Alþýðublaðið - 26.08.1967, Qupperneq 4
Bitstjórl: Benedikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasiml:
14906. — Aðsetur: Alþýöuhúsiö við Hveríisgötu, Evik. — Prentsmiöja
Alþýðublaösins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — 1 lausa-
eölu kr. 7.00 eintakið. — Útgeíandi: Alþýöuflokkurlna.
Hongkong
' ALLAR FREGNIR frá Kína staðfesta þá skoðun, að
þar ríki algert byltingarástand — eða gagnbyltingar
ástand, eins og kommú'nistar mundu líklega orða það„
Andstæðingar Mao-stjórnari'nnar virðast hafa stór-
borgir á valdi sínu og eiga mikil ítök víða um landið,
og er ekki séð fyrir enda þessara atburða.
Eftir því sem tími líður virðist sú tilgáta senni-
legri, að Mao formaður hafi sett menni'ngaTbylting-
una svonefndu af stað til þess að reyna að tryggja
völd sín og sinna manna og koma andstæðingum sín-
um fyrir kattarnef. Enda þótt skólum væri lokað og
milljónir ungmenna hefðu farið um landið í fylking
um, virðast andstæðingar Maos styrkjast frekar en
. veikjast.
Þ&ð er gamalí bragð einræoisstjórna að efna til
illinda við erlenda aðila, þegar þær eru aðþrengdar
lieima fyrir. Þessari reglu hefur Mao fylgt dyggilega.
Hefur hann óspart reynt að beina athygli kínversku
þjóðarinnar að öðrum til að draga athyglina frá bylt
iagarástandinu heima fyrir og öllum þeim erfiðleik-
um, sem það veldur fólki.
Hins vegar er rétt að taka eftir, að kommúnista-
stjórnin í Kína virðist ekki telja, að neitt liggi á í
Hongkong. Borgin hefur verið blómleg viðskipta- og
iðnaðarmiðstöð undir stjórn Breta, og hafa kommún
istar aflað sér mikils gjaldeyris með viðskiptum við
hana. Þá hefur borgin verið eins konar tengiliður milli
Kína og umheimsins — til ills og góðs.
Nú hefur kínverska stjórnin efnt til uppþota í Hong
kong og komið af stað æsingum, sem leitt hafa til
þess, að múgur í Peking hefur brennt brezka sendi-
i-áðið þar. Er þetta auglýsilega leikur í hinu innra
tafli í Kína, til þess ætlaður að sameina þjóðina að
baki stjórn Maos í baráttu við erlenda heimsveldis-
sinna. Þessi stefna getur þó ekki haft mikil áhrif
erlendis, af því að stjórn Maos hefur sýnilega viljað
halda við yfirráðum Breta í Hongkong, um sinn að
minnsta kosti, og hefur ekki gert neinar alvarlegar
láöstaíanir til að undirbúa eðlilega yfirtöku borgar-
iniar.
Bandaríkjamenn herða um þessar mundir lofthernað
sinn yfir Norður-Vietnam og hafa gert árásir á ýmsa
staði, sern eru aðeins einnar mínútu flugtíma frá
kínversku la'ndamærunum. Hefur það gerzt, að tvær
flugvélar þeirra hafa flogið yfir kínverkst land og
verið skotnar niður. Segir blaðafulltrúi Johnsons
forseta, að við þessu megi búast, svo að vel getur
, komið til nýrra atvika af þessu tagi.
Hætt er við, að slíkir 'atburðir við landamærin geti
hæglega orðið stjórn Maos tilefni til gag'nráðstafana,
sem leitt gætu til meiri og iverri tíðinda. Ekki er rétt
að búast við eðlilegum viðbrögðum stjórnarvalda í Pek
ingýheldur getur byltingarástandið í landinu hæglega
ráðið gangi málanna.
BERNINA
INDESIT
8S1Í
Þvotta- og saumavélasýning aÖ
H ALL VEIG ARSTOÐU M
Við viljum bjóða yður að skoða hinar heimsfrægu
BERNINA saumavélar og INDESIT þvottavélar á
sýningunni að Hallveigarstöðum.
Sýningin verður opnuð almenningi í dag,
laugardag kl. 5.
BERNINA
Ásbjörn Ólafsscm hf.
Grettisgötu 2.
VéSa- og
BSaftækJaverziunin hf.
Lækjargötu 2.
á krossgötum
★ SKEMMTISTAÐUR
UNGLINGANNA
f '
Það var mál til komið, að unglingunum væi'i
búinn einhver staður i hæfilegri fjarlægð frá
borginni, þar sem þeir gætu komið saman við
hæfilegt frjálsræði og eftirlit og unað við dans,
leiki og aðra skemmtun, sem unga fólkinu er að
skapi.
Því var það hið þarfasta verk, þegar Æskulýðs
ráð borgarinnar fékk jörðina Saltvík á’ Kjalar-
nesi til afnota í þessu skyni. 'Hefur ekki annað
heyrzt en hin fyrsta tilraun til skemmtanahalds
þar hafi allvel tekizt, en þetta hefði þó skaðlaust
mátt byrja fyrr á sumrinu, en nú er satt að segja
senn komið fram á haust og ekki aðstaða til úti-
skemmtanahalds margar helgar úr því sem komið
er.
Saltvík hefur marga kosti, sem helgarathvarf
fyrir unglingana. Staðurinn er í hæfilega fjarlægð
írá bænum, þangað er ckki nema tuttugu mínútna
til hálftíma akstur frá borginni, svo auðvelt er að
koma við eftirliti og fólksflutningar þangað ckki
tiltakanlega dýrir. Húsakostur er þar allgóður,
og hentar að því er virðist sæmilega til þessa
brúks. Fleira mætti vafalaust til taka.
★ EKKI OF MIKIÐ SKIPULAG
Fólk hefur mörg undanfarin ár fjargviðrazt yfil’
ólátum unglinganna um helgar á sumrin. Nú hefur
verið mikið talað um í sumar hve allir hafi verið
stilltir og góðir um síðustu verzlunarmannahelgi.
Lögregluþjónn sem við hittum á förnum vegi fyrir
tveimur eða þremur dögum, vildi þó ekki meina, að
allt hefði verið jafngott og blöðin sögðu því víða
hefði verið pottur brotinn um þessa helgi, þótt
heildarsvipurinn hefði verið skikkanlegri en offi
áður. ''
Gallinn er sá að til þessa hcfur næsta lítið
verið gert fyrir unglingana. Þeir hafi ekki áttl
margra kosta völ. Hinsvegar er vandinn meðalliófiS
í þessum efnum, sem öðrum. Unglingarnir kunna
bví ekki vel að vera „mataðir” þeir vilja sjálfir
hafa hönd í bagga um það sem gert er fyrir þá.
Þess vegna verða hinir fullorðnu, sem fyrir þéssu
standa að gæta þess að ofskipuleggja ekki og
gera ekki oí mikið heldur fá unglingana í lið með
sér og gera þá að virkum þátttakendum. Ef þeir
eiga aðeins að vera hlutlausir áhorfendur, er alveg
eins við að búast að árangurinn verði þveröfugur
við það sem ætlazt er til.
En sem sagt tilraunin með Saltvík virðist í
fljótu bragði lofa góðu, og fróðlegt verður að sjá
hvert framhald þar verður á..
KARL. !
va mmm
4 26. ágúst 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