Alþýðublaðið - 04.10.1967, Side 3
MIKLAR
Frh. af 1 síðu.
lagði upp af svæðinu. Áður lagði
aldrei gufu frá þessu svæði, en
nú er það hættulegt yfirferðar,
ve^jna smápytta, sem þar ihafa
myndazt. Væri stungið niður staf-
priki í jarðveginn þarna, gaus
gufureykur upp úr holunni. Jón
Jónsson jarðfræðingur var við
rannsóknarstörf á íhverasvæðinu
Holland for-
dæmir loft-
árásirnar
New York (ntb-reuter).
Holland hefur nú bætzt í hóp
þeirra ríkja, sem krefjast þess
að Bandaríkin hætti skilyrðislaust
loftárásum á Norður-Vietnam. Ut
anríkisráðherra Hollands, Josef
Luns, flutti á Allsherjarþinginu í
gær ræðu, og tók þctta þar með
al annars fram, og Iiann sagði að
hollenzka þjóðin bæri þungar á.
hyggjur vegna þróunar mála í
Vietnam og nauðsyn bæri til að
skýrt væri frá þessum áhyggjum.
Luns sagði, að ríkisstjórn Hoi-
lands teldi, að núverandi ástand í
Vietnam gæti ekki hald.ið áfram.
Hollenzka stjórnin hefði þess
vegna skorað á alla aðila deilum
ar að rjúfa vítahringinn og taka
upp stefnu, sem geti leitt til fnð
ar. Luns skoraði einnig á stórveld
in að finna lausn á vandamálum
landanna fyrir botnj Miðjarðar-
hafs, en varanleg lausn á þeim
málum væri óliugsandi án sam-
þykkis stórveldanna. Luns tók það
fram að raunverulega byggðist
alþjóðlegt öryggi á því að valda
hlutföllin í heiminum hefðu kom
izt í fastar skorður. En venjuleg
þar sem jafnmikið væri um fá-
öryggiskerfi dygði ekkl í heimi
tækt, þvi að fátæktin fæli í sér
eins mikla sprengihættu og kjarn
orkusprengjur. Luns kvað Holland
hafa í hyggju að auka verulega
stuðning sinn við þróunarlöndin.
Prestaköll
auglýst laus
Biskup íslands hefur auglýst eft
irtalin prestaköll laus til umsókn-
ar með umsóknarfresti til 31. okt.
n.k.:
CT
Laugaland í Eyjafjarðarprófasts-
dæmi,
Norðfjörður í Suður- Múlaprófasts
dæmi,
Bíldudalur í Barðastrandarprófasts
dæmi.
(Frétt frá biskupsstofu).
BREYTINGAR
fyrrihluta dags í gær.
Fréttaritari Alþýðublaðsins átti
tal við Sigurjón Ólafsson vita-
vörð í Reykjanesvita á hverasvæð
ur af hverunum. Þar voru í gær
komnar sprungur í jarðveginn og
kraumaði undir. — Mikla gufu
lagði af öllu hverasvæðinu
í gær. — Sagði Sigurjón, að síð-
ustu breytingarnar hafi að lík-
indum orðið mestar síðari hluta
nætur í gærmorgun. Kvaðst hann
hafa tekið eftir mikilli gufusúlu
klukkan 8 í gærmorgun, steig hún
jafnhátt Skálafelli, ef til vill 60
metra. Gaus súlan upp með um
það bil einnar mín. millibili. —
Þetta sá vitavörðurinn að heiman
úr vitabyggingunni.
Um klukkan hálf tíu fór svo
Sigurjón austur á hverasvæðið.
Voru þá nýju hverirnir breyttir
þannig, að eystri hverinn, sem er
nær gamla hvernum ,,1918“, var
orðinn lygn og rennslið úr hon-
um hafði minnkað. Yfirborð vest-
ari hversins hafði hins vegar
lækkað um ca. 25 cm., en áður
voru báðir hverirnir jafnháir. —
Leiðréfting
í FORUSTUGREIN Alþýðublaðs-
ins í gær um markaðsbandalögin
hefur brenglazt málsgrein. Rétt
er hún á þessa leið: „Og að sjálf
sögðu yrði að láekka tolla á hrá-
efnum og vélum til iðnaðarins
samhliða lækkun tolla á fullunn-
um vörum“.
Vatnið í báðum hverunum var orð
ið miklu tærara en daginn áður.
Kraumaði nokkuð í vestari hvern
um
Tók Sigurjón einnig eftir því,
að í gamla hverinn „1918“ var
komið leirvatn, sem hann gaus
stöðugt upp í ca. eins metra hæð.
Þessi hver var alveg óvirkur dag
inn áður, lagði aðeins frá honum
litla gufu þá.
Milli klukkan 11 og 12 var
„1918“ farinn að gjósa hærra
gosi ,tólf til fimmtán metra, með
stuttu millibili. — Vrtist hver-
unum, sem mynduðust um helg-
ina, minnka kraftur og orka eft-
ir því sem „1918“ óx.
