Alþýðublaðið - 08.04.1967, Page 10
( Hið stórbrotna leikrit Marat/Sade hefur nú verið sýnt 12 sinnum í Þjóðleikhúsinu. Allir leikdóm-
t-endur dagblaðanna eru sammála um að hér sé um að ræða mjög sérstæða og markverða sýningu
|og hafi hún tekizt í alla staði vel hjá Þjóðleikhúsinu. Um 40 leikarar taka þátt í sýningunni og eru
•þeir á sviðinu allt frá byrjun sýningar til loka he inar. Tónlist, Richard Peslee, er mjög skemmtileg
-og fellur vel að anda verksins. Myndin er af einu hópatriði leiksins. Næsta sýning verður laugardag-
inn 8. apríl.
Bækur
ÍTramhald af 7. síSu.
• hafi aldrei slegið í gegn á ís-
1 landi, „sem kallað er með ljótri
dönskuslettu,” sé þó eitt til
marks um að ekki sé hann með
öllu dauður: „Og það er sú ^ta'ð-
t reynd að snilldarandar þjóðar-
‘ innar, meira að segja hin þriðja
snilldarandakynslóð í minni ævi,
eru enn jafn óðfúsir og nokkru
sinni að úthúða þessu skáld-
• menni og lumbra á því í víga-
. hug eins og böldnum krakka hve-
nær sem það dirfist að senda frá
sér einn bækling enn. Aðrir um-
bera mig af stóru veglyndi
sínu.“ Atarna var skrýtin sjálfs-
mynd! Það má vera að leikritum
.. Halldórs Laxness hafi verið tek-
ið miður kurteislega í sumum
- blöðum í vor.. En er ástæða að
taka það svona upp, og það ein-
- mitt þegar nýjasta leikrit hans
hefur „slegið í gegn” svo ekki
verður um villzt? Þvert á móti
hygg ég að andúð manna standi
ekki Kiljan fyrir þrifum nú til
. dags hvað sem hefur verið; hitt
^ má vera að skefjalaus aðdáun les
, enda hafi stundum hamlað fyllri
notum þeirra af verkum síns
. mikla höfuðskálds.
Hvað um það: vonandi leyfist
mér að afbiðj'a einkunnina
/,snilidarandi” þó mér þyki ekki
hema miðlungi til koma síðustu
bókar hans. — Ó.J.
Kastljós
Frarnhald úr opnu.
f‘ leiki sé á því að fá Egypta til
•' að sýna meiri samstarfs vilja. í
• Þessu sambandi má geta þess, að
Bandaríkjamenn hafa ekki vilj-
s aS- verða við þeirri bón Nassers.
• að senda Egyptum hveiti sam-:
' kvæmt ,,-Food for Peace”-áætl-
■ uninni. Hins vegar ér heldur ó-
• sertnilegt, að þetta eitt geti;
nokkur áhrif haft á s’tefnu Eg-
ypta á Arabíuskaga, enda þótt
þörf þeirra á bandarískri hjálp
sé gífurleg.
Stjórnin í London virðist
einnig binda nokkrar vonir við
FLOSY-leiðtogann, al Asnag,
sem virðist síður en svo vera
nokkur aðdáandi Nassers for-
seta, og telur að hann kunni að
valda misklíð milli Kairó og sam
takanna. Þar með gæti hann
veitt SÞ betra tækifæri til að
geta hafið viðræður við þjóð-
ernissinna en SÞ hafa nú. Hvað
sem öðru líður, virðist SÞ-nefnd-
inni ekki hafa tekizt að finna
neina glufu til samkomulags að
þessu sinni, en þegar fram í
sækir er ekki óhugsandi að vest-
urveldunum takist að þjarma svo
mjög að Nasser, að áhrif hans
í FI.OSY dvíni, að draga muni
úr morðöldinni í Aden, — að
Bretar geti yfirgefið Aden og
falið SÞ friðargæzlustörf og að
pólitísk lausn finnist á þeim
umþóttunartíma, sem þá hlýtur
að hefjast.
