Alþýðublaðið - 04.10.1967, Qupperneq 11
Rifsf sors Qrn Eidsson
Liverpool
ystuna í
TOMMY Smith, framvörður Liv-
erpool tryggði félagi sínu sigur
X'fir Stoke á laugardag, er ha'nn
★ ÚRSLIT urðu þessi í I. deild
dönsku knattspyrnunnar um lielg-
ina: Esbjerg—AFG 0:0, Frem —
B1903 3:2. KB-AAB 2:2, AB —
Vejle 2:1, Horsens—Hvidovre 2:1,
OB —Köge 2:2. AB hefur forystu
eftir 18 umferðir með 27 stig, —
Hvidovre hefur hlotið 24 stig og
Frem 22. Neðst eru B1903 og
Köge, bæði með 12 stig.
■* TÉKKAR sigruðu Spánverja í
Prag á sunnudag með 1:0. Tékk-
ar og Spánverjar eru þar rneð efst
ir í I. riðli Evrópumeistaramótsins
fyrir landsiið með 6 stig hvort.
Tékkar hafa aðeins leikið 3 leiki,
en Spánverjar 5. írland og Tyrk-
land eru með 3 stig eftir 5 leiki.
★ SOVÉTRÍKTN og Sviss gerðu
jafntefli í knattspyrnu á sunnu
dag, 2:2. — í leikhléi var einnig
jafntefli, 1:1.
tók for-
I. deild
skoraði úr vítaspyrnu. Með þess-
um sigri er Liverpool með flest
stig í I. deild eða 15, í 10 leikjum.
Sheffield Wed. er með 14 stig og
Arsenal og Tottenham 13 stig og
Manchester Utd. 12 stig. — Úrslit
á laugardag:
1. deild:
Burniey —Fulham 2:0. Chelsea
— Coventry 1:1. Leicester —Ever-
ton 0:2. Liverpool-Stoke 2:1. Man
chester C. —Manch. U. 1:2. New-
castle—Arsenal 2:1. Sheffield W.
— Wolverhampton 2:2. Southamp-
ton —Nottingham F. 2:1. Totten-
ham—Sunderland 3:0. West Brom
1 wich —Sheffield U. 4:1. West Ham
— Leeds 0:0.
2. deild:
Birmingham—Millwall 2:3. Bol
ton—Blackpool 1:2 Bristol C,—
Hull 3:3. Charlton—Plymouth 1:0.
Crystal Palace—Quetns Park Ran
gers 1:0. Derby—Portsmouth 0:1.
Huddersfield—Blackburn 2:1. Ips-
wirh —Carlisle 3:1. Middlesbor-
ough —Aston Villa 1:1. Preston —
Cardiff 3:0. Rotherham —Norwich
1:3.
-jaumst í Mexico 1968 segja þessar fimleikastúlkur, en nú er aðeins rúmlega eitt ár, þar til Olympíu-
leikirnir hefjast.
Fimm heimsmet í lands-
keppni USA og Bretlands
Bandaríkjamenn sigruðu Breta
í sundi um helgina með 119 stig-
um gegn 85. Einn maður keppti í
hverri grein frá hvorri þjóð.
Keppnin fór fram í Crystal Palace
í London.
Alls voru sett fimm ný heims
met í keppninni og settu Banda-
ríkjamenn þau öll. Catie Ball
setti tvö heimsmet, með þriggja
klukkustunda millibili. Fyrst setti
Ball nýtt met í 220 jarda bringu
sundi, sj'nú á 2:46,9 mín. Gamla
heimsmetið, 2:47,7 mín. átti Gal-
ma Prozumentsjikova, Sovétríkj-
unum. Síðan setti Ball, sem að-
eins er 15 ára gömul nýtt heims-
met í 110 jarda bringusundi, synti
: 1:17,0 mín. Gamla metið, 1:18,3
mín. átti Sue Jones, Bandaríkjun-
um. 110 jardar voru ekki lands-
keppnisgrein, heldur aukagrein.
