Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 1994
Fréttir_________________________~ _____________________________________________pv
Halldór Jóhannsson arkitekt á Akureyri:
Biður um bæjarábyrgð til að
geta annast miðasölu á HM ’95
Sex keppa um sölu aðgöngumiða á handboltakeppnina
„Það eru a.m.k. 6 aðilar sem hafa
lýst áhuga á að annast miðasölumál-
in fyrir keppnin. Um er að ræða
ferðaskrifstofur og einstakling hér
innanlands og einnig aðila erlendis.
Við verðum að fara að koma þessu
máli á hreint og það verður gert eför
helgina enda er geysimikið hringt og
spurt hvar hægt sé aö kaupa miða,“
segir Siguijón Friðjónsson, mark-
aðsstjóri heimsmeistarakeppninnar
í handknattleik sem fram fer hér á
landi á næsta ári.
Halldór Jóhannsson, arkitekt á
Akureyri, er sá einstakiingur sem
sýnt hefur áhuga á að fá að selja
aðgöngumiðana, bæði hér innan-
lands og erlendis. Halldór sagði í
samtali við DV í gær að hann hefði
átt í viðræðum við framkvæmda-
nefnd HM um þetta mál. Ýmsir
möguleikar hefðu verið ræddir en
málið væri ekki komið lengra og beð-
ið ákvörðunar HM-nefndarinnar.
Haildór hefur farið fram á ábyrgð
Akureyrarbæjar fari svo að hann fái
að annast sölu aðgöngumiðanna.
Bæjarráð hefur rætt það erindi en
frestaði ákvörðun í málinu.
„Framkvæmdanefnd heimsmeist-
arakeppninnar hefur verið í Portúgal
að undanfornu en einnig hafa farið
fram hér heima viðræður við ýmsa
aðila sem sýna máhnu áhuga. Frá
okkar sjónarmiði er þetta spuming
um það hver býður best,“ sagði Sig-
urjón Friðjónsson markaðsstjóri.
Þjóöminjasafhið á borðum landsmanna:
Munir og minjar á mjólkurfernum
Mjólursamsalan hefur sett á mark-
að nýmjólkur- og léttmjólkurfemur
sem skreyttar em með teikningum
af munum og minjum í umsjá Þjóð-
minjasafns íslands.
Þjóðminjasafnið verður á borðum
íbúa á Suðvesturlandi, sem er mark-
aðssvæði Mjólkursamsölunnar,
næstu mánuðina, þvi um er að ræða
6 milljónir lítra, sem er um það bil
sumameyslan á svæðinu.
„Tuttugu og fjórar mismunandi
myndskreytingar eftir Gunnar
Karlsson teiknara ásamt stuttum
texta eftir Guðmund Magnússon
fyrrverandi þjóðminjavörö verða á
fernunum," segir Björn G. Björnsson
hönnuður sem hefur haft veg og
vanda af samstarfi við Mjólkursam-
söluna fyrir Þjóðminjasafnið.
Mjólkursamsalan bauð Þjóminja-
safninu pláss á öllum nýmjólkur- og
léttmjólkurfernum í sumar til að
kynna muni og minjastaði í umsjá
safnsins. Tilefnið var afmæhsár lýð-
veldisins og ferðaátakið íslandsferð
fjölskyldunnar. Efnt var th sam-
keppni meðal auglýsingastofa um
verkefnið og varð Hvíta húsið hlut-
skarpast.
„Það er mjög eftirsótt að fá myndir
birtar á mjólkurfernum því þær eru
gríðarlega öflugur íjölmiðill. Víða
um land eru munir og minjar, gömul
24 mismunandi teikningar af munum og minjum í umsjá Þjóðminjasafns íslands prýða mjólkurfernur á Suðvestur-
landi í sumar. Mjólkursamsalan kynnir þetta sem „Fjársjóð á fernum" og hvetur landsmenn til að ferðast innanlands
í sumar og kynna sér menningarminjar þjóðarinnar. DV-mynd Brynjar Gauti.
hús og fornleifar, sem eru sannarlega athygh á því að Þjóöminjasafnið er rekur starfsemi um land allt,“ sagði
þess virði að skoða. Við vhjum vekja miklu meira en safn í Reykjavík. Það Bjöm.
„Þetta hefur ekkert truflað mig.
Ég hef veriö á fúhu í pólitík allan
þann tíma sem ég hef verið starf-
andi sem formaður Blaðaraanna-
félagsins. Ég hef verið varabæjar-
fuhtrúi og setiö í ráðum og nefnd-
um og ekki orðið var við að ég
hafi ekki kunnað að gera skh á
mhli sveitarstjómarmála og míns
faglega starfs fyrir hönd blaöa-
manna," segir Lúðvík Geirsson,
formaður Blaðamannafélags ís-
lands, aðspurður um hvort þaö
sé samræmanlegt að vera form-
aöur Blaðamannafélagsins og á
fúhu í pólitík á sama tíma.
Lúðvik er nýkjörinn bæjarfull-
trúi fyrir Alþýðubandalagið í
Hafnarfirði sem hefúr gengið th
meirihlutasamstarfs viö Sjálf-
stæðisflokkinn. Lúðvík hyggst
sitja áfram sem formaður BÍ.
