Alþýðublaðið - 04.10.1967, Side 7
Paco Rabamie með leikkonunni Claudine Auger sem er einn af hans beztu víöskiptavinum. Hun er klædd
„sköpunarverki" úr pappír, og eyrnarlokkarnir eru úr plasti.
/ /
FYRSTl MARZBUINNITIZKUHEIMINUM
V
ítalskur stráhattur
í Þjððleikhúsinu ;
N. k. föstudag þann 6. október
frumsýnir Þjóðleikhúsið gaman-
leikinn, ítalskur stráhattur, eftir
franska leikritaskáldið, Eugene
Labiche.
Leikstjóri er Kevin Palmer, og
er þetta 6. leikritið, sem liann
stjórnar hjá Þjóðleikhúsinu. Una
Collins gerir leikmyndir og bún-
ingateikningar. Margir söngvar
eru í leiknum og hefur Magnús
Ingimarsson útsett tónlistina
fyrir leikritið, en Carl Billich
stjórnar hljómsveitinni, sem leik
ur með á sýningum.
Leikendur eru alls 24, en með
helztu lilutverkin fara eftirtald:r
leikarar: Arnar Jónsson leikur
aðalhlutverkið og er þetta fyrsta
aðalhlutverkið, sem hann leikur
hjá Þjóðleikhúsinu. í stórum hlut
verkum eru þessir leikarar. Árni
Tryggvason, Sigríður Þorvalds-
dóttir, Ævar Kvaran, Rúrik Har
aldsson, Róbert Arnfinnsson,
Herdís Þorvaldsdóttir og Guð-
björg Þorbjarnardóttir.
Þýðingin ér gerð af Áma
Bjönrssyni.
Höfundur leiksins, Eugene Lab
iche, er einn af þekktustu gaman
leikjahöfundum Frakka. Hann e'r
fæddur 1815 og dáinn árið 1888.
Samtals mun hann hafa skrifaö
rúmlega 150 gamanleikrit og
var mjög vinsæll höfun’dur á
sínum tíma hjá hinum gléðileik-
ja-sinnuðu leikhúsgesla Parísar
borgar.
„ítalskur stráhattur” cr þekkt
astur af gamanleikjum hans og
var leikurinn frumsýndur 'í Par-
ís árið 1851, við fádæma ’hrifn-
ingu. Þetta leikrit er enn þann 1
dag í dag, iðulega sýnt á Come-
die Francaise og fyrir úokkru
var leikurinn sýndur á Chish-
ester leikhúsinu í Englandi á
hinni árlegu leiklistarhátíð, sem
þar er haldin, og þótti sú upp-
færsla hafi heppnazt með mikl
um ágætum.
Skop, Eugene ^Labiche, er
breitt, gamanyrðin oft gamal
kunn, en framsetningin er mjög
aðgengileg og þokkarík. Þessar
fádæma hlægilegu kúnstir, sem
oft minna á meistarann Molíére,
og koma leikhúsgestum á öll-
um tímum í gott skap.
Labiche lyftir franska ,,far_
sanum“ í þá hæð, sem hann hef-
ur sjaldan náð síðan, óg gaf
þeim aukinn ferskleika og gáska.
í leiknum eru um 20 söngvar
allir í léttum stíl eftir efni leiks
ins.
Einn af hugmyndaríkustu tízku
teiknurum síðustu ára er Spán-
verji og heitir Paco Rabanne.
Hann býr til kjóla úr plasti og
pappír í stað hinna sígildu efna.
klæðir sýningarstúlkur sínar í
vírnet, litaða eða gagnsæja plast
kassa og geimferöabúninga sem
eru miklu öfgakenndari en nokk
uð sem Courréges- hefur komið
fram með. „Fyrsti Marzbúinn í
tízkuheiminum” iiefur hann ver-
ið kallaður, og sköpunarverk
hans minna meira á ímyndanir
um árið 2000 en raunveruleik-
ann árið 1967. En Rabanne vill
ekki viðurkenna, að hann lifi í
heimi framtíðarinnar. Hann
segist vera eini nútímamaðurinn
meðal tízkufrömuða, hinir séu
einmitt langt á eftir tímanum
og lifi enn á nítjándu öldinni
í hugmyndum sínum. Hann tel-
ur sig túlka öld tækni, uppfinn-
inga og geimferða. Og konurnar
eru farnar að meta hann mikils.
Á fáeinum árum hefur frægð
hans borizt um víða veröld.
Rabanne er þrjátíu og þriggia
ára gamall, fæddur í San Seb-
astino á Spáni 18. febrúar 1934
í „merki hinnar nýju aldar”,
vatnsberamerkinu. Faðir hans dó
þegar Paco var tveggja ára, féll
í borgarastyrjöldinni sem þá geis
aði á Spáni, og móðirin stóð uppi
með fjögur börn, fátæk og hjálp
arlaus. Hún vann fyrir þeim sem
saumakona hjá tízkufrömuðinum
Balenciaga sem þá var enn í
heimalandi sínu, en eftir að
borgarastyrjöldinnt lauk fluttist
hún til Parísar með börnin. Pa-
co ólst þar upp, gekk í skóla og
lagði fyrir sig arkítektúr. En
þau voru bláfátæk, svo að hann
varð að vinna með náminu, og
hann fór að búa til hnappa og
skartgripi úr alls konar ein-
kennilegum efnum eins og leðri
og plasti, málmum, vír og tré.
Hann bjó til belti og armbönd,
eyrnalokka, hálsklúta, brjóstná'-
ar, festar og hringa, og allt var
þetta frumlegt og ólíkt því sem
mest var í tízku. Hann barði á
dyr hjá frægum tízkuteiknurum,
og Pierre Cardin tók honum vel
ásamt öðrum.
í fjögur ár vann Rabanne og
bjó til firn af einkennilegu
skrauti sem átti vel við nýjung-
arnar sem voru að skapast í
tízkuheiminum. En smám saman
fann hann, að hann gat ekki unn
ið lengur undir stjórn annarra.
Honum fannst vanta áræði og
dirfsku í nýju búningana, vissa
vitfirringu jafnvel. Og hann á-
kvað að gerast sjálfur tízku-
teiknari og opna sýningu.
Sýninguna opnaði hann haust
ið 1965, og morguninn eftir var
Paco Rabanne umtalaðasti mað_
ur í París. Heimspressan var á
híelunum á honum, og pantanirn
ar tóku að streyma inn frá mörg
um löndum, ekki sízt Ameríku.
Síðan hefur Rabanne verið einn
af kunnustu tízkuteiknurum Par-
ísar, og meðal fastra viðskipta-
vina hans eru stjörnur á borð
við Iru Fiirstenberg, Elsu Mart-
inelli, Monicu Vitti, Brigitte Bar
dot, Melinu Mercouri og Miléne
Demongeot.
Hann var einn hinna fyrstu
sem tók pappírskjólana alvar-
lega; hann hefur gert plastið að
tízkuefni, og nú bíður hann með
óþreyju eftir nýjum uppfinning-
um á sviði efna og vefnaðar-
vöru sem hann getur notfært í
sköpunarverk sín. Því að Paco
Rabanne er fyrst og fremst mað
ur nútímans.
Trúlof unarhrlngar
Sendnm gegn póstkröfcu
Fljót afgrelðsla.
Guðm. Þorsteinsson
Kullsmlður
Bankastræti 1*.
Myndin var tekin á æfingu s.l. laugardag. Arnar og Þóra Friðr.
4. 'Október 1967 - ALÞÝÐU8LAÐIÐ 7