Alþýðublaðið - 26.08.1967, Qupperneq 5
MEÐ GOLFSTRAUMNUM
IIL REYKJAVlKUR
REYKJAVIK verður fyrsti á-
fangastaður í hnattsiglingu
bandarískra hjóna, sem fyrir
skömm-u lögðu upp frá Baiti,.
more í Bandaríkjunum. Far-
kosturinn er 33 feta langur
seglbátur og ber hann nafniö'
Sea Sprite.
Hjónin heita Theodore og Ir
is Pfeifer og eru bæði.marg-
reynd í úthafssiglingum á segl
bátum. Svo sem fyrr segir er
Keykjavik fyrsti áfangastaður-
inn, en héðan munu þau halda
til Færeyja. Þá munu þau
leggja leið sína til Orkneyja
og síðan fara inn á Miðjarðar-
haf.
Að öllum líkindum mun Sea
Sprite vera hér um næstu mán
aðamót, en hann er hinn
glæsilegasti farkostur byggður
í Hollandi. Pfeifers hjónin
sigldu bátnum frá Hollandi,
þar sem þau keyptu hann, til
Baltimore. Theodore hefur
lengi unnið við að styrkja bát
inn og búa hann sem bezt und
ir hnattsiglinguna.
Þau hjónin ætla að nota
Golfstrauminn til þess að
fleyta sér upp að ströndum ís
lands og búast þau við að þau
verði um 60 daga á leiðinni.
Aðalfundur SÍS!
Theodore og Iris Pfeifer.
Reykjavík verður fyrsti áfangastaður Sea Sprite.
Aukið eftiriit með
óhreinkun sjávar
Eftir „Torrey Canyon” slysið
hefur víða verið hert mjög á eftir
liti með olíuóhreinkun sjávar.
Board of Trade í Bretlandi hafa
varað sjófarendur við, að dæla olíu
í sjó við Bretlandsstrendur og
halda strangan vörð, með skipum
og flugvélum, svo hætta á kær-
:um og refsingu er mikil.
Engin hámarkstakmörk eru fyrir
bótagreiðslum þeim, sem gera má
á hendur skipstjórum, sem gerast
brotlegir við hin brezku ákvæði
um olíuóhreinkun á svæðinu um-
hverfis Bretland, kemur jafnvel
fangelsisvist til greina.
Sem dæmi um það hve alvar-
legum augum er litið á olíuóhreink
un sjáVar erlendis, má nefna að
norskir skipstjórar hafa verið
dæmdir í 400 ástralskra punda
Forsetar Hæstarétta á fundi
Forsetar Hæstaréttar íslands i Aðrir, sem sátu fundinn: Agae
Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og | Lorentzen, Danmörku, Nils Beck
Finnlands liéldu nýlega með sér man, Svíþjóð, Antti Hannikain
fund í Osló og sat Gizzur Berg
steinsson forseti Hæstaréttar fs-
lands fundinn að þessu sinni.
Tilnefndur í Mann-
Einar Arnalds, hæstaréttardóm
ari, hefur sagt lausu dómarasæti
sínu í Mannréttindadómstóli Evr-
rópu og hefur Sigurgeir Sigur-
jónsson hæstaréttarlögmaður verið
tilnefndur í hans stað. Tilnefning
hans þarfnast staðfestingar innan
Evrópuráðsins og mwn hún verða
veitt innan tíðar:
en, Finnlandi og Terje Wold, Nor
egi.
NTB-fréttastofan átti stutt sam
tal við forseta Hæstaréttar Nor-
egs, en hann er gestgjafi að þessu
sinni.
— Á fundunum skýra forsetarn
ir frá starfinu í þeim dómstólum
sem þeir starfa við og ræða þau
vandamál í skipulagi og réttar-
gangi við æðstu dómstólana, sem
eru efst á baugi, sagði Terje
Wold.
— Það segir sig sjálft að kynni
af réttarskipun annarra landa er
hverjum hæstaréttardómara nauð
synleg. Þetta á ekki sízt við um
Norðurlöndin innbyrðis. Þótt rétt
FraiOhald á 15. síðu.
sekt fyrir óhroinkun sjávar nálægt
höfninni í Melbourne og $50 sekt
og $20 í málskostnað fyrir að ó-
hreinka enska höfn.
Ennfremur hefur vélstjóri nokk
ur á .norsku skipi verið kærður
fyrir það að lensa hreinu kjölfestu
vatni í gegnum dælu og JeiSslur,
sem rétt áður höfðu verið not-
aðar við dælingu á dieselolíu.
Enskur dómstóll hefur nýlega
dæmt útlendan skipstjóra í $750
sekt fyrir að hafa dælt hráolíu í
sjó við Bretlandsstrendur og senni
legt er að auk þess verði gerðar
bótakröfur á hendur eigendum
skipsins að upphæð $27.000.
(Skipaskoðunarstjóri).
