Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Side 14
14 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð i lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Sprengjur í farteskinu Eftir allt sem á undan var gengið lyktaði kosningunum hjá Alþýðuflokknum vel fyrir flokkinn. Jón Baldvin var endurkjörinn formaður með meirihluta sem hann sjálfur telur afdráttarlaust umboð til sín. Minni munur hefði dregið mjög úr áhrifum og stöðu flokksformannsins og raunar verið skilaboð til hans um að hætta næst. Ef Jón Baldvin hefði fallið má ætla að afleiðingamar hefðu orð- ið flokknum erfiðar. Jón Baldvin er umdeildur stjóm- málamaður en hann er slyngur og sterkur og kratar hafa einfaldlega ekki efni á að kasta slíkum manni fyrir borð. Á hinn bóginn var fylgi Jóhönnu Sigurðardóttur svo mikið að hún getur eftir atvikum verið sátt við úrshtin. Það er ekki á hvers manns færi að fella sitjandi formann og hefði nánast verið hallarbylting ef Jóhanna hefði náð kjöri. Að fá nær 40% fylgi er afar sterk útkoma og engin ástæða fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að draga sig í hlé eftir slíka traustsyfirlýsingu. Jóhanna er fulltrúi margra innan raða Alþýðuflokksins og vinsældir hennar ná langt út fyrir flokkirm. Alþýðuflokkurinn þarf á henni að halda og kosningaúrshtin í formannsslagnum em með þeim hætti að bæði Jón Baldvin og Jóhanna geta við þau un- að. Þau þurfa um leið að taka tillit hvort til annars og það em skilaboð flokksþingsins til þeirra. Kosning Guðmundar Áma Stefánssonar í varafor- mannsstöðuna em síðan vísbending um að kratar lítí. til Guðmundar Áma sem framtíðarforingja og með þessum niðurstöðum hefur Alþýðuflokkurinn gert upp í sínum forystumálum og á að geta snúið sér sameiginlega að þeim málefnum og póhtísku viðfangsefnum sem skipa fólki undir merki þessa flokks. Það sem vekur langsamlega mesta athygh og er raun- ar aðalatriði þessa flokksþings Alþýðuflokksins er yfir- lýsing þess efnis að flokkurinn mæh með formlegri um- sókn að Evrópusambandinu. Þar með hefur Alþýðuflokk- urinn skihð sig frá öðrum flokkum og varpað sprengju inn í stjómmálaumræðuna sem mun setja mark sitt á hið póhtíska landslag. Sprengihættan af átökunum í formannskosningunni er hðin hjá og sprengjuhótunin á laugardaginn reyndist gabb. Sprengjan í farteski kratanna er fólgin í Evrópu- málunum. Þar halda þeir bæði á handsprengju og tíma- sprengju. Alþýðuflokkurinn getur hvenær sem er heimt- að að spumingunni um aðild að Evrópusambandinu verði vísað til þjóðarinnar. Alþýðuflokkurinn er viljandi og vísvitandi að storka og ögra öðrum flokkum til að taka afstöðu og sem stjómarflokkur stillir hann ríkis- stjóminni upp við vegg. Rök krata er þau að íslendingar verði óhjákvæmilega að taka máhð á dagskrá. Fyrst með hlutlausum athugun- um á kostum og göhum aðildar og síðan með því að sækja beint um aðild til að fá úr því skorið hvað sé í boði og hvenær, af hálfu Evrópusambandsins. Með því að halda að sér höndum mun ekkert gerast, segir formað- ur Alþýðuflokksins, og þjóðin vera engu nær um stöðu sína í samfélagi þjóðanna. Þetta er djarft útspil meðan aðrir flokkar em andvígir aðildarumsókn. Það skapar Alþýðuflokknum sérstöðu en um leið hættu á að einangrast og útilokast frá næstu stjómarmyndun. Á hinn bóginn getur þessi sérstaða styrkt flokkinn í næstu kosningum og til þess er kannski leikurinn gerður. Alþýðuflokkurinn hefur margar hug- myndir og góðar hugsjónir, en hann hefur fáa kjósend- ur. Til að sjá hugsjónir rætast þarf fýlgi og frumkvæði. Ehert B. Schram „Innrásin í Normandí er að sönnu mesta skipulagsafrek i hernaði sem um getur um aldir...,“ segir m.a. i grein Gunnars. Símamynd Reuter Hinrétta söguskoðun Að undanfómu hafa Vestur- landamenn sökkt sér niöur í fortíð- ina og finna þar margt við sitt hæfi. Innrásin í Normandí er að sönnu mesta skipulagsafrek í hern- aði sem um getur um aldir, eða að minnsta kosti síðan Júlíus Sesar fór yfir Ermarsundið úr hinni átt- inni fyrir 2000 árum og hertók Eng- land. Sú fortíðarþrá sem birtist í nú- verandi fullyrðingum