Alþýðublaðið - 04.10.1967, Blaðsíða 10
')
I
✓
•Caugardaginn 16. sept. voru gefin
saman í Skálholtskirkju af séra Guð-
mundi pia Ólafssyni ungfrú Guðlaug
Ingvarsdóttir og Hrólfur Kjartansson
kcnnari. Heimili þeirra verður að Með
alholti 12, Rvík.
Ljósmyndastofa Þóris. Sími 15602.
Þann 22. júlí voru gcfin saman i
hjónaband í Neskirkju af séra Frank
M. Ilalldórssyni ungfrú Guðrún Þ. Ól-
afsdóttir og Ólafur Skúlason.
Studio Guðmundar. Sími 20900.
Þann 22. júní s.l. voru gefin saman
í hjónahand í Mosfellssveitarkirkju af
sr. Bjarna Sigurðssyni ungfrú Margrét
Tryggvadóttir frá Miðdal og Þorsteinn
Lindal stud. vet. Heimili þeirra er að
Lofthusvejen 64, Oslo.
Stuúio Guðraundar. Sími 20900.
Þann 23. sept. s.l. voru géfin sam-
an í hjónaband af sr. Garöari Svavars-
syni ungfrú Sjöfn Ólafsdóttir og Jón
Brynjólfsson. Heimili þeirra er að
Framnesvegi 63.
Nýja Myndastofan. Sími 15125.
Þann 16. scpt. s.I. voru gefin saman
í hjónaband af sr. Óskari J. Þorláks-
syni ungfrú Bára Leifsdóttir og Stefán
Jónsson. Heimiii þeirra er að Skóla-
gerði 61.
Nýja Myndastofan. Sími 15125.
í hjónaband af sr. Grimi Grímssyni,
ungfrú Guðrún Magnúsdóttir og Vign-
ir Benediktsson. Heimili þeirra er að
Laugalæk 5.
Þann 23. sept. s.l. voru gefin saman
i hjónaband af sr. Jóni Thorarensen
ungfrú Sigriður G. Jónsdóttir og Ósk-
ar Ágústsson. Heimili þeirra er að Hof
teig 54.
Nýja Myndastofan. Simi 15125.
23. sept. s.l. voru gefin saman í hjóna
band af séra Lárusi Halldórssyni, ung
frú Margrét Sverrisdóttir og Guðmund
ur Friðgeirsson. Heimili þeirra verður
á Patreksfirði.
Nýja Myndastofan. Sími 15125.
Bækur
Frh. af 5. síSu.
en Vefarinn mikli hefst. Æsku-
verk Halldórs Laxness snúast öll
um sömu efni, sömu manns-
mynd sem loks er fullgerð með
Steini Elliða. Undir Helgahnúk
lýsir henni í einnt frumgerð
sinni, og þar er hún dregin upp
við hefðbundið sögusvið ís-
lenzkrar sveitar. Lýsing þess er
næsta einföld í sögunni og eng-
in sérstök rækt lögð við það, en
hún rúmar að vísu ýms hefð-
bundin minni, lýsing flækinga,
hjásetu og annað slíkt, og hins
vegar eínisdrög sem höfundi
verður síðar meira úr, sbr. lýs-
ing Þuríðar gömlu ráðskonu og
Sæmundar í Hjáleigunni. En á-
herzla sögunnar er á sálarlífi
sögufólksins, undirrót hinna vo-
veiflegu atvika Sögunnar; hún
sver sig að því leyti í ættina við
t. a. m. æskusögur Gunnars
Gunnarsonar áratugi fyrr, og
Ragnar Finnsson Guðmundar
Kambans. lS
Ekki veit ég glöggt hvers kon-
ar móttökur Undir Helgahnúk
fékk þegar hún kom út árið
1924, en þær munu minnsta kosti
ekki hafa verið yfirmáta fagn-
andi. Það er engin ástæða til að
fara eftir fjörutíu ár að áfellast
lesendur sögunnar fyrir að sjá
ekki hvað í höfundinum byggi,
að því leyti sem í það hefur
mátt ráða á þeirri tíð. En nýj-
ungargildi liennar, árið 1924, hef-
ur einkum verið fólgið í hinni
næmlegu æskulýsingu sögunnar,
lýsing vaknandi óráðinna til-
finninga, hinum heillandi skáld-
leika heimsins og hlutanna sem
sa'gan reynir að lýsa. „Ég hef
oft verið að hugsa um það í
Sumar að það er líkt og eitthvað
hátíðiegt ævintýri felist að baki
daganna,” segir Atli Kjartans-
son undir sögulokin. Æskuþokki
sögunnar, sem henni hefur enzt
furðanlega fram á þennan dag,
virðist mér einkum stafa af þess-
ari vitund liennar um hátíðina
að baki dagsins, víðerni tilver-
unnar, eitthvað mikið í vænd-
um. — Ó. J.
Ertu góð?
Frh. ur opnu.
örva metnaðargirnd hans, held-
ur blandið þér yður sjálf í mál-
in og ékki af nægilegri háttvísi.
Þér viljið bera ein alla ábyrgð
á heimilinu og börnunum til að
draga ekki athygli mannsins yðar
frá starfi hans og framabraut.