Gosið í ,,1918“ hélt áfram í
gærdag. Þegar fréttamaður Al-
þýðublaðsins heimsótti hvera-
svæðið síðari hluta dags í gær,
gaus hann leir upp í 6—7 metra
hæð, en gufustrókurinn náði upp
í 30—40 metra hæð.
Erfitt mun vera að svara því,
hvort þessarar miklu breytingar
'á hverasvæðinu við Reykjanes-
vita kunni að vita á frekari nátt
úruhamfarir, en ljóst er, að hiti
er mikill alls staðar á svæðinu.
Jarðhræringa hefur ekki orðið
vart þar síðan um helgi. Jarð-
i skjálftamælum hefur verið komið
| fyrir í vitabyggingunni og jarð
fræðingar fylgjast nákvæmlega
með öllu, sem gerist á jarðhita-
svæðinu.
Mikið gos var í hvernum frá 1918 í gær.
Svetlana i sjónvarpsviðtali
j New York, (ntb-reuter).
Eftir 50 ár hafa Sovétríkin enn ekki öðlazt það frelsi
sém boðað var með byltingunni 1917, og það eru
raunverulega engar vonir um breytingar, sagði Svetl
ana Allilujeva, dóttir Stalíns, í sjónvarpsviðtali í New
York á mánudagskvöldið. Ilún sagði að raunverulega
hefði orðið afturför á mörgum sviðum í Sovétríkjun-
um, síðan Krústjoff var sviptur völdum árið 1964.
Svetlana sagði í viðtalinu, að
sovézk yfirvöld myndu líta
á hana sem sjúkling og loka hana
inni á liæli, ef hún sneri aftur
til Sovétríkjanna. Þá tók hún það
einnig fram, að henni hefði bob
izt gnótt hjónabandstilboða, síð-
an hún kom til Bandaríkjanna í
apríl í vor.
Svetlana sagði, að ekki hefði
verið gert mikið til að breyta á-
standinu í Sovétríkjunum síðan
faðir liennar andaðist 1953. Nýju
neitt, af því að þeir hefðu alið
leiðtogarnir hefðu ekki getað gert
með sér sömu hugmyndir og Stal
ín. — Rússar gerðu byltinguna
1917, sagði hún, — af því að þeir
óskuðu eftir lýðræði og frelsi.
Þeir viidu fá rétt til að mótmæla
og þeir vildu fá frjáls blöð. En
enn þann dag í dag hafa þeir
hvorugt af þessu. Margt breyttist
á valdadögum Krústjoffs, en eftir
að honum var komið frá, hefur
víða orðið afturför. -
Er hún var beðin að gera nán
ari grein fyrir þessari staðhæf.
ingu, nefndi Svetlana sem dæmi
réttarhöldin gegn rithöfundunum
Daniel og Sinjevskí, sem í fyrra
voru dæmdir til langvarandi fanga
vistar. — Eftir það gat enginn
verið öruggur lengur, sagði hún.
— Fólk gat ekki mótmælt og
gat ekki látið skoðanir sínar í
ljós. Allar umræður um listir,
bókmenntir og sögu þögnuðu óð
ara. Allt breyttist til hins verra
og við urðum þess öll vör.
— Þegar Krústjoff var hrakinn
frá völdum ,voru gefin mörg lof-
orð, sagði Svetlana, — en ekkert
þeirra hefur verið efnt. Faðir
minn er dauður fyrir fimmtán ár-
um, en sömu mennirnir stjórna
landinu og sami flokkurinn hefur
völdin.
Svetlana skýrði frá því, að Mik
ojan fyrrum varaforsætisráðherra
hefði sýnt henni ræðu Krústjoffs,
sem hann flutti á flokksþinginu
1956, þar sem hann réðist í fyrsta
skipti á Stalín. — Mikoyan lét
mig lesa ræðuna og spurði mig
síðan, hvort þetta kæmi mér á
óvart eða ég væri óánægð með
það. Ég gat ekki svarað honurn
öðru en að því miður virtist ræð
an vera sannleikanum samkvæm.
Að öllum líkindum var það flokk
urinn sem ákvað að sýna mér
ræðuna, og það var mjög mann
eskjulega gert, sagði hún.
Þá skýrði Svetlana frá því í
viðtalinu, að Krústjoff hefði ekki
liaft neitt á móti því að hún gengi
að eiga Indverjann Brijesh Singh,
en leiðtogarnir, sem tóku við af
honum, hafi verið á annarri skoð
un. Hún sagði einnig að fjöl-
skyldumyndum þeim, sem síðustu
vikurnar hafa birzt í blöðum
víða um heim, hefði verið stoið
úr læstri skrifborðsskúffu hennar
í Moskvu og sendar til Vestur-
landa með vestrænum blaða-
manni.
4. október 1967 — ALÞÝÐUBLABIÐ 3