um að sigur- inn yfir Þýskalandi fyrir 50 ámm sé innrásinni einni að þakka er orðin að viðurkenndum sannleika á Vesturlöndum, en að mínu viti er sönnu nær er innrásin kom í veg fyrir að Sovétmenn einir fengju heiðurinn af því að brjóta þýsku hervéhna á bak aftur. „Realpólitík“ Eins og allir vita snerist kalda stríðið fyrst og fremst um skiptingu á herfangi. Austur-Evrópuríkin voru herfang Rússa og trúir alda- gamalli rússneskri útþenslustefnu vildu þeir nota þau sem eins konar víggirðingu gegn umheiminum, sem í þeirra huga þýðir Þýskaland í vestri. Þetta er það sama hlutverk og öll jaðarríki Rússlandskeisar- anna, allt frá Hvíta-Rússlandi til Turkmenistan, hafa gegnt í ald- anna rás gagnvart hinni einu sönnu rússnesku „Rodinu“. Kommúnisminn var í þessu sam- bandi aukaatriði, bæöi fyrir Stalín, Churchill og - í minna mæh - Roosevelt. Þessir menn, trúir sín- um tíma, iðkuðu raunsæisstefnu, hina svoköhuðu „Realpólitík", sem síðar fékk annaö samhengi. Allir vissu að Rauði herinn hafði fært Kjallarinn Gunnar Eyþórsson blaðamaður mestar fórnir og að heimsstyrjöld- in snerist í raun og veru um land- vinninga Þjóðverja í austri og sam- einingu þýskra minnihlutahópa hvarvetna við foðurlandið sjálft. Flest er þetta nú gleymt og upp eru vaxnar kynslóðir sem halda að heimsstyrjöldin hafi snúist inn að útrýma gyðingum. En misskilji menn það sem þama var á seyöi eru þeir dæmdir til að misskilja hka eðh þess stríðs sem nú er háð á Balkanskaga. Walt Disney Þau ósköp sem á gengu í þessum hildarleik, sem var beint framhald af því sem hófst 1914, eru eðlilega ekki efni í kvikmyndir fyrir aha fjölskylduna. Sá heimildarþáttur sem sýndur var 6. júní er gott dæmi um það. Það sem ekki var sagt er merkilegra en það sem sagt var, a.m.k. fyrir þá sem til þekkja. En þetta samræmist heimsmyndinni í Bandaríkjunum, og laöar að aug- lýsendur. Sama gildir um hinn fræga „Lista Schindlers", sem mér þykir eins konar sambland af „Indiana Jones“ og „Júragarðin- um“. Margir gyöingar hta á þetta sem htilsvirðingu við helfórina, og ég er þeim sammála. En þetta er það sem mcU'kaðurinn þolir. Á næsta ári verða 50 ár frá stríðslok- um sjálfum. Fróðlegt verður að sjá hvort Disney fer inn á þann mark- að. Eitt er víst að Rússar verða ekki meðal auglýsenda. Gunnar Eyþórsson „Kommúnisminn var í þessu sambandi aukaatriöi, bæöi fyrir Stalín, Churchill og - í minna mæh - Roosevelt." Skodanir annarra Eyðslufrekur lífsmáti „Ekki þarf athyghsgáfu nema í meðallagi tíl að sjá hve fjölmargir geta leyft sér fiárfrekan lífsstíl og þarf varla að tíunda í hverju hann felst, svo augljóst er óhóf þeirra sem betur mega. Síbyljan um að opin- berir aðilar verði að draga úr öllum sínum umsvifum og skerða þjónustu við fólkið í landinu er í litlu sam- ræmi við þann eyðslufreka lifsmáta, sem fiöldi ein- stakhnga temur sér og telur sjálfsagðan, hvernig svo sem annars árar í þjóðarbúskapnum.“ Ur forystugrein Tímans 10. júní. Ekkert eftirlit „Ég tel að ekki þurfi neitt eftirht með fiskútflutn- ingi, hvort sem um frystan eða ferskan fisk er að ræða. Það eru allir að reyna aö gera sem mest verð- mæti úr þeim fiski sem veiöist og íslensk fiskvinnsla er sú besta í heiminum þannig að hún þarf ekki að óttast neitt í þessum málum. Það sýnir sig best í því að bæði þýsk og bresk skip eru farin að landa hér- lendis." Þorsteinn Már Baldvinsson í Degi 4. júni. Fram úr fjárlögum „Meginástæðan fyrir því, að nú stefnir í meiri halla á fiárlögum en Alþingi gerði ráð fyrir er sú, að ráðuneyti sum hver a.m.k. og þá sérstaklega heh- brigðis- og tryggingaráðuneytið hafa brugðizt þeirri skyldu að framkvæma spamaðaraðgerðir, sem fiár- lagaafgreiöslan byggðist á. Þannig stefnir í, að út- gjöld þessa ráðuneytis verði 1-2 mihjörðum hærri en áætlað var við gerð fiárlaga... Guðmundur Ámi Stefánsson, heUbrigðis og tryggingaráðherra, verður að gera opinberlega grein fyrir því, hvers vegna hann og ráðuneyti hans hafa ekki hlýtt fyrirmælum Alþingis um niðurskurð." Úr forystugrein Mbl. 10. júni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.