Alþýðublaðið - 08.04.1967, Síða 3
::V
Danskennarasamband íslands gengst fyrir nemendasýning-u í
Austurbæjarbíó í dag og á morgun, og' standa að sýningunni
allir þeir dansskólar, sem eru innan sambandsins og verða þar
sýndir balettar, barnadansar, step og samkvæmisdansar. Mynd
in er af einu atriði sýningarinnar, ballettinum Árstíðirnar.
Víx-.::-::
Deilt um verkstjórn víð
smíði dráttarbrautar
Finnur Jónsson íistmálari hjá mynd sinni „síðustu geirfuglshjónin".
Sýning á verkum
16 listamanna
I dag verður opnuð í Listasafni
íslands sýning á verkum 16 ís-
lenzkra listamanna, þeirra, er
komu heim til íslands frá námi á
órunum 1920—1930. Nína Sæ-
mundsson arfleiddi Listasafn ís-
lands að nokkrum verkum sínum
og eru þau sýnd nú ásamt verk-
um 15 annarra listamanna og eru
þau öll í ei'gu Listasafnsins. Á
sýningunni eru höggmyndir og
málverk eftir Nínu Sæmundsson,
málverk eftir Gunnlaug Blöndal,
Guðmund frá Miðdal, Finn Jóns-
son, Jón Þorleifsson, Brynjólf
Þórðarson, Svein Þórarinsson og
konu hans Karen Agnete Þórar-
insson, Kristin Pétursson, Eggert
Laxdal, Freymóð Jóhannesson,
Róstur vegna
komu Humphreys
til Frakklands
PARÍS, 7. apríl (NTB-Reuter) -
Lýgreglumenn og óróaseggir flug-
ust á í París í dag þegar Hubert
Humphreý, varaforseti Bandaríkj
anna kom í heimsókn. 129 manns
Framhald á 15. síðu.
Kristján Magnússon, Ólaf Túbals,
Höskuld Björnsson, Ásgeir Bjarn-
þórsson og Magnús Á. Árnason.
Forstöðúkona listasafnsins, Sel-
ma Jónsdóttir skýrði blaðamönn
um frá sýningunni í gær og 'gekk
með þeim um sýningarsalinn.
Selma sagði m.a. að ekki hefði
verið unnt að koma fyrir öllum
Framhald á 15. síðu.
Akureyri, Reykjavík — SJ, SJÓ
Deila er risin upp milli Vita- og
hafnarmálaskrifstofunnar annars
vegar og Akureyrarkaupstaðar
hins vegar um yfirstjórn fram-
kvæmda við smíði dráttarbrautar
á Akureyri. Hefur Vita- og hafn-
armálaskrifstofan látið stöðva
verkið, af því að Akureyrarkaup-
staður hefur ekki fallizt á að verk-
stjóri frá Vitamálum stjórnaði
verkinu.
Alþýðublaðið leitaði nánari upp
lýsinga hjá fréttaritara sínum á
Akureyri um málið, en hann hafði
samband við settan bæjarstjóra Ak
ureyrar, Valgarð Baldvinsson, og
fórust honum orð á þessa leið:
•„Svo sem kunnugt er, var á sl.
ári samþykkt í bæjarstjórn Akur-
eyrar að ráðast í byggingu drátt-
arbrautar á Oddeyri fyrir allt að
2 þús. tonna skip. að eigin þunga
og viðlegukant norðan hennar. í
samvinnu við vitamálastjóra og
Innkaupastofnun ríkisins voru vor
ið 1966 gerðir samningar um kaup
ó. efni til þessarar mannvirkja-
gerðar og hafa þe'gar verið fest
kaup á efni fyrir 20 millj. kr., en
samkvæmt áætlun vitamálastjóra
er heildarkostnaðurinn áætlaður
42 milljónir króna.
Samkvæmt lögum um hafnar-
gerð og lendiúgarbætúr ber ríkis-
sjóði að greiða 40 próáent af heild
arkostnaði við gerð slíkra mann-
vii'kja, enda séu allar ályktanir
samþykktar af samgöngumálaráðu
neytinu. Ennfremur er það skil-
yrði fyrir styrkveitingu úr ríkis-
sjóði, að framkvæmdir :séu unnar
undir umsjón vitamálastjóra eða
annarra manna, sem samgöngu-
málaráðuneytið samþykkir.
Undanfarið hafa farið fram um-
ræður milli hafnarnefndar og vita
málastjóra varðandi framkvæmd-
ir verksins. í janúar sl. kom vita-
málastjóri til Akureyrar og ræddi
við hafnarnefnd, og í för hafnar-
nefndar til Reykjavíkur í febrúar
náðist samkvæmt bókun
hafnarnefndar, fullt samkomulag
um að hafdarsjöður Akureyrar
sæi um framfcvæmdir verksins. í
samræmi við þetta samkomulag
var gerður vinnusamningur við
Framhald á bls. 15.
Sigurður Guðmundss. Jóna Guðjónsdóttir Helgi Helgason
Stjórnmálakynning
verður í dag
Stjórnmálakynning Fulltrúaráðs Alþýðuflokksins í Reykja-
vík hefst á morgun í Ingólfskaffi kl. 15. Félagsmálanefnd skil-
ar áliti. Frummælandi Sigurður Guðmundsson skrifstofustjóri,
scm ennfremur svarar fyrirspurnum; Fundarstjóri verður Jóna
Guðjónsdóttir formaður verkakvennafélagsins Framsóknar en
fundarritari Helgi E. Helgason. stud. jur. Flokksfólk er hvatt
til þess að sækja fundinn og taka virkan þátt í umræðum og
bera fram fyrirspurnir.
vegna Freyju
Reykjavík — KB
Ejársöfnun er nú hafin til að-
standenda þeirra manna, sem fór-
ust með Freyju frá Súðavík 1.
marz sl. Taka öll dagblööin í Rvík
við framlögum til söfnunarinnar.
Ekknasjóður íslands hefur ákveð-
ið að leggja 100 þúsund kr. fram
til söfnunar þessarar, en það er
mestur liluti þess fjár sem safn-
aðist á hinum árlega fjáröflunar-
degi sjóðsins fyrir skömmu. Þá
mun biskupsstofa einnig taka á
móti frekari fjárframlögum til
söfnunarinnar.
8. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3