Dagur - 21.12.1978, Blaðsíða 28

Dagur - 21.12.1978, Blaðsíða 28
Séra Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup f Syng Guði dýrð, syng Guði þökk, vor þjóð að það var hann, sem heilög himnesk Ijóð úr harmi þínum vann Tómas Guðmundsson Þáttur úr íslenzkri sögu og þjóðerni Við mcetum hér í kvöld í minningu séra Hallgríms Pét- urssonar. Musterið háa og bjarta terigt nafni hans laðar okkur til sín. Fjögur ár og þrjár aldir eru nú að baki frá dánar- degi hans. Minningin, umgerð þessa aftansöngs segir sína sögu. Óhugsandi er, að annar ís- lendingur en Hallgrímur Pét- ursson kveðji menn saman til sinnar minningar á jafn yfir- lœtislausu ártali og fjarlægri ártíð og dagur þessi gefur til kynna. Hallgrímur er fyrir löngu orðinn þáttur úr íslenzkri sögu og þjóðerni. Hann hefur smog- ið inn í vitund íslendinga meir en nokkur maður annar. Séra Matthías Jochumsson hafði orð á því um seinustu aldamót, að ef leita œtti á/its um það, hvaða íslendingar vœru mest dáðir og elskaðir af þjóð- inni, myndi séra Hallgrímur verða efstur á blaði. — Höf- undur passíusálmanna myndi ótvírœtt eiga það sœti, hann vœri mestur „ástgoði“ þjóðar- innar. Æfisaga Hallgríms og verk hans er vel þekkt og kunnugt lœrðum sem leikum. Þó leyfum við okkur að rifja upp ýmislegt, yýc er varpar Ijósi á hlutverk þessa fj, manns með kynslóðum, sem koma og fara. Breyskur og syndug- ur Þá er þar fyrst til að taka, að Hallgrímur var maður sinnar samtíðar, hann var mannlegur, — mennskur breyskur maður — og að því leyti rétt eins og allir menn. Það vill stundum gleymast um hann hátt upp hafinn, en ef við drögum fjöður yfir veikleika hans, sem hann viðurkenndi af mikilli auð- mýkt, þá lítum við hann ekki í réttu Ijósi, skiljum hann ekki. Mynd Hallgríms er mörkuð sterkum litum og línum. Þar skiptast á Ijós og skuggar. Hringjarasonurinn er ekki fyrr kominn fram á sjónarsviðið á Hólum í Hjaltadal, en hann fer að angra staðarfólk þar með illskeyttum kviðlingum sínum. Og sennilega af þeim sökum er honum ekki vœrt á biskups- setrinu, þrátt fyrir frœndsemi hans við Guðbrand Þorláksson. Hann fer utan til Danmerkur og gerir heiðarlega tilraun lil að koma sér áfram og fœr til þess mikilsverða hjálp, en reynist samt áfram hrakfalla- bálkur. Straumhvörfin, erhann Heilc himri Minningarræða 27. okt. 1978 í minningu séra Hallgríms Péturssonar á 304 ártíð hans í HaUgrímskirkju Texti: Rómv. 8, 18 snýr aftur heim, reynast honum afdrifarík. Skírlífsbrotið bœtir enn á þjáning hans og hve ókristilega hann og Guðriður ganga inn í hjónabandið. Og ekki varð aldarháttur þess tíma til að milda sársauka. Púlsmaður frá Suð- urnesjum Aðkoman til œttjarðarinnar reyndist honum þungbœr. Púlsmaðurinn átti hvergi hœli og varð að ganga í verstu verkin til þess að draga fram lífið. Hinn slyngi sláttumaður dreg- ur drjúgan skára í barnahóp- inn. Annar samfundur hans og Skálholtsbiskups verður hon- um enn til heilla. Hann kemur i Skálholt á fund biskups, og er kynntur honum sem húski kominn frá Suðurnesjum, — en