Dagur - 30.05.1984, Blaðsíða 8

Dagur - 30.05.1984, Blaðsíða 8
„Tónlistardagar ’84“ verða haldnir í íþrótta- skemmunni á Akureyri dagana 31. maí til 7. júní og hefjast þeir með konsert Kristins Sig- mundssonar við undir- leik Jónasar Ingimund- arsonar. En hápunktur tónleikanna verður flutningur söngdráp- unnar „Örlagagátan“ eftir Björgvin Guð- mundsson 3. júní. Þetta er í fyrsta skiptið sem drápan er flutt með hljómsveitarund- irleik, en útsetningarn- ar hefur Roar Kvam annast og hann er jafn- framt stjórnandinn. Flytjendur eru Pass- íukórinn á Akureyri ásamt félögum úr Geysi og Gígjunni, en einsöngvarar eru Þuríður Baldursdóttir, Michael Clarke, Jó- hann Már Jóhannsson, Kristinn Sigmundsson og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. 40 manna hljómsveit sér um undirleikinn. Þriðji þáttur Tónlistardag- anna eru popptónleik- ar í Skemmunni, þar sem BARA-Flokkur- inn og Þursarnir koma fram. Örlagagáta Björgvins verður fram- lag Akureyringa til Listahátíðar að þessu sinni. Söngdrápan verður flutt í Háskólabíói þann 8. júní nk., en þá leikur Sinfóníuhljómsveit íslands undir. 0 „Skáld ókunnug oratóríu- forminu“ Um tilurð söngdrápunnar skrifaði Björgvin Guðmundsson, tónskáld, á sínum tíma: , fSýnu listrœnna og dulúðugra en óperu-formið“ - segir Björgvin Guðmundsson, tónskáld í umfjöllun sinni um óratoríur, en flutningur Örlagagátunnar verður hápunktur „Tónlistardaga ’84“ „Sumarið 1926 kynntist ég talsvert náið skáldinu Stephani G. Stephans- syni. Féll allvel á með okkur, og meðal annars, sem okkur fór á milli var það, að ég bað hann að yrkja mér oratóríu-texta. Áskildi ég mér þó, að mega fella úr og fitja inn í eftir vild og ástæðum, svo og víxla orðum og hendingum hvar sem mér sýndist. Gaf Stephan það fúslega eftir og ítrekaði síðar, er hann sendi mér textann. Notaði ég mér það leyfi eftir ástæðum, bæði hvað úrfellingar, inn- skot og víxlingar snerti. Vilji svo til að þessi oratóríó verði prentuð um mína daga, er vísast að ég geri grein fyrir öllum þeim breyt- ingum, smáum sem stórum, en ann- ars má finna þær við samanburð söngtextans og Þiðranda-kveðu Stephans, því að svo nefnir hann Ijóðaflokkinn, en ég gaf söngverkinu nafn. Um þessar mundir var ég bú- settur í Winnipeg, en þá á förum til Lundúna, og þangað sendi Stephan mér Ijóðaflokkinn í febrúar 1927. Tók ég þegar að velta fyrir mér textanum, og gerði uppkast að fyrri þætti tónverksins sumarið eftir, í skólafríinu. Vorið 1928 hvarf ég aftur til Kanada og var þar á ferða- lagi fram undir haust, en settist síðan að í Winnipeg. Áður en ég fór frá Lundúnum hafði ég hreinskrifað rúmar 50 blaðsíður af uppkastinu með nokkrum breytingum, og tók þar nú til, sem frá var horfið og starf- aði að verkinu fram yfir áramót. Hafði ég þá lokið við og hreinskrifað 20 númer, og m.a. umsamið nr. 6, 8 og 9, sem voru allt öðruvísi í upp- kastinu. En þá fór allt í strand af ýmsum ástæðum, m.a. þeirri að þá um stund varð ég að sökkva mér niður í hátíðar-kantötuna, „íslands þúsund ár“. Gat ég svo ekki lifað mig nægilega inn í verkið þaðan af þar til haustið 1932, að ég gerði á það loka- snerruna og lauk því 6. janúar 1933. Má því segja að ég hefði það á prjón- unum í hálft sjötta ár. Er