Alþýðublaðið - 08.04.1967, Blaðsíða 6
57 menn í félagi
Náttúrufræðinga
Aðalfundur Félags íslenzkra
náttúrufræðinga var haldinn 17.
marz sl. — Fundurinn lýsti á-
nægju sinni yfir því, að Háskóli
íslands áformar nú að taka upp
kennslu í náttúrufræðum og
væntir þess, að vandað verði til
kennslunnar eftir því sem fram-
ast er unnt.
Eftirfarandi ályktun um kjara-
mál var samþykkt samhljóða.
Aðalfun ur Félags íslenzkra
náttúrufraðinga, haldinn 17.
marz 1967, lýsir óánægju sinni
með launakjör háskólamenntaðra
sérfræðinga, sem laun taka sam-
kvæmt hinu almenna launakerfi
ríkisins. Jafnframt vill fundurinn
vekja athygli á því mikla og lítt
þolandi ósamræmi, sem nú er á
launakjörum háskólamenntaðra
manna í opinberri þjónustu. —
Fundurinn lýsir yfir fullum
stuðningi við Bandalag háskóla-
manna og telur það sjálfsagða
réttlætiskröfu, að samningsréttur
fyrir háskólamenn sé í höndum
þess og aðildarfélaga þess. Fund-
urinn bendir á, að Félag íslenzkra
náttúrufræðinga er ekki og hefur
aldrei verið aðili að Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja, og tel-
ur því fráleitt, að BSRB sé með
Framhald 10. síðu.
Nvtt rit um
mmJxVtgM
.. ■ '
Frá sjóvinnnámskeiðinu. (Mynd: Hukur Sigtryggsson)
nátíúrufræði
Þættir úr náttúrufræði nefn-
ist nýr bæklingur eftir Steindór
Steindórsson frá Hlöðum. Það er
bókaforlag Odds Björnssonar, sem
lætur gefa þennan bækling út.
Bæklingur þessi skiptist í
tvennt: Plöntulandafræði og Um
sjóinn. í fyrra kaflanum er fjall-
að um flóruna, lífskjör plantn-
anna, vaxtarmót eða lífmyndir
og ioftslags- og gróðurbelti. — í
seinni kaflanum er fjallað um
sjávardýpið, efni sjávarins, gagn-
sæi, sjávarhitann, ölduganginn,
sjávarföll og strauma.
Sæmdir oröu
Eftirgreindir menn hafa nýlega
verið sæmdir riddarakrossi hinn-
ar íslenzku fálkaorðu:
Gretar Fells, rithöfundur, fyr-
ir embættis- og félagsmálastörf,
Jóhannes Elíasson, bankastjóri
fyrir störf í þágu íslenzkra banka-
mála.
Aðalíundur Skák-
sambands íslands
Aðalfundur Skáksambands
tslands vay haldinn 25. þessa
mánaðar. Forseti sambandsins,
Guðmundur Arason var einróma
endurbjörinn. Aðrir í stjórn voru
kjörhir :
Hjálmar Þorsteinsson varafor-
seti, Guðmundur G. Þórarinsson
ritari, Guðbjartur Guðmundsson
ejaldkcri, Guðmundur Pálmason,
meðitjórnandi. — í varastjórn
VorU kjörnir Arinbjöm Guð-
mundsson, Guðlaugur Guðjóns-
son og Steingrímur Aðalsteins-
son.
Styrkir frá
Evrópuráði
til tveggja mánaða dvalar í
Danmörku til að kynna sér heil
brigðiseftirlit með kjötvörum;
Snorri P. Snorrason læknir til 6
vikna dvalar í Bretlandi til að
kynna sér nýjar aðferöir og
tækni við meðferð hjartasjúk-
dóma, m. a. gjörgæzlu hjarta-
sjúklinga.
Þá hefur verið tilkynnt í aðal-
stöðvum Evrópuráðsins í Strass-
bourg, að það hafi veitt fé til
þriggja sérfræðinga, sem á þess
vegum vinna að rannsókn á atrið-
um, sem áhrjlf !hafa á lengd
sjúkrahúsvistar. Einn þessara sér
fræðinga er Ólafur Björnsson
læknir.
Sjóvinnunámskeiði
Æskulýösráðs lo
Hinu árlega sjóvinnunám-
skeiði á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavíkur lauk 20. marz sl.
Á námskeiðið voru innritaðir
um 50 piltar, og lauk rúmlega
helmingur þeirra tilskildu
prófi í sjóvinnubrögðum. Hlutu
þeir að venju sjóferðabók, þar
sem tilgreindur er árangur
hvers fyrir sig.
