Dagur - 21.12.1978, Blaðsíða 1

Dagur - 21.12.1978, Blaðsíða 1
DAGTJR LX. ARG. Akureyri, fimmtudagur 21. desember 1978 81. tölublað Húsavíkur- kirkja var byggð 1907 Yfirsmiður var Páll Kristjánsson en kirkjuna teiknaði einn fyrsti arkitekt þjóðarinnar, Rögnvaldur Ölafsson, sem andaðist ung- ur. Húsavík- urkirkja þykir vera með feg- urstu kirkjum og Húsvík- ingar láta sér mjög annt um hana. (Ljósmyndastofa Péturs). Daguróskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla Meðal efnis í jólablaði Dags Barnagaman í umsjón Heiðdísar Norðfjörð. Bls. 24 og 25. „ítalskan er dásamlegt mál“. Viðtal við Kristján Jóhannsson. Bls. 22. Hvað segja þau um liðið ár og það sem er í vænd- um? Dagur ræðir við nokkra Norðlendinga. Bls. 4 og 5. Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup: Heilög, himn- esk ljóð úr harmi þínum“. Bls. 28. Kvennasamband Akureyrar. Bls. 9. Eigum við að reyna nýja rétti um jólin? Bls. 26. Óli á Gunnarsstöðum í Þistilfirði ræðir um heima og geima í viðtali við Dag. Bls. 16 og 17. Guðsþjónustur og félagslíf um jól og áramót á Norðurlandi. Bls. 30. Grein um fæðingar. Bls. 13. Jóladagskrá sjónvarpsins. Bls. 18. Jóla- guðspjallið En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústusi keisara um að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin, er gerð var, þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Og fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar. Fór þá einnig Jósef úr Galíleu frá borginni Nazaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, því að hann var af húsi og kynþætti Davíðs, til þess að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem þá var þunguð. En á meðan þau dvöldust þar, kom að því, að hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að það var eigi rúm fyrir þau í gistihúsinu. Og í þeirri byggð voru fjárhirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill drottins stóð hjá þeim og dýrð drottins ljómaði í kringum þá, og urðu þeir mjög hræddir. Og engillinn sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ung- barn reifað og liggjandi í jötu. Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu guð og sögðu: Dýrð sé guði í upphæðum, og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hefur velþóknun á. Lúkasarguðspjall.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.