Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Síða 15
f MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 1994 15 Er Mogginn mál- gagn eða ógagn? „ ... Mogunblaöiö og Þjóðviljinn kölluðust á með þykjastrifrildisgreinum í kærustuparastíl," segir Guðbergur meðal annars. Á meðan stjórnmálin voru í ætt við hugsjón, þjóðfélagsvitund og skoðanir, leiddu þau til stofnunar stjórnmálaflokka sem byggðu til- veru sína, útbreiðslu hugmynd- anna, á sérstæðum málgögnum. í þau skrifuðu þeir sem höfðu eitt- hvað fram að færa í tengslum við stefnuskrá flokksins. Oftast voru þetta fjötraðar hugmyndir í flokks- böndum, þó kom fyrir að þær víkk- uðu flokksstarfið og bættu andlega heilsu andstæðingsins. Endurnýjun sósíalisma Allir vita hver urðu örlög helsta málgagns hugsjóna þessarar aldar og íslensks sósíalisma, Þjóðviljans. í lokin reyndi hann að endurnýja sig þannig, að varla var til sá vind- hani að hann hefði ekki möguleika á að verða ritstjóri á honum. Þann- ig bætti blaðið á sig andlausum aukahölum sem sökktu því í þagn- ardjúpið. Með dauða Þjóðviljans hættu að vera til sérstök málgögn á vegum íslenskra stjómmálaflokka. í stað- inn var farið að biðla til unga fólks- ins sem hlustar með öðru eyranu á plötur og horfir með öðru auganu KjaUarinn Guðbergur Bergsson rithöfundur á sjónvarp, en hefur mestan áhuga á að vaða reyk við að búa til mynd- bönd, tala í frjáls útvörp, búa til bíómyndir og sigra í söngvakeppni. Að sjálfsögðu gerir það fæst af þessu nema í óskhyggjunni. Það les heldur ekki dagblöð, en flettir kannski. Sá var siður Sá var siður að Morgunblaðið og Þjóðviljinn kölluðust á með þykj- astrifrildisgreinum í kærustupara- stíl. Moggamenn nutu þess að lesa vitleysuna í Þjóðviljanum og öfugt. Hvorugt blaðið hafði áhuga á alvar- legum skrifum. Það hefði ekki ver- ið hægt að bregðast við þeim með þorpslegu offorsi eða leiðrétta vit- leysu með annarri álíka. Þegar Þjóðviljinn dó fór halinn næstum í heilu lagi á Moggann. Hann hætti að vera málgagn, varð í staðinn allra gagn, en öðru fremur ógagn Sjálfstæðisflokksins. Borg- arstjórnarkosningarnar sýna það. Án Moggans hefðu andstæðingar flokksins ekki haft jafn greiðan aögang að lesendum. En þá sprett- ur upp nýtt fyrirbrigði í íslenskum stjórnmálum: enginn stjórnmála- flokkur eða pólitíkus sker sig leng- ur úr. í Mogganum eru þeir súpan í pökkunum frá Toro. Þannig urðu til neyslustjórnmál, sniðin fyrir tvær mínútur í fjöl- miðlunum. Innviðir úr steini í öllum fréttatímum kemur Davið Oddsson eins og bústin kisa og hreyfir höfuðið þrisvar á meðan hann lætur út úr sér skammtinn. I Þorsteinn Pálsson er heimiliskött- ur og hreyfir helst aldrei höfuðið. , Skaði er að missa Jón Sigurðsson. | Hann var mjósleginn í framan eins og greindarlegur síamsköttur og hallaði undir flatt, þegar hann bar komflexskammtinn á fréttaborðið. Við eigum þessa neyslu einkum að þakka fjölmiðlamanni, sem á Alþingi og þingmenn í viðtölum við sama heygarðshornið á húsinu og sendir okkur kvöldbros sem veit allt um innviði þess úr steini. Guðbergur Bergsson „Hann var mjósleginn í framan eins og greindarlegur síamsköttur og hall- aði undir flatt, þegar hann bar kornflexskammtinn á fréttaborðið.“ Kosningaskrifstofur ákjörstöðum í öllum lýðræðisþjóðfélögum tíðkast það að frambjóðendur eigi þess kost að fylgjast með að löglega og lýðræðislega sé staðið að fram- kvæmd kosinga. Hér á landi hafa framboðslistar umboðsmenn sem gegna þessu hlutverki. í því getur meðal annars falist: að fá að skoða skilríki til að staðfesta að kjósandi sé sá sem hann segist vera; að hver og einn fái að kjósa í einrúmi og án þrýstings fylgdarmanna; að að- stoð við þá sem á henni þurfa að halda sé veitt á lögmætan hátt; að ekki sé verið með ólögmætan kosn- ingaáróður eða kosningaspjöll. Kjörstjórnarmenn eru eiðsvarnir og eiga vissulega að gæta þess að öllum reglum sé fylgt. Sjálfsagt er hins vegar og óumdeilanlegt að frambjóðendur eða fulltrúar þeirra séu einnig til eftirlits. Reykjavíkur- listinn hafði 2-3 fulltrúa á hverjum kjörstað sem umboðsmenn sína við undangengnar borgarstjórnar- kosningar. Þeir skráðu ekkert um hveijir væru að kjósa og fluttu því engar slíkar upplýsingar út af kjör- fundi. Umboðsmenn Reykjavíkurhst- ans gerðu ýmsar athugasemdir við framkvæmd kosninga, en urðu hins vegar aldrei varir við neinar athugasemdir frá umboðsmönnum Sjálfstæðisflokksins í kjördeildum, enda voru þar sums staðar ungl- ingar, sem hafa hvorki þekkingu né bein í nefinu til að annast eðli- legt eftirlit með framkvæmd kosn- inga. Kjallariim Soffía Sigurðardóttir öryggisráðgjafi Einkaaðstaða fyrir umboðsmenn Sjálfstæðisflokkurinn hafði sér skólastofu í hveijum skóla, með einkaaðstöðu fyrir umboðsmenn sína. Þar voru þeir með farsíma, faxtæki, kjörskrá og flokksskrá og hóp starfsmanna. Þeir höfðu fifll- trúa í hverri kjördeild og tíndu þeir upp miða með heimilisfangi og nafni hvers kjósanda um leið og hann hafði sagt kjörstjómarmönn- um til nafns. Síðan komu sendlar á vegum flokks þeirra og sóttu þessa miða. Upplýsingar þessar um það hveijir væra búnir að kjósa, vora bomar inn í flokksaðstöðuna og einnig út úr húsi. Þegar leið á daginn, fór fólk svo að fá upphring- ingar frá Sjálfstæðisflokknum, þar sem því var tilkynnt að þeim væri kunnugt um að viðkomandi væri ekki búinn að kjósa og mælst til að menn bættu þar úr. Til hvers er einkaskráin? Eiðsvarnir kjörstjórnarmenn fylgjast með aö aöeins þeir sem séu á kjörskrá fái að kjósa og hver þeirra aðeins einu sinni. Umboðs- menn frambjóðenda á kjörstöðum geta jafnóðum fylgst með að þar sé rétt að staðið. Kjörskrár með merk- ingum um mætingu liggja fyrir hjá yfirkjörstjórn og landsyfirkjör- stjórn, þar til kærufrestur er út- runninn og era aðgengilegar um- boðsmönnum frambjóðenda allan þann tíma. Ég fullyrði því að sér skráning sjálfstæðisflokksmanna á mætingu á kjörstað, eigi ekkert skylt við eðlilegt eftirlit með lög- legri og lýðræðislegri framkvæmd kosninga. Einstaka kjósendur fóru fram á að nöfn þeirra yrðu ekki lesin upp- hátt, eða að eftirlitsmaður Sjálf- stæðisflokksins færi út á meðan þeir kysu. Þegar kjósandinn var farinn fram sneri eftirlitsmaðurinn sér að kjörstjórninni og spurði: „Hver var þama á ferð?“ og fékk undantekningarlaust svar við því! Enda á umboðsmaður frambjóð- enda rétt á því að fá að vita hver sé að kjósa, til þess að geta rækt yfirlýst eftirlitshlutverk sitt. Sjálfstæðisflokkurinn misnotar gróflega þá heimild og þá aðstöðu sem hann hefur á kjörstöðum og ætluð er til að hægt sé að fylgjast með að löglega og lýðræðislega sé staðið að framkvæmd kosninga og notar hana til að setja kosningas- mala inn í kjördeildir undir fólsku flaggi og setja upp útibú frá kosn- ingaskrifstofum sínum inni á kjör- stöðunum. Soffia Sigurðardóttir ,, Sj álfstæðisflokkurinn misnotar gróf- lega þá heimild og þá aðstöðu sem hann hefur á kjörstöðum og ætluð er til að hægt sé að fylgjast með að löglega og lýðræðislega sé staðið að framkvæmd kosninga... “ Löndunarbann á útlend fiskiskip „Ef við er- umaðtalaum erlend fiski- i, sem eru að veiöa úr sameiginleg- um fiskistofn- um utan ís- lenskrar ArnarSigurmunds- landhelgi sem son, formaður Sam- ekki hefur taka fískvinnslu- verið samið stöðva. um, þá er ég á móti því að þau fái að landa hér á landi. Ef við eigum í deilu við viökomandi ríki um nýtingu á sameiginlegum stofni þykir mér alveg rctt að banna skipum þess rikis að landa hér. Ég tel mál Útgerðarfélags Akur- eyringa vera dálítið sér á báti hvað þetta varðar. Það á meiri- hluta í þýsku úrgerðarfyrirtæki sem kunnugt er. Auk þess höfum við ekki átt í neinni deilu við Þjóðveija um nýtingu á sameig- inlegum fiskistofnum. Vissulega eru þeir að veiða úr þeim stofnum sem ekki er búið að kvótasetja enn þá. Samt tel ég að líta verði þetta sérstaka mál dálítið öðrum augum en þegar um skip í eigu útlendinga er að ræða. Svo eru það aftur á móti þau skip sem Islendingar hafa verið að kaupa fyrir litla peninga í Kanada en skrá erlendis. Við vitum aö Norö- memi líta þau hornauga og líta svo á að þau séu keypt beinlínis til veiða í Smugunni enda ekki um mörg hafsvæði að ræða sera þau geta veitt á. Ég tel að þau skip geti flækt Smugudeiluna fyr- ir okkur. En ég ítreka að ég er alfarið á móti því að erlend fiski- skip sem veiða úr sameiginlegum fiskistofnum sem ekki hefur ver- ið samið um, landi hér á landi. Furðuleg af ■ staða „Auðvitað gerum viö | olduir grein fyrirverndar- sjónarmíöi varðandi sameiginlcga fiskistofna. Varðandi karfastofn- Gunnar«a9nars’ anaerumörg ^tjonUtgerðar- spurningar- felags Akureyrmga. merki. Þar er um mismunandi tegundir að ræöa og því spuming hvað eru sameiginlegir og hvaö eru ekki sameiginlegir stofnar. Þaö skiptirþvi engu máli í samn- ingum okkar við erlend ríki hvort við leyfum þessum skipum að landa hér á landi eða ekki. Þetta eru það fá skip. Það sem við erum hins vegar að missa af í þessu sambandi er mikil þjónusta í kringum þetta. Og i stað þess að við fáum þjónustuna þá fara skip- in nú til Færeyja, kaupa þar vist- ir, olíu og aðra þjónustu. Fiskin- um er landað þar og síðan er hann fluttur til íslands, unninn hér og fluttur á markað vegna þess að þetta þýska fyrirtæki, sem viö eigum í, selur sínar af- urðir í gegnum okkar sölukerfi. Nú erum við að hasla okkur völl með karfa á Bandaríkjamarkaði. Þar er um nýjan markað aö ræða sem lítur njjöé vel út meö. Það gerir okkur erfiðara fyrir að þurfa aö landa fiskinum í Færeyj- um og flytja hann síðan til ís- lands. Vegna alls þessa þykir inér sem við séum að hengja okkur í einhvcrjar reglur sem skipta i raun engu máli varöandi samn- inga okkar um sameiginlega fiskistofna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.