og textinn allvíða fremur óþjáll til tónsetningar, svo að óhjákvæmilegt var að liðka hann til samræmis við oratóríu-form- ið í þeirri framsetningu sem ég lagði til grundvallar að tónverkinu, sem slíku, og nokkuð má ráða í af með- fylgjandi skýringu. Því miður veitist afar erfitt, að svo komnu, að fá orta góða oratóríu- texta, sem mun stafa af því, að skáld vor eru með öllu ókunnug oratóríu- forminu. En það er þó sýnu listrænna og dulúðugra en óperu-formið fyrir þá, sem skilja það til hlítar.“ 0 Þáttur Þiðranda og Þórhalls Um efni söngdrápunnar skrifar Björgvin: „Efni þessarar söngdrápu er sótt í þátt Þiðranda og Þórhalls, sem er einn af hinum 40 íslendingaþáttum, og er víg Þiðranda Síðu-Hallssonar að sjálfsögðu hin dramatíska þunga- miðja verksins. Annars tvinnast inn í það aðdragandi og eftirköst þess sorglega atburðar. Verkið hefst á forspili en fyrsti kórinn er haustsöngur í tímanlegum og táknrænum skilningi, en gæti jafn- framt táknað dulmál örlaganna, er Blásið til bardaga við Örlagagátuna. Myndasyrpuna hér á opnunni tók Kristján Arngríms son, Ijósmyndari Dags, á æfingu hjá kór og hljómsveit við flutning Örlagagátunnar. oft þykir einkenna andrúmsloftið, þegar voveiflegir atburðir eru í að- sigi. Nú hafði Síðu-Hallur áformað að hafa inni boð mikið til heiðurs Þiðranda syni sínum, sem þá var væntanlegur heim frá útlöndum, hvar hann hafði hlotið frægð og frama, enda þótti hann afbragð ungra manna. En tryggðavinur Halls og gestur hans löngum, Þórhallur spámaður, að Hörgslandi á Síðu, lét sér fátt um finnast boð þetta og vildi þar hvergi nærri koma, þó aldrei þessu vanur. Er því fyrri þáttur að mestu leyti átök milli Síðu-Halls og fólks hans annars vegar, en Þórhalls hins vegar, um að fá Þórhall til að sitja veisluna og lýkur með fullum sigri þeirra Halls. Síðari þátturinn er að nokkru leyti þrískiptur. Hann hefst fyrsta veislu- kvöldið. Stórhríð er á og margt boðsmanna ókomnir til veislunnar. Samt er þar glatt á hjalla og vel veitt, en Þórhallur bannar að nokkur yfir- gefi skálann um nóttina. Þá hefst næturþátturinn með nr. 17. Menn taka á sig náðir, og nokkru síðar er kvatt dyra, en enginn þorir að gegna. Þetta stenst Þiðrandi ekki, hyggur hann að fleira boðsfólk sé komið og gengur til dyra. Ráðast þá að honum níu nornir dökkleitar, með þeim árangri, að hann liggur þar eftir helsærður. Níu dísir bjartleitar vildu koma Þiðranda til hjálpar, en urðu seint fyrir eins og oft hefur vilj- að brenna við. Þessi þáttur endar svo með nr. 24, á dauða Þiðranda morg- uninn eftir. Þá hefst lokaþátturinn um það leyti sem Síðu-Hallur hefur ákveðið að flytja frá Hofi til Þvottár vegna óyndis eftir þennan hryggilega atburð. Spyr nú Hallur vin sinn Þór- hall hvað hann hyggi um afdrif Þiðr- anda. En Þórhallur getur til, að siða- skipti muni í nánd, og sé hinn nýi siður betri, enda muni Hallur og ætt- ingjar hans aðhyllast hann. Jafnframt lætur hann þess getið, að gamli tím- inn vilji hafa sitt, og það helst ekkert minna en besta mann ættarinnar, enda sé honum það varla láandi. Nú bregður líka svo við, að tvær hinna björtu, góðu dísa koma á vettvang og syngja Halli huggunaróð, er fjöldi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.