Alþýðublaðið - 08.04.1967, Page 8
KASTLJÓS
B/óðug
valdabarátta
BREZKA stjórnin telur sér
ekki lengur fært a5 setja niSur
af eigin rammleik deilu bylting-
armanna í Aden, sem Egyptar
styðja, og andstæðinga þeirra,
sem studdir eru af erkióvini Nass
ers, forseta, Feisal Saudi-Arabíu
konungi. Þess vegna hafa Bret-
ar vonað, að Sameinuðu þjóðirn-
ar gætu stillt til fri'ðar á ell-
eftu stundu, en tíminn er naum-
ur, því að Bretar leggja niður
herstöð sína í Aden á næsta ári
og veita um leið nýlendunni
sjálfstæði. Þriggja manna nefnd
á vegum SÞ dvelst í Aden um
þessar mundir til að kynna sér
ástandið, en áður hefur nefnd-
in rætt við ráðamenn í Lundún-
um, Kairó og Jeddah, höfuðborg
Saudi-Arabíu.
En viðtökurnar, sem nefndin
hefur fengið í Aden hefur dreg-
ið mjög úr vonum Breta um, að
nefndin geti miðlað málum. Hin-
ir byltingarsinnuðu andstöðuhóp-
ar brezku nýlendustjórnarinnar,
FLOSY (Fresisfylking „hins
hernumda Suður-Jemens”) og
NLF (Þjóðfrelsisfylkingin) hafa
lýst því yfir, að þeir vilji enga
samvinnu hafa við SÞ-nefndina.
Þeir hafa jafnvel ekki viljað á-
byrgjast líf fuiltrúanna meðan á
allsherjarverkfalli því, sem lýst
var yfir við komu nefndarinnar,
stendur. Verkfallið, sem hefur
aukið mjög á spennuna í Aden
og komið af stað nýrri hryðju-
verkaöldu, átti að hrekja þá stað-
hæfingu brezku nýlendustjórn-
arinnar, að því færi fjarri að
FLOSY og NLF túlkuðu vilja í-
búanna í Aden eins og samtökin
hafa haldið fram, en reyndar hef-
ur verkfallið aukið úlfúðina milli
þjóðernissinna innbyrðis.
★ FORN FURSTADÆMI.
Siðan brezka stjórnin ákvað
árið 1962 að innlima nýlenduna
Aden, sem hefur 220.000 íbúa,
í Suður-Arabíusambandið, sem
samanstendur af nokkrum léns-
ríkjum er verið hafa undir
brezkri vernd og ná yfir mest-
alla suðurströnd Arabíuskaga,
} I I . • .ý"'
llSlilllIÍllié
hafa um 200 manns beðið bana
í sprengjutilræðum í Aden. —
Síðan fyrsta morðið var framið
1962 hefur varla liðið sá dagur
að ekki hafi verið framin blóðug
hryðjuverk. Á síðastliðnu ári
áttu sér stað rúmlega 500
■ sprengjutilræði, þar af 134 á
tveimur fyrstu mánuðum árs-
ins. Ólgan og hryðjuverkin fær-
ast stöðugt í aukana, og hætta
er á borgarastyrjöld, sem hafa
mundi í för með sér íhlutun er-
lendra ríkja.
Það var stjórn íhaldsflokksins
í Bretlandi sem ákvað stofnun
Suður-Arabíusambandsins og inn
limun Adens í það. Verkamanna-
flokkurinn gagnrýndi harðlega
þessa ráðstöfun á sínum tíma og
taldi að ógerningur væri að sam-
eir.a forn furstaríki, sem enn eru
með miðaldarsniði, og nýtízku
borg eins og Aden í eitt
lieilsteypt ríki. Nú virðist stjórn
Verkamannaflokksins vera komin
á þá skoðun, að of seint sé að
breyta þessari ákvörðun, enda
séu engin önnur úrræði fyrir
hendi. Tilvera Adens hefur hing-
að til byggzt á brezku herstöð-
inni, lítill sem enginn iðnaður
er í borginni, og Bretar segja að
bórgarbúar geti ekki staðið á
eigin fótum í efnahagslegu tilliti.
Auk þess er stjórnin bundin af
gömlum samningum og skuld-
bindingum gagnvart furstadæm-
unum. Alger kúvending á stefnu
þeirri, sem Bretar hafa fylgt til
þessa á þessum hjara heims,
mundi stofna miklum hagsmun-
um er þeir eiga að gæta — í
hættu.
★ INNBYRÐIS DEILUR.
Bretar hafa skuldbundið sig
til að veita Aden sjálfstæði á
næsta ári og flytja herlið sitt
burtu. Stjórnarandstaðan í Bret-
landi telur, að vegna ólgunnar í
Aden sé nauðsynlegt að Bretar
verði um kyrrt þar til ró komist
á. Stjórnin hefur fyrir sitt leyti
neitað að ganga á-bak orða sinna
og heldur því fram, að verði Bret-
ar um kyrrt í Aden muni hryðju-
verkin aukast um allan helming.