Þér eruð tilvalin eiginkona
fyrir mann sem vill gjarnan kom-
ast áfram en skortir dugnað,
þrautseigju og sjálfstraust. Ef
yður tekst að „ýta á hann”, þann-
ig að hann nái markinu með
hjálp yðar verður hann þakk-
látur og metur yður mikils.
Ef maður yðar er hins vegar
sterkari persónuleiki en þér,
valdið þér honum aðeins gremju
með afskiptasemi yðar.
Og ef maður yðar er metnaðar
laus, fyrirgefur hann yður aldr-
ei að vilja notfæra hann sem
stiga upp á þann pall sem yður
finnst yður hæfa í lífinu.
Ef þér hafið mestmegnis b
eruð þér móðir fremur en eigin-
kona.
b. Verndandi eiginkonan : Þér
bíðið þess, að maðurinn yðar
komi heim úr vinnunni á sama
hátt og þér bíðið þess, að börn-
in komi úr skólanum. Aðalatrið-
ið er fyrir yður, að hann komi
heim. Þér hafið engan áhuga á
lífi hans utan heimilisins nema
þér getið huggað hann, hjúkrað
honum og verið móðurleg við
hann. Þér hlustið á allt sem
hann hefur að segja, en aðeins
til að hlusta og vera honum góð,
ekki til að taka neina aðra af-
stöðu. Þér eruð verndarengillinn
sem vakir yfir hamingju heimil-
isins, gætið að heilsu manns
yðar, sjáið um, að hann hafi rétt
mataræði og fái nóga hvíld.
Hann er eins og litli drengur-
inn yðar sem þarfnast um-
hyggju og verndar.
Þér eruð tilvalin eiginkona
fyrir valdafíkinn eða sjálfstæðan
mann sem þarf á blíðri og hóg-
látri konu að halda fremur en
sálufélaga. Einnig fyrir mann
sem er metnaðarlaus og haldinn
minnimáttarkennd.
En annars konar maður gæti
saknað þess að fá aldrei annað
en yfirborðslega „huggun” hjá
yður. Já, því að í raun og veru
getið þér lika hjálpað honum.
Ef þér hafið mestmegnis c
eruð þér afbrýðisöm eiginkona
gagnvart starfi hans.
c. Afbrýðisama eiginkonan ; Því
meira sem maður yðar sekkur
sér niður í starf sitt, því gram-
ari verðið þér. Yður finnst þér
hafa verið svikin um sjálfsagðan
rétt yðar sem eiginkonu og þér
lítið nánast á starf hans sem
hættulegan keppinaut. Hvert
augnablik sem hann lielgar starfi
sínu er stolið frá yður, hver
hugsun sem um ;það snýst er
einskis verð, af því að henni er
ekki beint að yður. Þess vegna
reynið þér á allan hátt að draga
athygli manns yðar frá starfi
hans.
IIlJíillMMtWJjL
Þetta sjónarmið færir yður
enga hamingju og þvi síður hon-
um. Það vekur hjá honum
gremju að finna skilningsleysi
yðar. Starf hans er lítilvægt í
augum yðar, og það særir hann
og ergir. Það er hugsanlegt, að
kona af þessu tagi geti fengið
mann sem er of bundinn starfi
sínu, til að eyða heldur meiri
tíma með fjölskyldu sinni. Ekki
þó með kvörtunum og nöldri.
Undan því flýr hann bara á end-
anum — ekki kannski í arma
annarrar konu, en að minnsta
kosti eitthvað burt til að geta
lifað í friði.
Ef þér hafið mestmegnis d
eruð þér félagi hans og vinur.
d. Eiginkonan sem er félagi
manns síns og vinur : Þér eruð
sífellt reiðubúin að hjálpa
manni yðar, styrkja hann og
styðja, en þér þrengið ekki heil-
ræðum yðar upp á hann, heldur
bíðið róleg þangað til hann biður
um þau. Þér örvið sjálfstraust
hans, en aidrei með því að blanda
yður í málið eða sletta yður
fram í. Þér eruð nærgætin og
háttvís og ætíð’ minnug þess, að
hjón eru sjálfstæðir einstakling-
ar sem eiga að bera virðingu
fyrir skoðunum hvors annars,
en ekki að reyna að þvinga fram
sitt eigið sjónarmið án tillits til
þess hvað hinn aðilinn segir.
Það má segja, að þér séuð
hin fullkomna „fyrirniyndareigin-
kona.” En gætið þess samt að
sofna ekki á verðinum. Það er
ekki óhugsandi, að maður yðar
vildi heldur, að þér væruð stund-
um ekki alveg svona fullkomin og
óaðfinnanleg en eilítið mann-
eskjulegri.
Þér skuluð nota dómgreind
yðar og spila ekki alltaf fram
öllum trompunum sem þér hafið
á hendi. Látið mann yðar ekki
fá minnimáttarkennd með því
að vera of fullkomin sjálf. Notið
skynsemi yðar og smekkvísi —
það ætti ekki að reynast yður
erfitt að finna rétta meðalveg-
inn, því að þér eruð gædd þess-
um kostum í ríkum mæli.
10 4. október 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