fer þaðan vígður þjónn í kirkju Krists, vel í stakk búinn til að hefja prestsskap. Þó eru um- mœli til á annan veg um það, sem ekki eru eftir hafandi. Þjáningar Hallgrims áttu enn eftir að aukast. Hann missir augasteininn sinn, Steinunni dóttur sína, Því mun eg þig með tárum þreyja af huga sárum heim til þess héðan fer. Bœrinn hans brennur til kaldra kola, og heimilisfólkið bjargast naumlega. Ofan á þetta kemur svo holdsveikin, sem hann á við að striða til œviloka. Harminum er lýst í þeirri sögn, sem rekja má til samtíðarinnar, að kirkju- klukka í Saurbœ hafi rifnað, er henni var hringt móti líki Hallgríms, er það var flutt frá Ferstiklu, þar sem hann and- aðist. „Get ég það, ef ég vil!“ Frá þeim árum, er Hall- grímur átti hvað erfiðast vegna % 3 holdsveikinnar er til saga um samtal, er langvinur Hallgríms átti við hann. Þessi vinur hans spurði svo sem í gamni eða al- vöru, hvort hann gœti beðið Guð svo heitt, að hann létti af honum sjúkdóminum. Hallgrímur svaraði: „Það skaltu vita, að get eg það, ef eg vil, en eg vil það ei gjöra, því eg veit ei, hversu Guði muni það þœgilegt, og vil því heldur líða það, sem Guðiþóknast á mig að leggja, því það mun verða mér fyrir beztu. “ Sagan bregður upp raun- hœfri mynd af því, hvernig Hallgrímur brást við örlögum sinum. „Tak öllu sem að höndum ber, segir heilög ritn- ing. “ Það er uppbyggingarefn- ið, sem að okkur berst og Guð notar til sköpunar sinnar. Hallgrímur kvað: Guð elskar þann, sem hirtir ,p hann hef eg þá trúna vissa, sem skáldið orðar í kvœðinu ^ Hugbót sem ort er eftir brun- ^ ann í Saurbœ. Guð er minn Guð þótt geysi ^ nauð og gangi þanninn yfir syrgja skal spart, þó missta eg margt máttugur herrann lifir. „ Drottinn agar þann, sem hann elskar Hallgrímur lifði fast eftir þeirri kenningu, erfram kemur í orðunum: Drottinn agar þann, sem hann elskar, og lœt- ur þann kenna til, sem hann hefur mœtur á. í hverju er hið einstœða hlutverk Hallgrims fólgið, að forsjónin valdi hann öld af öld til þess að leiða barnið sér við hönd, styðja öldunginn á graf- arbakkanum og syngja svo heita má hvern íslending í dauðann? Eg veit, að mér er ofœtlun að svara því til hlítar. En eg hygg, að enginn íslendingur hafi sýnt betur en Hallgrímur hvernig mannlegar þjáningar geta orð- ið ekki neitt í samanburði við þá dýrð, sem opinberast, þegar þjáningum er tekið á þann hátt, sem Hallgrímur gerði, — hvernig hann vann úr sínum harmkvœlum með Guðs hjálp þann mann, sem hann hafði að geyma. Þar kom yfirburða náðargáfa skáldsins honum að góðu gagni. — Sagt er, að orð- ið þjóðskáld hafi fyrst verið notað um Hallgrím í rituðu máli, og það hœfir honum vel. Hallgrímurgekk hvorki einn eða óstuddur með það, sem lífið lagði honum á herðar. Geislar frá Jesú féllu á öll vandamál hans, eins hann kveður um: ^^c^H^)i^lí^ff^^^C)(^^c)(^^(^l^j^^x^^)SltBS^)S^)S^)Sl^>S^S&)S^)Sl^MbxS^íS&xSltíSI^S^£Sl^S^xS^BS^xS^xSl^xS^)S^xSIÍ&S^xSI^S^sSlíÓ£xS^!xS^xS^S^SIÍÞS^íS^S’ 28.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.