Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Side 12
12 Spumingin MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 1994 Tekurðu lýsi? Jóhannes H. Sigurðsson: Já, stund- um. Bjarney Kristinsdóttir: Tók það en er hætt því. Eva Sigurbjörnsdóttir: Tek alltaf lýsi. Ásta Haraldsdóttir: Tek aldrei lýsi. Birna M. Sigurðardóttir: Nei, ég tek aldrei lýsi. Arnheiður Guðmundsdóttir: Tek stimdum lýsi en finnst það hræðilega vont. Lesendur Uthafsveiðar: Samninga er þörf Konráð Friðfmnsson skrifar: Úthafsveiðar íslendinga hafa auk- ist nokkuð hin síðari ár, einkum á karfasvæðunum djúpt suðvestur af landinu. Þar hafa skipin verið að fá ágætan afla að undanfórnu. Snæfugl kom t.d. með 280 tonn af karfa til heimahafnar skömmu fyrir sjó- mannadaginn en þaö munu vera um 600 tonn upp úr sjó. Vigri RE setti einnig vel í ’ann og kom að landi með nýtt met, í tonnum tahð, innanborðs eftir um mánaðar útivist. Þessar auknu veiðar flotans á £jar- lægum miðum eru auðvitaö tilkomn- ar vegna síminnkandi aflaheimilda stjórnvalda innan landhelginnar og með sanni má segja að þetta ástand reki skipin hreinlega til að leita fyrir sér á þessum einskismanns veiði- svæðum sem nú er deilt um. Þannig sækja þau vegna þess að þau þurfa að fiska, fiska til að menn hafi at- vinnu og ekki síður fyrir þær sakir að margar útgerðir í landinu eru mjög skuldsettar. Öll lán þarf, eins og flestir vita, að greiða aftur. Lánar- drottnar heimta sitt án tafar. Þeim virðast ekki koma niðurskurðar- og uppbyggingarstefnur stjórnvalda hætishót við. Nóg um það. Margt er skrítið í kýrhausnum. Þar eru „Smugumálin" engar undan- tekningar nema síður sé. T.a.m. hafa vinir vorir Norðmenn gefið út hveija sprenghlægilegu yfirlýsinguna á fæt- ur annarri um hvað þeir hyggist gera dýfi íslenskir sjómenn trollum sínum í sjó sem enginn ræður yfir. Minna hefur sem betur fer orðið úr efndum af þeirra hálfu. Veija þeir enda frá- leitt gott málefni. Ekki eru Kanada- menn skárri. Þeir bættu raunar um betur og settu á lög í sínu landi er heimila varðskipum að khppa á tog- vír ellegar taka þá togara er stund- uðu hugsanlega þorskveiðar innan þeirra svæðis. Það ámæhsverða við þessa lagasetningu er að hún virðist líka ná út fyrir landhelgi þeirra. Ég minni á að lögin eru einkaframtak kanadísku ríkisstjórnarinnar því mér vitanlega hafa engar umræður farið fram sem réttlæta shkan yfir- gang. Hvers vegna í ósköpunum er þessu ekki mótmælt af hérlendum valdhöfum? Ætla menn virkilega að líða það að lönd setji einhhða lög er ná út fyrir þeirra eigin hafsvæöi? Ljóst er að hér stefnir í óefni ef ekkert verður aö gert og það strax. Nauðsynlegt er að semja, ekki bara við Norðmenn, Rússa eða Kanada- menn. Hér verður að semja á sameig- inlegum grunni allra þjóða. „Þessar auknu veiðar flotans á fjarlægum miðum eru auðvitað tilkomnar vegna síminnkandi aflaheimilda stjórn- valda innan landhelginnar." Strætófasismi færir út kvíarnar? Grímur Hákonarson skrifar: Sumarið 1992 voru geröar róttækar breytingar á almenningsvagnakerfi