Dagur - 21.12.1978, Blaðsíða 14
♦ HÚSA VÍK é
14.DAGUR
GLEÐILEG JÓL
FARSÆLT NVTT ÁR
þökkum viðskiptin
á árinu
Aðalgeir Sigurgeirsson vöruafgreiðsla
Bóka og blaðasalan
Félagsheimili Húsavíkur
Flugleiðir hf. Húsavík
Framsóknarfélag Húsavíkur
Hótel Húsavík
Húsavíkurbíó
Ljósmyndastofa Péturs
Mjólkursamlag K.Þ.
Norðurvík hf. trésmíðaverkstæði
Samvinnubankinn Húsavík
Skóbúð Húsavíkur
Sjúkrahús Húsavíkur
Tímaumboð Húsavík Hafliði Jósteinsson
Verkalýðsfélag Húsavíkur
Verslanirnar Radíóver og Rós
Hugleiðing um fæðingar
Framhald af bls. 13.
reikning. I öðrum pakkanum eru
tölusettir pelar sem eiga að endast
næsta hálfan mánuðinn (auglýs-
ing frá Nestléfyrirtækinu) og í
hinum pakkanum er bamið.
Svertingjar í Bandaríkjunum
eru svo heppnir að þeir hafa ekki
efni á að fæða á sjúkrahúsi en
verða að láta sér nægja einfaldari
fæðingar á fæðingarheimilum og
þar af leiðandi fæðast meðal
þeirra færri heilaskemmd böm en
hjá hinum hvítu. í Bandaríkjun-
um fæðast hlutfallslega flest
heilaskemmd börn í heimi um
leið eru þau það ríki sem ver
mestum peningum í fæðingar,
samfara því að tækni er beitt í
mestum mæli við fæðingarnar.
í Bandaríkjunum segja læknar
af karlkyni að best sé að leggja
niður öll lítil og meðalstór fæð-
ingarheimili, en ef litið er á
könnun á bandarískri fæðingar-
aðstoð sem unnin er af samtökum
bandarískra fæðingarlækna og
kvensjúkdómafræðinga kemur í
ljós, að í fyrsta lagi: Eftir því sem
fæðingin er tæknivæddari og
dýrari, þeim mun hærra er dán-
arhlutfall ungbarna og mæðra. I
öðru lagi þeim mun meiri tengsl
sem eru á milli fæðingarstofnun-
ar og læknadeildar þeim mun
hærra dánarhlutfall ungbarna og
mæðra.
Kvennahreyfingin í Banda-
ríkjunum er nú mjög upptekjn af
að leysa úr læðingi sköpunargáfu
kvenna, sem þær hafa eðli sínu
samkvæmt einkarétt á - sumpart
við að reyna að afnema vændi og
vinna gegn nauðgunum með því
að láta vana glæpamennina og
sumpart við að gera fæðinguna
að heilagri athöfn á ný og þar
með hin tengdu andlegu al-
heimsöfl.
Hugsandi og meðvitaðar konur
þora ekki að fæða á sjúkrahúsi, en
fæða fremur heima án notkunar
tækni og Iyfja. Fæðingarlæknar í
Kalifomíu tóku sig saman um að
neita konum, sem óskuðu eftir
heimafæðingu um skoðun á
meðgöngutímanum. Þessvegna
stofnuðu konumar Santa Cruz
fæðingarmiðstöðina í maí árið
1971. Þar fræða þær hver aðra um
mikilvægi fæðunnar fyrir fæð-
ingar og mæla þær með græn-
metisfæðu eingöngu, þær kenna
fæðingaræfingar, fæðingarhjálp,
hvemig á að hafa barn á brjósti
og þýðingu fæðingarstundarinn-
ar í tengslum við tungl og stjöm-
ur. Við sjálfa fæðinguna aðstoða
vinkonumar hver aðra án borg-
unar. Allar fæða þær sitjandi eða
á fjórum fótum.
Heilbrigðismálaráð Kali-
fomíuríkis lét rannsaka meir en
þrjú hundruð (300) þess háttar
fæðingar og niðurstaðan varð sú,
að fæðingardánarhlutfall barna
þeirra kvenna, sem fæddu heima
var níutíu prósent (90%) undir
meðaltali þjóðarinnar. Dánar-
hlutfall bama við fæðingu er
lægra hjá fimmtán þjóðum sam-
anborið við Bandaríkin sam-
kvæmt alþjóðlegum tölum Sam-
einuðu þjóðanna. Holland hefur
næstlægsta dánarhlutfallið í
heimi jafnframt því að heima-
fæðingar eru rúmlega helmingur
fæðinga. Samkvæmt tölum frá
Heilbrigðismálastofnun Samein-
uðu þjóðanna frá árinu 1976 eru
sjötíu prósent (7%) fæðinga í
Hollandi heimafæðinear.
Ljósmæður í Hollandi ráðleggja
alltaf bamshafandi konum að
fæða heima, þar eð það sé örugg-
ast. Þær krefjast þess við heima-
fæðingu, að vatnslögn sé í húsinu
og salemi, en ekki endilega
vatnssalemi. Ljósmóðirin kemur í
heimsókn fyrir fæðingu og gætir
þess að allt sé tilbúið fyrir fæð-
inguna. Við fæðinguna hefur
ljósmóðirin aðstoðarkonu, sem
hefur lært í sextán mánuði hús-
hald, meðferð ungbarna og fæð-
ingarhjálp. Ljósuhjálpin verður
eftir á heimilinu í tíu daga eftir
bamsburðinn, gætir móður og
barns og sér um heimilið. Ljós-
móðirin kemur í heimsókn dag-
lega í tíu daga eftir fæðinguna.
Svo tekur heilsuvemdarhjúkrun-
arkonan við móður og barni.
Fæðingamar ganga yfirleitt
eðlilega fyrir sig, það er að segja
lyf eru ekki notuð, fæðingin er
ekki sett af stað né heldur flýtt
fyrir fæðingunni. Aðeins eitt pró-
sent (1%) mæðranna eru gefin lyf
og aðeins fjögur prósent (4%)
bamanna fæðast með því að not-
uð sé töng eða sogskál - tilsvar-
andi töluhlutfall er sextíu og
fjögur prósent (64%) í Bandaríkj-
unum - og aðeins (2%) tvö prósent
barnanna í Hollandi eru tekin
með keisaraskurði.
1 flestum öðrum löndum hafa
menn hrætt konurnar með ófyr-
irsjáanlegum erfiðleikum við
fæðingar í heimahúsum, sem
krefjist skjótrar tæknilegrar að-
stoðar til þess að baminu verði
ekki meint af. Þannig eru konur
tilneyddar til þess að velja fremur
sjúkrahússfæðingar af svokölluð-
um frjálsum vilja. Ótti við
heimafæðingar er ástæðulaus.
Klostermann yfirfæðingarlæknir
við kennslusjúkrahúsið í Amster-
dam leggur áherslu á rannsókn á
fimm þúsund heimafæðingum.
Sú rannsókn leiddi í ljós að hin
fáu dauðsföll sem urðu við
heimafæðingar hefði ekki verið
hægt að komast hjá á sjúkrahúsi.
Þrátt fyrir þetta fækkar heima-
fæðingum einnig í Hollandi.
Phaff læknir sem er formaður
fæðingarnefndar Efnahags-
bandalagsins útskýrir þessa stað-
reynd þannig, að ekki sé verið að
taka tillit til öryggis móður og
bams þegar fæðingar séu fluttar
inn á sjúkrahúsin heldur sé verið
að láta undan þrýstingi stéttarfé-
laga lækna og ljósmæðra, sem
krefjast hópvinnu, fasts vinnu-
tíma og helgarleyfa eins og skrif-
stofufólkið.
Hvað viðvíkur tæknivæddu
karlveldi nútímans þar sem hæsta
gildismatið er lagt á peninga og
hraða þá er náttúran versti óvinur
þess. Aldrei er hún eins voldug og
við fæðingar. Alheimskraftur frá
tungli og stjörnum stjórna fæð-
ingum. Þessir kraftar eru sterk-
astir að næturlagi og á'morgnana,
þegar karlveldið losar greipamar
um böm móður jarðar og við
hvílumst í svefni. Flestar fæðing-
ar eiga sér stað við nýtt tungl og
fullt tungl.
Þess vegna verður álagið á
ljósmæður og lækna þá meira en
þau geta annað, þó þau hafi
hinsvegar minna að gera á öðrum
tímum. Þessvegna er farið að flýta
fæðingum með Cardifftækjunum
(fæðingarvélunum) nýju.
Með þessum Cardifftækjum er
hægt að vera öruggur um að
konar hefur alið bamið klukkan
fjögur séu tækin sett af stað
klukkan átta um morguninn.
HEIMILDIR:
Lundbye, Vagn: Alt er Llv Borgens For-
lag. Kiibenhavn 1976.
Lundbye, Vagn: Et indianersamfund í
LISA. Skolebog. Gyldendal - Köbenhavn
1976.
Waters, Frank: Book of the Hopi. Ball-
antine Books. New York 1963/76
Haire, Doris: Civilisationen har forkvak-
lel födslen. örkin hennar Lóu - Akurcyri
1978.
Ravgn Raven: Birth Book. Genesis Press
1972. USA
Arms, Auxanne: Immaculate Deception.
Houghton Mifflin Company-Boston 1975.
Guriisdatter, Lóa: Moder Jord Mor og
Hemmefödsler. Örkin hennar Löu. Hels-
ingör 1076.
Ehrenrich, Barbara & English, Deidre:
Hekse, jordemödre og sygeplejersker. Alfe-
hjul - Kövenhavn 1976 (Örkin hennar Lóu)
Þessar bækur fást hjá Örkinni hcnnar Lóu,
Lundargötu 13. Akureyri.