„Ég var kjörinn formaður fé-
lagsins á aðalfundi síðasthðið vor
og þá fór það ekkert leynt að ég
hafði gefiö kost á mér íþetta bar-
áttusæti í Hafnarfírði. Eg fór auö-
vitað ekki í þessar kosningar
öðmvísi en th að vinna. Ég haföi
reyndar ætlað að láta af störfum
þjá BÍ nú í vor en félagar lögðu
aö mér að halda áfram störfura
og ég varð við því,“ sagði Lúövík.
Úrshtin í formannsslagnum í Al-
þýðuflokknum vom söguleg. Sum-
ir segja að þetta hafi verið uppgjör
tveggja fylkinga í flokknum og nú
er að sjá hvað sú fylking gerir sem
undir varð. Nýkjörinn formaður
hefur verk að vinna að halda þess-
um htla flokki saman.
Hvað sem líður formannskosn-
ingunni og hvað sem líður framtíð-
inni, þá er eitt víst. Guðmundur
Ámi Stefánsson kom með pálmann
í höndunum út úr þessum slag.
Guömundur Ami var maðurinn
sem vann þesa kosningu, hvemig
sem á aht er litið.
Guðmundur Ámi hafði nefnhega
vit á því fyrir kosninguna aö gefa
yfirlýsingu. Hún var svona:
„Kýs Jóhönnu en styö þó Jón
Baldvin ef hann vinnur".
Það var sagt aö Machiavelh hefði
verið manna frægastur í veraldar-
sögunni fyrir þá snhld sína að bera
kápuna á báðum öxlum, standa
með öhum en koma þó fyrst og
fremst sinni eigin ár fyrir borð.
Machiavelh var slægur og slyngur
og hafði tungur tvær og talaði sitt
með hvorri.
Nú höfum við eignast nýjan
Machiavelh. Hann heitir Guð-
mundur Ámi og er í Alþýðuflokkn-
Bæði með og móti
um á íslandi.
Guðmundur Ámi gekk th þessa
flokksþings með því hugarfari að
loka engum dyrtun. Hann studdi
Jóhönnu en hélt með Jóni Baldvin.
Hann styður Jón Baldvin þótt hann
hafi greitt atkvæði gegn honum.
Hann er með Jóni Baldvin af því
hann vann en ekki endhega af því
hann er betri en Jóhanna sem tap-
aði. Guðmundur Ámi styður sigur-
vegarann og það er auðvitað máhð.
Að standa með þeim sem sigrar.
Ekki endhega með sínum manni
og ekki endhega með betri fram-
bjóðandanum heldur stendur hann
með þeim sigrar, hvort sem sá sem
sigrar er hans maöur eða ekki.
I póhtíkinni lenda menn aftur og
aftur í þeirri ghdru að taka afstöðu
með einum og á móti öðrum. Svo
sitja þeir uppi með afleiðingamar.
Það kemur líka fyrir í póhtíkinni
aö menn hafi sannfæringu fyrir
málstað og asnast til aö standa með
þeim málstað fram í rauðan dauð-
ann. Standa og falla með skoðunum
sínum. Hvað þá þegar kemur að
kosingum. Þá standa þeir og faha
með frambjóðendum.
Þetta hefur orðið mörgum frama-
gjömum stjómmálamanninum að
fahi. Þeir veðja á ranga hesta.
En ekki Guðmundur Ami- Hann
hafði vaðið fyrir neðan sig. Hann
tók af skarið áður en gengið var th
kosninga, th að lýsa því yfir að
hann kysi einn en styddi annan.
Þar með var hann búinn að guh-
tryggja sig upp á framtíðina.
Slíkra manna bíður mikill frami
í stjómmálum. Auk þess sem hér
er greinhega sveigjanlegur og aö-
lögunarhæfur maður á ferð hefur
hann th aö bera þá víðsýni sem
þarf. Hann er hafinn yfir flokka-
drætti, án þess þó að víkjast undan
þeirri skyldu að taka afstöðu. Það
gerir hann með því að vera bæði
með og móti. Hann styður einn en
fylgir öðram en er þó með báöum,
eftir því hvor sigrar. Hann tekur
mið af aðstæðum. Hann er allra.
Hann er flokkshohur og húsbónda-
tryggur. Hann styður formanninn,
þegar hann hefur verið kosinn, en
ekki ef hann er ekki kosinn. Þá
styður hann þann sem hann studdi
ekki en styður af því aö aðrir
studdu hann. Hann styður þann sm
hinir styðja ef þeir em nógu marg-
ir th að sá sem hann styður ekki
er kosinn fram yfir þann sem hann
styður. Þá styður hann ekki lengur
þann sem hann styður heldur hinn
sem hann styður ekki.
Með þessu móti er Guðmundur
Ámi afar líklegur sem framtíöar-
forystumaður Alþýðuflokksins.
Flokkiim vantar svona mann. Al-
þýðuflokkurinn þarf á meira kjör-
fylgi að halda og th þess var efnt
th uppgjörs og klofnings í flokkn-
um á þessu þingi. Guðmundur Ámi
vih meira kjörfylgi og styður því
þann sem flokkurinn velur þótt
hann styðji hann ekki ef hann skil-
ur ekki að kjörfylgið byggist á því
að Guðmundur Ámi veðji á réttan
hest. Og th að Guðmundur Ámi fái
sinn mann kosinn og flokkurinn fái
meira kjörfylgi styður Guömundur
einn en kýs annan og er á móti
þeim sem hann styður ef hann get-
ur verið með þeim sem hann styður
ekki.
Er nokkur furða þótt Guömund-
ur hafi verið kjörinn varaformað-
ur?
Dagfari