Reykjavíkursvæðisins. Breytingar th hins betra fyrir sjóði sveitarfélag- anna en til hins verra fyrir hinn al- menna neytanda. Þetta mál varð mjög umdeilt þegar því var heht í framkvæmd og strætóvinur eins og ég fór aö hugsa mig um áður en ég neytti þjónustu þeirra. Áður gengu þeir á 15 mín. fresti, nú á 20 mín. fresti, auk þess sem fargjöldin hækk- uðu upp úr öllu valdi. í örvæntingar- skyni hafa margir reynt aö falsa sk. græn kort, með misjöfnum árangri, og með tímanum hefur komið í ljós að skapast hefur hvöss stefna sumra strætóbílstjóra í garð farþeganna, svokallaður „strætófasismi". Þessa stefnu má rekja til harðari reglna nýja kerfisins, auk þess sem íjöldi bílstjóra, sem sagt var upp, voru vinstri menn sem hentuðu ekki kerf- ishugmyndum sjálfstæðismanna. Annað mál er að mér var meinaður aðgangur að vagni í Kópavoginn á dögunum þar eð ég var með reyk- vískan skiptimiöa. Grænu kortin gilda í alla vagna og undirstrika sam- eiginlega þjónustu. Hví skyldi skipti- miöinn ekki gera það líka? Daginn eftir lenti ég í sama mann- inum, nú sakaður um að hafa falsaö grænt kort sem ég hafði keypt með vitlausri dagsetningu um morgun- inn. Eftir tafir slapp ég þó með nýtt kort. Meðan á biðinni stóð meinaði sami maður fullorðinni konu aðgang að vagninum þar eð kortið hennar hafði blotnað og var því ólæshegt að mati bílstjórans, sem var alrangt. Ef ekkert verður aðhafst endar þetta nýja strætókerfi með ósköpum og strætófasisminn færir út kvíarnar (tími til breytinga Ingibjörg Sólrún!). Ofveiddu tonnin af Nýfundnalandsmiðum Erlingur skrifar: Eftir þá miklu fræðslu sem við höfum fengið frá Hafró má gera ráö fyrir að við, venjulegir vitleysingar, vitum orðið sitt htið af hveiju um þorsk, eldi, ofveiði og fátækt fiski- miða! Við höfum líka fengið að vita að vegna ónógs framboðs og hás yerös séum við sífeht að missa mark- aði yfir á ódýrari fisk, svo sem ufsa. Ég man líka eftir að hafa hlustað á Jakob Jakobsson segja okkur frá þorskþurrð við Nýfundnaland vegna ofveiði Spánverja, Portúgala og ann- arra EBE-ríkja utan 200 mílna lög- sögu Kanada. í framhaldi af því fékk DV áskilur sér rétt tilaðstytta aösend lesendabréf. Eiríkur spyr m.a. hvaðan sá (of- veiddi) þorskur komi sem menn moki nú upp úr Barentshafi. Jakob fyrirspurn sem ég hef aldrei séð svarað. Hann var spurður hvert þessi milljón tonn, sem voru veidd á tveim árum, hefðu farið. Hvar eru þau? Á hvaða markað fóru þessi mhljón tonn? Hvar eyðilögðu þessi mhljón tonn fyrir okkur sölumögu- leika? Þá er þaö þorskurinn sem hvarf gersamlega úr Barentshafinu vegna ofveiði. Fyrst hann hvarf svona ger- samlega hvaðan kemur þá ahur sá (ofveiddi?) þorskur sem menn moka upp þam'a núna? Fiskifræðingar Veiðimálastofnunar höfðu aðra skoðun á því máli en Jakob sem í vandræðagangi sínm hafði varla önnur svör en útúrsnúninga og fimmaurabrandara um þorsk sem kom ofan úr skýjum. Eftir á að hyggja held ég að við látum það svar nægja og biðjum ekki um meira af slíku. En samt. Hvar eru 1.000.000 of- veiddu tonnin