Alþýðublaðið - 08.04.1967, Qupperneq 2
Yfirborgarfógeti
um gialdþrot Kára
i
Albýðublaðinu hefur borizt
greinargerð' frá yfirborgarfó-
getanum í Reykjavík, Kristjáni
Kristjánssyni, og fjallar liún
um afskipti yfirborgarfógeta
af gjaldþrotaniálum Rára B.
Helgasonar, en eins og menn
muna gcrðist sá atburður fyr-
ir viku að Kári Iæsti borgarfó-
geta inni á uppboðsstað og bar
hann þungum sökum, bæði þá
strax og síðar í grein, sem öll
dagblöðin hafa birt. Fer grein
argerð yfirborgarfógeta hér á
eftir.
Kári B. Helgason hefur ritað
í dagblöð borgarinnar lýsingu
á emba?ttisfærslu minni í sam-
bandi við gjaldþrot hans og
fyrirtækja hans. Ég sé elcki á-
stæðu til að svara þeim skæt-
ingi, sem felst í ritsmíð hans
um mig, en vil í fáum orðum
lýsa afskiptum mínum af gjald-
þrotamálum hans.
1. Þann 16. nóvember barst
skiptarétti Reykjavíkur svo-
fellt bréf:
„Þar sem Almenna bifreiða-
leigan hf. Klapparstíg, Reykja-
vík, getur ekki staðið í skilum
við lánardrottna sína og þar
sem sumir þeirra eru farnir að
taka eignir úr vörzlu félagsins,
þá leyfúm við okkur hér með
að óska þess að þér, herra yf-
irborgarfógeti, takið bú Al-
mennu bifreiðaleigunnar hf. til
igjaldþrotaskipta.
Skrá um eignir og skuldir
hlutafélagsins verður afhent
eins fljótt og unnt er.
Stödd í Bandaríkjum Norð-
ur-Ameríku.
F.h. Almennu bifreiðaleig-
unqar hf. Kári B. Helgason
(sign.) Þórlaug Hansdóttir
(sign.) María Helgadóttir
(sign.)
Samkvæmt þessari beiðni
var bú Almennu bifreiðaleig-
unnar hf. tékið til gjaldþrota-
skiptameðferðar, með úrskurði
uppkveðnum 26. nóv. 1965. Upp
skrift á eignum búsins fór fram
7. og 9. desember 1965 og fram
kvæmdi uppskrift þessa Jónas
Thoroddsen bæjarfógeti að við
stöddum framkvæmdastjóra fé-
lagsins Kára B. Helgasyni og
benti hann á 'þá bíla, sem hluta-
félagið ætti, 36 að tölu, auk
annarra eigna. Innköllun var
síðan gefin út 27. nóvember
1965. Á skiptafundi sem hald-
inn var 30. nóv. 1965 voru
mættir 9 kröfuhafar eða um-
boðsmenn þeirra, og var þá
ákveðin uppboðssala á 14 bif-
reiðum tilheyrandi búinu. Á
skiptafundi 10. des. 1965 voru
mættir nokkrir umboðsmenn
kröfuhafa, sem kröfðust sölu
á opinberu uppboði á þeim bif
reiðum, sem þá voru enn óseld-
ar og hélt bæði þessi uppboð
Þórhallur Einarsson fulltrúi.
Af hálfu Kára B. Helgason-
ar komu hvorki fram á skipta-
fundum né í úppboðsrétti mót
mæli gegn sölu bifreiðanna.
Allir skiptafundir voru þó lög-
lega boðaðir og uppboðin aug-
lýst á venjulegan hátt í da‘g-
blöðum borgarinnar.
Lýstar kröfur í þrotabú þetta
námu samtals kr. 4.487.096,18
m.m.
2. Með úrskurði uppkveðnum í
skiptarétti Reykjavíkur 26.
janúar 1966 var bú Kára B,
Hel^asonar ‘telálð til skipta-
meðferðar, sem gjaldþrota, skv.
kröfu Magnúsar Fr. Árnasonar
hrl., dags. 1 des. 1965 og Brands
Brynjólfssonar lidl. dags. 18.
jan. 1966. Uppskrift á búi þessu
fór fram að viðstöddum þrota-
manni Kára B. Helgasyni, 3.
febrúar 1966 og benti hann á
eignir búsins. Uppskrift þessa
framkvæmdi borgarfógeti Jón-
as Thoroddsen. Innköllun til
'skuldheimtumanna búsins var
gefin rit 10. febrúar 1966.
Lýstar kröfur í bú þetta
námu samtals kr. 10.775.086,99
ag eru þar með ekki taldir
ýmsir kostnaðarliðir í sambandi
við skiptin.
Skiptafundir voru haldnir í
búi þessu af borgarfógeta Unn-
steini Beck dagana 3. nóv. og
7. des. 1966 og 28. marz 1967.
Á skiptafundi, sem haldinn var
3. nóv. 1966 var ákveðin upp-
boðssala á eignum þessa. bús,
þ.á.m. á hluta þess í Njálsgötu
49, en á þeim fundi vöru mætt
ir flestir kröfuhafar í búinu.
Gjaldþroti Kári B. Helgason
mætti þar einnig sjálfur til að
leiðrétta upplýsingar, sem hann
hafði gefið borgarfógeta við
upphaflega uppskx-ift búsins.
Hann óskaði þó ekki að sitja
fundinn til enda, þótt hann
vissi, að ákvörðun ýrði tekin
um ráðstöfun eignanna.