Ball á heimsmetin í 100 m. og
200 m. bringusundi. þau eru 1:14,6
mín. og 2:39,5 mín.
Önnur bandarísk stúlka, sem
einnig er 15 ára gömul, Debbie
Meyer, setti heimsmet í 880 jarda
skriðsundi, synti á 9:44,1 mín.
Gamla rnetið, 9:50,3 mín. átti
Kathy Wainright frá Ástralíu.
EM í körfu-
knattleik
ÞESSA dagana stendur yfir
Evrópumeistaramót í körfu-
knattleik í Finnlandi. — Þessi
mynd er frá keppninni, Belgíu
menn og Hollendingar Ieika,
það er Kamiel Deirck, Belgíu,
sem er að skóra.
Meyer á heimsmetin í 400, 800 og
1500 vm. skriðsundi.
Mark Spitz, aðeins 17 ára gam-
all setti heimsmet í 110 jarda
flugsundi, synti á 56,3 sekúndum.
Gamla heimsmetið, 58,1 látti Dan
Sherry frá Kanda. Spitz á heims
metin í 100 og 200 m flugsundi
Loks setti sveit Bandaríkja-
manna í 4x100 m. fjórsundi
kvenna heimsmet, synti á 4:37,4
mín. í sveitinni eru Pokey Wat-
son, Catie Ball, Ellie Daniel og
Jane Barkman. Gamla heimsmet
ið, 4:38,8 mín. átti sveit Hollands.
Það virðist augljóst, að Banda
ríkjamenn virðast liklegir til stór
afreka í sundi, á Olympíuleikjun-
um í Mexíkó næsta haust, en á
Olympíuleikjunum í Tokyo hlutu
þeir langflest gullverðlaun.
Björgvin Schram kosinn
í sjónvarpsnefnd UEFA
AÐ því kemur vafalaust á sínum
tíma að íslenzka sjónvarpið þarf
að semja við knattspyrnuforustu
menn hér um beint sjónvarp frá
knattspyrnukappleikjum og er
því fróðlegt að fylgjast með því
sem gerist erlendis á þesu sviði.
Á vegum Knattspyrnusambands
Evrópu er starfandi nefnd 4
manna, sem hefur m.a. það verk-
efni að semja um greiðslur fyrir
sjónvarp frá stórleikjum sem
, fram fara undir stjórn Knattsp.
! sambands Evrópu (UEFA). Björgv
in Schram, formaður KSÍ lá sæti
í nefnd þessari og er hann ný-
kominn heim frá Genf, en þar
l fóru fram samningaumræður
! milli nefndarinnar og fulltrúa frá
samtökum sjónvarpsstöðva Ev-
! rópu, um sjónvarp frá helztu leikj
um á árinu 1968.
Til marks um hve hátt sjónvarp
[ ið metur beinar útsendingar frá
knattspyrnukappleikjum, má geta
þess að samtök sjónvarpsstöðva í
Vestur-Évrópu buðu sem svarar
10 milljónum ísl. króna fyrir rétt
til að fá að sjónvarpa frá tveim
úrslitaleikjum á næsta ári, þ.e.
úrslitum í keppni meistaraliða og
bikarmeistara. Það skilyrði fylgir
tilboðinu að öll knattspyrnusam-
| bönd þeirra landa (15 lönd alls)
j sem hlut eiga að máli, leyfi beint
i sjónvarp frá þessum úrslitaleikj-
j um. Tilboð þetta er nú til athug-
| unar og mun verða borið undir
j viðkomandi knattspyrnusambönd
j á næstunni.
Þá má geta þess til fróðleiks
! að BBC sjónvarpið í Englandi
mun 'hafa boðið 120 milljónir ísl.
kr. fyrir rétt til að fá að sjón-
varpa beint frá 25 kappleikjum
í ensku deildarkeppninni nú í
! vetur. Tilboði þessu var hafnað
þar sem það var ekki talið að-
gengilegt. j
4. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ^