitingahúsinu Þot- unni í Keflavík og var mjög vel mætt. Klúbburinn var stofnaður 1972 og 60 meistarar eru í honum. Ströng skil- yrði eru til að komast í klúbbinn. Leikhús ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00 GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson Laud 28/5, uppselt. föd 3/6, sud. 5/6, föd. 10/6, laud. 11/6, mvd. 15/6, fid. 16/6. Síðustu sýningar i vor. Ósóttar pantanir seldar daglega. Litla sviöiö kl. 20.30 KÆRA JELENA eftir Ljúdmílu Razúmovskaju í kvöld, uppselt, á morgun, uppselt, föd. 20/5, uppselt, þrd. 31/5, örfá sæti laus. Ath. aðeins örfáar sýningar. Mlðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti símapöntunum virka daga frákl.10. Græna línan 99 61 60. Grelðslukortaþjónusta. Tombóla Nýlega héldu þessar tvær stúlkur sem heita Ólöf Haila Guðrúnardóttur og Anna Þóra Kolbeinsdóttir tombólu til styrktar Rauða krossi íslands. Alls söfnuðu þær kr. 3.898. Reiðsport flytur Reiðsport er 2 ára um þessar mundir og hefur tlutt í stærra og betra húsnæði. Viðskiptavinir þurfa reyndar ekki að fara langt því búið er að opna hina nýju versl- un á austurhlið sama húss að Faxafeni 10. Hádegisverður í L.A. Café Nú nýverið tók veitingahúsið L.A. Café upp á því að hafa opið í hádeginu alla daga nema sunnudaga. Eldhúsið verður opið kl. 11.30-13.30 og svo opið allan dag- inn fyrir léttar veitingar. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágr. Bridgekeppni, tvímenningur kl. 13 í dag í Risinu. Farin verður dagsferð 25. maí kl. 10 frá Risinu, Garðskagi - Reykjanes. Upplýsingar á skrifst. félagsins s. 28812. Verðlaunasamkeppni fyrir laganema Utfljótiu:, timarit laganema, efnir til verð- launasamkeppni fyrir laganema um rit- gerðarefnið Réttaráhrif lögfestingar mannréttindasáttmála Evrópu. Ritgerð- irnar skulu vera stuttar 8-16 bls. og skal þeim skilað til ritstjóra, Gísla Tryggva- sonar, á skrifstofu Orators eða Úlíljóts í siðasta lagi á hádegi 15. júni 1994. Tórúeikar Tónleikar í Grinda- víkurkirkju í kvöld, 19. mai kl. 20.30 heldur Guð- mundur Magnússon tónleika í Grinda- víkurkirkju. Á tónleikunum mun Guð- mundur leika verk eftir þekkt tónskáld á borð við Beethoven, Chopin, Ravel, Rachmaninov og Prokofiev. Barnakór Biskupstungna í kvöld, 19. maí, verða lokatónleikar Barnakórs Biskupstungna í Aratimgu. Þar koma fram „Litti barnakórimi" en það eru nemendur 1.-3. bekkjar og einnig „Stóri kórinn“ en í honum eru börn fædd 84 og fyrr. Margrét Bóasdóttir sópran- söngkona syngur einsöng og verður dag- skrá kvöldsins fjölbreytt. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR GLEÐIGJAFARNIR eftir Neil Simon með Árna Tryggva og Bessa Bjarna. Þýðing og staðfærsla Gísli Rúnar Jónsson. í dag, fimmtud. 26/5, laugd. 28/5. föstud. 3/6, næstsíðasta sýning, laugard. 4/6, siðasta sýning. Stóra sviðið kl. 20. EVA LUNA . Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa- bel Allende. Lög og textar eftir Egil Ólafsson^. Föstud. 20. mai, uppselt, allra siðasta sýn- jng. Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til sölu í miðasölu. Ath.: 2 mlðar og geisladiskur aðeins kr. 5.000. Miðasala er opin kl. 13.0Ú-20.00 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum i sima 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasimi 680383. Greiðslukortaþjónusta. Munið gjafakortin okkar. Tilvalin tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavikur- Borgarleikhús. hlBJLi Leikfélag Akureyrar ÓFERIJ DRAUGURINN eftirKen Hill í Samkomuhúslnu kl. 20.30. Laugardag 21. maí, nokkur sæti laus, næstsíðasta sýning. Föstudag 27. mai, slðasta sýning. Bar Par eftir Jim Cartwright SÝNT í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1 Sýningar hefjast kl. 20.30. Aukasýning í dag, nokkur sæti laus, föstudag 20. mai, mánudag 23. mai, 2. í hvítasunnu ATH. Síðustu sýningar á Akureyri. Ath. Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir að sýning er hafin. Aðalmiðasalan í Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga fram að sýningu. Simi 24073. Símsvari tekur við miðapöntunum ut- an afgreiðslutíma. Ósóttar pantanir að BarPari seldar í miðasölunni i Þorpinu frá kl. 19 sýn- ingardaga. Simi 21400. Greiðsiukortaþjónusta. Burtfarartónleikar Ásdísar Gísladóttur Ásdis Gísladóttir sópransöngkona og ' Jórunn Viðar píanóleikari, koma fram á tónleikum í listasafni Sigurjóns Ólafsson- ar, Laugamestanga 70, í kvöld kl. 20.30 og eru tónleikamir síðari hluti burtfarar- prófs Ásdísar í einsöng, frá Söngskólan- um í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.