Aðalf. sambands ísl. stúdenta
erlendis, SÍSE, var haldinn dag-
ana 16. og 17. ágúst s.l. Fundinn
sátu um 25 fulltrúar frá 10 þjóð
löndum auk áheyrnarfulltrúa frá
Stúdentaráði Háskóla íslands og
fleiri.
Tiigangur sambandsins er að
gæta hagsmuna íslenzkra stúd-
enta erlendis, efla samheldni
þeirra í milli og kynna nám og
kjör stúdenta erlendis.
líjörin var ný stjórn, en hana
skipa: Þorvaldur Eúason, formað
ur, Sven Þ. Sigurðsson, varafor-
maður, Þórður Vigfússon, ritari,
Þorvaldur Ólafsson og Stefán
Glúmsson, meðstjórnandi.
Stúdentaþing.
Á fundinúm voru gerðar sam-
þykktir um aukið starf SÍSE
heima og erlendis. Útgáfu SÍSE
blaðsins, sem hófst á síðastliðnum
vetri verður haldið áfram í vetur.
Ritstjóri var skipaður fráfarandi
fomaður, Gylfi ísaksson, verkfræð
ingur. Einnig voru samþykktar á-
lyktanir um samstarf SÍSE og
Stúdentaráðs Háskóla íslands
(SHÍ), einkum rneð tilliti til stúd-
entaþings, sem haldið verður í
byrjun september. Á þinginu
munu sitja fulltrúar frá SÍSE og
SHÍ, og er þar kominn vísir að
skipulagsbundnu samstarfi allra
íslenzkra stúdenta, sem stefnt
hefur verið að undanfarin ár.
Viðbótarlánasjóður.
Hagsmunamál stúdenta voru
mikið rædd. Fagnað var lögum
um námslán og styrki, sem sam-
þykkt voru á Alþingi á s.l. vori,
sérstaklega ýmsum nýmælum,
svo sem afnámi deildaskiptingu
milli námsmanna heima og erlend
is og kandidatastyrkjum. — Hins
vegar var harmað, að ekki eru í
lögumum tímamörk um það hve-
nær markmiði laganna skyldi náð,
þ.e. að opinber aðstoð við náms-
menn nægi hverjum námsm. til að
standa straum af árlegum náms
kostnaði, þegar eðlilegt tillit er
tekið til aðstöðu hans til fjáröf)-
unar.
Lögð var áherzla á, að í vænt-
anlegri könnun um namskostnað
Stúdenta komi fram raunveruleg
fjárþörf þeirra svo og að kannað
verði, hversu margir stúdentar
hætta námi erlendis eða hefja
aldrei nám vegna fjárskorts.
Samþykkt var ályktun um að
stofna bæri strax viðbótarlána-
sjóð, þar sem námsmenn, sem
eru illa staddir fjárhagslega, gætu
fengið lán með venjulegum banka
vöxtum til viðbótar við opinber
lán og styrki. Einnig að tekin
verði upp ríkisábyrgð á lánum
námsmanna.
Bent var á, að enda þótt þriðj-
ungur allra námsmanna sé nú
giftur, er ekkert tillit tekið til
þessara manna í núgildandi lög-
um og gerðar voru ýmsar fleiri
ályktanir um hagsmunamál. Hilm
ar Ólafsson, arkitekt, hefur verið
skipaður fuiltrúi SÍSE um þessi
mál í vetur.
N ámsky nningar stof nun.
SÍSE hefur í samráði við, SHÍ
skipulagt námskynningar á und-
anförnum árum. Samþykkt var
að halda þessu starfi áfram. Þó
var ákveðið að fella niður náms-
kynningu þá, sem lialdin hefur
verið í ágústmánuði, þar sem hún
hefur ekki gefið mjög góða raun,
Framhald á bls. 15.
Fjölsótt Jabarsmót
Jaðarsmót íslenzkra ungtempl-
ara var haldið um síðustu helgi.
Mótið sóttu um 1500 manns, en
margir þátttákenda dvöldu i tjald
búðum um helgina, og fór mótið
vel fram. Þetta er í tíunda skipti
sem íslenzkir ungtemplarar efna
til þessa móts fyrir unga fólkið í
Reykjávík og nájgrenw.
stöðum inni á Jaðri og í
stóru stóru samkomutjaldi. Hljóm
sveitin MODS og ÁSATRÍÓIÐ úr
Keflavík léku fyrir dansi. Á sunnu-'
dag var guðsþjónusta kl. 14.30 sr.
! Árelíus Níelsson prédikaði. Síðar
um daginn var skemmtidagskrá;
: Birna Aðalsteinsdóttir söng þjóð
| lög, þjóðdansaflokkur sýndi dans
Mótið að Jaðri var sett á laugar ■ og Ómar Ragnarsson skemmti með
dag, en þá um kvöldið var skemmti leik og söng að Jaðri og mátti halda
kvöld og dans stiginn á tveimur 1 Framhald á 15. síðu.
26. ágúst 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 'S