Alþýðublaðið - 26.08.1967, Qupperneq 14
KVIKMYNDIR
MIKILHÆFUR LEIKSTJÓRI
Robin reynir að tæla Eric, meðan liún skákar í því skjóli, að
Alison sé blind. Patricia Neal, Samantha Eggar og Curt Jurgens
í kvikmyndinni „Blinda konan“ (Psyce ’59).
Blinda konan. Psyche ‘59'
Bandarísk frá 1963. Stjörnu-
bíó.. Leikstjóri Alexander
Singer. Ilandrit: Julian Hal-
ey eftir sögu Francoise des
Ligneris. Framleiðandi: Phil-
ip Hazelton. Kvikmyndun:
Walter Lassally. íslenzkur
terti-
Leyfist mér að vekja athygli
á þeirri kvikmynd, sem Stjömu
bíó sýnir um þessar mundir.
Hún iheitir Blinda konan (Psfíyche
‘59) og er gerð undir stjórn
Alexanders Singers. Alexander
Singer? Hver er það? spyrja
menn. Þetta er ungur, og að því
er mér virðist, efnilegur kvik-
myndaleikstjóri, aðeins 35 ára
gamall. Ég ihef ekki kynnzt verk
um þessa manns áður, en eftir
þessari mynd að dæma, sem er
aðeins önnur myndin, sem hann
gerir, fæ ég ekki betur séð en
að hann komi til.
Alexander Singer var í fyrstu
aðstoðarmaður hjá ekki verri
leikstjóra en Stanley Kubrick.
Fyrsta mynd Singers var A cold
wind in August, sem Kópavogs-
bíó sýndi. Sagan kom hér út í
mánaðartímaritsformi og varð
afskaplega vinsæl, sakir dirfsku
á sviði kynlífslýsinga, en sagan
fjallar^um striptease - dansmær
sem tælir 17 ára ungling. Þriðja
kvikmyndin, sem Singer sendi
frá sér, var Love has many
faees.
Psyche ‘59 fjallar um blinda
konu, sem er gift ríkum iðju-
höld, Eric (Curt Jurgens) að
nafni. Alison (Patricia Neal), en
svo heitir þessi blinda kona, á
yngri systur. Robin (Samantha
Eggar), sem er nýlega skilin og
fiytur hún heim til Alison. Þar
á heimilinu er vinur þeirra
hjóna (Ian Bannen), sem verður
ástfanginn af Robin. En Rob
in og Eric hafa áður átt sam
an ástarfundi og nú liyggst hún
fá hann aftur til við sig og beit
iir óspart kyntöfrum sínum til
þess arna, jafnframt því sem
hún skákar í því skjóli, að Ali
son sé blind. En Alison grunar
ýmislegt. Það var slys, sem olli
blindu hennar. Hún hafði komið
að Robin og Eric óvörum, fengið
taugaáfall og fallið niður stiga.
Minnið bafði raskazt og iheiiinn
orðið fyrir það miklu höggi, að
upp frá því hefur ihún verið
'blind. En þetta var engin venju
leg blinda. Blindan var nokkurs
konar hlífiskjöldur; það voru
ýmsir hlutir, sem hún vildi ekki
sjá berum augum. Robin, sem er
mjög framgjörn stúlka og ólík
hinum iþremur að skapgerð, er
eina manneskjan, sem þorir að
segja henni þennan sannnleika-.
Hinar persónurnar eru sífellt á
varðbergi, reyna að flýja ör-
lögin, reyna að fara í kringum
hlutina, persónur, sem klæðast
dulbúningi. Robin segir við Ali-
son um Eric: „Hann vill, að þú
sért blind.“ Eric er enn hrifinn
af Robin, þó að hann reyni að
hafa hemil á tilfinningum sín-
um-
Þessi mynd er nokkuð skemmti
leg í stílnum. Minnir að nokkru
leyti á Lilith eftir Robert Ross-
en, sem Stjörnubíó sýndi í
fyrra, þar sem reynt er að gera
flókna atburði magnaða með
því að skapa myndinni sérstakt
andrúmsloft, sem er í senn með
dularfullum blæ og þrungið
spennu. (Báðar þessar myndir
voru gerðar lá sama tíma). Þessi
mynd er því að mörgu leyti cine
matísk, sem er fremur óvenju-
legt um bandarískar kvikmynd-
ir, en svo virðist sem amerísk
fcvikmyndagerð sé í framför;
nýir og athyglisverðir leikstjór-
ar eru að koma fram á sjónar-
sviðið. En eins og Lilith, þá er
Psyche ‘59 nokkuð á yfirborðinu.