af Nýfundnalandsmið- um? Getur hugsast að hjá stofnun sem rannsakar, veitir ráðgjöf og dæmir svo í eigin sök sé ekki hugsað svona? DV Veðleyfi í Kópavogi Pálmi Steingrímsson skrifar: Vegna greinar í DV 7. júni sl. vh ég benda á að Gunnar I. Birgis- son fer með rangt mál er hann telur að bæjarsjóður sé tryggður með því að hann sé með fyrsta veðrétt í lóðum og mannvirkjum. Hann segir að sjóðurinn muni bjóða í upp í andvirði lóðabréfa og þannig dekka bæinn. Bæjar- stjóri hefur veitt veðheimilchr í lóðum og er þvi lagalega bundinn þeirri gjörð. f sveitarsijórnarlög- um segir, i 89. gr., að eigi megi binda sveitarsjóð viö sjálfskuld- arábyrgð á skuldbindingum ann- arra aðha en stofhana sveitarfé- lags. Ennfremur að sveitarstjórn geti veitt einfalda ábyrgö th ann- arra aðha gegn tryggingu sem hún meti gilda. Tryggingar sem bæjarstjóri er með eru vonandi nægar. Það mun koma í ljós þegar réttað verður 1 málunum. Ánægð með Stöð 2 Matthías og Sigurbjörg skrifa: Okkur langar til þess að lýsa yfir ánægju okkar með umfjöllun Stöðvar 2 á NBA-körfuboltanum. Það er ekki á hverjum degi sem við sjónvarpsáhorfendur fáum að njóta jafn faglegra og yfirvegaðra vinnubragða og hjá þeim Einari Bohasyni og Heimi Karlssyni. Það er ekki ofsagt að þar sé veisla á ferðinni eins og þeir auglýsa. Margt er vel gert hjá Stöð 2 og þá sérstaklega fréttatengt eíhi. Við vhjum þakka íyrir þaö ura leið og við óskum stöðinní th Iiamingju með vel heppnaða um- fjöllun um körfuboltann. Ónothæf símaskrá? Gunnar hringdi: Þá er hún komin, blessuð síma- skráin, og oft hefur hún verið gölluð. Nú tekur hins vegar stein- inn úr og ég hef ekki í annan tíma vitaö furðulegri vinnubrögð. Nú er skráin tvískipt, annars vegar nafnaskrá, hins vegar atvinnu- skrá. Það ætti kannski að vera hið besta mál en er það ekki vegna þess að þegar flett er upp á heimasíma í nafhaskrá er gef- inn upp sími, og reyndar líka heimilisfang, fyrirtækis þeirra sem eru einir i atvinnurekstri. Síðan er vísað í atvinnuskrána og þar kemur, eins og gefur að skhja, heimhisfang og síma- númer fyrirtækis, númer sím- bréfs og loks heimasími viðkom- andi. Þetta eru auðvitað óþolandi vinnubrögð. Loksins samkeppni Jóhanna hringdi: Mér liggur svo sem ekki margt á hjarta en ég vildi bara koma því á framfæri að það var mál th komið að ohufélögin hættu að manga hvert við annað og aö samkeppni þeirra yrði sjáanleg. Það má auðvitaö ahtaf deila um ghdi þátta eins og safnkortsins sk. en það er óhrekjanleg stað- reynd að fólk þarf ekki að borga fyrir að fá það en fær ýmislegt í staðinn, hversu mikið sem það er. Staðgreiðsluafslátturinn er eínnig af hinu góða. Tímabærbreikkun Stefán hringdi: Það var oröið tímabært að menn hér í borginni tækju við sér og breikkuöu Miklubrautina. í fjöldamörg ár hefur sú breikkun verið nauðsynleg og loksins sjáum við hluta hennar breikka. Þá verður einnig gaman aö sjá hvaö gerist á gatnamótunum við Húsgagnahöllina. Kosningaár eða ekki, góð framkvæmd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.