Alþýðublaðið - 26.08.1967, Page 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ haföi í gær tal
af Þórði Björnssyni, yfirsakadóm-
ara, sem er forseti Þriggja manna
dóms, sem dæniir í málinu á,.
kæruvaldiö gegn Þorvaldi Ara
Arasyni, sem ákæröur er fyrir að
hafa orðið’ fyrrverandi eiginkonu
sinni að bana með eldhúshníf að
niorgni laugardags 7. jan. s. 1.
Með yfirsakadómara eru í dómn-
um Gunnlaugur Briem og Haíldór
Þorbjörnsson.
Þórður sagði, að málið lliefði
verið tekið fyrir um morguninn
uppi í hegnmgarfiiúsinu við Skóla-
vörðustíg og lögð fram ýmis gögn
í málinu, en yrði tekið aftur fyrir
n. k. föstudag. Þá færi þó ekki
fram munnlegur málflutningur,
því að verið væri að kanna, hvort
liægt væri að koma með frekari
gögn og yfirlýsingar, áður en
munnlegur málflutningur geti far
ið fram.
Af hálfu ókærða og verjanda
iians hafa komið fram óskir um
frekari athugun í ýmsum greinum
og ákærða sé gefinn kostur á því
Ráðherra verður
landshöfðingi
Stokkhólmi 25. 8. (NTB)
MENNTAMÁLARÁÐH. Svíþjóðar,
Ragnar Edenmann, var í dag skip
aður landshöföingi í Uppsalaléni
frá 1. okt. n. k. — Edenmann,
sem er fæddur í Uppsala árið
1914, hefur verið ráðherra frá ár»
inu 1957.
að koma að vissum upplýsingum
og skýringum, iþess vegna hefur
málið verið tekið fyrir tvisvar
sinnum, þótt munnlegur málflutn
ingur hefði á sínum tíma verið
áikveðinn 1. ágúst, — Yegria þess-
ara atriða er elcki hægt að ákveða
hvenær munnlegur miálfiutningur
fer fram.
Það vekur athygli, að dómurinn
er skipaður þremrur dómurum, en
það hefur aðeins einu sinni gerzt
óður; í máli, sem ákæruvaldið
höfðaði gegn manni, sem ibeitti
hníf gegn tveimur stúlkum órið
1964, um alvarlega líkamsárás
yar að ræða.
KEPPNI UM
ANKABYGGINGU
SEÐLABANKI Islands hefur á-
kveðið að efna til verðlaunasam-
keppni arkitekta um stórhýsi fyr
ir bankann.
Seðlabankinn hefur sem kimn-
ugt er, keypt húsið Fríkirkjuveg
11 og verður það hús sennilega
að víkja fyrir hinni nýju Seðla-
bankabyggingu. — Fríkirkjuvegur
11 er sem kunnugt er, byggt af
Thor Jensen, útgerðarmanni og
er tailð í hópi myindarlegustu
húsa í Reykjavík og stendur á
svæði, sem ótal margir Reykvík-
ingar nota á sumrin í sólinni og
er að öllu leyti til prýði fyrir
umhverfi Tjarnarinnar. Nokkur
hluti þeirrar lóðar, sem Seðla-
bankanum hefur verið veitt við
Fríkirkjuveginn er fenginn í
makaskiptum við bandaríska
sendiráðið, sem átti lóðarhluta
upp með Skothúsvegi.
Örlög húss Thors Jensens munu
óráðin, en sennilegt er talið að
það verði að víkja fyrir nútíma-
legri glerhöll aðalbanka íslamds.
\Hvað vetður
um húsiö?
iEns og fram kemur i frétt
inni hér til hliðar hefur
Seðlabankinn keypt hús
Thor Jensen, sem myndin
hér að ofan er af. Margt
virðist benda til þess, að ætl-
unin sé að fjarlægja þetta
hiis, en reisa þar í staðinn
nýtízku skrifstofubygrgingu,
og er hætt við að mörgum
muni þykja sjónarsviptir að
húsinu, ef að slíku verður.
(Mynd: K.E.)
SKOTHRÍÐ Á LANDAMÆRUM
Hongkong, 25. 8. (NTB-Reuter)
KÍNVERSKIR hermenn hófu vék
byssuslko^hríð þvert yfir lhndaJ
mærin yfir til Hongkong í dag og
sprengjum var einnig varpað í
átt til varðmannanna hinum meg,
in við Iandamærin. Hongkong-her
mennirnir svöruð'u meö því aö
beita táragassprengjum, sem þeir
köstuöu yfir á kínverskt lands,-
svæði. Sagt er, aö’ enginn hafi
særzt af skotunum, en aftur á
móti sást, að fólk var borið burt
Kína megin, — en það fólk hafði
særzt af því að kínverskar sprengj
ur sprungu nálægt því.
Skothríðin var við landamæra-
brúna Lo Wu. Áður höfðu kín-
verskir hermenn varað yfirvöld í
Hongkong við því að hindra kín-
verska verkamenn í því að fara
yfir landamærabrúna. Hrópað var
í hátalara yfir til Hongkong og
sagt, að ef yfirvöld þar reyndu
á einhvern hátt að hindra verka-
mennina í því að fara yfir brúna,
yrðu þau að taka afleiðingunum.
Það var herdeild í Shum Chun,
sem kom með þessar hótanir, en
Shurn Chun er kínverskur landa-
mærabær, beint á móti Lo Wu,
Hongkong megin.
Formælandi Hongkong-yfirvalda
sagði, að enginn fótur væri fyr-
ir því, að bændur og verkamenn
hefðu verið hindraðir í því að
fara yfir brúna á leið til vinnu
sinnar á ökrunum Hongkong meg-
in.
t;
V
iockwell myrtur
Arlington, 25. 8. (NTB-Reuter)
BANDARÍSKI nazistaforinginn
George Lincoln Rockwell var skot
inn til bana í dag af leyniskyttu,
se>m skaut af þaki nálægt aðal-
stöðvum bandaríska nazistafl. í
Arlington í Virginia. — Rockwell
sat í bíl sínum, sem stóð kyrr á
götunni gegnt aðalbækistöðvun-
um, þegar banaskotið reið af. —
Lögreglan hafði ekki hendur í
hári banamannsins.
Hinn 49 ára gamli Rockwell bjó
í aðalbækistöðvunum með átta
stormsveitarmönnum, sem höfðu
í kringum sig myndir . af Hitler
og hakakrossflögg.
Flokkurinn barðist nú fyrir því,
að negrar 'í Bandaríkjunum væru
fluttir nauðungaflutningi til Afr-
íku og Gyðingum væri útrýmt
með geldingu og gyðingakonur
væru gerðar ófrjóar og eignir Gyð
inga teknar af þeim.
Rorkwell fæddist í Bloominton
í Illionois árið 1918. Foreldrar
hans voru foæði leikarar. Hann
stofnaði nazistaflokk sinn árið
1958 og fékk sér ihakakrossflagg,
einkennisbúning éins og Hitler og
fór að heilsa á sama foátt og for-
inginn. Hann og fylgismenn hans
hafa að undanförnu lagt sig ftam
um að hleypa upp fundum og
kröfugöngum jafnréttissinna í
Framhald á 15. síðu.
26. ágúst 1967
ALÞÝÐUBLAÐI0 ' 3