Dagur - 30.05.1984, Qupperneq 17
30. maí 1984 - DAGUR -17
„Sumir kalla sig byggingarmeistara í símaskránni sem ekkert hafa smíðað.“
Langamýrí
Pegar hér var komið sögu
spurði ég Pálma um ætt og upp-
runa og þegar í ljós kom að hann
er fæddur á Löngumýri í Skaga-
firði, sonur hjónanna Halldórs
Jóhannssonar og Jónínu Jóns-
dóttur, gat ég ekki á mér setið og
spurði hvort hann þekkti þá ekki
afa minn og afabræður frá
Djúpadal í Skagafirði. Og auð-
vitað þekkti hann þá eins og allt
og alla sem lifðu og hrærðust í
Skagafirði á fyrsta hluta þessarar
aldar.
- Ég þekkti afa þinn vel en
betur þekkti ég þó Stefán bróður
hans. Hann gisti hjá mér hér á
Akureyri alþingishátíðarárið
1930. Síðan fór hann til Kanada
við fjórða mann og gerði það gott
að ég held.
Reykjavík
Pálmi var tvígiftur en báðar kon-
ur hans eru nú látnar. Hann á
fimm uppkomin börn og það sem
honum þykir verst er að dæturnar
þrjár giftust suður.
- Það er víst borin von að þær
komi hingað aftur, segir hann og
tekur til við að brýna ljáinn en
spyr mig svo hvernig ég kunni við
Reykjavík.
- Já, fólk kann líklega alltaf
best við þá staði þar sem það er
fætt og uppalið á en ég hef aldrei
kunnað við Reykjavík. Dætur
mínar búa reyndar ekki þar því
að ein býr í Garðabæ, önnur í
Hafnarfirði og sú þriðja í Mos-
fellssveit. Synir mínir tveir eru
báðir hér á Akureyri og annar
þeirra er smiður eins og ég. Rek-
ur byggingarfyrirtæki og hefur
nóg að gera þrátt fyrir allt talið
um atvinnuleysið hér á Akureyri.
Akureyrí
Að sögn Pálma þá var hann í
sveit fram til ársins 1925 eða fram
til 23ja ára aldurs. Faðir hans
bjó lengst á Vöglum og síðan
fluttist fjölskyldan að Bakkaseli,
þar sem í þann tíma var rekið
mikið og myndarlegt gistiheimili.
- Foreldrar mínir voru sex ár
í Bakkaseli en ég var árinu
skemur. Flutti þá til Akureyrar
og fór að vinna við smíðar. Ég
vann við húsbyggingar hér og þar
og vann m.a. mikið fyrir kaupfé-
lagið þó aldrei væri ég þar fast-
ráðinn. Það er gott að búa hér á
Akureyri og þú mátt skrifa það
að ég vil ekkert álblendi hér í
Eyjafjörðinn. Þetta er alltof góð
og falleg byggð til þess að fara til
spillis. Og svo ráðum við íslend-
ingar ekkert við þetta erlenda
fjármagn og höfum aldrei ráðið,
en þú þarft ekki að skrifa það
nema þú viljir. Já, það er gott að
búa hér á Akureyri, en ég vildi
þó síst búa úti í Glerárþorpi. Þar
er ekkert nema snjór og vitleysa.
Skagafjörðurínn
- Hann er skrýtinn Skagafjörð-
urinn í dag. Ég sá hann nýlega úr
lofti í fyrsta sinn og það var
furðuleg sjón. Það flugu með mig
menn á lítilli einkaflugvél og við
byrjuðum á að fljúga lágt yfir
Vatnsskarðið og síðan út yfir
Sæmundarhlíðina. Blönduhlíð-
ina þekkti ég varla úr lofti og
mörg fjöllin í fjallgarðinum hafði
ég aldrei áður séð. Þetta er nú
eins og með Sauðárkrókinn. Ég
kom þar nýlega og kannaðist
sama og ekkert við mig. Þó
þekkti ég mig þar vel fyrir 1930.
En svona eru breytingar. Það
æðir allt áfram og það er ómögu-
legt að fylgjast með, sagði Pálmi
um leið og hann mundaði ljáinn.
Það hvein í og fyrstu grös
sumarsins í garðinum við Bjark-
arstíginn féllu. Það var greinilegt
að Eálmi hafði engu gleymt varð-
andi.það hvernig átti að hand-
fjatlá.þetta gamla atvinnutæki.
Um leið og við kvöddumst sagði
hann: - Það var nú meiri vitleys-
an í honum Páli að senda þig á
mig. - ESE
HÓPFEEÐABÍLAR
tðRSHAM®
Höíum til leigu hópferðabíla
af stærðunum 8—40 farþega.
Góðir og snyrtilegir bílar. Afgreiðsla sími 22133.
Heimasímar:
Eggert Jónsson, 22657 Kristján Gunnþórsson, 22288
Helgi Þórsson, 23625 Þóroddur Gunnþórsson, 21620
Kristján Grant, 21035 Örn Hansen, 24590
mm
M0
Auk þess allar
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð