Dagur - 30.05.1984, Blaðsíða 24
Akureyri, miðvikudagur 30. maí 1984
EIRRÖR -TENGI @
SMURKOPPAR K
g
a
s
Teikning af Glerárkirkju.
Betra loft komið
í íþróttahöllina
„Ég get ekki sagt um þetta al-
veg með fullri vissu vegna þess
hversu lítið er búið að prófa
tækin, en mér sýnist á öllu að
óhætt sé að vera mjög vongóð-
ur,“ sagði Hermann Sigtryggs-
son formaður byggingamefndar
íþróttahallarinnar á Akureyri
í samtali við Dag.
Eins og áður hefur komið fram
í Degi var mjög kvartað yfir loft-
leysi í húsinu sl. vetur og að
undanförnu hefur verið unnið að
uppsetningu raka- og loftræsti-
tækja þar. Pá er unnið við loft-
ræstikerfi, hitakerfi og rafmagns-
kerfið auk þess sem unnið er að
frágangi á fjölmörgum öðrum
sviðum.
Hermann sagði að ein prófun
hefði farið fram á raka- og loft-
ræstikerfum í aðalsalnum og lof-
uðu niðurstöður úr þeirri prófun
mjög góðu. Fjárveiting til fram-
kvæmda við húsið á þessu ári frá
ríki og bæ nam 7,5 milljónum
króna og sagði Hermann að ým-
islegt væri hægt að framkvæma
fyrir þá upphæð þótt ekki væri
hægt að fullklára allt. gk-
Glerárkirkja:
Biskup tekur
fyrstu
skóflustunguna
Biskupinn yfir íslandi, hr. Pét-
ur Sigurgeirsson mun á morg-
un að taka fyrstu skóflustunguna
að nýrri kirkju í Glerárhverfi.
Helgistund verður á kirkjulóð-
inni sem er fyrir austan Bugðu-
síðu og norðan Arnarsíðu.
Lúðrasveit Akureyrar mun leika
og kirkjukór Lögmannshlíðar-
sóknar undir stjórn Askels Jóns-
sonar syngur. Hr. Pétur Sigur-
geirsson biskup flytur ræðu og
hann mun síðan taka fyrstu
skóflustunguna að Glerárkirkju.
Eftir athöfnina á kirkjulóðinni
verður farið í félagsheimili Sjálfs-
bjargar að Bjargi sem er við hlið
kirkjulóðarinnar og þar mun
Kvenfélagið Baldursbrá verða
með hátíðarkaffi. Teikningar af
kirkjunni munu verða þar til
sýnis.
Tjaldstæðið á Dalvík:
Sturtubað fyrir
ferðalanga
Þessa dagana standa yflr mikl-
ar framkvæmdir á tjaldstæðun-
um á Dalvík. Verið er að
byggja hús sem í verður hrein-
lætisaðstaða og er fyrirhugað
að húsið standi tilbúiö um
miðjan júní.
Að sögn bæjarstjórans á
Dalvík, Stefáns Jóns Bjarnason-
ar þá verða í húsinu tvær snyrt-
ingar auk þriggja handlauga en
aðalkosturinn verður þó líklega
sturtan þar sem ferðalangar eiga
að geta skolað af sér ferðarykið.
Þetta framtak Dalvíkinga er til
mikillar fyrirmyndar enda nauð-
synlegt að hreinlætisaðstaða sé
góð á þeim stöðum sem vilja
kalla sig ferðamannastaði.
- ESE
Tveir teknir
með hass
Tveir ungir menn voru um
helgina handteknir á Akureyri
og við leit á þeim fundust 13
grömm af hassi
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar er talið að hassið hafi verið
ætlað til einkaneyslu. Annar
mannanna mun hafa komið við
sögu hjá lögreglunni áður vegna
fíkniefnamisferlis en hinn ekki.
gk-.
Gísli Magn-
ússon látinn
Látinn er á Akureyri, Gísii Magn-
ússon, byggingastjóri hjá Kaup-
félagi Eyfirðinga.
Gísli Magnússon var múrari að
iðn, fæddur 29. júní árið 1917.
Hann hóf störf hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga í júní 1965 og starfaði
sem byggingastjóri allt til dauða-
dags.
anátt um allt land á
morgun og föstudag, en
sennilega verður úr-
komulaust á Norður-
Iandi. A laugardag og
sunnudag snýst vindur
hins vegar í norðaustur
og þá mun kólna eitthvað
og rigna jafnframt.
# Hvar er
Höldur?
Á dögunum var hér á Akur-
eyrarflugvelli hin myndarleg-
asta forstjóraþota, í eigu for-
stjóra John Manville Comp-
any, sem er meðeigandi í
Kísilíðjunni, eins og flestir
vita. En áður en gárungarnir
á flugvellinum fréttu hvereig-
andinn vaeri, leituðu þeir log-
andi Ijósi að nafninu Höldur
sf. á þotunni.
# Barist um
fararstjóra
Á þingi HSÍ um helgina var
hart barist um yfirráð i stjórn
sambandsins. Deilurnar i
stjórninni hafa lengi verið allt
annað en íþróttamannslegar
en það er vonandf að hin nýja
stjórn geti i framtíðinni ein-
beitt sér að þvi að efla hand-
knattleikinn.
Þó hart hafi verið barist um
stjórnvöllnn þá var það ekki
bara metorðagirnd sem réð
gjörðum manna. Eftir að Ijóst
varð að íslenska handknatt-
leiksliðið á hugsanlega
möguleika á þátttöku á
Olympíuleikunum, þá gerðu
hinir góðu menn sér Ijóst að
sæti i stjórn HSÍ gætí tryggt
fararstjórasæti fyrir viðkom-
andi og farseðil á leikana i
Los Angeles.
# Sjö farar-
stjórar eða ...
Val hinna „útvöldu tólf“ sem
keppa eiga fyrir ísland í hin-
um ýmsu greinum á OL hefur
að sjálfsögðu mælst misjafn-
lega fyrir. Það er deilt um rétt-
mæti þess að senda þennan
eða hinn keppandann á léik-
ana en Akureyringar hljóta
þó að fagna því að búlð er að
velja Harald Ólafsson til
keppni. Frjálsíþróttamennirn-
ir og júdómennirnir munu
einnig standa vel fyrir sínu
en meirl vafi leikur hins vegar
á þvi hvað sjö fararstjórar
og þrír sundmenn hafa að
gera á þessa leika.
• 17
fararstjórar?
Því hefur annars heyrst fleygt
að hjörtu hinna ólíklegustu
manna innan ÍSÍ hafi tekið
kipp þegar þeir fréttu um
möguleika handknattleiks-
liðsíns á þátttöku í OL. Þessír
garpar íslenskrar íþróttafor-
ystu hugsuðu sem svo að
fyrst 12 manna keppendalið
gæfi tilefni til að senda sjö
fararstjóra þá hlyti 16 manna
handknattleikslið að kalla á
eina tíu fararstjóra til viðbót-
ar. Líklega verður þeim þó
ekki að ósk sinni þvi heyrst
hefur að fararstjórarnir með
handknattleiksmönnunum
verði aðeins tveir, auk þjálf-
araog aðstoðarmanns hans.