Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Blaðsíða 3
50 ARA AFMÆLI LYÐVELDIS A ISLANDI
Greið umferð
til og frá
Þingvollum
Til að sem flestir geti notið þess að vera á Þingvöllum 17. júní hefur öll
umferð verið skipulögð eins og best verður og mun því ganga greiðlega
allan daginn.
Frá Reykjavík af hringveginum:
Um eina klukkustund tekur að aka frá Reykjavík til Þingvalla.
Einstefna verður á Mosfellsheiði frá Þingvallaafleggjara í austur frá
kl. 07.00 til 13.00. Frá kl. 13.00 til kl. 15.30 verður umferð í báðar
áttir.
Frá kl. 16.00 til kl. 19.00 verður einstefna frá Þingvöllum í vestur til
höfuðborgarinnar. Þegar einstefna ríkir á Mosfellsheiðinni er vinstri
akrein ætluð langferðabílum.
Næg bifreiðastæði verða utan og innan þjóðgarðsins. Tíðar
strætisvagnaferðir verða inn á hátíðarsvæðið frá öllum bílastæðum og til
baka aftur.
Langferðabifreiðar verða í förum eftir þörfum frá kl. 07.00 til hádegis frá
Reykjavík og frá kl. 16.00 frá Þingvöllum. Fargjald fyrir fullorðna verður
400 kr. og fyrir börn 8-11 ára 300 kr. og 200 kr.' fyrir 4-7 ára, fram og íil
baka. Brottfararstaðir eru: Mjódd í Breiðholti og Umferðarmiðstöðin við
Vatnsmýrarveg, BSÍ. Langferðabifreiðar stansa við Almannagjá og
Bílastæðin á Þingvöllum er eftirfarandi:
Fyrir bíla sem koma Mosfellsheiðina:
♦ Almannagjá (fyrir ofan Almannagjá): Þessi bílastæði
eru einkum ætluð fötluðum.
♦ Öxará (við Öxarárbrú): Bifreiðastæði fyrir 12000 bíla.
♦ Tœpistígur (við innkeyrslu í þjóðgarðinn að vestan):
Bifreiðastæði fyrir 4000 bíla.
♦ Skógarhólar: Bifreiðastæði fyrir 8000 bíla.
Bílastæði fyrir bíla sem koma akandi Grímsnesið
frá Suðurlandi:
> Gjábakki: Bílastæði fyrir 800 bíla.
+ Leirar (við þjónustumiðstöð):
Bílastæði fyrir 4000 bíla
Aðrar aðkomuleiðir eru opnar eins og venjulega.
Nesjavallaleið verður lokuð fyrir almenningsumferð
en notuð sem öryggis- og neyðarleið fyrir sjúkrabifreiðar,
lögreglu og aðra neyðarþjónustu.
Umferðinni við og á Þingvöllum verður stjórnað
af lögreglu og björgunarsveitarmönnum og ber
ökumönnum að fylgja því.
Upplýsingum um umferð og annað verður útvarpað
allan daginn.
Stranglega er bannað að vera með hunda
á hátíðarsvæðinu.
Næg tjaldstæði verða í Skógarhólum og Bolabás.
Strætisvagnar aka endurgjaldslaust til og frá
tjaldstæðum og inn á hátíðarsvæðið.
BÍLASTÆDI
TÆPISTÍGUR
BÍLASTÆÐI
ALMANNAGJÁ
BÍLASTÆÐI
LEIRAR
MIÐSTÖÐ
STJÓRNSTÖD
ÞJÓNUSTU
, MIÐSTÖD
BÍLASTÆÐI
ÖXARÁ
VÆÐI
BILASTÆÐI
GJÁBAKKA
BÍLA- OQ
TJALDSTÆDI
SKÓGAR-
ÓLUM
ARGUS / SÍA