NáttúrufræÓángar
Framhald af 6. síðu.
lögum falið að fjalla um kjör
náttúrufræðinga. Telur fundur-
inn, að reynsla undanfarinna ára
hafi sannað. að BSRB hafi ekki
sýnt kjaramálum og sérstöðu nátt-
úrufræðinga og annarra háskóla-
manna nægilegan skilning. Treyst
ir fundurinn því, að Bandalagi
háskólamanna verði hið fyrsta
veittur fullur samningsréttur fyr-
ir hönd aðildarfélaga sinna.
Fullgildir félagsmenn, nú 57,
eru náttúrufræðingar, sem hafa
viðurkennda námsgráðu í ein-
hverri grein náttúrufræða, og eru
að aðalstarfi náttúrufræðingar
við rannsóknarstofnanir, sVo sem
rannsóknarstofnanir atvinnuveg-
anna, veðúrstofu og náttúrufræði-
stofnun. FjÖlmennastir erú veð-
urfræðingar, fiskifræðingar og
jarðfræðingar.
Formaður félagsins er nú
Bjarni Helgason og aðrir í stjórn
Markús Einarsson, Bergþór Jó-
hannsson, Gunnar Ólafsson og
Svend Aage Malmberg. Fulltrúi
þess hjá BHM er Jónas Jónsson.
BÍLA OG
BÚVÉLA
SALAN
v/Miklatorg
Sími 2 3136
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐSTOFAN
Vesturgötu 25.
Sími 16012.
I fi L L
í i0' apríi 1967 -- AtÞÝÐUBlAÐIÐ
Fermingarskeyti
Landssímans
Símar 06 og 11005
Tekið verður á móti fermingarskeytum í síma
06 og 11005 kl. 13—20 á laugardag og kl.
10—20 á sunnudag.
Til að forðast óvenjulegar tafir á skeyta-
sendingu á sunnudag, er mönnum ráðlagt að
senda skeytin á laugardag, en þau verða þó
ekki borin út fyrr en á sunnudag.
RITSÍMASTJÓBI.
Læknisstaða
Staða sérfræðings í brjóstholsaðgerðum við
handlækningadeild Landspítalans er laus til
umsóknar. Staðan veitist frá- 1/6 ’67. Laun
samkvæmt kjarasamningum Læknafélags
Reykjavíkur og stjórnarnefndar ríkisspítal-
anna. Umsóknir með upplýsingum um aldur,
námsferil og fyrri störf sendist stjórnarnefnd
ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík fyr
ir 15. maí n.k. ,
Reykjavík, 6. apríl 1967,
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
srt&m*
Auglýsing um skoðun bifreiða í
lögsagnarumdæmi
KEFLAVÍKURFLUGVALLAR
Samkvæmt umferðarlögunum tilkynnist, að
aðalskoðun bifreiða fer fram 12., 13. og 14.
apríl n.k.
Bífreiðaskoðunin fer fram við lögreglustöðina
ofangreinda daga frá kl. 9—12 og 13—16 30.
Við skoðun skal bifreiðaskattur greiddur og
sýnd skulu skilríki fyrir lögboðinni vátrygg-
ingu og ökuskírteini lögð fram.
Ennfremur skulu menn framvísa ljósastill-
ingarvottorðum.
Vanræki einhver að færa bifreið til skoðun-
ar á áður auglýstum tíma verður hann látinn
sæta ábyrgð skv. umferðarlögum og bifreiðin
tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst.
Geti bifreiðaeigandi eða umráðamaður bifreiðar
ekki fært hana til skoðunar á áður auglýstum
tíma, ber honum að tilkynna mér það bréf-
lega,
Athuga ber, að þeir er hafa útvarpstæki í bif-
reiðum sínum skulu hafa greitt afnotagjöld
þeirra, er skoðun fer fram.
Þetta tilkynnist öllum er hlut eiga að máli
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli,
4. apríl 1967.
BJÖRN INGVARSSON.