Og í lokin er engin lausn fund
in. Leikstjórinn hleypur frá
öllu saman eins og Alison og
Paul frá Robin og Eric-
Allt um það er þetta minnis-
verð mynd og sum atriðin eru á
gætlega gerð. T. d- er „flash-
back“ smekklega notað og eftir-
minnilegt er samtal Erics og
Pauls í bílnurh. En það er
kannski ekki sízt að þakka hin
um frábæra myndatökumanni
Walter Lassally, að þessi mynd
verður eftirtektarverð. Hann á
vissulega stóran þátt í henni.
Oft er beinlínis unaðslegt að sjá
hvernig hann beitir myndavél-
inni á óvenjulegan máta. Lass-
ally er verðugur þess, að eftir
honum sé tekið. Hann er fæddur
í Bretlandi og hefur tekið mik
ið fyrir Tony Riohardson. (M. a-
Tom Jones), Einnig voru eftir-
minnileg vinnubrögð hans í
Grikkinn Zorba.
Patricia Neal hlaut verðlaun
gagnrýnenda í Nevv York fyrir
leik sinn í þessari mynd og er
sjálfsagt vel að þeim komin.
En aðrir leikendur eru ekki síð
ur athyglisverðir. Curt Jurgens
er rétti maðurinn í hlutverk
hins veiklynda eiginmanns. Rob
in er einnig vel leikin af Sam-
antha Eggar og er bezt, þegar
hún reynir að tæla Eric. Ian
Bannen lýsir mæta vel óstöðug
lyndi þessa unga mans.
Nýr athyglisverður banda-
rískur kvikmyndaleikstjóri er
kominn fram iá sjónarsviðið,
sem á vonandi eftir að láta eitt-
hvað enn betra frá sér fara.
Hann heitir Alexander Singer-
Sigurður Jón Ólafsscm.
STYRKUR
Frá dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu um styrki EviTópuróðsins
á sviði læknisfræði og heilbrigðis
þjónustu fyrir árið 1968.
Evrópuráðið veitir á árinu 1968
styrki itil náms og kynnisferða fyir
ir lækna og starfsfólk í heilbrigð-
isþjónustu.
Tilgangur styrkjanna er, að
styrkþegar kynni sér nýja tækni
í starfsgrein sinni í löndum innan
ráðsins.
Styrkurinn er veittur hverjum
einstaklingi í 1 til 12 mánuði og
er að upphæð franskir frankar
850 til 1000 á mánuði, auk ferða-
■ kodtnaðar.
Styrktímabilið hefst 1. apríl
1968 og lýkur 31. marz 1969.
Umsóknareyðublöð ásamt upp-
lýsingum fást í skrifstofu land-
læknis og í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu fyrir 1. október n.k.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 8
ágúst 1967.
Hvert viljið þér fara?
Nefnið stciðinn. Við flytjum
yður, fljótast og þœgilegast.
Hafið samband
við ferðaskrifstofurnar eða
PAIV AMBRlCAtV
Hafnarstræti 19 — sími 10275
Engólfs-Café
Gömíu cSansarnir
í KVÖLD KL. 9.
Hljómsveit Jóhannesar Eggertssonar.
Söngvari: Grétar Guðmundsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 5. — Sími 12826.
Keflavík
Keflavík
Börn óskast til að bera blaðið til áskrifenda í
Keflavík.
Talið við afgreiðsluna. — Sími 1122.
Alþýðublaðið.
Alþýðublaðið
vantar börn til blaðburðar við
Miðbæ I. og II.
Laugaveg efri og neðri.
Tjarnargötu
Seltjamarnes II.
Talið við afgreiðsluna. — Sími 14900.
Afþýðublaðið
Konan mín
GUÐRÚN HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR,
andaðist í Landsspítalanum föstudaginn 25. þ. in.
Sigurvin Össurarson.
"W
'fj!
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
elsku drengsins okkar og bróður
ERLINGS JÓHANNESAR ÓLAFSSONAR,
Guð blessi ykkur öll.
Vigdís og Robert Jack,
Ólafur Guðmundsson,
afi og ömmurnar og systkin hins látna.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og vináttu, vegna and-
láts og útfarar móður okkar, tengdamóður og ömmu
ÁSLAUGAR BENEDIKTSSON.
Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir Gunnar Pálsson
Sjöfn Kristinsdóttir Björn Hallgrímsson,
Erna Finnsdóttir Geir Hallgrímsson,
» og barnabörn,
14 26. ágúst 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