Efstur í framhaldsflokki varð
að þessu sinni Hafsteinn Harð-
- arson, og við námskeiðisslitin
afhenti formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur, Jón Sigurðs-
son, honum farandbikar, sem
gefinn var af Sjómannafélag-
inu.
Efstur í byrjendaflokki varð
Helgi Kristjánsson, og hlaut
hann verðlaunabikar gefinn af
Æskulýðsráði.
Auk þoss hlutu viðurkenn-
ingu þeir Ebenezar Bárðarson,
Viðar Ólafsson og Þorvaldur
Gíslason.
Aðalleiðbeinendur sl. vetur
voru eins og áður þeir Hörð-
ur Þorsteinsson og Sigurður
Óskarsson.
,|IIIIIIIIIIMMMMMMI|IIIMMMMMIMIIMIMIIIIIIIMMIIMIIMIIIMIIMIIIMMMMMMMMMIMMIIIIIIimiMMMIIIHMIMI
111111111111111.
FLUGS LINDBERGS
PARÍS
ÚTHLUTAÐ hefur verið heil-
brigðisþjónustustyrkjum Evrópu-
ráðsins 1967. Alls voru veittir 147
styrkir, þar af 8 til íslendinga.
Hér fer á eftir skrá yfir íslenzku
styrkþegana:
Brynjólfur Sandholt dýralæknir
til að sækja þriggja mánaða
námskeið í Danmörku í al-
mennri heilbrigðisfræði;
Guðmundur Þórðarson læknir til
3 mánaða dvalar í Bretlandi til
að kynna sér réttarlæknisfræði,
sérstaklega blóðflokkun;
dr. Gunnar Guðmundsson lækn-
ir til 3 mánaða námsferðar til
Bretlands, Danmerkur og Sví-
þjóðar til að kynna sér nýjar
aðferðir við greiningu heila-
skemmda;
Gylfi Baldursson heyrnarfræð-
ingur til mánaðardvalar í Dan-
mörku til að kynna sér stjórn
og eftirlit heyrnarstöðva;
Henrik Linnet læknir til tveggja
mánaðar dvalar í Bretlandi til
að kynna sér röntgenrannsókn-
ir á sýkingu í þvagfærum
barna;
Jóhanna Kjartansdóttir hjúkrun-
arkóna til tveggja mánaða
dvalar í Bretlandi til að kynna
sér meðhöndlun radíums, þegar
undirbúin er meðferð á leg-
krabbameini;
Oddur R. Hjartarson dýralæknir
SVEINN H.
VALDIMARSSON
hæstaréttarlögmaður
Sölvhólsgata 4 (Sambandshús
3. hæð).
Símar: 23338 — 12343.
21. maí eru 40 ár liðin síðan
Lindbergh fór sína frægu ferð
yfir Atlantshafið og verður þess
minnzt í sambandi við Flugsýn-
inguna í París, sem fer fram á
Le Bourget flugvelli frá 26. maí
til 4. júní.
Sýning þessi er sú 27. f röð-
inni og er sú elzta og stærsta
í heimi. Hún er haldin á tveggja
ára fresti og hafa sótt hana um
60 þúsund manna úr flugvéla-
iðnaðinum og frá flugfélögum.
Auk þess er reiknað með að
hún verði sótt af 2,5 milljónum
annarra gesta.
Bandaríkin hafa tekið þátt í
þessari sýningu frá því sú
fyrsta var haldin árið 1909, þar
sem Wright bræðumir sýndu
eina af sínum flugvélum. Að
þessu sinni kostar ríkisstjóm
Bandaríkjanna og þarlend fyrir-
tæki tólf sinnum meira til sýn-
ingarinnar en gert var árið 19
65, þegar hún var síðast hald-
in. Hefur verið byggð sýningar
höll, sem hefur 30 þúsund fer-
feta gólfflöt.
Bandaríska sýningin verður
tvíþætt. Annars vegar verður
sýnd þróun og afrek amerískra
flugmála á síðustu 40 árum og
framtíðaráætlanir í geimferð-
ferðum. Hinsvegar verður sölu-
sýning, þar sem megináherzla
er lögð á ýmiss konar útbúnað og
hluti í flugvélar og margs konar
tæki til notkunar á jörðu niðri.
Meðal annars verða sýnd mæli-
tæki, loftskeytatæki, radar,
tæki í flugtuma og önnur stjórn
tæki á jörðu, útbúnaður til
flutnings farangurs. tæki til
þokudreifingar, brunavarnar-
tæki. Eins og nú stendur er
mikill markaður fyrir tæki af
þessu tagi í Evrópu.
Kjororð sýningar Bandaríkj-
anna á flugsýningunni í París
Framhald á 15. síðu.
0 8. apríl 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