Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ1994 Fréttir Sandkom dv Púkinn Jón Baldvin Hannibalsson endurkjörinn formaður Alþýðuflokksins: Fagna afdráttarlausri traustsyfirlýsingu - sem auðveldar mér að leiða flokkinn í þeim átökum sem fram undan eru Það fór sem menn grunaði. Jón Baldvin Hannibalsson hafði sigur í formannsslagnum við Jóhönnu Sig- urðardóttur á ílokksþingi Alþýðu- flokksins á laugardaginn. Jón Bald- vin hlaut 226 atkvæði eða rétt rúm 60 prósent en Jóhanna Sigurðardótt- ir 146 atkvæði eða tæp 40 prósent. Þetta var meiri munur en flestir áttu von á og kom fólki á flokksþinginu á óvart. Þaklð enn á iVndnimsloftið átannlækna- stofunni i heil- sugæslustiiö- mniáHúsavík kvaðwi'.-.i.rvi blandið þassa dagana enda vinnaþeirþar hliðviðliliö tannlaiknarnir Stefán Haralds- son.oddviti framsóknar- manna í bæjarmálunum, og Sigurjón Benediktsson, oddviti sjálfstæðis- manna. Þessir flokkar hafa einmitt verið í meirihlutasamstarfi í bæjar- stjórn Husavikur í 16 ár en nú brá svo við að framsóknarmenn töluðu ekki við sjálfstaiöismenn eftir kosn- ingar heldur gengu í eina sæng með allaböllum og lokuðu á eftir sér. Sig- urjón er sagöur skapmaður sem mun ektó hatá tekið þessu þegjandi. Þatóð er þó enn á heilsugæslustöðinni en Stefán segir að vissulega hafi verið nokkuð lágskýjaö á tannlæknastof- unni að undanförnu. Hagsmunagæsla? Þaðkannað hafa ráðið nokkru um að Sjálfstæðis- flokkurinn var skilinn eftir úti íkuldanumá HusavikaðSig- urión Bene- díktsson láekk- cn aþi'irri skoðunsiniúað sameina ærti fiskvinnsluna og útgerðina í bænum undir eina stjóm. Talaði hann í því sambandi m.a. um hagsmunagæsluoggöl- ; skyidufyrirtæki en framsóknarmenn: og allaballar. sem nu eru komnir í eina sæng í bæjarstjórn, hafastjórn- aðþessum fyrirtækjum. Pyrrverandi bæjarfulltrúi framsóknarmanna er framkvæmdastjóri annars fyrirtæk- isins en efsti maður á lista aUaballa núnastýrirútgerðinni. Meirihluta- Fiatinn ÁAkureyrifer hins vegar tals- vertbeturá mcðþeimJak- obiBjörnssyni framsóknar- manni, verð- andíbæjar- sfjóra, og kratanum GíslaBraga Hjartarsyni, en þeirraflokkar hafamyndaö nýjan bæjarstjómarmeirihluta þar. Þeir félagar hafa oftsinnis, bæöi fyrir og eftir kosningar, ekið um í gamalli Fiat Uno bifreið í eigu Braga og eigin- konu hans og menn hent gaman að. Unoinn. sem nú eraldrei kallaður annað en meirihluta-Fiatinn, er orð- inn svo heimsfrægur á Akureyri að ekki má þvo hann, einn baksýnís- speglanna er brotinn en þaö er ekki sagt gera neitt til þvf að þeir félagar horfi ekki öl baka og fleira mætti nefha sem sagt er um þá félaga og fararskjótaþeirra. ÞáhafaHafn- tirðirigarfengið sinnbæjar- stjótuogdugði ekkerr minna en Akureyring- urtilaðstýra þviumdeilda meirihlufa- samstarflsem haflðen „brandara- bænum“. Sjálf- stasðrsmenn í Hafnarfirði voru ekkert á því að gieypa nyja bæjarstjórann mótþróa- laust enda er Magnús Jón Ámason af ætttlokki þeim á Akureyri sem „Eyrarpúkar" kallast,enþeireiga það helst sameiginlegt að hafa alist upp og átt heima á Dddeyrinní þar í bæ. Nokkur „ættflokkarígur" hefur veriðóAkureyriog ert.d.ekki aö efa að