Ólgan í Aden á rætur að rekja
til andstöðu gegn þeirri ákvörð-
un Breta að innlima Aden í Suð-
ur-Arabíusambandið, en það sem
nú er að gerast er uppgjör milli
þjóðernissinna innbyrðis um það,
hver eigi að fá völdin eftir að
Bretar fara. FLOSY og NLF, sem
eru ennþá öfgakenndari samtök
berjast hlið við hlið gégn hinu
svokallaða „Suður-Arabíubanda-
lagi” (SAL), en það eru samtök
stuðningsmanna sambandsrikis-
ins. En FLOSY og NLF eiga
einnig í hörðum deilum innbyrð-
is. Flestir þeir, sem myrtir hafa
verið, hafa verið Arabar, ekki
Evrópumenn eða brezkir lög-
reglumenn og öryggisverðir.
★ NASSER OG FLOSY
Voldugustu samtökin eru FL-
OSY, en helztu leiðtogar þeirra
samtaka eru Abduk Qawee Ma-
qawee og Abdullal al Asnag. —
Maqawee var áður fyrr forsætis-
ráðherra í Aden og dvelst nú í
útlegð í Kairó. Honum og stjórn
hans v.ar vikið frá völdum af
Bretum í september 1965, þar
sem Bretar töldu að Maqawee
hefði misnotað völd sín til efl-
ingar FLOSY og þar sem hann
neitaði að fordæma hin auknu
hryðjuverk í Aden. Stjórnarskrá
in var numin úr gildi og Bretar
tóku öll völd í sínar hendur, og
hefur þetta ástand haldizt ó-
breytt. A1 Asnag er leiðtogi Sós-
íalistaflokksins og verkalýðssam-
bandsins í Aden. Báðir eru tald-
ir tiltölulega hófsamir menn.
Almennt er álitið, að öfugt við
andstæðinga sína til vinstri, NLF,
og andstæðingana til hægri, SAL,
hafi FLOSY forðazt að beita um
of ofbeldisverkum sem tæki í
stjórnmálabaráttunni. Hryðju-
verkin eru fyrst og fremst verk
NLF og SAL, en þó er vitað, að
FLOSY hefur staðið fyrir póli-
tískum morðum til að standa
keppinautum sínum á sporði.
Bæði FLOSY og NLF njóta
stuðnings Egypta. Fréttaritarar
telja hins vegar, að Nasser sé
hrifnari af FLOSY.
Aðstaða SAL hefur versnað til
muna að undanförnu í Aden,
segja sömu fréttaritarar, og virð-
ist FLOSY og NLF hafa tekizt
að lama samtökin að miklu leyti.
Brezkir hermenn standa yfir fjörum Aröbum í Ader,, grunaðir eru um að hafa varpað handsprengj-
um að brezkum hermönnum. Fyrir aftan hermenn a hefur Aröbum verið stillt upp að vegg og er
leitað á þeim að földum vopnum.
Kórtið sýnir Aden og furstaríkin í Suður-Arabíusambandinu fyrir-
hugaða.
Einnig er sagt, að SAL eigi ekki
eins mikinn þátt í hryðjuverk-
unum og áður.
I
★ LAUSARA SAMBAND ?
Auk hinna innbyrðis væringa
hefur borgarastyrjöldin í Jemen
átt mikinn þátt í því að óeirðir
hafa aftur brotizt út í Aden. —
Nasser forseti hefur stutt lýð-
veldissinna í Jemen síðan þeir
steyptu imaminum (konung-
inum) af stóli 1962 og sent þeim
bæði vopn og liermenn. Herlið
Nassers dvelst'enn í Jemen og
er sífelld ógnun við brezku
verndarsvæðin, sem liggja milli
suðurlandamæra Jemens og Ad-
ens. Lýðveldisstjórnin í Jemen
gerir líka tilkall til þessara
svæða og til Adens og FLOSY'
styður þessar landakröfur.
Sköða verður hin auknu of-
beldisverk í Aden í nánu sam-
bandi við návist hins egypzka
herliðs viff suðurlandamæri Je-
mens. Návist þessa herliðs hef-
ur vakið vaxandi vonir í Aden,
ekki sízt meðal þeirra 80 þús.
Jemena er þar búa, um að frels-
isstundin. og sameining Adens
og Jemens nálgist.
Líkurnar á því að SÞ finni
leið út úr torfærunni eru ekki
taldar ýkja miklar. Talað er
um möguleika þess, að Suður-
Arabíusambandið verði gert
lausara í reipunum, þannig að
Aden fái aukið sjálfstæði gagn-
vart furstadæmunum, bæði
stjórnmálalega og hernaðarlega.
En byltingarmenn í Aden eru á-
reiðanlega lítt lirifnir af slíkri
hugmynd þessa stundina, að
minnsta kosti meðan Nasser get
ur gefið þeim ennþá meira
freistandi loforð.
★ V ONARGLÆT A BRETA.
Það, sem Bretar verða að hug-
leiða er, hvort nokkur mögu-
Frh. á 10. síðu.
3 8. apríl 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