Alþýðublaðið - 08.04.1967, Qupperneq 9
í desember síðastliðnum komu
út fjögur frímerki austur í
Kínaveidi og voru þau öll með
myndum af rauðum varðliðum,
svokölluðum. „Rauðir varðlið-
ar” eru félagsskapur eða hreyf-
ing, sem mjög hefur gripið um
sig meðal ungs fólks í Kína, sér
í lagi í höfuðborginni Peking.
í svona þéttbýlu og fjölmennu
landi etns og Kína er það svo,
að ef einhver hugsjón gr.ípur
um sig, þá er það likast því, að
flóðbylgja skelii yfir. Það gerir
múgsefjunin, hjarðarhvötin. Það
eru ekki bara nokkur hundruð
sálir, sem þramma af stað í
kröfugöngur eða halda útifundi,
nei, það verða ávallt tugiit þús-
unda þátttakenda. Og hvað vilja
þeir þá þessir „rauðu varðlið-
ar?“ Ja, spyr sá sem ekki veit,
en á veggblöðum þeirra sjálfra
sem þeir hengja gjarnan á áber-
andi staði í Peking, stendur m.
a.:' „Við erum allir sannir and-
stæðingar úrkynjaðrar borgara-
menningar og fylgjendur skoð-
ana Mao Tse-tungs.”
Það var núna sl. sumar, sem
hreyfing þessi færðist verulega
í aukana og kallaðí sig „menn-
ingarbyltinguna.” Til gamans
má geta þess, að varðliðarnir
notuðu svo mikið af rauðu fata-
efni og rauðum lit yfirleitt, að
skortur er nú orðinn á þessu
hvorutveggja í Kína. Eitthvað
hafa þeir þó átt eftir af rauð-
um prentfarfa, því að aðallit-
urinn í þessum 4 varðliðafrí-
merkjum er rauður, þótt örlítið
sjáist af bláum himni á tveim-
ur þeirra. Segir á veggspjöld-
um' í Peking núna nýlega, að
ríkisstjórnin hafi hvatt menn-
ingarbyltingarmenn til spa.rn,-
aðar á fataefni í rauðum lit.
Eru þeir hvattir til að bera rauðu
armböndin þangað til þau eru
útslitin og að hafa þau jafnvel
minni, til þess að spara efnið.
Segir á veggspjöldunum, að
þetta sé í samræmi við kenning-
ar Maós, að bylting og sparnað-
ur fari saman. Þessi hreyfing
rauðu varðliðanna er nú að fær-
ast inn i barnaskólana í Kína.
Líkur eru taldar á því, að kín-
versk skólabörn verði innlimuð
í ný samtök sem líklega verði
kölluð „Litlu rauðu herménn-
irnir” eða eitthvað þvílíkt. —
Námsgreinum skólanna verður
þá líklega breytt á þá lund, að
aðalnámsgrein hins kínverska
skólabarns verður sú, að læra
úrdrætti úr ræðum og ritum Ma-
ós. Eitthvað ber á andstöðu við
hreyfingu þessara og jafnvel
andstöðu við Maó sjálfan. Hafa
fréttir borizt um átök í sumum
héruðum landsins. Ekki er gott
að segja um, hvernig hreyfingu
þessari reiðir af, en sennilegt er,
að þegar mesti galsinn er úr
ungdómnum, sem núna skartár
rauðu, hjaðni menningarbylting-
in niður og ró færist yfir. —
Þá færast „rauðu varðliðarnir”
yfir á spjöld sögunnar. En minn-
ingin um þá lifir m. a. í mynd-
unum á þessum skrautlegu,
rauðu frímerkjum frá Kína, sem
safnarar úti um víða veröld, eru
núna þessa dagana, að líma inn
í albúm sín.
/.j
Wt -;'■■■ ■
■
Úr páskamynd Stjörnubíós, „Major Dundee'
Fremitur er Charlton Heston í hlutverki majorsins,
WtmímBSBHtt, 1 ySjSmm&f " vjfójBfJtíSgl
ÍÍ{!Í!ÍíÍiiÍÍiífÍiÍÍiÍm^^wfj^m§mi M ^
Sr • ■''■• u yjj* gjjjj&JjjjjjjJjjjjjjHjji fff
W M nfSm M M wjklBjk
m M mHim\ ffl ‘iliplisli
S. li ’Íiirrii'.'mmÍ^^iiÍmmi " Æ z, m m§mí
Og enn er barizt
MAJOR DUNDEE. Stjörnubíó
Bandarísk frá 1964. Leikstjóri:
Sam Peckinpah. Framleiffandi:
Jerry Bresler. ísienzkur texti
(stundum).
Alveg er ég bit á þeim mönn
um, sem vilja telja Sam Peckin
pah meðal efnilegra kúrekakvik
myndaleikstjóra. Þessi mynd hans
Major Dundee, er að sögn sumra
er um kvikmyndir fjalla, ágætis
mynd og meðal betri kúreka-
mynda. Hvað veldur? Mynd þessi
er í engu frábrugðin öðrum af
því tagi, þar sem reynt er að sýna
nógu mikinn hasar á sem hroða-
legastan máta, mikil manndráp og
blóðug átök. Það er sama helvít
is væmnin yfir ástaratriðum hjá
kananum, sami kossinn, sama tón
listin í bakgrunn og sama kvik
myndatakan. í rauninni er það
ekkert, sem vekur áhuga manns í
þessari mynd fyrir utan eitt atr
iði, þegar Dundee lætur drepa
einn manna sinn, vegna þess að
hann hafði ætlað að flýja. Fleiri
oi'ðum er ekki eyðandi á þessa
mynd, utan h'vað ég vildi benda
forráðamönnum kvikmyndahússins
á að annað hvort er að hafa is-
lenzka textann frá upphafi til
loka eða sleppa honum að öllu.
Sigurður Jón Ólafsson.
Nr. 1103
Vinningur í aðgöngumiðahappdrætti Alþýðu-
flokksfél'aganna í Hafnarfirði var dreginn út í
Skrifstofu Bæjarfógeta í gær, föstudaginn 7.
apríl.
Vinningurinn, sem er. farseðill fyrir tvo, með
M.s. Fritz Heckert (18. apríl — 2. maí) kom
upp á miða
nr. 1103
Eigandi miðans er beðinn að hafa samband
við Gunnar Bjarnason í skrifstofu Alþýðn-
flokksins í Hafnarfirði.
Skrifstofan er opin kl. 5—7 virka daga. —
Sími 50499.
Aðstoðarlæknissfaða
Staða aðstoðarlæknis við handlækningadeild
(brjóstholsaðgerðadeild) Landspítalans er laus
til umsóknar. Staðan veitist frá 1/6 1967. Laun
samkvæmt kjarasamningum Læknafélags
Reykjavíkur og stjórnarnefndar ríkisspítal-
anna. Umsóknir með upplýsingum um aldur,
námsferil og fyrri störf sendist stjórnarnefnd
ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík fyr
ir 15. maí n.k.
Reykjavík, 6. apríl 1967,
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Starfsstúlka óskast
Starfsstúlku, vana matreiðslu, vantar í eldhús
Landspítalans til sumarafleysinga. Upplýsing
ar gefur yfirmatráðskonan í síma 24160.
Reykjavík, 6. apríl 1967,
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
FRAMVEGIS
VERÐUR SÍMI
OKKAR
8-2S-S0
3 LÍNUR
8, apríl 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3,