Dagur - 17.12.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 17. desember 1987
Bangsi gamli
Komin er út hjá Iðunni ný barna-
bók sem heitir Bangsi gamli og er
eftir Jane Hissey.
Hér er á ferðinni saga úr
barnaherberginu þar sem leik-
föngin spretta fram lífi gædd og
taka til sinna ráða þegar einn elsti
vinurinn, hann Bangsi gamli, hef-
ur verið settur í kassa og borinn
upp á háaloft. Og hver kannast
ekki við snjáða gamla bangsann
sem krakkarnir hafa ólmast með
og kúrt hjá? En nú verður að
bjarga bangsa úr prísundinni.
Fallegar myndir á hverri síðu
segja jafnframt söguna. Þetta er
bók sem börn geta skoðað aftur
og aftur.
Þórgunnur Skúladóttir þýddi.
Norræn
ævintýri I
Bókaútgáfa Máls og menningar
hefur gefið út fyrstu bókina í nýj-
um flokki ævintýra og nefnist hún
Norræn ævintýri I.
í þessu bindi eru allar þýðingar
þeirra Steingríms Thorsteinsson-
ar og Brynjólfs Bjarnasonar á
ævintýrun] H.C. Andersen og
auk þess sögurnar Álfhóll í þýð-
ingu Sigurðar A. Magnússonar
og Leggur og skel eftir Jónas
Hallgrímsson. Ennfremur koma
nú ævintýri eftir Finnann Zachris
Topelius í fyrsta sinn út á
íslensku í þýðingu Sigurjóns
Guðjónssonar. Bókin er í stóru
broti, því sama og Þúsund og ein
nótt og íslenskar þjóðsögur og
ævintýri, safn Einars Ólafs Sveins-
sonar, sem kom út í fyrra. Nor-
ræn ævintýri er 616 bls. að stærð,
prýdd fjölda fallegra 19. aldar
teikninga. Prentsmiðjan Oddi hf.
prentaði. Bókin er gefin út með
styrk ú Norræna þýðingarsjóðn-
um.
Jólagrauturinn
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér bókina Jólagrauturinn eft-
ir sænska myndlistarmanninn og
rithöfundinn Sven Nordquist.
Bókin er ætluð yngstu kynslóð-
inni og segir frá ævintýralegum
atburðum sem eitt sinn gerðust á
aðfangadagskvöld.
A bóndabænum sinna búálf-
arnir öllu því sem mannfólkið
kemur ekki í verk eða gleymir að
gera. En ef fólkið gleymir að fara
út með grautarskál handa búálf-
unum á aðfangadagskvöld, þá
boðar það óhamingju á bænum í
heilt ár. - Og þessi jól, sem sagan
segir frá, höfðu menn næstum því
gleymt grautnum.
Jólagrauturinn er 28 bls.,
prýdd stórum litmyndum á hverri
síðu. Þorsteinn skáld frá Hamri
þýddi söguna. Bókin er prentuð í
Svíþjóð.
Örlagasaga
Iðunn hefur gefið út bók sem
nefnist Örlagasaga og er eftir
hinn kunna þýska rithöfund
Johannes Mario Simmel, en bæk-
ur hans hafa selst í milljónaupp-
lögum og verið þýddar á fjölda
tungumála.
í kynningu útgefanda á bók-
inni segir: „Mögnuð og átakanleg
lýsing á grimmum og miskunnar-
lausum örlögum og mannlegri
þjáningu, saga sem grípur les-
andann heljartökum og heldur
honum föngnum frá upphafi til
enda. Þetta er saga manns sem er
hrakinn út í ógæfuna af eigin
ástríðum og örvæntingu, sjúkur á
sál og líkama. Eitt sinn var hann
elskaður og dáður um allan heim-
inn, en nú er hann flestum
gleymdur. Eftir tuttugu ára bið
fær hann loks eitt einasta tækifæri
til að sýna hvað í honum býr. En
er það of seint?...“
Ævisaga Jón-
asar læknis
Náttúrulækningafélag íslands
gefur út ævisögu Jónasar Krist-
jánssonar læknis, í tilefni af 50
ára afmæli félagsins, enda er á
engan hallað þótt hann sé talinn
helsti brautryðjandi náttúru-
lækningastefnunnar hér á landi.
