Alþýðublaðið - 26.08.1967, Blaðsíða 16
SIGUR MIÐAÐ VIÐ FOLKSFJOLDA
(NÚ ERU Danir kampakátir því að
fl>eim hefur tekizt að bursta íslend
inga í fótbolta, svo að athygli vek
ur um alla Evrópu (segir Vísir eft
ir þeimi Hafa þeir sennilega vilj
að iborga íslandsmönnum fyrir
alls tkonar skráveifur sem þeir
tiiafa Dönum gert bæði fyrr og
síðar: heimtað af þeim gamlar
skinnbækur og sífellt verið að
klífa á að engin þeim lík skrif
tiafi orðið til í Danmörku fyrr á
ötdum og annað þessu líkt. En nú
vildu þeir freista þess með fót-
unum sem þeim befur ekki tekizt
með höfðinu, og segja má að eftir
•atvikum hafi þeir haft heppnina
með sér.
Hitt er þó staðreynd að íslend
ingar sigruðu Dani en Danir ekki
íslendinga. — íslendingar sigra
nefnilega í Ihvert einasta skipti
sem þeir taka þátt í íþróttakeppni
líka þegar þeir tapa. íslendingar
>eru nefnilega til miðað við 'fólks-
fjölda. Á móti hverjum íslendingi
■eru að minnsta kosti tuttugu Dan-
ir, og þó raunar meira, en við gef
um Dönum afganginn í forgjöf af
því að við erum við og Danir
Danir. há er það ekki nema ein-
falt reikningsdæmi að til þess að
igera jafntefli við okkur þurfa
Danir að setja 20 mörk á móti
hverju einu marki sem við skor-
um. Nú varð endirinn sá að Dan-
ir settu bara 14, en við 2. Til
þess að gera jafntefli við okkur
liefðu Danir þurft að gera 40
mörk, svo að þá vantaði hvorki
meira né minna en 26 mörk upp
á það að gera jafntefli við íslend
inga. Ergo: íslendingar unnu
Dani með yfirburðum.
J*etta vissu auðvitað áhorfend-
ur á leiknum 'mæta vel, enda hróp
V1íjjt þeir á lið Dana að setja nú
a. m. k. 20 mörk sem hefði dug-
. að þeim til jafnteflis, ef íslend-
ingar hefðu ekki gert nema eitt
mark. En eftir atvikum eru Dan-
gjl&aðir> því að þeir hafa aldrei
(lizt nær því að vinna íslend-
ga, og eru þeir í rauninni hissa
að islendingar stóðu sig ekki
■betur, hafa minnzt á að þeir hafi
j^ldrei séð íslenzkt landslið svona
‘^eikt fyrr, því að venjulega hafa
Mtotföllin verið þeim miklu óhag-
stKðari miðað við fólksfjölda.
Állar merkustu þjóðir heims
Ögra ineð því að tapa. Englend-
ingar unnu t. d. mesta sigur sinn
l stríðinu, þegar þeir flúðu i of-
roði yfir Ermarsund og skildu allt
aftir á bakkanum hinum megin.
Englendingar hafa aldrei tapað
stríði og þó að Kínverjar brenni
ofan af þeim heilt sendiráð þá
er það ekki neitt, því að þeir eru
s^entilmenn og geta ekki tapað.
Svipuðu máli gegnír um okkur ís-
lendinga. Við erum raunar ekki
sjentilmenn, því að það eru eng-
ir nema Englendingar, en við er-
um ósigrandi með öllu, því að við
erum til miðað við fólksfjölda
hvenær sem á þarf að halda.
^ ■ i jÁ
71'*
íz ‘M
V \f(A J
Nýi kjóllinn minn er gerður í
anda nútíma viðskiptalögmála:
vekja verður athygli á vörunni
til að hún seljist!
Hættið þessu blístri á meðan þér skrifið rcikninginn minn ...
T. d. þarf að gera viðtækan
samanburð á því að salta síld
ina um borð í veiðiskipunum
í tunnur á venjulegan hátt
eða ísa hana í veiðiskipunum
eða varðveita hana á annan
hátt eða umskipa henni og
ísa í stíum eða kös6um um
borð í flutningaskipum eða
setja síldina hausaða eða ó-
hausaða í pækilkör eða pæk-
iltanka eða kældan 6jó um
borð í sérstöku flutningaskipi
eða tankskipi eða fara ein«
hverjar aðrar leiðir.
Síldarútvegsnefnd.
Nú fer skólinn að byrja aftur
og þá ætla ég einhvern tím«
ann að skrifa stíi eða ritgerð
eins og sildarútvegsnefndin
gerir. Mikið svaka held ég að
kennarablókin spóli þá.
Það er stundum sagt að fólkl
sé illa við sannieikann, en
mér er spurn, hefur það nokk
urn tíma verið reynt?