Dagur - 15.12.1987, Qupperneq 6
V - RUOAQ - Y8er VádrnQKSb .er
6 - DAGUR - 15. desember 1987
Laus staða
Staða háskólamenntaðs fulltrúa í hlutafélaga-
skrá er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist ráðuneytinu fyrir715. janúar n.k.
Viðskiptaráðuneytið, 11. desember 1987.
C------------------------'N
Útboð
VEGAGERÐIN
Norðurlandsvegur í Hörgárdal
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
ofangreint verk.
Lengd vegarkafla 9,0 km, fyllingar 90.000
m3, fláafleygar 20.000 m3, burðarlag 50.000
m3 og tvær steyptar smábrýr 5 m.
Verki skal lokið 1. september árið 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 16. desember nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 11. janúar 1988.
V
Vegamálastjóri.
J
Jóladraumur
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér bókina Jóladraumur eftir
Charles Dickens. hetta er endur-
útgáfa sögunnar sem kom út fyrir
síðustu jól. Þorsteinn frá Hamri
þýddi söguna.
Fáar sögur hafa notið slíkra
vinsælda sem þetta sígilda jóla-
ævintýri. Sagan segir frá nirflin-
um Scrooge sem hatast við jólin
og boðskap þeirra. En harin á
sögulega jólanótt í vændum.
Furðulegar sýnir ber fyrir augu
hans, og þegar hann rís úr rekkju
á jóladag lítur hann heiminn öðr-
um augum en áður...
Getraunaseðill desembermánaðar
Vinningur desembermánaðar verður dreginn út þann 13. janúar n.k. Þá kemur
í Ijós hvaða áskrifandi hlýtur draumaferö fyrir tvo til Thailands með Samvinnu-
feröum/Landsýn að verðmæti krónur 160.000.00.
Vinsamlegast svarið eftirfarandi spurníngum:
Hver segir í viðtali við Dag: „Á meðan fjórlr eru í kórnunt höldum við
áfram.“
Hvað heitir sá mæti maður sem ræðir um fastgengísstefnu á forsíðu
blaðsins?
Svar við 1...........................1........................
Svar við 2.............................^......................
Nafn: ........................................................
Heimili: .....................................................
Staður: ...............................Sími: .................
□ Ég óska eftir að gerast áskrifandi
□ Er þegar áskrifandi Ath!
Getraunaseðill desembermánaðar
Póstleggið til: birtist aðeins í þetta eina skipti, enda
eru spurningarnar tengdar efni blaðs-
uagur insidag.
Áskrifendagetraun GangÍ ykkur Vel.
Strandgötu 31 Pósthólf 58 602 Akureyri
Jóladraumur er 134 bls., prýdd
litmyndum og teikningum eftir
einn fremsta myndlistarmann
Breta, Michael Foreman. Bókin
er prentuð í prentsmiðjunni
Odda.
Heiður í húfi
- metsölubók Jeffrey
Archer á íslensku
Frjálst framtak hf. hefur gefið út
bókina Heiður í húfi eftir breska
rithöfundinn Jeffrey Archer.
Bókin nefnist á frummálinu A
Matter of Honour og kom fyrst
út í Bretlandi í fyrra. Hefur hún
síðan verið nær óslitið efst á lista
yfir metsölubækur þar og hefur
þegar verið þýdd á mörg tungu-
mál.
Höfundur bókarinnar, Jeffrey
Archer er í hópi vinsælustu rit-
höfunda í heimi og kvikmyndir
og sjónvarpsmyndaflokkar hafa
verið gerðir eftir flestum bóka
hans. Hérlendis hefur t.d. mynd
sem byggð var á sögu hans, Kane
og Abel verið sýnd í sjónvarpinu.
Jeffrey Archer hefur oftsinnis
verið í sviðsljósinu vegna einka-
mála sinna. Hann var kjörinn á
breska þingið þegar hann var
aðeins 29 ára en varð síðan að
segja af sér þingmennsku og hóf
þá rithöfundaferil sinn. Hann
sneri sér síðan aftur að stjórn-
málum, var aftur kjörinn á breska
þingið og var orðinn varaformað-
ur breska íhaldsflokksins en varð
að segja af sér í fyrra vegna ásak-
ana um viðskipti við vændiskonu
sem hann var síðar sýknaður af.
Sendiboðar
næturinnar
- eftir David Morrell
Iðunn hefur gefið út nýja bók eft-
ir David Morrell: Sendiboðar
næturinnar, en höfundurinn nýt-
ur mikilla vinsælda og bækur
hans seljast í stórum upplögum
um allan heim. Eftir fyrstu bók
hans, / greipum dauðans (First
Blood) var gerð santnefnd
kvikmynd. Seinni bækur Morrell,
Angist, Sfðasta herförín, Bráð
banaráð og Sendiboðar nætur-
innar þykja af gagnrýnendum
með bestu spennubókum sem
komið hafa út undanfarna ára-
tugi.
Magnea Matthíasdóttir þýddi.
Ásta litla
lipurtá
Æskan hefur gefið út bókina
Ásta litla lipurtá eftir Stefán
Júlíusson. Sagan birtist fyrst sem
framhaldssaga í barnablaðinu
Æskunni 1940 og var gefin út í
bók um haustið. Höfundurinn,
sem þá þegar var landsþekktur
fyrir bækur sínar um Kára litla,
samdi söguna að beiðni Margrét-
ar Jónsdóttur ritstjóra.
Ásta litla lipurtá er ekki síður
sígild perla en sögurnar um Kára
litla. Sagan er nú gefin út í sjö-
unda sinn. Það segir meira en
mörg orð.
Bókin er 61 blaðsíða. Hún er
unnin í Prentsmiðjunni Odda hf.
Tryggvi Magnússon teiknaði
myndir en Þórdís dóttir hans lit-
aði mynd á kápu. Almenna aug-
lýsingastofan hf. sá um útlit á
kápu.
Leiðrétting
Prentvillupúkinn er oftast tal-
inn til vandræða enda veldur
hann oft á tíðum usla.
í Degi 11. desember s.l. var
skýrt frá kjarahækkun starfs-
manna Akureyrarbæjar og þar
sagt að persónuuppbót í desem-
ber yrði 35% af 67. launaflokki.
Þarna var á ferðinni prentvillu-
púki sem vildi meira en rétt er,
því uppbótin er miðuð við 65.
launaflokk.
Beðist er velvirðingar á þess-
um leiðu mistökum. VG
LANDLÆKNIR
Hlífum
börnum
viö
tóbaksreyk!
Kaupfélag
Eyfirðinga