Dagur - 21.12.1978, Blaðsíða 25

Dagur - 21.12.1978, Blaðsíða 25
m v l I I i I |wi) F » Í,-Í | 1 r" I N I 1 I ? ■ ! Lf N Isf li p V Einu sinni var agnarlítið grenitré. Það átti heima langt, langt inni í stórum skógi. Litla grenitréð var svo lítið, að það var lang- minnsta tréð í öllum skóginum. Allt í kringum það, voru svo stór greni- tré, að litla tréð gat ekki séð neitt, nema beint upp í himininn. Nú var kominn kaldur vetur, en samt var litla grenitréð grænt, eins og öll grenitré eiga að vera. Svo var það dag einn, að menn komu í skóginn. Þeir hjuggu sum trén. Þeir hjuggu og hjuggu. Svo lögðu þeir trén á ! I sleða, og óku með þau burtu. Lítill fugl kom og sett- ' ist á litla tréð. Tréð sagði við litla fuglinn. „Hvaða menn voru þetta?“ „Þeir voru úr borg- inni,“ sagði litli fuglinn. „Hvað voru þeir að gera?“ spurði litla greni- tréð. „Þeir voru að sækja tré. Þá vantaði jólatré, þess vegna hjuggu þeir sum trén. “sagði litli fuglinn. „Hvað er jólatré?“ spurði grenitréð litla. „Það er tré, sem börnin dansa í kringum, þegar jólin koma. Þá er Ijós á hverri grein og poki á hverri grein. Það er gott í pokunum, allskyns jóla- sœlgæti. Svo er englahár á hverri grein og silfur- stjarna á hverri grein og efst á trénu, er stór gull- stjarna. “ „Gaman, gaman, gam- an, “ sagði litla grenitréð. m_____________________________ Litla iólatréð h Það skalf á því hver grein. Það skalf svo mikið, að litli fuglinn varð að fljúga burtu. Þá fór litla greni- tréð að gráta. „Af hverju ertu að gráta?“ spurðu stóru trén í skóginum. „Ég græt af því, að mig langar svo mikið til þess að vera jólatré. “ „Gráttu ekki litla tré,“ sögðu stóru trén í skógin- um. „Þegar þú ert orðið stórt, getur þú orðið jóla- tré. “ Nœsta vetur komu aft- ur menn í skóginn, og hjuggu sér tré. Þeir lögðu þau á sleða og óku með þau burt. Þá fór litla tréð að gráta. Það grét svo mikið, að það skalf á því hver grein. „Af hverju ertu eigin- lega að gráta?“ spurðu stóru trén. „Ég græt af því, að mig langar svo óskaplega mikið til þess að verða jólatré.“ sagði litla tréð snöktandi. „Gráttu ekki litla tré,“ sögðu stóru trén í skógin- um. „Þegar þú ert orðið stórt, þá getur þú orðið jólatré. Næsta vetur komu ennþá menn í skóginn. Þeir hjuggu sum trén. En litla grenitrénu tóku þeir alls ekki eftir, því að það var svo agnarlítið. Þeir lögðu trén á sleða og óku burt. Vesalings litla tréð átti ósköp bágt. Það- langaði svo mikið tilþess að verða jólatré. Það hágrét og skalf svo mikið að litlu greinarnar á því hristust og skulfu. Það skalf lengi lengi. Loksins kom vorið. Sólin hækkar, hlýnar veður, hverfur ís og snær. Lömbin fæðast, Iifna blómin litfögur og skær. Fuglar syngja á grænum greinum, glaður lækur hlær. Nú komu menn í skóg- inn. Allt í einu komu þeir auga á litla tréð. „Þetta er fallegt tré,“ sögðu þeir. „Þetta getur orðið fallegt jólatré. “ „ Við skulum taka það upp. Við megum ekki höggva það eða meiða. Það má ekki meiða neina rót á því. “ Mennirnir tóku litla m f \ a I ‘-t f 4 4 grenitréð upp með rótum. Þeir voru góðir við litla tréð og meiddu það ekk- ert. Þeir létu það upp á bíl. 1 Bíllinn rann af stað og ók með það inn í borgina. el Þar var það sett niður í fallegan garð. Litla tréð óx og óx í garðinum. || Börnin gáfu því vatn og /j| áburð og það óx og óx. Það varð fallegra og fall- egra. Nú leið að jólum. „Bráðum koma blessuð jólin, börnin fara að hlakka til, “ sagði fallega grenitréð í garðinum. Nú var farið að skreyta tréð. Á hverri grein voru Ijós. Það voru alltsaman raf- magnsljós. Svo var hengdur poki á hverja grein. Það var allskonar jólagóðgæti í hverjum poka. Svo var englahár á hverri grein og silfur- stjarna á hverri grein, en efst á trénu var stór gull- stjarna. „ Gaman, gaman, “ sagði jólatréð. Það skalf á því hvergrein af einskœrri jólagleði. Börnin dönsuðu í kringum það. Þau fengu öll eitthvað fallegt, falleg- ar jólagjafir. Það var jólagjöf á hverri grein. Litli fuglinn heimsótti fallega jólatréð og hann fékk líka jólagjöf. (Endursagt úr lestrar- bók.) iii N i k H I I h i m f ■■' \. M m ' i '■■■; Pac/c/<3 per/ur fc/rín bl/cju Búið til úr hnetuskurni. .. fætur ur p<9pp<3 foróns c/r / CfCf//tu/71 pappfr 'pf’pu/yre/rs'ur/ /frr/P f?e/ DAGUR.25

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.