Alþýðublaðið - 04.10.1967, Side 14
Drengjaúlpur
Nýkomnar fallegar loðfóðraðar drengjaúlpur með lausri
hettu.
VÖNDUÐ EFNI - FALLEG SNIÐ.
loOiöiri
Laugavegi 31.
Auglýsing
um lausar lögregluþjónsstöður
/ Reykjavik
Nokkrar lögregluþjónsstöður í Reykjavik eru lausar til um-
sóknar. -
Byrjunarlaun samkvæmt 13. flokki launakerfis opinberra
starfsmanna, auk 33% álags á nætur- og helgidagavaktir.
Upplýsingar um starfið gefa yfirlögregluþjónar.
Umsóknarfrestur er til 15. október 1967.
Lögreglustjórinn í Reykjavík 3. október 1967.
G AZ 69 m
Höfum fyrirliggjandi landbúnaðarbifreiðina GAZ 69 m.
VERÐ KR. 148.100.00
HAGSTÆÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Bifreiðar & landbúnaðarvélar
Suðurlandsbraut 14. — Sími 38600.
Ritari óskast
í Landspítalanum er laus staða læknaritara. Góð vélrit-
unarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt úrskurði Kjara-
dóms. Umsóknir með upplýsingum um aldur menntun og
fyrri störf sendist Skrifstnfu ríkisspítalanna, Klapparstíg
29 fyrir 10. október n.k.
Reykjavík, 3. október 1967
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Áskriftasíminn er 14901
Sjómenn fái
Framnaid af 1 síðu
is og sveitarfélaga skilvíslega af
hendi, þótt erfitt hafi orðið á stund
um, vegna mjög mismunandi tekna
frá ári til árs, þó ekki hafi orðið
til vandræða fyrr en nú.
S.l. vetrarvertíð varð mjög tekju
litil fyrir marga sjómenn, sem
höfðu þó haft tekjur á s.l. ári og
kom því skatttaka hins opinbera
mjög harkalega við marga, sem
fengu umsamda kauptryggingu að-
eins greidda með kvittun fyrir
greiðslu upp í skatt þessa árs og
gátu því ekki lagt neitt af mörkum
til framfærslu fjölskyldu sinnar,
nema þá með því að fá lán. Meiri
hluti fiskimanna okkar hefir lengi
búið við litlar tekjur ef frá eru
talin þrjú s.l. ár, sem orðið hafa
tekjudrjúg og því ekkert óeðlilegt
að tekjur góðæranna hafi verið
notaðar af þeim svo sem öðrum
atvinnustéttum til þess að byggja
eða kaupa sér íbúðir og því ekki
lagt til hliðar frekar en aðrir til
tekjuminni og erfiðari ára, ef koma
skyldu.
Með hliðsjón af því sem að fram
an segir, vill stjórn Sjómannasam-
bandsins eindregið fara þess á leit
að-sjómönnum og þá alveg sérstak
lega fiskimönnum verði gefinn
kostur á, að fá greiðslufrest á ein
hverjum hluta skattanna til næsta
árs.
Stjórn sambandsins leyfir sér að
vænta þess, að hæstvirt ríkisstjórn
verði við þessum tilmælum og þá
jafnframt, að hún mæli með því
við stjórnir viðkomandi sveitarfé-
laéa að þau verði við sams konár
tilmælum er þeim mun verða send
varðandi þann hluta skattanna er
til þeirra eiga að renna”.
Þá hefur stjórn sambandsins
ennfremur skrifað borgarstjórn
Reykjavíkur, bæjarstjórnum Hafn-
arfjarðar, Keflavíkur og Akra-
ness og sveitarstjórn Grindavík-
ur, þar sem í öllum aðalatriðum
er farið fram á hið sama sjómönn
um til handa, varðandi þann hluta
skattanna er renna til bæjarfé-
laganna.
Týnd vél
Framþald af 1. síðu
er Bjarni Gunnar Ingi. Er yf-
ir Skagafirði frekar en Ilúna-
flóa. Flugþol á að vera búið.
Sé ekki til lands lengur. Er
yfir sjónum.
Síðar í gærkvöldi bárust þær
fregnir að í Winnipeg í Kán-
ada hefði heyrzt neyðarskeyti
og liafi þar verið greinilega
stafað orðið SKAGAFJÖRÐ-
UR, en ekki var alveg ljóst,
hvort það geti hafa borizt frá
týndu vélinni, en þess má geta
að taibylgjur geta oft borizt
undarlega langar vegalengdir,
þegar svo stendur á, og hefur
m. a. komið fyrir að i Reykja-
vík hafa heyrzt fjarskipti milli
lögreglubíla í Chicago.