Innbæingar, sem búa eins og nafniö gefur til kynna innst í bænum, hlakka yfir því að „Eyrarpúki" skuli vera orðinn bæjarstjóri í Kirðinum. Hvað gerir Jóhanna? Margir lýstu því yfir við tíðinda- mann DV eftir að úrslitin lágu fyrir að þeir óttuöust að Jóhanna stæði við þá yfirlýsingu sína að ef hún næði ekki 40 prósenta fylgi myndi hún segja af sér ráðherradómi. Og enda þótt þungt væri í Jóhönnu eftir formannskjörið og hún yfirgæfi þingið vildi hún ekki gefa svar við þessari spurningu. Ræða hennar eft- ir að formannskjörið var ljóst var á gamansömum nótum til að byija Flýtavarðfor- mannskjörlnu Hlé sem gert var á störfum flokksþings Alþýðuflokksins vegna sprengjuhótunar varö ekki til að minnka þá gifurlegu spennu sem ríkti á þínginu vegna for- mannsslagsins. Reyndir þingfull- trúar sögðust ekki muna aðra eins spennu. Þingið var hreinlega að verða óstaríhæft. Þingfulltrú- ar voru út um allt hús í hornavið- ræðum og „plotti" eins og það er kallað á máh stjórnmálaáhuga- manna. Venjuleg þingstörf voru eiginlega aukaatriði. Þess vegna var gripiö til þess ráðs, þegar þinghaldið hófst aftur að loknu sprengjuhótunarhléinu, aö láta formannskjörið fara fram svo að hægt væri að haida áfram eðlilegu flokksþinghaldi. Sam- kvæmt prentaðri dagskrá voru nokkur önnur má! á undan for- mannskjörinu. Þegar menn höföu meðtekið niðurstööur formanns- og vara- formannskjörsins, fagnað eða harmað, allt eftir því hvern fram- bjóðenda menn studdu, varð al- gert spennufall. Það var líkast því að fólk lamaðist fyrst á eftir. Síð- an jafnaöi þetta sig og eölilegt þinghald hélt áfram. Vona að menn komiheiliraf þessuþingi - sagðiGuðmundurÁmi „Ég vona að menn komi heilir af þessu þingi eftir formannskjör- ið. Ég lýsti yfir stuðningi við Jó- hönnu Sigurðardóttur en uni aö sjálfsögðu niðurstööunni í for- mannskjörinu. Samviima okkar Jóns Baldvins í ríkisstjóm hefur gengið vel og ég vona aö það verði einnig svo i þessum störfum okk- ar fyrir fiokkinn," sagði Guö- mundur Ámi Stefánsson sem kjörinn var varaformaður Al- þýðuflokksins á iaugardaginn. Keppnin um varaformannssæt- ið stóö á milli Guömundar Áma, sem hlaut 188 atkvæði eða 51,5 prósent, og Össurar Skarphéöins- sonar, sem hlaut 159 atkvæöi eða 43,5 prósent. Sprengjuhótun á Alþýðuflokksþingi: Þingstörf töfðust í þrjá klukkutíma „Við fengum símtal frá karlmanni klukkan 14.05 og hann sagði sprengju vera á Alþýðuflokksþinginu. Okkur fannst full ástæða til þess að taka hótunina alvarlega og því fómm viö á staðinn og rýmdum húsið. Það gekk mjög vel fyrir sig og óhætt er að segja að fólk hafi tekið þessu af miklu jafn- aðargeöi," sagði Stefán Thordersen hjá lögreglunni í Keflavík. Hann sagði að frá þeim hefðu farið menn á staðinn og síðan verið kallaðir til sprengjusérfræðingar frá Landhelg- isgæslunni. Sérþjálfaöur sprengju- leitarhundur, Hvellur, var fenginn frá Reykjavík til þess að kemba hús- ið. „Við leituðum í húsinu og þegar ekkert fannst fengum við fólkið til þess að fara inn að nýju og taka allar eigur sínar, fatnað, töskur og poka, og síðan var leitað að nýju. Laust Sprengjusérfræðingar með hunda voru kallaðir til vegna sprengjuhótunar- innar á flokksþingi Alþýðuflokksins á laugardaginn. DV-mynd Ægir Már eftir klukkan fimm var orðið ljóst að ekkert fyndist og þá var þingfulltrú- um leyft að ganga í húsiö að nýju. Allt fór þetta mjög vel fram og vel lá á fólki, sagði Stefán.“ Enn hefur ekki tekist hafa hendur í hári þess manns sem hringdi inn sprengjuhótunina en máhð er í rann- sókn. Jón Baidvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, og Guðmundur Arni Stefánsson, nýkjörinn varaformaður flokksins, fagna að loknu formannskjöri á fiokksþinginu. DV-mynd Ægir Már með en í lokin var tóninn orðinn al- varlegur. „Minn tími mun koma,“ sagði Jóhanna. Afdráttarlaust „Ég fagna því að þessi traustsyfir- lýsing sem mér er sýnd er afdráttar- laus og auðveldar mér að leiöa flokk- inn í þeim átökum sem fram undan eru,“ sagði Jón Baldvin að formanns- kjörinu loknu. Hann sagði hka að það sem mundi skera úr um það hvernig Alþýðuflokknum og jafnaöarstefn- unni vegnaði á næstu árum væri samheldnin í flokknum. „Ég er afar hrifinn af undirtektum Jóhönnu Sigurðardóttur að geta á stund ósigurs brugðið fyrir sig skop- skyni eins og hún gerði hér áðan, það hreif mig,“ sagði Jón Baldvin. Hann var spuröur hvort Jóhanna yrði áfram ráðherra í ljósi þess sem hann sagði í samtali við DV í síðustu viku, að hann myndi segja af sér ef hann tapaði. Hann sagðist líka ætlast til þess af Jóhönnu að hún gæfi sér frið til að framfylgja stefnu flokksins í ríkisstjóminni ef hann sigraði í formannskjörinu. „Það eru nú ekki nema örfáar mín- útur síðan úrsht voru kunn í for- mannskjörinu og ég hef ekki leitt hugann að öðru ennþá en að taka á móti heillaóskum minna félaga. Ég mun að sjálfsögðu ræða við Jóhönnu Sigurðardóttur og því út í hött að svaraþessari spurningu núna,“ sagði Jón Baldvin. Mun endurmeta stöðu mína - sagði Jóhanna Sigurðardóttir að loknu formannskjörinu „Það er nú ljóst að Jón Baldvin lefur unnið í formannskjörinu meö pónokkrum mun. Ég mun nú taka mér góðan tíma til að skoða þessa niðurstöðu og endurmeta stöðu mína í Alþýðuflokknum," sagði Jóhanna Sigurðardóttir í samtah við DV að loknu formannskjörinu. Þá var hún spurð hvort hún mundi standa við þá yfirlýsingu sína að draga sig í hlé ef hún næði ekki 40 prósenta fylgi í formannskjörinu. Það vantaði nokk- ur brot upp á að hún næði þeirri tölu. Jóhanna sló á létta strengi í upp- hafi ræðu sem hún hélt að loknu formannskjörinu en tóninn harðnaði „Minn timi mun koma,“ sagði Jó- hanna Sigurðardóttir. DV-mynd Ægir Már þegar á leið og hún sagði í lokin: „Við ykkur, kæru vinir, sem studd- uð mig og treystuö mér til þess að leiða flokkinn inn í nýja tíma, vil ég segja þetta. Hafið hjartans þakkir fyrir. Ykkar trausti mun ég aldrei gleyma. Ósigur er ekki endalok alls. I sigri geta rætur ósigurs leynst en í ósigri rætur velgengni. Minn tími mun koma! Jóhanna yfirgaf þingið skömmu eftir að úrsht í formannskjörinu voru ljós og áður en varaformannskjörið lá fyrir. Það gerði og margt af hennar dyggasta stuðningsfólki. Það tók tap- inu illa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.