Dagur - 30.05.1984, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 30. maí 1984
í þessum pípum kemur gufan úr borholunum til stöðvarhússins.
Verst er stefnuley
varðandi Kröfluvirkj
— segir Gunnar Ingi Gunnarsson, staðartæknifræðingur
„Við höfum ekki heyrt neitt
um það hver framtíð virkjun-
arinnar verður. Þó búumst við
frekar við því að húsbænda-
skipti verði fljótlega, þar sem
nú standa yfir samningavið-
ræður um yfirtöku Landsvirkj-;
unar á Kröflu frá Rafmagns-
veitum ríkisins, en það er í
samræmi við þann vilja Al-
þingis að öll orkuöflunarfyrir-
tæki landsins séu undir sama
hatti,“ sagði Gunnar Ingi
Gunnarsson, staðartækni-
fræðingur Kröfluvirkjunar í
viðtali við Dag.
„Orkuvinnslan hérna hætti 1.
maí si. og stendur það stopp fram
til 1. september. I fyrra stóð
stoppið til I. ágúst. Landsvirkjun
hcimtaði þetta þegar samningar
voru gerðir um orkusölu frá
Kröflu. Á sumrin er allt yfirfljót-
andi í vatni og nóg rafmagn.
Þetta þýðir hins vegar tekjutap
fyrir Kröfluvirkjun sem nemur
560 þúsund krónum á dag eða um
15 milljónum króna á mánuði.
Svona stopp eru af hinu vonda
því best er að láta gufuaflsvirkjun
af þessu tagi ganga sem lengst og
stöðugast. Niðurkæling hefur
slæm áhrif á tækjabúnaðinn, sem
byrjar þá að ryðga. Kröflu-
virkjun gæti gengið stanslaust
nema hvað stöðva þyrfti vélarnar
um svona mánaðartíma annað
eða þriðja hvert ár til eftirlits.“
„Því hefur heyrst fleygt að
flytja eigi aðra vélasamstæðu
Kröfluvirkjunar suður fyrir heið-
ar. Hvað álítur þú um það mál?“
„Ég veit satt að segja ekki
hvað menn eru að tala um. Sam-
kvæmt úttekt borgaði það sig að
kaupa nýja stöð í stað þess að
flytja þessar vélar suður. f>á er
óvíst að þessar vélar henti annars
staðar því efnið f þær er valið
með tilliti til efnainnihalds guf-
unnar og það getur verið mjög
misjafnt, eftir því hvar er á land-
inu.“
„Hvert er álit þitt á skýrslunni
sem gerð var í fyrra, þar sem
fram kom að hagkvæmast væri að
koma Kröflu í fullan gang sem
fyrst og að viðbótarframkvæmdir
gæfu sambærilegt orkuverð og
hagstæðustu vatnsaflvirkjanir
okkar?“
„Það er ljóst að það væri hægt
að reka Kröfluvirkjun með mikl-
um ágætum og borga hana niður
á tiltölulega skömmum tíma.
Menn virðast hins vegar ekki
hafa haft áhuga á að kynna þetta
mál.
Ég tel að við verðum að ljúka
við þessa virkjun, ganga veginn á
enda, ef svo má að orði komast.
Við getum svo aftur á móti velt
vöngum yfir því hvenær við förum
í næstu gufuaflsvirkjun, því það
er ekki spurning að þær eiga
framtfð fyrir sér og eiga vel við
hér á landi, þar sem mest er byggt
á vatnsaflinu, sem dalar svo og
svo mikið á veturna. Gufan gefur
stöðugt afl allan ársins hring, auk
þess sem hægt er að stækka gufu-
aflsvirkjanir smátt og smátt. Þetta
svæði getur t.d. gefið miklu meira
en 60 MW og einnig er stutt í
Námafjall, en það svæði mætti
tengja saman við Kröfluvirkjun,
reisa þar litlar stöðvar og bætá
smátt og smátt hlekkjum í keðj-
una.
Það sem hefur verið verst fyrjr
þessa virkjun er það að málefni
hennar hafa alltaf verið í stefnu-
leysi. Við höfum ekki fengið að
vita fyrr en langt er liðið á ár hvað
mætti gera í það og það skiptið.
Við náðum 24 megawatta afli í
vetur og í sumar verða holur 21 og
22 tengdar. Þá komumst við í 30
MW afl næsta vetur, sem er full-
nýting vélanna sem nú eru notað-
ar. Eini áframhaldandi kostnað-
urinn við að stækka virkjunina er
að tengja síðari vélina, sem er
smáræði og svo við frekari boran-
ir. Ég er alveg sannfærður um það
að hagkvæmt er að halda áfram
framkvæmdum, miðað við það
fjármagn sem þegar hefur verið
látið í þetta. Þessi virkjun getur
gengið í 50-100 ár og skilað góð-
um árangri ef vilji er fyrir hendi
hjá ráðamönnum. Ennfremur er
þetta spurning um það að gefast
upp við gufuaflsvirkjanir eða nýta
þennan sjálfsagða og góða kost
Hinrik Bóasson önnum kafinn við „fyrirbyggjandi aðgerðir“ í túrbínu Kröfluvirkjunar
í fyrirbyi
andi aðger
— Spjallað við Hinrik Bóassi
„Samkvæmt nýjustu reglu-
gerðinni telst ég víst vera vél-
fræðingur,“ sagði Hinrik Bóas-
son starfsmaður við Kröflu-
virkjun er við töfðum hann
stundarkorn frá vinnu á dög-
unum, en Hinrik var í „fyrir-
byggjandi aðgerðum“ í túrbínu
stöðvarinnar eins og hann orð-
aði Jþað.
„Eg hef verið hér frá upphafi
og líkar vel. Ég er héðan úr sveit-
inni en flestir sem hér starfa eru
annars aðfluttir, en hér starfa 11
vélstjórar og rafvirkjar fyrir utan
yfirmenn.“
- Hvernig leggst þessi sumar-
lokun á framleiðslunni í þig?
„Ég kann því að sjálfsögðu
afar illa að það sé verið að loka
starfseminni svona yfir sumar-