Samkvæmt þessari ákvörðun
skiptafundarins í búinu, var á-
kveðin uppboðssala á liluta bús
ins í Njáls'götu 49, og var það
uppboð auglýst í 77. 14. og 16.
tbl. Lögbirtingablaðsins 1967 og
auk þess í 5 dagblöðum borg-
arinnar nokkru fyrir uppboðs-
dag. Rétt áður en uppboðið
skyldi hefjast kom í ljós, að
vafi lék á því hvort tiltekin
veðsetning á ‘húsinu Njálsgötu
49 næði aðeins til eignarhluta
Kára eða til alls 'hússins og
þótti því nauðsynlegt að fresta
uppb.oðssplunni þar til örugg-
Framhald á 15-. síðu.
Bifvélavirkjar
heimila verkfall
Aðalfundur Félags bifvélavii’kja
var haldinn þriðjudaginn 28.
marz 1967 og var vel sóftur.
Formaður flutti ársskýrslu félag
ins, kom þar m.a. fram að samn-
ingar félagsins við atvinnurek-
endur gengu úr gildi á sl. ári. Ekki
hefur náðst samkomulag um nýja
samninga, þótt aðeins væri farið
fram á sömu kjarabætur og mörg
önnur stéttarfélög sömdu um á sl.
ári. Fjárhagur félagsins er igóður
og varð veruleg aukning eigna á
lárinu. Félagsmenn eru nú 182 og
hefur þeim ‘heldur fjölgað á liðnu
ári. Félagið keypti á árinu hús-
eignina að Skólavörðustíg 16 á-
samt nokkrum öðrum verkalýðs-
félögum og mun bráðlega flytja
aðsetur sitt þangað.
Stjórn féla'gsins er nú þannig
skipuð: Form: Sigurgestur Guð-
jónsson, varaform.'- Karl Árnason,
ritari: Gunnar Adólfsson, gjald-
keri: Eyjólfur Tómasson, vara-
gjaldkeri: Svavar Júlíusson. Gj\ld
Sinfóníutón-
leikar í Bifröst
Sinfóníuhljómsveit íslands held
ur tónleika á vegum Tónlistarfé-
lags Boi'garfjarðar í Bifröst,
fimmtudaginn 13. apríl klukkan
21.30. Stjói’nandi tónleikanna
verður Bohdan Wodiczko, aðal-
hljómsveitarstjóri hljómsveitar-
innar, og| einsöngvari verður Guð
mundur Guðjónsson óperusöngv-
ari. Á þessum tónleikum, sem eru
2. tónleikar Tónlistarfélags Borg-
arfjarðar, flytur hljómsveitin verk
eftir Grieg, Bizet, Haydn og We-
ber. Guðmundur Guðjónsson syng
ur með hljómsveitinni íslenzk lög
eftir Pál ísólfsson, Árna Thor-
steinsson og Eyþór Stefánsson.
keri Styrktarsjóðs var kjörinn
Árni Jóll,nnnesson og gjaldkeri
Eftirlaunasjóðs Sigþór Guðjóns-
son. . 'j
Um kjaramálin var gerð eftir-
farandi samþykkt með öllum at-
kvæðum:
,,Aðalfundur Félags bifvéla-
virkja, haldinn 28. rnarz 1967 sam
þykkir eftirfarandi: Með tilliti tii
þess að samningaviðræður þær,
milli sveinafélaganna og Yinnu-
veitendasambands íslands hins
vegar, sem staðið hafa frá 26.
sept. 1966, hafá verið árangurs-
lausar, og að tillögum bifvéla-
virkja um tilsvarandi kjarabætur
þeim til handa o'g jafnháir og
kauphærri launþegar fengu sl.
sumar, hefur verið hafnað af at-
vinnurekendum, og að atvinnu-
rekendur hafa heldur ekki viljað
gera rammasamning um ákvæðis
vinnutaxta, þá 'felur fundurinn
trúnaðarmannaráði félagsins aW
boða vinnustöðvun þegar því þyk-
ir nauðsynlegt til að knýja á um
samningagerð í samráði við önn-
ur félög innan ASÍ.“ j
Félag bifvélavirkja
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiniM.
Aððlfundur B.Í. |
hðldinn á Sögu |
Aðalfundur Blaðamannafé- =
laixs íslands verður haldinn I
í innri sal Súlnasalar Hótel |
Sögu á morgun, sunnudag, |
og hefst hann kl. 2. e.h. eins |
og áður hefur Verið tilkynnt. |
Stjórnin 1
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
Sigurvegarar
halda utan
Reykjavík — KB
í gærmoi'gun fóru sigurvegararnir
úr spurningakeppninni Sýslurnar
svara utan með Loftleiðaflugvél-
inni Guðríði Þorbjarnardóttur, en
verðlaunin í keppninni eru vi'ku
utanlandsför. Með þeim er af út-
varpsins lxálfu Stef'án Jónsson
útvarpsmaður og er hann farar-
stjóri þeirra, en Loftleiðir ann-
ast ýmsa fyrirgreiðslu fyrir þá.
Á flugvellinum í Luxemborg tók
á móti þeim umboðsstjóri Loft-
leiða í boxiginni og mun skrifstofa
flugfélagsins sýna þeim borgina í
dag.
Myndina hér til hliðar tók Heim
ir Stígsson við brottför þeirra fé-
laga í gærmorgun, og sjást á henni
frá vinstri: Magnús Sigurðsson,
bóndi á Gilsbakka, séra Einar
Guðnason í Reyltholti og Sigurð-
ur Ásgeirsson bóndi á Reykjum,
en það var sveit Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu sem bar si'gur úr být
um í keppninni, eins og kunnugt
2 8. apríl 1967. - ALÞÝÐUBLAÐIÐ