Ævi Jónasar var viðburðarík
frá því hann barn að aldri missti
móður sína og hét því að verða
læknir. Honum tókst að brjótast
til mennta og verða vinsæll læknir
í tveimur erfiðum og víðlendum
héruðum, Fljótsdalshéraði og
Skagafirði. Eftir að hann lauk
embættisstarfi sínu sem læknir
hóf hann á fullum krafti nýtt starf
að náttúrulækningamálum. Hann
var ötull að boða betri lífshætti
og lifði að sjá óskadraum sinn,
Heilsuhæli NLFÍ, rísa. Á engan
er hallað þótt hann sé talinn
helsti brautryðjandi náttúru-
lækningastefnunnar á íslandi.
Einn úr klíkunni?
Iðunn hefur gefið út nýja ungl-
ingabók eftir verðlaunahöfund-
inn Ulf Stark, en bók hans Ein at
strákunum vakti mikla athygli
meðal íslenskra unglinga á síð-
asta ári. Þessi nýja bók nefnist
Einn úr klíkunni?
Hér segir frá Lassa, en mamma
hans tekur allt í einu upp á því að
fara að búa með forríkum tann-
lækni, sem ákveður að breyta
Lassa í fyrimyndarungling. Klík-
an rekur upp stór augu þegar
hann birtist klipptur og strokinn í
ítölskum tískufötum og kann all-
ar árnar á Spáni utanbókar.
Áður var Lassi bara venjulegur
töffari í gallabuxum og striga-
skóm og hafði engar sérstakar
áhyggjur af því þótt kennarinn
teldi hann engan fyrirmyndar-
nemanda. Hann var hæstánægð-
ur með að sitja aftast í
bekknum. . .
Er Lassi að breytast í hund-
leiðinlegan montrass? Eiginlega
finnst honum það sjálfum, og
hann ákveður að grípa til rót-
tækra ráðstafana. . .
Njörður P. Njarðvík þýddi.
Tumi og Tóta
Komin er út hjá Iðunni mynda-
bók eftir hinn velkunna danska
teiknara Svend Otto S. Nefnist
hún Tumi og Tóta.
Þorsteinn frá Hamri þýddi
söguna, en hún segir frá krökk-
um frá tveim ólíkum heimum.
Tumi er tröllabarn og býr hátt
uppi í fjöllum, en Tóta er
mannsbarn.
Einn daginn leiðist Tuma öll
lifandis skelfing af því að hann
hefur engan til að leika sér við.
En þá dettur honum það ráð í
hug að bjóða Tótu í heimsókn og
það lifnar nú heldur yfir honum
þegar hann fær félagsskap. Tröll-
in slá upp veislu og stíga dans svo
að fólkið niðri í byggðinni hélt að
þrumuveður geisaði í fjöllunum!
Tumi og Tóta skemmta sér
konunglega og hver veit nema
þau eigi eftir að hittast oftar...
TUMI
_ OG
TÖTA
SVEND OTTO S.
Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5
Það verður mikið um að vera
í Hrísalundi í dag fimmtudag
Kynning verður
frá kl. 2-6
Kynnt verður:
otker
sítrónu- og
ananasfromage
Jólasveinarnir
lofa ab líta
inn kl. 3.00
(Kjötkrókur -
Kertasníkir og
Hurðaskellir)
Við höfum margt að bjóða úr kjötborði svo sem:
Kanínukjöt ★ Kryddlamb ★ Svínakjöt
★ Nautakjöt og margt fleira
Nýtt
greiÖslukorta-
tímabil
hafið
Velkomin
i
Hrísalund
vtSA
Hrísalundur
Elías
kemur heim
Iðunn hefur gefið út nýja bók um
hinn góðkunna Elías eftir Auði
Haralds og nefnist þessi nýja
saga: Elías kemur heim.
Þetta er fimmta bókin um hina
sívinsælu söguhetju sem skemmt
hefur íslenskum lesendum með
ótrúlegum uppátækjum og ein-
lægni sinni. Hver bók segir sjálf-
stæða sögu og hér fylgjumst við
með Elíasi og fjölskyldu hans
þegar þau eru flutt heim til
Islands aftur. Eins og segir í
bókarkynningu: „Það hefði átt að
verða mjög friðsamlegt, því
Magga móðursystir mömmu varð
eftir í útlöndum. En það er eng-
inn friður. Pabbi Elíasar sér fyrir
því...
Brian Pilkington gerði mynd-
irnar.