Mikil leit var hafin að flug
vélinni strax í gærkvöldi og
fóru tveir flokkar úr flugbjörg
unarsveitinni norður, annar
flugleiðis til Sauðárkróks, en
thinn landveg til Blönduóss. Þá
voru skip og flugvélar aðvör-
uð og beðin að svipast um eft-
ir vélinni. Símstöðvar á Norð-
urlandi voru opnar og grennsl
EftirJitsmaður
með byggingaframkvæmdum óskast til starfa í Straumsvík.
Reynsla við byggingaframkvæmdir og enskukunnátta nauð-
synleg. Skriflegar umsóknir sendist til íslenzka Álfélags-
ins h.f., Pósthólf 244, Hafnarfirði fyrir 10. október nJc.
íslenzka Álfélagið h.f.
PLÖTUSPILARI
í BÍL
til sölu selst ódýrt
Upplýsingar í síma 14905 milli kl. 13-20.
azt var eftir því á bæjum,
hvort vélarinnar hefði orðið
þar vart, og bárust m. a. þær
fregnir að heyrzt hefði í flug-
vél nyrzt á Skaga skömmu áð-
ur en neyðarkallið barst, og
virðist sem vélin hafi þá verið
stödd norður af Skagafirði eða
í mynni hans.
Leitinni verður haldið á-
fram af fullum krafti með birt
ingu. Flugvélin, sem týndist,
er eins hreyfils vél, í eigu
Flugleigunnar hf.
Bridgemét
Framhald af bls. 2.
Starfsemin hjá T.B.K. hefur
aldrei verið öflugri og má búast
við mikilli þátttöku í þeim keppn
um sem framundan eru. í Tví
menningskeppninni sem nú er að
ljúka er eins og áður segir 48 pör
og er staðan þessi fyrir síðustu
umferð hjá efstu pörum. Nr. 1.
Júlíús og Tryggvi. 2. Albert og
Kjartan. 3. Lárus og Zóphónías.
4. Aðalsteinn og Tryggvi. 5.1ng
unn og Gunnþórunn, 6. Bjarni og
Brandur. 7. Gissur og Helgi. 8.
Baldur og Ólafía.
(frá Tafl- og bridgeklúbbnum.)
Wllson
Framhald af bls. 1.
samþykkt með aðeins 122 þúsund
atkvæða meirihluta af um sex
milljónum atkvæða, en á flokks-
þinginu greiða fulltrúar atkvæði
fyrir félagsmenn í verkalýðsfélög-
unum. Áður höfðu verið felldar
ýmsar tillögur þar sem lagzt var
gegn stefnu stjórnarinnar.
Atkvæðagreiðslan fór fram að
loknum hörðum umræðum, þar
sem James Callaghan, fjármála-
ráðherra flutti lokaræðuna og
hélt því fram, að brotthvarf frá
stöðvunarstefnu stjórnarinnar
leiddi til verðbólguþróunar, örð-
ugs greiðslujafnaðar og ennþá
meira atvinnuleysis. — Þá kunn-
gjörði fjármálaráðlierrann einnig,
að ríkisstjórnin ihygðist verja
miklu fé til viðreisnar í þeim
landshlutum, sem hefðu orðið
harðast úti vegna sparnaðarráð-
stafana ríkisstjórnarinnar.
Það virðist hafa komið í ljós á
flokksþinginu, að vel er 'hugsan-
legt að vinstTí ai>mur flokksins
taki höndum saman við hægri
arminn, en sú samstaða gæti orð-
ið Wilson hættuleg síðar meir, en
hann hefur verið gagni’ýndur hart
að undanförnu af báðum örmun-
um.
BÆNDUR
Nú er réttl tíminn til aB skrá
vélar og tækl sem á að seija.
TRAKTORA
MÚGAVÉLAR
SLÁTTUVÉLAR
BLÁSARA
ÁMOKSTURSTÆKI
Við seljum tækin
Bíla- og j
Búvélasalan
v/Miklatorg, sími 23136.
Fyrir hönd dætra minna, tengdabarna og barnabarna, þakka
ég þann hlýhug og vináttu, sem okkur var sýnd við frá-
fall mannsins míns
JÓNS BJARNASONAR,
blaðamanns.
Jóhanna Bjárnadóttir.
14 4. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