Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Qupperneq 17
uglýsingastofa hf MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ1994 17 Meiming Bíóhöllin - Þrumu-Jack: ★ Draumur að komast í blöðin Ástralski kvikmyndaleikarinn Paul Hogan skaust upp á hinn alþjóðlega stjörnuhimin fyrir allnokkrum árum þegar hann lék hinn bráðskemmtilega Krókó- díla-Dundee í sannkallaðri ævintýramynd af betra tag- inu. Síðan hefur heldur hallað undan fæti hjá kappan- um. Þegar svo er komið verður að gera eitthvað í málinu og það er sjálfsagt þess vegna sem Hogan skrifaði handritiö að mynd sem nú er til sýninga í Bíóhöll Kvikmyndir Guðlaugur Bergmundsson inni, mynd sem fjallar um útlagann og bankaræningj- ann Þrumu-Jack í villta vestrinu (en ætti að vera Kobbi elding), ástralskan bófa sem stígur ekkert í vit- ið og á sér þann draum stærstan að komast á forsíður blaðanna fyrir fólskuverk sín og uppskera þar með verðlaunafé til höfuðs sér. Því meira þeim mun betra. Strax í upphafi myndar missir Kobbi félaga sína í bófaflokknum þegar þeir eru skotnir eins og ótíndir hundar við misheppnað bankarán. Kobbi ákveður þá að stunda iðju sína einn og óstuddur en áður en langt um líður er hann kominn með mállausa blökkupiltinn Ben (Gooding jr.) upp á sína arma, fyrst sem gísl eftir annað misheppnað bankarán en síðan sem lærling í glæpamennsku. Og saman lenda þeir félagar í ýmsum ævintýrum sem eru svo leiðinleg að ekki tekur að minnast á þau. Já, það er nánast ekkert nema landslagið sem eitt- hvert vit er í, hið sígilda eyðimerkurlandslag kúreka- Paul Hoganog Cuba Gooding jr. i hlutverki misheppn- aðra bankaræningja. myndanna. Hogan vissi greinilega hvað hann var með aumt handrit því hann er ekki svipur hjá sjón. Krókódíla- Dundee var hress og skemmtilegur þegar hann sagði brandarana sína en hér er Hogan svo daufur í dálkinn að undrun sætir enda brandararnir allir gamlir og fúlir. Helst að Cuba Gooding jr. sýni einhver tilþrif ef grettur flokkast undir slíkt. Simon Wincer leikstjóri vissi líka að þessu var ekki við bjargandi og hefur sjálfsagt stýrt öllu blindandi, eða með öðru auganu. Þrumu Jack (Lightning Jack). Handrit: Paul Hogan. Leikstjóri: Simon Wincer. Leikendur: Pauf Hogan, Cuba Gooding jr., Beverly D’Angelo, Pat Hingle, Kamala Dawson. izjsusL,-* tTlBOP Kynntu þér vikutiiboðin okkar. RáÖgjöf sérfræSinga um garÖ- og gróSurrækt GRÓÐURVÖRUR VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA Smiðjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 4 32 11 • Fax: 4 21 00 Á fóninn o áwm: Útvarpsstöðin FM reifar í staurinn í dag og næstu daga. Útgáfudagur geislaplötunnar REIF ÍSTAURINN er 20. júní en FM tekur forskot á sæluna. Eldheitt reif og ískaldur ísstaur fyrir heppinn hlustanda sem reifar með. Hlwstaðw « FM, pgt,ð sig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.